Morgunblaðið - 24.07.1963, Page 2
2
MORCV1SBLAÐ1D
Miðvikudagur 24. júlí 1963
Laxveiðin eykst mikið
LAXVEIÐIN hefir glæðz't mjög’
upp á síðkastið í ám Stangaveiði
lélags Reykiavíkur.
Samkv. uppl. frá Ó. J. Óla-
syni, form. SVE'B nefir lav d
verið mikil í Elliðaárnar að und-
anförnu. Er nú kominn meiri
lax í gegn um teljarann en sl.
sumar og hefir veiðin verið mjög
„María Júlia" i
'armsóknarleiðangri
VARÐSKIPIÐ „María Júlía“ fór
á sunnudag í þriggja vikna ferð
umhverfis landið. Er þetta hinn
árlegi fiskirannsókna- og fisk-
merkingaleiðangur.
góð undanfarna viku, t.d. veidd
ust þar 25 laxar nú á mánudag-
inn.
Laxá í Kjós hefir einnig verið
mjög mikil ganga að undanförnu
og lax kominn um alla ána, allt
upp fyrir Hækingsdal, svo og í
Bugðu og Meðalfellsvatn, en þar
hafa þegar veiðzt nokkrir laxar,
þ.á.m. einn 16 punda Á laugar-
daginn var veiddust á neðsta
svæðinu einu 33 laxar.
Norðurá hefir verið með bezta
móti í sumar. Laxinn var kom-
inn þar strax þann 1. júní, og
hefir veiðin verið góð alltaf síð
an, en nokkuð misjöfn eftir vatni
og veðri. Þann 20. þm. höfðu
veiðzt þar 520 laxar. Hefir 3 daga
veiði: oft komizt yfir 50 laxa
í öðrum ám, sem SVFR hefir
ít"k í. svo sem Laxá í Aðaldal,
Víðidalsá, Grímsá og Laxá í
Hreppum, hefir veiðin verið í
góðu meðallagi og aukizt upp á
síðkastið, enda eru sumar þessar
ár venjulega beztar, þegar líða
fer á sumarið.
Vegna hinna langvarandi
þurrka sunnan- og vestanlands,
hafa árnar yfirleitt verið óvenju
lega vatnslitlar, en gera má ráð
fyrir að strax og rignir aukizt
veiðin að mun.
(Fraá Stangaveiðifél. Rvíkur)
Friðrik og Petro-
sjan skildu jafnir
FRIÐRIK ÓLAFSSON er hið Nýjar leiðir
stóra og óvænta spumingamerki
í keppninni, við heimsmeistar-
ann Petrosjan og Keres um 130
þúsund króna fyrstu verðlaun á
skákmótinu í Los Angeles. f gær
varð Keres fyrir áfalli er hann
tapaði fyrir Najdorf en Friðrik
og Petrosjan heimsmeistari deila
forystu og fer þó nafn Friðriks
á undan því hann á hiðskák ólok
ið við Benkö. Xvær umferðir eru
nú eftir.
Heimsmeistarinn „slapp“
Friðrik og Petrosjan áttust við
í gær. Friðrik átti betra tafl en
var í mikilli tímaþröng. Varð
hann að leika síðustu 15 leikina á
6 mínútum en heimsmeistarinn
„slapp“ með jafntefli eins
og AP fréttastofan segir. Friðrik
er því einn í forystu en hálfi vinn
ingurinn færði heimsmeistarann
í annað sætið.
Stöng brotin
og fáninn
horfinn
AÐF AR AN ÓTT sunnudagsins
var brotin niður flaggstöng, sem
var yfir verzluninni Þöll í
Veltusundi 3, við hliðina á verzl
un Magnúsar Benjamínssonar.
Náði lögreglan þeim sem braut
stöngina. En á stöng þessari var
dýrmætur fáni sem merki verzl
unarinnar var saumað í Og er
eigandanum annt um fána þenn
an. Um nóttina komst fáninn í
hendur einhverra nærstaddra og
hetfur ekki komið í leitirnar. Bið
ur rannsóknarlögreglan þá sem
kynnu að vita eitthvað um hann,
að gera aðvart.
S'tolið rafmagnsbor
Aðfaranótt þriðjudags var brot
izt inn í tvær skemmur, sem
bifreiðastöð Landsímans á í
Jörva við Grafarvog. Var
skemmdur dyraumbúnaður, og
stolið úr skemmunum rafmagns
bor og tveimur sjálfblekungum.
Leiðréttingar
ÝMSAR. SLÆMAR prentvillur
voru í Morgunblaðinu í gær,
þriðjudagsblaðinu. Hér verða að
eins leiðréttar tvær, sem báðar
voru á forsíðu í fréttinni frá
vígsluathöfninni í Skálholti. í
stað „jarteikna" stóð „jarðteikna“
(!), og litlu neðar stóð: „Hekla
sást ekki fyrr en síðar um dag
inn, og þá eins og mótaði í hana“
Þarna átti að standa „móaði“ í
stað Kmótaði“.
