Morgunblaðið - 30.05.1963, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.05.1963, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 30. maí 1963 MORCVNVLAÐJD Landið okkar í Stykkishólmi eru mörg iðn- aðarfyrirtæki, misjafnlega stór í sniðum. Þar eru tvö trésmíða- verkstæði, tvær vélsmiðjur, tvö bifreiðaverkstæði, tvö rafmagns- verkstæði, skipasmíðastöð og pípugerð. Viðstaða okkar í bæn- um var ekki nógu löng til þess ®ð við gætum heimsótt hvert fyxirtæki og skoðað rekstur þess, en nokkra tíma fyrir brottför lit- um við inn í pípugerð Finns Sig- urðssonar, múrarameistara. Fyr- irtæki hans var stofnað í júní- mánuði árið 1933, og er því senn þrjátu íára. Þótti okkur vel við eiga að spjalla stundarkorn við Finn um pípugerð hans á þess- um tímamótum. „Fyrirtæki mitt hefur frá upp- Rör og gangsléttarhellur úr pípu gerðinni Hefur pjakkaö öll vatns- rörin í Stykkishólmi hafi steypt rör og plötur,“ sagði Finnur. „Fyrstu árin yar allt steypt í höndunum; það er erfitt verk og seinlegt að pjakka rör. Það er gert þannig, að steypan er látin í mótin næstum þurr og síðan er pjakkað og pjakkað með þar til gerðum áhöldum, svo hún verði jöfn, þétt og laus við holur." „Hefur alltaf verið nægur markaður fyrir framleiðsluna?" „Já, ég hef steypt allt sem ég hef verið beðinn um að steypa fyrir bæinn og íbúa hans, og nú síðustu árin, eftir að ég fékk full- komnar vélar, selt pípur og hleðslusteina víðs vegar á Snæ- fellsnesi. En ég hef alla tíð unnið að múrarastörfum samhliða pípugerðinni.“ „Hvað hefuruðu steypt helzt fyrir bæinn?“ „Ég steypti öll skolprör bæj- arins, áður fyrr rann allt frá- rennslið eftir tréstokkum; einnig allar hellurnar í gangstéttarnar. Þá var mikið að gera þegar vatns veitan var lögð um Stykkishólm á árunum 1947—1950, því öll rör- in voru framleidd í pípugerð minni.“ j i „Og þau hafa dugað vel?“ „Ja, það hefur að minnsta kosti ekki verið kvartað undan þeim,“ sagði Finnur og kímdi lítið eitt. >á sagði Finnur, að hann hefði gert tilraunir með að steypa hleðslusteina í húsbyggingar úr gjallsteini og hraunsteini. „Það er enginn efi á því,“ sagði Finnur, „að gjallsteinarnir eru eitthvert ádýrasta byggingarefni, eem völ er á hérlendis. Ég hef sótt gjallið upp í Hraunsland og Bjarnarhöfn. Mörg hús hafa verið hlaðin úr gjallsteini, bæði hér í Stykkishólmi, Staðarsveit og á Barðaströnd, og hafa þau hús enzt vel. Gjallsteinarnir þykja sérstaklega hentugir skilrúms- steinar, en þeir eru einnig ágætt efni í útveggi. Þetta hús, sem við sitjum í, er t.d. allt hlaðið úr Finnur Sigurðsson gjallsteini og hefur reynzt ágæt lega.“ „Hvað um vikurinn hér á Snæ- fellsnesi, hefurðu ekkert steypt úr honum?“ „Ég hef ekki trú á vikri sem traustu og endingargóðu bygg- ingarefni, en sem einangrunar- steinn er hann alveg prýðilegur, og hef ég steypt töluvert af vikri til einangrunar.“ „Hefurðu starfrækt pípugerð- ina einsamall alla tíð?“ „Nei, við vorum tveir sem stofnuðum fýrirtækið, ég og Sig- urður Siggeirsson. Hann hætti fljótlega og var ég lengstum einn eftir það, þar til strákarnir mínir komust á legg og fóru að rétta hjálparhönd." „Og fyrirtækið er alltaf að stækka?“ „Já, afköstin fóru fyrst að auk- ast eftir að ég fékk vélar til að vinna verkin, fyrir nokkrum ár- um. Nú er þetta leikur einn. Vél arnar geta steypt rör af stærðun- um frá 4 upp í 18 tommur. Nú get ég afgreitt rör af mörgum stærð- um og margt fleira með litlum fyrirvara og er vongóður um að geta aukið framleiðsluna veru- lega á næstu árum. Það eru margax framkvæmdir á döfinni á Snæfellsnesi um þessar mund- ir, sem hafa not fyrir rör og annað það sem steypt er í pípugerðinni, t.d. vegafram- kvæmdirnar, svo eitthvað sé nefnt.“ Þegar við kveðjum þennan röska og framtakssama múrara- meistara og konu hans og þökk- um fyrir góðar móttökur, bætir hann við: „Það er kannski rétt að geta þess, að pípugerðin hefur eiginlega alltaf verið aukastarf hjá mér. Ég er múrari að aðalat- vinnu.