Morgunblaðið - 25.05.1963, Síða 23
Laugardagur 25. maí 1963
MOR Cl’ vn TAÐIÐ
23
Hver gestur greiöi 25 kr. gjald
UM ÞESSA helgi koma til fram-
kvæmda lög um breytingar á lög-
um um skemmtanaskatt og þjóð-
leikhús. Samkvæmt þeim verða
gestir 1. flokks veitingastaða að
greiða 10 krónur í skemmtana-
og manningarsjóðsgjald. Auk
þess hafa veitingamenn ákveð-
ið, að jafnhliað því gjaldi
verði innheimt 10 króna fata-
gjald og 5 króna gjald tii við-
bótar vegna kostnaðar við fram-
kvæmd laganna. Gesturinn verð-
ur því að greiða alls 25 krónur.
Þetta gildir frá klukkan 8.30 á
kvöldin, nema á föstudögum og
laugardögum, þá frá kiukkan 7
síðdegis.
Samband veitinga- og gistihúsa
eigenda átti í gaer fund méð blaða
mönnum þar sem skýrt var frá
því, að þessi breyting kæmi til
framkvæmda um þessa helgi.
Formaður sambandsins, Lúð-
víg Hjálmtýsson, lagði ríka
áherzlu á, að SVG væri alger-
lega á móti þessari breytingu á
skemmtanaskattslögunum, því
hún þýddi aukna fyrirhöfn og
kostnað fyrir veitingahúsin, auk
í gær þegar starfsmenn frá V éltækni voru að vinna með stór-
um krana í grunninum á Austurstræti 17, þar sem verzlunin
L. H. Muller var, sprakk brún undan krananum, og steyptist
þetta flykki ofan í grunninn. Engin slys urðu á mönnum. í gær
kvöldi var búið að ná upp krananum, og byrjað að vinna með
honum aftur. — Ljósm. Sv. Þorm.
Guðm. Einarsson
frá Miðdal látinn
GUÐMUNDUR Einarsson, mynd-
höggvari, lézt í Landsspítalanum
é uppsitigningardag eftir stutta
en þunga legu. Guðmundur Ein-
arsson var fyrir löngu þjóðkunn-
ur maður, fjöllhæfur listamaður
og átti miikinn og langan þábt
í fjölmörgu, er til heilla og menn
inga rhiorfði með þjóðinni.
orðið. Azkenazy hefði talað við
Pétur Pétursson, sem hefur milli
göngu um tónleikana, og sagt
honum hvernig á stæði. Væri af
hans hálfu unnt að halda tónleik-
ana svo seint, væri Azkenazy
reiðubúinn að koma. Ekki kvaðst
Þórunn vita hvort þau kæmu þá
beint til íslands frá Moskvu, eða
dveldust fyrst einhvern tíma í
London.
★ ★ ★
Pétur Pétursson staðfesti við
Morgunblaðið í gaer, að tónleik-
unum hér yrði að fresta þar sem
Azkenazy væri bundinn í
Moskvu, þar til um miðjan júní-
mánuð. Af sinni hálfu sagði Pétur
ekkert því til fyrirstöðu að halda
hljómleikana, — þótt tíminn væri
að vísu óhentugri, þar sem fólk
færi senn að flykkjast úr borg-
inni. Kvaðst Pétur nú aðeins bíða
eftir því, að Azkenazy léti sig
vita ákveðið, hvenær hann hefði
lokið skyldum sínum í Moskvu
og gæti komið til íslands.
— Azkenazy
Framhald af bls. 1.
höfðu áður í Moskvu og væri
ekki ástæða til að ætla annað en
þau færu þaðan fljótt eftir hljóm
leikana 15. júní.
Aðspurð um það, hvort þau
kæmu ekki til fslands, svo sem
fyrirhugað hafði verið, kvaðst
Þórunn vonast til, að af því gæti
Eddukvæði gefin
út í Rússlandi
Eddukvæðin í heild hafa nú
verið þýdd á Rússnesku. Þýð-
andi er A. Korsutn. Kvæðin
eru gefin út í bókarformi af
Visindaháskóla Sovétríkjanna
Formála ritar Mikhail Steblin
Kamensky, prófessor, sem
lagt hefur stund á íslendinga-
sögur, norrænu og Norður-
landabókmenntir síðari tíma.
Nokkur Eddukvæðanna
hafa áður komið fyrir augu
rússneskra lesenda, þau fyrstu
þegar á 18. öld.
þess sem gestum þeirra væri
íþyngt með þessu gjaldi.
Kvað Lúðvíg veitingahúsunum
nauðugur einn sá kostur að fram-
fylgja þessum lögum. Samkvæmt
þeim yrðu gestir að greiða 10
króna skemmtanagjald. Hefði
samizt við yfirvöldin um, að
gjaldið skyldi innheimt frá klukk
an 7 síðdegis. Hefðu yfirvöldin
í fyrstu krafizt þess, að gjaldið
yrði innheimt frá klukkan 6 e.h.
á hverjum degi, en síðar fallizt á
fyrrgreint fyrirkomulag.
Lúðvíg kvað veitingahúsin
þurfa að greiða allan kostnað af
innheimtu gjaldsins, svo sem
miðaprentun, tæki og manna-
hald. Þess vegna hefði verið
ákveðið, að þau fengju 5 krónur
á hvern miða til að standa
straum af þeim kostnaði.
Þá hefði einnig verið ákveðið,
til að minnka útgjöld veitinga-
húsanna af skattheimtunni og
auðvelda kerfið vegna gesta, að
innheimta fatagjaldið um leið.
