Morgunblaðið - 30.05.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.05.1963, Blaðsíða 1
32 síður 50. árgangur 120 tbl. — Fimmtudagur 30. maí 1963 Prentsmiðja Morgunb’aðiiinf Játnlng kommúnista í itauðu bókinni, sem nú er komin enn einræði á Telja sér skylt að taka svari komm'ún- istarikjanna í einu og öllu Í í RAIJÐU BÓKINNI, leyniskýrslum SÍA, sem í dag félags íslendinga austantjalds). kemur út í bókarformi, lýsa kommúnistar því afdráttarlaust yfir, að þeir telji rétt og sjálfsagt að uppræta lýðræðislega stjórnarhætti. Þannig segja þeir í einni af skýrslum sínum: $ „Við álítum, að rétt sé og sjálfsagt að leyfa ekki um- ræður né gefa fólki kost á að velja um neitt nema á grund- velli sósíalismans“. | Það er ekki aðeins, að „íslenzkir“ kommúnistar keppi að því að afnema með öllu lýðræðisskipulagið, heldur finnst þeim jafnvel, að ekki sé gengið nógu langt í þessum efnum í kommúnistaríkjunum austan járntjalds. Þeir telja t.d. sjálfsagt, að afnumdar verði þær málamyndakosningar, sem fram fara í kommúnistaríkjunum, og valdhafarnir lýsi því yfir í eitt skipti fyrir öll, „að þeir hefðu tekið völdin og létu engan komast upp með mótmæli, stefnubreytingar eða ann- að múður“. Virðast þeir því að þessu leyti jafnvel enn for- hertari en hinir kommúnísku einræðisherrar. Hver yrðu ör- lög íslenzku þjóðarinnar, ef þessir menn fengju aðstöðu til að framkvæma stefnu sína hér á landi? ^ Þegar þessa er gætt þarf engan að undra, þó að kommúnistar hér á landi hafi hugsað með hryllingi til þess dags, er hinar opinskáu játningar þeirra kæmu fyrir augu íslenzks almennings. Það er skiljanlegt, að formaður „ís- lenzka“ Kommúnistaflokksins, Einar Olgeirsson, skuli hafa krafizt þess, að öllum leyniskýrslum SÍA yrði kastað á eld. | í Rauðu bókinni koma fram ótalmörg dæmi um hin nánu tengsl kommúnista hér á landi við „bræðraflokkana“ í einræðisríkjum Austur-Evrópu og húsbóndahollustu þeirra gagnvart valdhöfum þar. Ganga kommúnistar hér á landi m.a.s. svo langt í undirgefni sinni, að þeir telja sér beinlínis skylt að taka svari kommúnistaríkjanna hvenær sem orði er á þau hallað og verja öll ofbeldisverk þeirra. y í leyniskýrslum SÍA er einnig að finna mikilsverðar upplýsingar um hina stöðugu valdastreitu og innbyrðis ill- deilur „íslenzkra“ kommún- istaleiðtoga. Kemur þar fram, að forystumenn Kommúnista flokksins hafa margsinnis á undanförnum áruin óttazt klofning hans. Brizl um „svik við flokkinn“ eru daglegt brauð og formaður flokksins verður jafnvel að taka því að vera kallaður „flokkssvik- ari“. t Ástandinu í Kommún- istaflokknum lýsir fyrrver- anái framkvæmdastjóri hans, Eggert Þorbjarnarson, svo: „Klíkuskapur og klíkustarf- semi hefur þróazt“. * Hinn aldni — og nú út- skúfaði — leiðtogi flokksins lýsir óánægju sinni með alla starfshætti hans á þessa leið: „Hverju hefi ég verið and- vígur? Stefnuleysi og hcnti- stefnusjónarmiðum . . . Flokk urinn, sem áður stóð heill í öllum málum, var nú sem rekald. Trausti alþýðunnar var misboðið . . . Flokkurinn hefur sett niður og glatað trausti . . .“ Rauð'a bókin, sem kemur út í dag, eins og fyrr segir, er gefin út af Heimdalli, F.U.S., en eins og menn rekur vafalaust minni til, birti Morgunblaðið fyrir nokkrum mánuðum allmikið af lcyniskýrslum SÍA (Sósíalista- Morgunblaðið birti þó aðeins til- tölulega lítinn hluta skýrsln- anna, en þorri þeirra birtist í Rauðu bókinni, sem er 274 bls. og fæst nú í bókaverzlunum. Bókinni er skipt í þrjá aðal- hluta. í fyrsta hluta hennar eru lýsingar á harðstjórninni í komm únistaríkjum Austur-Evrópu; í öðrum hluta hennar eru skýrslur um valdastreituna í Kommún- istaflokknum hér á Iandi og samband hans við kommúnista- ríkin; í þriðja hlutanum eru svo einkum skýrslur um innanfélags- mál „Sósíalistafélags íslendinga austantjalds“, sem fyrst og fremst hefur verið skipað íslenzk um kommúnistastúdentum, er sendir hafa verið í fóstur til „fé- laganna“ austan járntjalds. Framan við hvern hluta bók- arinnar eru sérstök inngangsorð, og birtast hér á eftir glefsur úr þeim: * EINAR BAR LOF Á ULBRICHT f formálsorðum I. hluta bókar- innar segir m.a. svo: Enda þótt hinar áhrifamiklu lýsingar kommúnista á ástand- inu í kommúnistaríkjunum séu Forsíða Rauðu bókarinnar, sem kemur í bókaverzlanir í dag vissulega athyglisverðar, þá er þó viðhorf þeirra til hinna ólýð- ræðislegu stjórnarhátta og til- raunir þeirra til að gefa skýring- ar á harðstjórninni enn athyglis- verðari og þýðingarmeiri. Það eru í sjálfu sér ekki nýjar upplýsingar fyrir þorra íslend- inga, að í þessum ríkjum sé í skjóli innlends og erlends her- valds haldið uppi ógnþrungnasta einræðisskipulagi, sem sagan greinir. Hitt er lærdómsríkara fyrir íslendinga, að foringi ís- J. F. Kennedy Bob Hope Áttu afmæli i gær Forsetinn varð 46 ára, leikarinn 60 ára Hollywood, 29. maí — AP. KVIKMYNDALEIKARINN og liáðfuglinn frægi, Bob Hope, varð sextugur í dag. Hefur honum verið sýndur margs konar heiður, í tilefni þess. Um afmælið sjálft, sagði Ilope: „Ég er kominn á þ»nn aldur, að kertin á afmælis- tertuna eru orðin dýrari, en tertan sjálf“. Afmælisdag Hope ber upp á sama dag og afmæli Banda- ríkjaforseta, John F. Kennedy, sem varð 46 ára í dag. Þeir skiptust á skeytum, og því lýsti gamanleikarinn þannig: „Hann þarf ekki að reyna að vera fyndinn, eins og ég“. Fyrir 4 árum þjáðist Hopc af blæðingum í auga. Þá var honum skipað að taka lífinu með meiri ró, framvegis. Hope óhlýðnaðist. „Ef ég á að fara að taka líf- inu „með ró“, þá er það eins og einhver segði Elizabeth Taylor að hætta að umgang- ast karlmenn. Ef ég fæ ekki að heyra áhorfendur hlæja, þá get ég eins dáið“. Hope starfar enn af sama krafti og hann gerði fyrir 20 árum. Sennilega mun hann hafa meira að gera í ár, en um langt skeið. Innan fárra vikna liefst hann handa við gerð nýrrar kvikmyndar „A Global Affair“, en þar fer hann með aðalhlutverkið. Þá mun hann koma fram í mörg- um sjónvarpsþáttum á -jistu mánuðum. Er kona Hope, Dolores, (þau hafa verið gift í 31 ár), var að því spurð, hvað henni fyndist, er maður hennar fyllti sjötta áratuginn, sagði hún: „Kímni eru hans trúarbrögð“. lenzkra kommúnista, Einar Ol- geirsson — sem sjálfur hefur fengið sérstaka skýrslu frá flokksbræðrum sínum í Austur- Þýzkalandi um harðstjórn Ul- brichts og flokks hans þar í landi — skuli lýsa því yfir á fundi í flokksfélagi sínu, að hann telji Kommúnistaflokk Austur- Þýzkalands forystuflokk „vest- ur-evrópskra“ kommúnista og bera sérstakt lof á Ulbricht sjálf- an fyrir stjórnvizku. Lærdóms- ríkastar eru þó e.t.v. hinar opin- skáu yfirlýsingar kommúnista í skýrslum þeirra, sem farið skyldi með sem algjört trúnaðarmál, um fyrirlitningu þeirra á lýð- ræðislegu þjóðskipulagi. „Við álítum, að rétt sé og sjálf- sagt að leyfa ekki umræöur né gefa fólki kost á að velja um neitt nema á grundvelli sósíal- ismans“, segja þeir í einni af skýrslum sínum frá Austur- Þýzkalandi, er þeir hafa lýst þeim sýndarleik, sem þar í landi kallast „kosningar". Þannig er viðhorf íslenzkra kommúnista til lýðræðislegra stjórnarhátta. Þeir telja „rétt og sjálfsagt" að af- nema frjálsar kosningar og önn- ur grundvallarmannréttindi — þ.e. þegar þeir sjálfir hafa einu sinni náð völdunum í sínar hend- ur. En hvað er það, sem SÍA- menn telja ámælisvert í komm- únistaríkjunum? Það kemur vel fram í tveimur eftirfarandi til- vitnunum: „Því ekki að koma til dyranna, eins og maður er klæddur, segja það opinskátt, að hér ríki „al- Framhald á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.