“ Við veitum því athygli, þegar við lítum til baka, að ekkert skilti er á húsinu, sem gefur til kynna að innan dyra sé steypt allt upp í 18 tommu rör. Auglýs- ingabrellur eru hér ekki í há- vegum hafðar. Einhver sagði: „Hann þarf ekkert að auglýsa, það þekkja hvort sem er allir í bænum pípugerð hans“ — Hg. Út Austurlandaför Framha'd af bls. 6. smeygja inn í bílinn kippu af leðurúlföldum og átt vísan kaup- anda. Lögreglupjónninn stjakaði honum burtu sem öðrum. Arab- anum virtust öll sun 1 lokuð til að ná í borgunina og bíllinn að því kominn að fara. Því var það, að vonleysið greip þennan söluglaða Egypta, og hann grét fögrum tárum þarna á gang- stéttinni. En íslenzki kaupand- inn fékk leyfi lögregluþjónsins til þess að gera upp við sölu- mann og andlit hans ljómaði að nýju. Nú þurfti lögregluþjónn- inn að víkja sér frá. Þá var aftur eins og mávager kæmist í æti Og nú var selt íyrir íslenzka tí- kalla. Aldrei fyrr hafði ég vitað þá njóta slíks trausts og slíkrar virðingar. Tveim tímum seinna hóf Gull- faxi sig til flugs af flugvellin- um í Kaíró. Egyptaland var kvatt með nokkrum söknuði, því ánægjulegt hefði verið að fá að dveljast lengur og kynnast bet- ur þessu sólbjarta landi Suður- álfu. Eftir stutta viðdvöl á flug- vellinum í Aþenu flugum við yf- ir Korintuflóanum endilöngum. Stórfenglega sýn gaf til þessa hálenda, hrjóstruga lands, þar sem vagga evrópskrar menning- ar stóð. Nú var förinni stefnt til Rómaborgar. Þegar við höfð- um aftur evrópska grund und- ir fótum, þótti fleirum en mér sem nú værum við á vissan hátt komin heim. Að enduðum þessum ferðaþátt- um vil ég þakka samferðafólki mínu fyrir ógleymanlegar sam- verustundir og alla alúð, flug- áhöfninni fyrir góða og örugga þjónustu og Ferðafélaginu Útsýn fyrir að hafa á ódýran og eft- irminnilegan hátt veitt mér út- sýn yfir þrjár heimsálfur. Stjórn Dýraverndunarfélags Reykjavíkur endurkjörin Síðastliðinn sunnudag var haldinn aðalfundur Dýravernd- unarfélags Reykjavíkur. Fund- arstjóri var Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi, sem er ritari Sam bands dýraverndunarfélaga ís- lands. Formaður félagsins, Mar- teinn Skaftfells flutti úkýrslu um störf stjórnarinnar og bar auk þess fram fjórar tillögur, sem allar voru samþykktar sam- hljóða eftir nokkrar umræður. Tillögunnar um olíu í sjó er getið í frétt annarsstaðar í blað- inu, en hinar 3 fara hér á eftir: 1. Aðalfundur DR, haldinn 26. maí 1963, felur stjórn fé- lagsins að hlutast til um við borgarráð, að settar verði regl ur um sauðfjárhald í borgar- landinu ef ekki verða sett lög sem banna sauðfjárhald og þeim einum leyft að hafa fé, sem veita því góða aðhlynn- ingu og hirðingu í hvívetna. Hliðstáeðar reglur verði einnig settar eigendum hesta. 2. Jafnfranit því sem aðal- fundur DR, haldinn 26. maí 1963, gerir miklar kröfur um góðan aðbúnað og hirðingu dýra, telur fundurinn rétt og eðlilegt, að þeim aðilum, ein- staklingum eða félögum, sem til fyrirmyndar eru í þessu efni, sé veitt viðurkenning í einhverju formi. Felur fundurinn stjórn fé- lagsins að • annast undirbún- ing og framkvæmdir. 3. Sumarið 1962 hlutu 6 hestar bana í flutningi utan. Höfðu þó verið gerðar þær endurbætur á stíum hestanna, að stía var fyrir hvern hest í stað 6 hesta áður. Með þessar staðreyndir fyrir augum, felur aðalfundur DR, haldinn 26. maí 1963, stjórn félagsins að beita öllum tl- tækum ráðum til að fyrir- hyggja útflutning hesta nema með flugvélum eða vel búnum gripaflutningaskipum. Annað getur ekki komið til álita. Stjórn félagsins var endurkjör in, en í stað Valdimars Sören- sen, gjaldkera, sem flutti af fé- lagssvæðinu, kom Viktoría Blönd al. í stjórn eru auk Viktoríu og Marteins: Hilmar Foss, ritari, Gottfred Bernhöft og Þórður Jónsson, meðstjórnendur. Morgunblaðið hafði tal af Mar- teini Skaftfells og kvað hann það höfuðbaráttumál félagsins nú, að koma upp geymslu, aflífunar- og hjúkrunarstöð fyrir dýr að Keld um. Haldnir hafi verið fundir með opinberum aðilum. Niður- staða þeirra funda er sú, að sögn Marteins, að allir þessir aðilar Aflífunartækið eru sammála um nauðsyn slikrar stöðvar og staðsetningu hennar að Keldum. Unnið verður að þessu máli og reynt að hrinda því í framkvæmd eins fljótt og auðið er. Annað aðalmálið, sagði Mar- teinn, er útflutningur hesta með skipum. Það segir sig sjálft að þegar 6 hestar drápust við slík- an flutning í fyrra, hljóta fleiri að hafa laskazt. Samkvæmt áliti yfirmanna skipanna og fulltrúa Eimskipafélagsins er það mikl- um erfiðleikum háð að flytja hesta með skipum, sem ekki eru innréttuð sérstaklega til þess. Dýraverndunarfélagið hefur nýlega fest kaup á aflífunartæki fyrir ketti og minni hunda, en þess hefur verið mikil þörf hér 1 Reykjavík. Látum engan miða úseldan - Gerið skil HAPPDRÆTTI SJALFSTÆÐISFLOKKSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.