Keres fór nýjar leiðir gegn
Najdorf og varð að þola herfileg
an ósigur. Najdorf byrjaði með
c4 en Keres lék „heimasmíðaðan“
drottningargambít og sótti eftir
óvenjulegum uppskiptum sem
leiddu til yfirburðastöðu Naj-
dorfs á miðborði. Keres varð að
gefast upp eftir 35 leiki.
Jafntefli varð hjá Gligoric og
Reshevsky eftir að uppskipti
höfðu orðið og hvorugur hafði
liðsafla til að vinna og Benkö og
Panno sömdu um jafntefli eftir
42 leiki.
í næst síðustu umferð tefla
saman Petrosjan — Panno;
Benkö — Gligoric; Keres —
Friðrik; Reshevsky — Najdorf.
Ótefld skák Keres og Reshevskys
verður tefld síðar sama dag.
Nú standa leikar þannig:
Friðrik 7 og biðskák.
Petrosjan 7
Keres 6% og ótefld
Najdorf 6'/2
Gligoric 6
Reshevsky 5 og ótefld
Panno 4 og biðskák
Benkö 3 og 2 biðskákir.
Eini maðurinn við N. Atlants-
haf sem komið gat til bjargar
Björn Pálsson flytur slasaóan
mann frá Færeyjum til Skotlands
Er sjúkraflug frá Fœreyjum
til íslands framundan?
Á TÍUNDA tímanum í gær-
kvöldi stigu þrír prúðbúnir
menn út úr tveggja hreyfla
flugvél á Reykjavíkurflug-
velli. Þarna voru á ferð Björn
PáLsson á flugvél sinni, dr.
Friðrik Einarsson og Þor-
steinn Jónsson, flugmaður.
Þeir voru að koma úr sér-
stæðu sjúkraflugi, sem verða
mun sögulegt. Bjöm flaug ut-
an um hádegisbilið á mánu-
dag og flutti tvo slasaða menn
frá Færeyjum til Skotlands.
Dr. Friðrik sagði við Mbl.
I gærkvöldi, að Björn hefði
verið eini maðurinn við N.-
Atlantshaf, sem veitt hefði
getað þessa þjónustu. Björn
Pálsson sagði, að áhugi virtist
nú í Færeyjum fyrir sjúkra-
flugi frá Færeyjum til ís-
lands.
Ferðin gekk vel og sjúkling-
arnir, brezkir togarsjómenn,
sem slösuðust vib Færeyjar,
munu úr allri hættu. Koma
þeirra félaga til Skotlands
vakti nokkra athygli og for-
vitnuðust blaðamenn um ferð
ir þeirra.
Þegar þeir félagar stigu út
úr vélinni eftir fimm og hálfs
tíma flug frá Skotlandi, var
að sjá eins og þeir væru að
koma úr stuttri. ökuferð til
Þingvalla. Þeir voru glerfínir
og dr. Friðrik í frakka með
hatt á höfði. Björn hélt á
poka í hendinni með nokkr-
um kókflöskum frá verksmiðj
unni Vífilfell, sem þeir höfðu
ekki náð að granda í ferð-
innL
Við vorum þrjá tíma utan
til Sörrevog í Færeyjum á
mánudag, sagði Björn, og síð-
an eftir þriggja tíma bið aðra
þrjá tíma til Edinboigar. Dr.
Friðrik sagði, að annar mann-
anna hefði verið höfuðkúpu-
brotinn, en hinn handleggs-
brotinn. Við hefðum sennilega
varla ráðið við höfuðaðgerð-
ina hér heima.
Síðan lögðu þeir upp frá
Skotlandi í dag, flugu fyrst til
Prestwick og þaðan beint til
Vestmannaeyja og Rvíkur.
Ferðin frá Prestwick til
Reykjavíkur tók fimm og hálf
an tíma. Flugvélin var Bon-
anzavél Björns, Tf-Vor,
tveggja hreyfla, sex farþega
og flýgur um 165 mílur á klst.
Koma þeirra til Skotlands
vakti nokkra athygli og voru
blaðamenn fyrir á flugvellin-
um í Edinborg við komu
þeirra. í gærmorgun skrapp
Þorsteinn út á golfvöllinn í
Edinborg og lék nokkrar hol-
ur. Hann hafði tekið golfkylf-
urnar með til vonar og vara,
ef stund gæfist.
Blaðamaður Mbl. spurði þá
Björn og dr. Friðrik um mögu
leika á sjúkraflugi frá Færeyj-
um til íslands. Þeir töldu
þann möguleika mjög tíma-
bæran og gæti þetta komið
Færeyingum að góðu haldi,
enda hefði verið um það rætt
manna á milli í Færeyjum.
