Morgunblaðið - 24.07.1963, Side 6

Morgunblaðið - 24.07.1963, Side 6
6 1MORGV1SBLAÐ1Ð Miðvikudagur 24. júlí 1963 r * PIATIGORSKY - SKAKIUOTIÐ FRIDSEMD OG BARDAEAGLEÐ VIÐ HÖFUM heyrt talað um stór meistarajafntefli. Hvað er það? Slíkt verður, þegar tveir sterk- ir skákmenn koma sér saman um að skipta vinningnum til helm- inga. Annaðhvort í líkri stöðu snemma í tafli, eða þá í flók- inni og vandasamri stöðu á báða bóga. Vitaskuld þykir áhorfendum súrt í brotið, þegar meistararn- ir takast friðsamlega í hendur yfir skákstöður, sem hafa ótal möguleika í boði, en allir hljóta þó að geta sett sig 1 spor þess, ,%m vill heldur hafa hálfan vinn ing vísan heldur en óvissuna um vinning eða tap. SJÖUNDA SKÁK Drottningar-indversk vöm. Hv.: Friðrik Sv.: Najdorf Hér gefur að líta eitt hinna svo kölluðu stórmeistarajafntefla. Hér gætir ítrustu varkárni á .■xinu*«&££ W&æœSSs r ttÆAoww ™ Najdorf. báða vegu, og kannski er ekki trútt um að áhorfandinn hafi það á tilfinningunni, að hvor aðili um sig hugsi meira um það, hvað keppinauturinn hefur í huga held ur en hvers hann sjálfur er megn ' ugur. Hvað þessa skák áhrærir, er það aðgætandi, að hún er tefld í byrjun mótsins, og þá er margur friðsamari heldur en þegar á líð ur. Hvítt Svart 1. c4 Rf6 2. d4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Bb7 5. Bg2 Be7 6. 0-0 0-0 7. Rc3 Re4 8. Dc2 RxR 9. DxR Be4 10. Bf4 c6 11. Hacl Ra6 12. Hfdl f5 13. Re5 BxB /4- KxB g5 15. Bd2 De8 16. Df3 Hc8 jafntefli. ÁTTUNDA SKÁK Kóng-indversk vöm. Hv.: Panno Sv.: Reshevsky Þetta var áreynslumesta skák annarrar umferðar, jafnt fyrir keppendur, áhorfendur og skák- fræðinga, sem reyndu eftir megni að skyggnast undir yfir- borðið. Keppendur hrókuðu sinn til hvorrar hliðar snemma í tafli, og venjulega felast í slíku teikn þess, að hvor um sig hyggist hef ja beina árás á kóng hins, ekki sízt með framrás peða, sem er ætlað að brjóta niður varnir and stæðingsins. En hér varð ekki sú raunin á. Þvert á móti lögðu keppendur fremur til atlögu með liði sínu kóngsmegin og notuðu peðameiri hlutann þeim megin, til þess að fá opnar línur. Svo varð uppi fótur og fit í 34. leik, þegar Reshevsky fórnaði riddara fyrir peð. Voru þá báðir skákmennirnir orðnir aðþrengd ir að tímanum til, og voru síð- ustu leikirnir fyrir biðina leiknir greiðlega. Fyrir riddarann náði Reshevsky haldgóðri leppun á þriðju reitaröð, og með hótunum í tengslum við hana tókst honum að hrifsa peð og skiptamun. Er skákin fór í bið, hafði Panno aðeins betri liðskost, það er að segja tvo létta menn í stað inn fyrir hrók og peð, en það virt ist enganveginn auðvelt að gera sér mat úr þessu. Það varð Panno til hjálpar, þegar hafizt var handa að nýju, að hann gat haft máthótanir í frammi, því að svarti kóngurinn var berskjald aður, en hinn hvíti aðeins í vari. Panno teflir lokin vel og skemmtilega, og Reshevsky tekst lengi vel að finna varnarleiki, en þar kemur þó að hann sér sitt óvænna. Nokkuð var um endur tekningu á leikjum í síðari hluta skákarinnar, til þess að vinna tíma. Hvítt Svart 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bb7 4. e4 5. f3 6. Be3 7. d5 8. Dd2 9. cxd 10. 