Morgunblaðið - 30.06.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.06.1963, Blaðsíða 1
24 slSur 50. árgangur 144. tbl. — Siinnudagur 30. júní 1963 Prentsmiðja Morgrinblaðsins Páll páfi krýndur í dag Vatikaninu, 29. júní — (AP) V E RIÐ er að ljúka undir- búningi að krýningu Páls páfa VI., sem fram fer á St. Péturstorginu í Vatíkaninu á morgun, suntiudag. Er þetta í’ fyrsta sinn 'í sögunni, sem páfakrýning fer fram undir beru lofti. Á torginu er verið að ganga frá hásæti, altari og áhorfendasvæði, og búizt er við gífurlegum mannfjölda yið athöfnina annað kvöld. Krýningin’sjálf íer fram sam- kvaemt aldagömlum helgisiða- reglum. Hann er krýndur kór- ónu úr gulli og silfri, sem smíðuð í stuttu mdli Newport, Rhode Island, 2ð. júní (AP): — Á morgun, sunnudag, leggja 14 seglskútur af stað frá Bandaríkjunum í kappsiglingu til Englands, og er siglinga- leiðin um 3 þúsund milur. .AIl ar skúturnar nema ein eru bandarískar. Búizt er við að siglingin taki 18 daga. London, 29. júní (AP): — Jarðskjálfta-mælingastöðvar í Kaliforníu hafa skýrt frá því að kl. 22,06 í gærkvöldi hafi xnælzt mjög snarpur jarð- skjálftakippur á Kurileyja- svæðinu, milli Kamchaka og Japan. Prag, 29. júni (NTB): — Hitabylgja gekk yfir Tékkó- slóvakiu í gær, og komst hit- inn upp í 35 stig í Prag. var í Mílanó, þar sem páfi var áður kardínáli. Að krýningu lok- inni mun hann lýsa blessun sinni yfir Róm og umheiminum, en síðan yerður hann borinn í skrúð fylkingu inn í St. Péturskirkj- una. TIL MÍLANÓ Páll páfi VI. er talinn frjáls- lyndur í skoðunum. Hann var um tíma starfandi í Vatikaninu, þar til fýrir átta árum að íhalds- samari sámstarfsmenn hans fengu því til leiðar komið að hann var fluttur þaðan og gerð- ur að kardínála í Mílanó. Við brottförina frá Róm sagði Pius XII., þáverandi páfi við hann: Þér komið aftur. Það vakti athygli við komu nýja kardínálans til Mílanó, að þegar hann kom að borginni bað hann bifreiðastjóra sinn að nema staðar, gekk út, kraup niður og kyssti jörðina. Fylgdarlið. hans stóð hjá furðu lostið. Við komuna til Mílanó fyrir átta árum r # _ Agreiningurinrt eykst Páll VI. að loknu páfakjöri Samið um vega- vinnukaup Á fimmtudag voru undirritaðir samningar milli Vegagerðar ríkis ins og ASÍ um kaup o>g kjör vega vinnuverkamanna um landið allt og gilda samningarnir til 1S. okt. Hér er um að ræða sams konar hsekkun á kaupi og verkalýðs- félög hafa samið um að undan- förnu Skotin ntður at miscjánintji? Brussel, 29. jan. (AP): — Belgíska varnarmálaráðuneytið •kýrði frá því á föstudagskvöld að hugsanlegt væri að sprengja úr sprengjuvörpu hafi grandað belgísku herflutningavélinni, sem fórst við Sennelager í Vestur- Þýzkalandi sl. miðvikudag. Með vélinni fórst fimm manna áhöfn hennar og 33 fallhiífarhermenn. Niu menn björguðust með því að stökkva út í fallhlííum. í tilkynningu ráðuneytisins seg ir að vélin, sem var af gerðinm C-119 hafi verið að koma inn til lendingar, og flogið yfir svæði þar sem brezkir hermenn voru að skotæfingum. Hermenn þessir notuðu m.a. sprengjuvörpur við æfingarnar, og er hugsanlegt að ein sprengjan hafi hæft flugvél- Egyptar slíta stjórnmála- sambandi við Portúgal Kaíró, 29. júni (AP-NTB). Stjórn Arabíska sambandslýð- veldisins tilkynnti sendiherra Portúgal i dag að hún hefði á- kveðið að slíta stjórnmálasam- bandi við Portúgal frá og með deginum í dag að telja. Á ráðstefnu Afrikuríkja, sem fealdin var í Addis Abeba fyrir tkömmu, var kjörin nefnd full- trúa frá níu löndum, og eiga Egyptar þar sæti. Nefnd þessari er ætlað að samrýma frelsisbar- áttu nýlendnanna í Afríku, og ákvað ráðstefnan að styðja frels- ishreyfingar landa þessara með fjárveitingum og sjálfboðaliðum. Ákvörðun Egypta um að slita stjórnmálasambandi við Portúgal er næsta skrefið i sömu átt. Fimm Kmverjum vísað úr landi í Sovétríkjunum Ásakanirnar ganga á víxl Peking og Tókíó, 29. júní. — (AP-NTB) — STJÓRN Sovétríkjanna hef- ur farið þess á leit við Kína- stjórn að hún kalli heim þrjá af starfsnjönnum kínverska ÞESSI fallega telpa vinnur ásamt hundruðum Reykvískra unglinga í skólagörðunum, þar sem hún kemst í nána snertingu við móður mold, verður nýtari og betri borgari i framtiðinni. Ljósm.: Ól.K.M. sendiráðsins í Moskvu og tvo Kínverja aðra, sem búsettir eru í Sovétríkjunum. Er mönnum þessum gefið að sök að hafa dreift bréfi kínverska kommúnistaflokksins, sem birt var í Kína hinn 14. þ.m., en bannað var að birta í Sovét ríkjunum. í bréfi þessu er rætt um skoðanaágreining Kínverja og Rússa, og stefna Rússa harðlega gagnrýnd. Segjast Rússar hafa bannað birtingu bréfsins til að koma í veg fyrir að það hefði skað- leg áhrif á fyrirhugaðar við- ræður fulltrúa beggja ríkj- anna um ágreininginn. Við- ræður þessar eiga að hefjast n.k. föstudag. Kínverska fréttastofan NCNA skýrði frá ósk Rússa um heim- köllun mannanna fimm í dag, og sagði að stjórn Kína hefði mótmælt þessum aðgerðum, sem væru ósanngjarnar og óverjandi. Hefur fréttastofan það eftir tals- manni kínversku stjórnarinnar að bréf þetta væri svar við bréfi Sovétstjórnarinnar frá 30. marz s.l. Hinn 3. apríl dreifðu starfs- menn sendiráðs Sovétríkjanna bréfi þessu í Kína, áður en kín- verska stjórnin hafði gefið leyfi til birtingar. „Ef starfsmenn Sov étrikjanna geta þetta, hvers vegna mega þá ekki Kínverjar gera slíkt hið sama“, spurði tals- maðurinn. Það hefur verið venja starfsmanna sendiráða beggja landanna að annast upplýsinga- starfsemi, og hingað til hefur það ekki þótt annað en sjálfsagt, sagði í fréttastofufregninnL KRÚSJEFF HARÐORÐVR Ekki hefur verið skýrt frá ósk- inni um heimköllun sendiráðs- starfsmannanna í Moskvu. Hins vegar var í dag skýrt frá ræðu, sem Krúsjeff flutti á fundi mið- Framhald á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.