Fugladrápió i Látrabjargi:
dlöglegt aö þeyta eim-
pípur við fuglabjörg
í FRÉTT, sem birtist í Morgun-, t.d. við Hornbjarg og Hælavíkur-
blaðinu í gær, skýrði fréttaritari
blaðsins, Þórður Jónsson á Látr-
um, frá andstyggilegu fugladrápi,
sem átt hafði sér stað í Látra-
bjargi. Fréttin endaði þannig:
„Einhverjar ráðstafanir verð-
ur að gera, svo slíkt ódæðisverk
endurtaki sig ekki. Sé ég þá
helzt tiltækt, að hin opinberu
fugla- og dýraverndunarfélög
taki höndum saman um að koma
hér á eftirliti með því, að fólk
fari ekki búið skotvopnum í
þetta fagra og friðsæla ríki fugl-
anna.“
Mbl. spurði í gær Þorstein
Einarsson íþróttafulltrúa, sem er
ritari Sambands dýraverndunar-
félaga íslands og mikill áhuga-
maður um fuglalíf, um álit hans
á þessum ummælum. Sagði hann,
eins og reyndar kom fram í
fréttinnL að fugladráp þetta væri
með öllu ólöglegt. Það varðar
sektum að skjóta í varplöndum.
Hins vegar væri mjög erfitt
að koma á raunhæfu eftirliti í
þessum efnum, nema með afar
miklum tilkostnaði. Varðmenn
yrðu þá að vera víða um land,
bjarg. Þá væru talsverð brögð
að því, að menn færu á bátum
upp undir fuglabjörgin og skytu
„að gamni sínu“-upp í varpstað-
ina.
Þá minntist Þorsteinn á ósið,
sem bannaður er með landslög-
um. Það er það athæfi að sigla
skipum að fuglabjörgum og
þeyta þar eimpípur. Fælist þá
mikil fuglamergð upp af hreiðr-
um, og mun þetta gert „til
skemmtunar." Hins vegar er
ekki hugsað um það, að eggin
hrynja í þúsundatali úr hreiðrun-
um, ungar veltast fram úr og
rotast o.s.frv. Þessi ósiður er
enn talsvert tíðkaður, t.d. er
Mbl. kunnugt um, að jafnvel nú
í sumar á „flaggskipi' íslendinga
við Dyrhóley og drangana þar
undan. Þetta athæfi er þó bann-
að með lögum.
Að lokum sagði Þorsteinn það
mikilsverðast, að almenningsálit-
ið breyttist þannig, að engum
dytti í hug að skjóta í varplönd-
in í björgunum eða þeyta eim-
pípur fyrir neðan þau. Þá væru
varðmenn óþarfir.
Fjórir verkfræðingar
ráðnir hjá vegagerðinni
NOKKUR ríkisfyrirtæki auglýstu
fyrir skömmu eftir verkfræðing
um, þeirra á meðal Vegagerð rík
isins. Var umsóknarfrestur um
verkfræðingastöðurnar hjá vega
gerðinni útrunninn z3. þm. Höfðu
þá fjórir verkfræðingar sótt um
stöður og var gengið frá ráðn-
ingu þeirra í gær.
Skólholtskirkju
berust gjulir
f SAMSÆTI, sem kirkjumála-
ráðherra, Bjarni Benediktsson,
hélt á mánudagskvöld í tilefni
kirkjuvígslunnar í Skálholti fyrir
erlenda boðsgesti og nokkra aðra,
var skýrt frá nokkrum gjöfum
til Skálholtskirkju frá Norður-
löndum.
Danska prestafélagið gaf róðu
kross, útskorinn í linditré.
Norska prestafélagið gaf Sögu
Niðarósserkistóls. Sænska presta
félagið gaf a.m.k. 100 bindi bóka.
Gustav Adolf-föreningen í Stokk
hólmi,ð sem er kirkjulegt félag
áhugamanna, gaf 10 þúsund krón
ur íslenzkar til frjálsrar ráðstöf
unar. Norska kirkjan gaf ljós-
prentað handrit af norskri hóm-
ilíubók.
Hjá öðrum ríkisfyrirtækjum
sem auglýst hafa eftir verkfræð
ingum, rennur umsóknarfrestui
ú'. 15. ágúst n.k.
Banaslysið á
Mýragötu
EINS OG Mbl. skýrði frá í gær,
varð banaslys á móts við húsið
nr. 18 á Mýrargötu kl. 15.10 á
mánudag, er fjögurra ára telpa
hljóp þar fyrir bíl. Telpan hét
Harpa Þórarinsdóttir, og átti
heima á Nýlendugötu 29.
Síldarsjómenn
flugleiðis heim
í landlegu
Akranesi, 23. júlí: —
Þrjár til fimtn skipshafnir frá
Akranesi á síldarskipunum norð
anlands og austan notfærðu sér
landleguna og brugðu sér snöggv
ast heim hingað. Sumir, er lágu
á Seyðisfirði, fóru á langferðabíl
til Egilsstaða og flugu þaðan til
Reykjavíkur. — Oddur.