Þannig, að hver gestur greiði 25
krónur. Þetta gjald greiðist, hvort
sem gesturinn er með yfirhöfn
eða ekki.
Þeir, sem búa á hótelum og
gestir þeirra, þurfa ekki að
greiða fyrrgreint gjald, enda fá
þeir sérstakan miða frá dyra-
verði. Allir aðrir verða að greiða
gjaldið. Ekki verður leyft að fara
út af veitingastað og koma aftur
inn gegn sama miða. Slíkt verður
ekki hægt vegna hættu á misnotk
un miðans.
Lúðvík sagði, að fyrrgreint
gjald verði ekki tekið af gestum
sé um einkadansleiki félaga að
ræða.
Einnig lagði formaður SVG
ríka áherzlu á, að það væri krafa
sambandsins, að fullt frelsi yrði
um lokunartíma veitingahúsa og
hefði SVG átt viðræður við rík-
isvaldið um það allt frá árinu
1960. Ekki sízt nú, eftir þessa
lagabreytingu, væri full þörf á að
fá frelsi í þessum málum. Það
væri ekki sanngjarnt, að gestir
greiddu gjaldið hvort sem opið
væri til kl. 11.30 eða klukkan L
Sjóvá greiddi 51
millj. kr. í tjðnsbætur
AÐALFUN DUR Sjóvátrygging-
arfélags íslands hf., var haldinn
föstudaginn 24. maí í húsakynn-
um félagsins í Ingólfsstræti nr. 5.
Formaður félagsstjómarinnar,
Halldór Kr. Þorsteinsson skip-
stjóri, minntist í upphafi fund-
arins Hallgríms A. Tulinius stór-
kaupmanns, sem var einn af
stofnendum félagsins og í stjórn
í yfir 20 ár.
Fundarstjóri var Sveinn Bene-
diktsson framkvæmdarstjóri, en
fundarritari Axel J. Kaaber skrif
stofustjóri.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Stefán G. Björnsson flutti
skýrslu félagsstjórnar um rekst-
ur ag hag félagsins og skýrði
ársreikninga þess.
Samanlögð iðgjöld af sjó-,
bruna-, bifreiða-, ábyrgða- og
endurtryggingum námu um 83,7
milljónum króna, en af líftrygg-
ingum tæplega kr. 4.240.000,00,
eða iðgjöld samtals tæplega 93
milljónir.
Er það um kr. 13.500.000,00
hærri iðgjaldaupphæð en árið
1961.
Fastur eða samningsbundinn
afsláttur til viðskiptamanna er
þegar frádreginn í upphæðum
þessum, en afsláttur og bónus til
bifreiðaeigenda einna nam t. d.
tæplega 4,7 milljónum.
Stærsta tryggingadeildin er
Sjódeildin með nær 51 milljóna
króna iðgjöld.
í tjónabætur voru greiddar um
51 milljón, en í laun og kostnað
um 8 milljónir, eða um 9% af
iðgjöldunum.
Iðgjalda og tjónavarasjóðir,
svo og vara- og viðlagasjóðir eru
nú um 61 milljón króna. Er Líf-
tryiggingadeildin ekki talin með
í þessum tölum.
Iðgjaldavarasjóðir og vara- og
viðlagasjóðir hennar eru hins
vegar um 47 milljónir króna, svo
að samanlagðir varasjóðir félaigs
ins eru nú um 108 milljónir.
Nýtryggingar í Líftryggimga-
deildinni voru 179, að upphæð
8,1 milljón.
Við árslok voru líftrygigíngar
í gildi að upphæð um 129 milljón
ir króna.
V erðbréf aeign félagsins nam
um 89 milljónum króna við árs-
lok, en lán út á líftryggimgar-
skírteini um 9,5 milljónir.
Aðalfundurinn samþykkti til-
lögu félagsstjórnarimnar um út-
gáfu jafnaðarhlutabréfa til hlut-
hafa. Skuldbindingar hluthafa
að upphæð kr. 937.500,00 verða
nú leystar inn af viðlagasjóðum
félagsins og innborgað hlutafé
með því hækkað í kr. 1.250.000,-.
Stjórn félagsins skipa sömu
menn og áður, Halldór Kr. Þor-
steinsson skipstjóri, Lárus Fjeld-
sted hæstaréttarlögmaður, —
Sveinn Benediktsson fram-
kvæmdarstjóri, Geir HalLgríms-
son borgarstjóri og Ingvar Vil-
hjálmsson útgerðarmaður.
Banaslys í
Hvassafelli
LAUGARDAGINN 18. þ. m. vildi
það slys til í ms. Hvassafelli, sem
er til viðgerðar í skipasmíðastöð
í Rotterdam, að Lárus Hjálmars-
son, smyrjari á skipinu, féU af
stigapalli um hádegisbilið, er
hann var á leið í land og lenti
niður í þurrkví skipasmíðastöðv-
arinnar. Lézt hann samdægurs.
Lárus heitinn átti heima að
Hjarðarholti við Reykjanesbraut
og lætur eftir sig konu og stjúp-
dóttur.
)#*-7é7 | f mH H jnwnjfj % JUW á ~ 'to * ouioptus * ^íosas yn M!?UVS/ VN y\
MIKIÐ hefur hlýnað á norð-
anverðu landinu frá því fyrstu
daga vikunnar. Þá fór hitinn
ekki upp fyrir frostmark. Á
hádegi í gær var 5 stiga hiti
þar. Á Staðarhóli í Aðaldal
var 15 stiga hiti, en í Kaup-
mannahöfn var 22 stiga hiti.
Skrifstofan opin í dag
sími 17103
Gerið skil strax í dag. Happdrætti Sjálfstæðisflokksins