Morgunblaðið - 19.06.1963, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.06.1963, Qupperneq 12
12 MORGVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. júní 1963 Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aða,lstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakió. SÆTTIR Á VINNU- MARKAÐNUM TMTenn fylgdust að vonum f af miklum áhuga með því, hvort takast mundi að sætta sjónarmið fulltrúa verkalýðsfélaga og vinnuveit enda nú um helgina. Hinn langi fundur, sem sáttasemj- ari hélt með deiluaðilum benti til þess, að ekki bæri mjög mikið á milli. Ríkisstjórnin hafði skorað á aðila að láta fara fram athug- un á því, hversu mikil kaup- hækkun mætti verða til þess að hún kæmi að gagni fyrir launþega og jafnframt að vinnustöðvunum yrði skotið á frest á meðan slík athugun færi fram. Deiluaðilar komu sér sam- an um launahækkun, sem er nálægt 7 Vá % og samþykktu jafnframt að verða við til- mælum ríkisstjórnarinnar um athugun á aðstöðu til launahækkana framvegis. Þar með er stigið mjög mik- ilvægt skref. Ef launþegar annars vegar og vinnuveit- endur hins vegar leggja sig fram um það að finna sam- eiginlega, hve mikil aukning þjóðarframleiðslu er og hve miklar kaupgreiðslur ætla megi að efnahagslífið þoli, má gera ráð fyrir, að hér muni í framtíðinni ríkja miklu meiri skilningur á nauðsyn heilbrigðrar stefnu í kjaramálum en verið hefur. Nú ríður á, að einskis sé látið ófreistað til að hraða þessum athugunum og koma á heilbrigðu og víðtæku sam- starfi launþega og vinnuveit- enda í þessum efnum og fleir- um. ÞJÓÐHÁTÍÐAR- DAGURINN TTin góðu tíðindi frá sátta- ■*"*■ fundi með vinnuveitend- um og launþegum bárust að morgni þjóðhátíðardagsins og vissulega urðu þau til að auka gleði manna og ánægju 17. júní um land allt. Sunnanlands hjálpaðist allt að við að gera þjóðhátíð- ardaginn sem ánægjulegast- an, þessi góðu tíðindi, ein- stakt góðviðri og ánægjan af því að hafa hér góða gesti frá Vesturheimi. Að vísu bar nokkuð á ölv- un unglinga, er á kvöldið leið, og er það vissulega hryggi- legt, ef drykkjuskapur meðal æskulýðsins fer vaxandi, og sérstaklega er leitt til þess að vita að finnast skuli hópur æskumanna, sem óvirða vill einmitt þennan dag með hálf- gildings skrílslátum. Sem betur fer var þó um undantekningar að ræða. Fjöldinn af æskufólkinu, jafnt og öðrum, naut dagsins og kom prúðmannlega fram. Það má því segja, að þenn- an þjóðhátíðardag hafi verið bjart yfir og menn hafi horft vonglaðir fram á veginn, enda ekki að ástæðulausu. Nú er velmegun meiri en nokkru sinni áður og menn sjá hilla undir batnandi hag ár frá ári. GÓÐUR HAGUR HÖFUÐBORGAR- INNAR Tjúns og skýrt er frá á öðr- ^ um stað í blaðinu er hag- ur Reykjavíkurborgar mjög góður, framkvæmdir eru nú meiri í höfuðborginni en nokkurn tíma áður og fara vaxandi. Samhliða því sem miklu fé er varið til framkvæmda hef- ur tekizt að þessu sinni að gefa meiri afslátt af útsvör- um en áður, þannig að útsvör einstaklinga og fyrirtækja lækka nokkuð miðað við sömu tekjur og í fyrra. Þetta sýnir, að það er ekki einungis hagur borgarinnar sem heildar, sem er góður, heldur hagur borgarbúa, og á hinni góðu afkomu þeirra byggist það, að nú er hægt að framkvæma meir en áður. Vegna þess hve borgin hef- ur stækkað ört eru að sjálf- sögðu mörg verkefni óunnin, einkum í gatnagerðarmálum, en 10 ára áætlun hefur sem kunnugt er verið gerð um fullnaðarfrágang allra gatna í skipulögðum hverfum borgarinnar. Enda þótt enn hafi ekki verið lögfestur nýr tekjustofn til handa sveita- félögum til gatnagerðarfram- kvæmda, eins og fyrirhugað er, fæst nú fé til að standa við áætlanir eftir því sem vinnuafl leyfir. Þetta bygg- ist, eins og áður segir, á hin- um góða hag borgarbúa og mun hærri tekjum en gert var ráð fyrir, þegar fjárhags- áætlun var samin. Vegna hinna vaxandi tekna er þannig hægt að gefa meiri afslátt af útsvörunum en áð- ur samhliða stórauknum framkvæmdum. Valcntina að snæðingi, skönunu eftir að henni hafði verið skotið á loft. Fyrsta konan, sem fer í geimferð, aðejns 26 ára — og yngsti geimfari, fram til þessa FYRSTA konan, sem leggur í geimferð, er 26 ára, heitir Valentina Teresjkova, og er yngst allra þeirra, sem enn hafa farið slíka för. Henni var skotið á loft á sunnudagsmorgun, á öðrum degi eftir að Valerij Byk- ovskij lagði í sína för. Greið- !ega gekk að koma geimfari Valentinu á braut umhverfis jörðu. I»á hafði Bykovskij farið um 30 