0-0-0 11. Bd3 12. Kbl 13. Hcl 14. Bc2 15. b4 16. Rge2 17. Bd3 18. a3 19. h3 20. Ka2 21. fxe 22. BxR 23. Hbl 24. Hhcl dG 0-0 e5 c6 cxd a6 Re8 Rd7 b5 Rc5 Hb8 Rd7 Rb6 f5 Rf6 Bd7 fxe Rc4 bxB Rh5 De7 KVEÐINN hefur verið upp I Hæstarétti dómur í máli, er reis út af töku stóðhesta á afréttum á milli Skagafjarðar og Austur- Húnavatnssýslu. Gerðarbeiðendur í máli þessu, sem rekið var fyrir fógetarétti í héraði, voru Þorsteinn Sigurðs- son, bóndi, Enni í Engihlíðar- hreppi, og Haraldur Eyjólfsson, bóndi, Gautsdal í Bólstaðarhlíðar hreppi, báðir í Austur-Húna- vatnssýslu. Tildrög málsins eru þessi: Laugardaginn 21. júlí 1962 fóru þeir Sveinn Guðmundsson, kjör- búðarstjóri, Guðmundur Sigurðs son, húsasmíðameistari, og Björg vin Jónsson, skrifstofumaður, all ir á Sauðárkróki, ríðandi vestur í Húnavatnssýslu. Að sögn eins þeirra var ferð þessi farin að beiðni formanns Hrossaræktar- sambands Norðurlands til þess að svipast eftir stóðhestum, er ganga kynnu lausir utan vörzlu. Fóru þeir af stað upp úr hádegi nefndan dag og riðu fram Hryggjardal, um Víðidal og Litla-Vatnsskarð og lítið eitt norður fyrir bæinn í Litla- Vatnsskarði og áðu þar. Á þeim slóðum fundu þeir tvo stóðhesta og er skemmst frá því að segja, að stóðhestana tvo fóru þeir með í Skarð og afhentu þá hrepp- stjóra Skarðshrepps. Ólafur hreppstjóri Lárusson í Skarði auglýsti síðan samkvæmt 37. gr. 1. nr. 54/1957 téða stóð- hesta til sölu á uppboði, er fram skyldi fara 25. júlí. Stefnendur gerðu þær kröfur fyrir fógetadómi Skagafjarðar- sýslu að stóðhestarnir tveir yrðu með fógetagerð teknir úr vörzl- um hreppstjóra Engihlíðar- hrepps eða Bólstaðarhlíðar- hrepps, eftir því í afrétt hvors hreppsins þeir hefðu. verið tekn- ir, eða til vara, að lagt yrði lög- bann við sölu hesta þessara á uppboði. Um kröfur gerðarbeiðanda segir svo í forsendum að úrskurði fógetadómsins: „Skv. 36. gr. 1. nr. 54/1957 um búfjárrækt er ó- héimilt að láta stóðhesta ganga lausa í heimahögum eða á af- réttum án heimildar skv. lög- um. í sömu lagagrein segir, að verði vart við slíkan hest, beri að handsama hann og flytja til hreppstjóra. Verður samkvæmt þessu og því, sem fram hefur komið í málinu, eigi annað séð en taka téðra hesta hafi verið OFTAR ER það sem Velvak- anda berast bréf þar sem kvart að er um hótel og afgreiðslu þeirra. Það er því nýmæli að fá þetta bréf frá „Ferðamanni": • GÓÐS SKAL GETIÐ Ferðamaður segir frá: „Við hjónin vorum dálítið þreytt, er við komum á áfanga- stað, þótt þetta væri fyrsti dag- ur ferðarinnar. Skyldi ekki hald ið lengra í bráð, enda hafði ég pantað gistingu þrjár nætur. Við hlökkuðum til að hvílast og væntum þess að sofa vel um nóttina. Höfðum áður gist á þessum stað og líkað vel. En nú urðum við fyrir nokkrum von- brigðum. Er við vorum gengin til hvílu, hófst umgangur og hávaði á næstu hæð fyrir ofan okkur. Húrðum var skellt, dreg in til húsgögn og meira að segja barið í veggi líkt því sem verið væri að reka nagla. Gekk svo langa hríð, að við náðum ekki að festa blund. Og er loks komst kyrrð á, vorum við orð- in andvaka. Varð svefninn því af skornum skammti þessa nótt. og við hlutum ekki hina þráðu hvíld. Að morgni kvartaði ég und an þessu við hótelstjórann, vit- anlega með kurteislegum orð- um. Svarið, sem ég fékk, var á þessa leið: Þakka yður fyrir, að þér sögð uð mér frá þessu. Mér þykir leitt, að það skyldi koma fyrir, en það skal ekki endurtakast. Og hann stóð við orð sín. Næstu nætur höfðum við fullan svefnfrið. En sagan er ekki öll. Er ég fékk reikninginn í hend ur, virtist mér hann lægri en ég hafði búizt við. „Er þetta áreiðanlega öll upp- hæðin?