Morgunblaðið - 16.08.1963, Síða 6
6
MORGU N BLAÐIÐ
1 Föstudagur 16. ágúst 196S
Fólkið gerir miklar kröfur til
sjálfs sín og samfélagsins
Rætt vib Jónatan Einarsson
oddvita Bolvikinga
FYRIR nokkru var á ferðinni
!hér í borginni Jónatan Ein-
arsson, oddviti í Bolungarvík.
Blaðið notaði tækifærið og
ræddi við hann um helztu
framkvæmdamál Bolvíkinga,
en þar vestra hefir lengi verið
mjög öflugt og þróttmikið at-
hafnalíf. Jónatan sagðist svo
frá í stórum dráttum:
— Nú er unnið að miklum
krafti við hafnarframkvæmdir,
en að þeim störfum er fyrirhugað
að vinna fyrir 5 milljónir á þessu
sumri. Þrír áfangar verða unnir
í sumar.
I fyrsta lagi er unnið að dýpk-
unarframkvæmdum og hefir
Grettir verið fyrir vestan í rúm-
an mánuð. í öðru lagi verður
haldið áfram endurbyggingu
brimbrjótsms. Að því verki hefir
verið unnið í þrjú ár. Lokið er
við að ramma niður stálþil með
öllum garðinum, svo nú er hægt
að dýpka meðfram honum. í sum
ar verður lokið við garðinn. að
öðru leyti en því, að ekki verður
gengið frá enda brjótsins. Með
þessu er miklum áfanga náð og
hér er um að ræða mikið mann-
virki.
í þriðja lagi er svo unnið að
byggingu grjótgarðs, sem kemur
hornrétt á brimbrjótinn sunnan
frá í höfninni og myndar með
honum lokaða höfn. Unnið var að
þessu vtrki í vor og haldið verð-
ur áfram við það í haust.
— Að sjálfsögðu er höfnin
stærsta hagsmunamál Bolvík-
inga, enda lífæð staðarins, þar
sem allt athafnalíf byggist á
henni. Bolvíkinga hefir lengi van
hagað um trygga útskipunarhöfn
þar sem ferma mætti stærri flutn
ingaskip. Hafa þeir því þurft að
flytja mikinn hluta framleiðslu
sinnar til ísafjarðar oft við slæm
skilyrði.
Áfangi sá, sem nú er náð við
hafnargerðina, er þegar til mik-
illa bóta og strax næsta sumar
verður hægt að vinna við mun
stærri skip í höfninni, þegar lok-
ið er dýpkun fram fyrir brjóts-
endann.
Verkstjóri við hafnarfram-
kvæmdirnar er Bergsveinn
Breiðfjörð og hefir hann stjórn-
að verkinu af miklum dugnaði.
— Þá er nýlokið uppsetningu
30 tonna bílvogar við höfnina og
var reist við hana myndarlegt
skýli, sem er, auk húsnæðis fyrir
vigtarmenn, jafnframt baðhús
með snyrtiherbergjum fyrir sjó-
menn og aðra þá er þurfa að
hafa aðgang að slíku húsnæði.
Síldarverksmiðja í smíðum
— Þá hefir Einar Guðfinnsson
h.f. byrjað byggingu síldar- og
fiskimjölsverksmiðju, en fyrir
var gömul fiskimjölsverksmiðja,
sem lögð verður niður. Byrjað
var á hinni nýju byggingu í maí.
Lokið er byggingu sökkuls og
undirstöðu fyrir vélar. Allar vél-
ar hafa verið pantaðar erlendis
frá og samið um uppsetningu
þeirra við Landssmiðjuna. Sam-
kvæmt verksamningi á verk-
smiðjan að vera tilbúin fyrir 1.
okt. í haust. Verksmiðjan á að
afkasta 1500 málum síldar á sól-
arhring. Þetta verður mikil lyfti-
stöng fyrir atvinnulíf staðarins.
Frystihúsið hefir jafnframt verið
endurbætt með tilliti til síldar-
frystingar, en hana hefir ekki
verið hægt að frysta fyrr sökum
þess að ekki hefir verið hægt að
vinna úrganginn. Þessar fram-
kvæmdir stuðla að því að hægt
sé að gera báta þá, sem Bolvík-
ingar eiga út frá heimahöfn til
vetrarsíldveiða og einnig ætti
þetta að koma sumarsíldveiðun-
um til góða þegar síld veiðist á
vestursvæðinu.
Nýr skóli
— Á vegum sveitarfélags Bol-
ungarvíkur er verið að byggja
barna- og gagnfræðaskóla. Hóf-
ust framkvæmdir sl. haust og
var lokið við að steypa neðstu
hæðina. f sumar er svo verið að
byggja 2. og 3. hæð. Skólinn er
4000 rúmmetrar að stærð og á
hann að fullnægja þörf fyrir
skóla á staðnum í náinni fram-
tíð. Áður voru aðeins 2 fram-
haldsbekkir í skóla staðarins, en
nú er fyrirhugað að skólinn geti
skilað nemendum með lands-
prófi.
— Íþróttavöllur af fullri
stærð hefir verið í byggingu á
Skeiði og er framkvæmdum vi5»
hann lokið. Hér er um að ræða
grasvöll, sem tekinn verður í
notkun næsta sumar, eða þegar
hann er gróinn upp.
— Á fjárhagsáætlun sveitar-
sjóðs í ár eru 450 þús kr. til mal-
bikunar gatna á staðnum. Standa
vonir til að hægt verði að hefja
framkvæmdir í sumar.
Innan skamms byrjar rann-
sókn á heitum uppsprettum í
Syðri-Dal á vegum jarðborana
ríkisins. Er verið að kanna hvort
grundvöllur sé fyrir hagnýtingu
þessa heita vatns fyrir byggðar-
iagið.
