Morgunblaðið - 19.06.1963, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 19. júní 1963
MORGVTSBLAÐIÐ
15
Isopon undraefniff til allra viff
gerffa komiff aftur.
Hvítir dekkjahringir
Aurhlífar
framan og aftan
Bremsuskálar
Bremsudælur
Bremsuslöngur
Spindilkúlur
Spindilboltar
Stýrisendar
Demparar
Kúplingsdiskar
Kúplingspressur
Púströr
Hljóðkútar
Bílamottur
Sprautulökk
til blettunar
Tjakkar 1 y2—12V2 tonn
Innihurffahúnar
Luktarammar
BÍLANAUST HF.
Höfffatúni 2. — SUni 20185
Stapafell, Keflavík. Sími 1730.
Við erum 6 í heimili og okkur
vantar íbúð
nú þegar, minni íbúð en 4 her
bergi kemur ekki til greina.
Erum reglusöm. Tilb. sendist
Mbl., merkt: „5ö72“.
Korlmonna-
snndnlnr
Skóverzlun
Péturs Andréssonar
Laugavegi 17. — Framnesv. 2.
EINANGRUN
Ódýr og mjög góð einangrun.
Vönduð ’framleiðsla.
J. Þorláksson &
Norbmann h.f.
Skúlagötu 30. Bankastræti 11.
Leynivínsal-
ar gripnir
SL. SUNNUDAGSKVÖLD gerði
Reykjavíkurlögreglan áfengis-
leit á tveimur leigubílastöðvum
bæjarins með þeim árangri að
vín fannst í fjórum bílum, og
auk þess meira áfengi heima hjá
einum bílstjóranum.
í bílnum fundust alls 9 flösk
ur, þar af fjórar í einum. Lög-
reglan taldi sig hafa ástæðu til
að ætla að einn bílstjóranna ætti
meira vín heima við, og var feng
inn húsleitarúrskurður hjá saka
dómaraembættinu. Við leit í hús
inu fundust 14 brennivínsflöskur,
hálfflaska af smygluðu viskí og
auk þess 16 pakkar af smygluð-
um vindlingum.
Bílstjórarnir munu þurfa að
standa fyrir máli sínu hjá saka-
dómi.
Dó úr mislíngum
BLAÐIÐ íslendingur á Akureyri
segir frá láti konu einnar, Hólm-
fríðar Sigurðardóttur, Höfða, en
hún var nær því 95 ára að aldri.
Það voru eftirstöðvar mislinga,
sem réðu ævilokum hennar, þótt
hún hefði frá því í bernzku um
gengizt mislingasjúklinga og oft
hjúkrað þeim. Fram að sinm
síðustu (ef ekki einustu) sjúk-
dómslegu hafði hún fulla fóta-
vist á hverjum degi.
— Hvers vegna. . .
Framhald af bls. 12
ráðherraskiptin færu fram nú
þegar.
— ★ —
Mikill hiti var í umræðunum
í neðri málstofunni í gær og þess
krafizt hvað eftir annað, að hálfu
þingmanna stjórnarandstöðunn-
ar, að Macmillan bæðist lansn-
ar. Tóku nokkrir þingmenn í-
haldsflokksins undir þá kröfu.
Harold Wilson hafði orð fyrir
stjórnarandstæðingum og hóf
umræðurnar. Sakaði hann for-
sætisráðherrann um að hafa sýnt
vítavert kæruleysi í afstöðu
sinni til málsins. Hefði hann
stungið undir stól sönnunargögn-
um fyrir sekt Profumos í þeirri
von, að ekki yrði gert meira veð-
ur út af sambandi hans við fyr-
irsætuna.
í svarræðu sinni kvaðst Mac-
millan vita, að afstaða hans hefði
frá því fyrsta verið heiðarleg.
Hvorki lögreglan né öryggisþjón
ustan hefðu gefið honum nokkra
vísbendingu um, að ástæða væri
til þess að rengja yfirlýsingu
Profumo til neðri málstofunnar,
þar sem hann kvaðst saklaus af
ákærunum um ósiðleg samskipti
við fyrirsætuna. Sagði Macmill-
an, að það bæri mjög að harma,
að öryggisþjónustan hefði ekki
séð honum fyrir upplýsingum
um það, að ungfrú Keeler hefði
verið beðin að komast yfir leyni-
legar upplýsingar hjá Profumo.
Þegar úrslit atkvæðagreiðsl-
unnar urðu kunn, mögnuðust enn
kröfur stjórnarandstöðunnar um,
að Macmillan segði af sér. Stuðn-
ingsmenn hans hylltu hann hins
vegar hjartanlega. þegar hann
fór úr þingsalnum. Þó benda
fréttamenn á það í dag, að eitt
af mestu áhyggjuefnum Macmill-
ans eftir umræðurnar sé að ýms
ir íhaldsmanna, er studdu hann
í atkvæðagreiðslunni í gær, hafi
síðan gert það ljóst, að þeir telji
sér ekki skylt að styðja hann
áfram.
f dag lét Profumo aftur frá sér
heyra eftir langa þögn. Var gef-
in úr yfirlýsing af hálfu lögfræffi
fyrirtækis hans, Theodore God-
dard & Co., þar sem Profumo
harmar mjög framkomu sína.
Yfirlýsingin er opinberuff aff ósk
Profumo sjálfs og konu hans,
Valerie Hobson og hefst á því,
aff þau geri sér ljóst aff frétta-
menn hafi beffiff persónulegra
ummæla þeirra.
Mál þetta og umræðurnar í
þinginu í gær eru, sem vænta
má, helzta umræðuefni brezku
blaðanna í dag og kemur þar
víða fram, að Macmillan hafi
vegna máls þessa glatað því
trausti, er hann hafði sem leið-
togi. Þó er grunntónn allra blaða
skrifa megn óánægja með örygg-
isþjónustu landsins og sú spurn-
ing áleitnust: Hvers vegna vissi
Macmillan ekki allt um málið?
Nauðungaruppboð
Vélbáturinn Dröfn G.K. 266 eign Skúla Kristjáns-
sonar Sandgerði og dán&rbús Magnúsar Ragnars
Sandgerði verður eftir kröfu Fiskveiðisjóðs íslands
o. fl. seldur á opinberu uppboði, sem fram fer á
skrifstofu embættisins Suðurgötu 8 Hafnarfirði
föstudaginn 21. júní kl. 10 árdegis. Uppboð þetta
var auglýst í 18., 25. og 28. tbl. Lögbirtingablaðsins.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
uorar
Kartöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
Matarbúðir Sláturfélags Suðurlands.
er hver síðastur að
tryggja sér miða
Dregið eftir
daga um
HAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
[litið á húsbúnaðinn hjá qbkor| samband
húsgagna
framleiðenda
ekkert heimili án húsbúnaðar
laugavegi 26
simi 20 9 70