“ spurði ég. „Já, þér borgið ekki fyrir fyrstu nóttina“, var svarið. Eg varð glaður við. Ekki af því að reikningurinn var lægri en ég hafði gert ráð fyrir, held ur vegna þess, að ég hafði fund ið sanna gestrisni“. UJj "Ji iíiiiíiiiiii^Sk 't, VV7 t, / / i'mmI/ PIB COPENHAGEN / / U / co P tj'jn. 1 iÁ \b / J' J ^ * ÖkM&U. /p*®"---- 25. Hc2 Hf7 26. a4 Rf4 27. Rcl De8 28. Ka3 Bf6 29. Hcb2 Bd8 30. b5 axb 31. Rxb Ha8 32. Dc2 Ba5 33. Dxc Hc8 34. Db3 Rxg 35. HxR Hf3 36. He2 Hxh 37. Ra2 Bg4 38. H2el BxH 39. HxB Bd7 40. Rac3 Df8 41. Db4 Df6 lék hvítur biðleik) 42. Kb3 Dh4 43. He2 Bg4 Framh. á bls. 9. heimil og lögleg. Er því eigi lög- mæt ástæða til að afhenda gerð- arbeiðendum hesta þeirra. Ber því að synja um þá kröfu gerð- arbeiðenda, að hestarnir verði teknir úr vörzlum hreppstjóra Skarðshrepps og afhentir þeim. Hvað þá kröfu gerðarbeiðenda snertir, að hestarnir skulu ann- að tveggja afhentir hreppsstjóra Engihlíðarhrepps eða Bólstaðar- hlíðarhrepps, eftir því í hvorum hreppum hestarnir voru hand- samaðir, til væntanlegrar með- ferðar skv. búfjárræktarlögum, er það að segja, að í 36. gr. laganna er aðeins talað um, að flytja skuli stóðhesta, sem finn- ast eins og hér stendur á, til „hreppsstjóra", og í 37. gr. ræðir um það, að „hreppsstjóri" skuli setja slíka hesta á uppboði og gera á því skil án þess að bein- um orðum segi hver sá hrepps- stjóri skuli vera.“ Taldi fógetarétturinn sam- kvæmt þessu ekki óeðlilegt, að afhenda hreppstjóra Skarðs- hrepps umrædda hesta og varð því synjað kröfu gerðarbeiðenda um að taka hestana úr vörzlum hans. Þá var talið, að kröfunni um lögbann yrði eigi við komið og því var henni synjað. Samkvæmt ofansögðu var öll- um kröfum gerðarbeiðenda synj- að í fógetarétti og staðfesti Hæsti réttur þá ákvörðun. Auk þess voru gerðarbeiðendur dæmdir til að greiða kr. 5.000.00 í máls- kostnað fyrir Hæstarétti. • VÍGSLA SKÁLHOLTS- KIRKJU OG ÍSLENZKI FÁNINN. Svofellt bréf barst Velvak anda um fána að húni í tilefni Skálholtshátíðar: „Á þeim merku tímamótum sögu íslenzkrar kirkju og þjóð- arinnar, er vígsla Skálholts- kirkju fór fram, var ég einn af þeim fáu, sem var í bænum. Svo virtist sem bærinn væri að mestu mannlaus fyrir hádegið. Eg veitti því athygli þennan morgun hve fá flögg voru að húni. Tók ég eftir að eitt flagg var upp á opinberri byggingu, Þj óðmin j asaf ninu. Sjálfsagt hafa verið mörg flögg uppi á Skálholtsstað þenn an dag, en mér hefði þótt við eiga að flaggað hefði verið á A1 þingishúsinu, Stjórnarráðsbygg ingunni, Háskólanum og Menntaskólanum og öðrum op inberum byggingum í bænum. Með þökk fyrir birtinguna. Sig. Sigurjónsson". AECStraujárn BRÆÐURNIR ORMSSON Sími 11467.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.