Miklar íbúðabyggingar
Um aðrar framkvæmdir í Bol-
ungarvík er það að segja að út-
hlutað hefir verið 12 bygginga-
lóðum 1 sumar. Er her um að
ræða íbúðarhúsabyggingar. Þá er
unnið að byggingu iðnaðarhús-
næðis, sem Jóhann Kristjánsson
lætur byggja. Verið er að ljúka
við að reisa steypustöð, sem þeir
Sigurjón og Sveinbjörn Svein-
björnssynir eiga. Þá er lokið inn-
réttingu verbúða þar sem sköpuð
er aðstaða til útgerðar 20 smá-
Járnþil hefur nú verið rammaS niðúr meðfram n ær allri innri brún brimbrjótsins í Bolungarvík.
í DAG fjalla bréfin til Vel-
vakanda um byggingar og hætt-
ur af þeim. Að sjálfsögðu gefst
þeim sem veizt er að tækifæri
til andsvara hér í dálkunum.
• Hættan frá áburðarverk-
smiðjunni í Gufunesi
Fyrra bréfið hljóðar svo:
„Velvakandi minn. Finnskur
vinur minn sem hér var, sagði
mér frá því er finnska áburð-
arverksmiðjan sprakk í loft upp
og að það hafi verið 3 falt
meiri sprenging en þegar .kjarn
orkusprengjan lagði Hiroshima
í rúst. Taldi hann að slík spreng
ing í áburðaverksmiðjunni hér
myndi sópa burt öllum húsum
næst henni t.d. í Grunnum,
Heimum og víðar og verða af
hið hroðalegasta mannfall og
eignatjón.
Mér þótti þetta meira en í-
skyggileg tíðindi. Ef ég man
rétt birti verkfræðingur Áburð
arverksmiðjunnar í Gufunesi
stutta yfirlýsingu í blöðunum
um það að óhreinindi hafi bor-
izt í áburðinn í Finnlandi og
orsakað sprenginguna, en lof-
aði nánari greinargerð þegar bú
ið væri að rannsaka slysið í
Finnlandi.
Ekki hefi ég séð neina grein-
argerð, og langaði mig því að
spyrjast fyrir hvenær hún
kæmi og hvaða ráðstafanir hafi
verið gerðar til að hindra
sprengingu hér.
Virðist varla mega minna
vera en að öflugur járnbentur
garður væri gerður um hættu-
svæðið til að veita Reykjavík
einhverja vernd ef illa færL
Hvað hefir Öryggiseftirlit rík-
■isins gert?
Vinsamlegast
Þorlákur Einarsson"
• Skólabyggingin í Kónavori
Velvakandi!
„í síðasta sunnudagsblaði
Morgunblaðsins var lítil frétt,
sem hét: Veggir hrynja í Kópa-
vogi. Var þar vissulega ekki
gert meira úr tjóni en efni
stóðu til, því að vegghleðsla
barnaskólans fyrirhugaða var
að mestu í rúst eftir austan-
golu, sem ekki hreyfði hey á
Digranestúninu.
Ég hef fylgzt nokkuð með
byggingu þessari, ef slikt hrófa
tildur verðskuldar það nafn, og
get ekki látið hjá líða að vekja
á henni athygli, því að ekki er
annað að sjá en hún verði stór
hættuleg öllum, sem inn í hana
Jónatan Einarsson
báta og er húsið sameign smá-
bátaeigenda, en allmikið er um
smábátaútgerð á sumrum og hef-
ir hún gefið góða raun.
í frystihúsinu er verið að ljúka
innréttingu íbúða fyrir starfsfólk
sem eru á efri hæð hússms. Þess
skal að lokum getið í sambandi
við framkvæmdir að verið er að
byggja tvö ný skip erlendis, en
7 skip eru nú gerð út frá Bol-
ungarvík, 150—200 tonn að stærð.
Hin nýju skip eru 200 tonna,
eign Einars Guðfinnssonar h.f.,
og 120 tonna, eign Græðis h.f.
Við spyrjum nú Jónatan um
fjárhag svéitarfélags, sem stend-
ur i svo margháttuðum fram-
kvæmdum.
— Fjárhagur Bolungarvíkur er
yfirleitt góður, nema hvað skuld-
ir hafnarsjóðs eru allmiklar
vegna hinna miklu og kostnaðar-
sömu framkvæmda við höfnina.
Framh. á bls. 8
ganga, og þá ekki sízt, ef þak-
ið skyldi einhverntíma komast
á hana.
Þetta er allstór bygging,
veggjahæðin að sjálfsögðu
meiri en í einlyftum íbúðarhús-
um, líklega á fjórða meter, og
öll hlaðin úr rauðamalarsteini.
í allri þessari byggingu er
ekki einn einasti stöpull til að
styrkja hleðsluna, hvað þá
sæmilegur burðarveggur, og til
að kóróna þetta er fyrirhugað
að þekja húsið með afarþung-
um steinsteyptum plötum, sem
búið er að flytja á staðinn.
Ekki virðist austangolan hafa
kennt þeim neitt, sem stjórna
þessu verki, því að enn er tek-
ið að hrúga upp, rauðamalar-
steinunum á sama hátt og fyrr.
Er ekki að sjá, að menn muni
lengur, að við búum á jarð-
skjálftasvæði, og lítinn titring
þyrfti til að fella eða skekkja
þessa veggi, svo að þakplöturn-
ar féllu af öllum sínum þunga
ofan í tóftina.
Ef enginn verður til að taka
hér í taumana, er þess óskandi,
að forsjónin komi enn til bjarg-
ar og blási þessum veggjum
um koll hið bráðasta.“ Þ.