hringi. Var geim- far hans þá skammt undan, en svo hafði verið stillt til, að þau yrðu nærri hvorf öðru, hefðu næstum samflot. Mun skakka 6 sekúndum á umferð artíma þeirra. Margar sögusagnir hafa ver ið uppi um það, að megintil- gangur þessara geimferða sé sá, að sýna fram á, að stjórna megi geimförum hvert að öðru. Ekki hefur það þó feng- izt staðfest. Þá kann það og að hafa nokkur áhrif, að geim far BykovSkijs fer nú nær jörðu, en gert hafði verið ráð fyrir. Fregninni um för Valentinu var útvarpað um gjallarhorn á Rauða torginu í Moskvu. Var fregninni tekið með mikl um fögnuðu af öllum almenn- ingi. Fólk söng á götunum. Tveir menn sungu: Valeja, Valeja, þú ert hærri en turn- arnir á Kreml — Valeja, elsku Valeja. í dag er ég svo glaður, að ég hef ekki einu sinni fengið mér bjór. Stúlkan, sem hefur vakið slíkan fögnuð í hjörtum Sovét borgara, er 26 ára, fædd 6. marz 1937, í sveitaþorpinu Masslennikövo. Faðir hennar stjórnaði á sínum tíma drátt- arvélum, en hann lézt í heims styrjöldinni síðari. Móðir hennar vann í vefnaðarvöru- verksmiðju. Að loknu námi fluttist Val- entina til Jaroslav, þar sem hún tók að vinna í gúmmí- verksmiðju. 1955 hélt hún þaðan, og tók þá að starfa í verksmiðju þeirri, sem móðir hennar hafði starfað við. Þar var Valentina kjörin ritari samtaka ungkommún- ista, en meðlimur þeirra varð hún tvítug. Þá er húm einnig meðlimur í sovézka kommún- istaflokknum. Um sjö ára skeið gekk hún í kvöldskóla, og sérmenntaði sig í vefnaði, og 1960 varð hún sérfræðingur í meðferð baðmullar. Sama ár gekk húm í samtök þeirra, sem leggja stund á fallhlífarstökk. Síðar varð hún formaður í deild slíkra samtaka. Þá hafði hún þegar stokkið 126 sinnum. Er hún stundaði nám í skóla geim faranna, var hún útnefnd liðs- foringi af öðru stigi. Ef dæma má af myndum þeim, sem birtar hafa verið af Valentinu, þá er hún mjög yfirlætislaus stúlka, dæmi- gerður fulltrúi kynsystra sinna í Sovétríkjunum. Hún mun aðeins nota varalit við sérstök tækifæri og gengur í fábrotnum fötum. Sterklega er hún sögð vaxin, og segir í erlendum blöðum, að margur maðurinn mætti vera hreyk- inn af vöðvum hennar. Af greinum, sem birbust í Moskvublaðinu „Pravda“ á sunnudag, er ljóst, að önnur stúlka var ferðbúin, ef eitt- hvað skyldi hindra það á síð- ustu stundu, að Valentina gæti farið. Hvers vegna vissi Macmiilan ekki? — er spurning brezku blaðanna eftir heitar umræður í neðri málstofunni London, 18. júní. — AP) — • Þ A Ð virðist mjög útbreidd skoðun fréttamanna og stjórn- málamanna í London, að senn séu taldir dagar Harolds Mac- millans í embætti forsætisráð- herra. • í gær fóru fram umræður í neðri málstofu brezka þingsins um mál Profumo, brezka her- málaráðherrans fyrrverandi, og fyrirsætunnar Christine Keeler. Stóðu umræðurnar yfir í rúmar sex klukkustundir og segja frétta menn, að ekki hafi áður verið gerð harðari hríð að forsætisráð- herranum og stjórn hans. • Við atkvæðagreiðslu um van traust á stjórnina, sem fram fór að umræðunum loknum, hlaut Macmillan að vísu traust þings- ins, en aðeins með 69 atkvæða meirihluta. Venjulegast hefur hann hlotið 98 atkvæða meiri- hluta. 321 þingmaður greiddi at- kvæði með Macmillan en í þann hóp vantaði 27 þingmenn. í dag hefir Macmillan rætt við ráðherra sína og forystumenn flokksins um það, hvort gera eigi enn ítarlegri rannsókn í máli Profumo. í bréfi, sem forsætis- ráðherra skrifaði Harold Wilson í dag, óskar hann viðræðna við hann um málið og leggur til, að íhaldsflokkurinn og Verka- mannaflokkurinn vinni að sam- eiginlegri þingsályktun, þar sem framkoma Profumo gagnvart þinginu sé fordæmd. Fréttamenn segja, að eitt af megináhyggjuefnum þingmanna Ihaldsflokksins sé, að meðal for- ystumanna flokksins sé tæpast nokkurn að finna, er njóti nægi- legs trausts og álits, sem hugs- anlegur flokksleiðtogi og for- sætisráðherra, og öll öfl flokks- ins gætu fellt sig við. Þeir sem helzt eru taldir koma til greina eru Reginald Maudling, fjármálaráðherra, sem er 46 ára. Richard Butler, varaforsætisráð- herra, sem er sextugur, Hails- ham lávarður, vísindamálaráð- herra, sem er 55 ára og loks Ed- ward Heath, innsiglisvörður, sem farið hefur með mál er varða Efnahagsbandalag Evrópu. Dagblaðið Evening News stað- hæfði í kvöld, að Maudling hefði lýst sig feiðubúinn að taka við embætti forsætisráðherra ef þesa yrði óskað, svo framarlega, sem Framhald á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.