Morgunblaðið - 16.08.1963, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
T föstudagur 16. ágúst 1963
(•íííSftí'íWKWKÍ'XííííííSííííPPPr'ÍK-I-JWfrtíííftWíSSpíKWX^-JS
.............. 'V-X- • .... « v-v*« w • • -:..v.......V.. ...^
JAMBOREE — alheimsmót
skáta eru haldin fjórða hvert
ár og nú er hið 11. þeirra
háð að Maraþonvöllum í
Grikklandi. Maraþonvellir eru
eina maraþonshlaupslengd í
austur frá Aþenu eða 42 kíló
metrar. Vellirnir eru umlukt-
ir lágum skógivöxnum hæð-
um á þrjá vegu, en mjótt
skógarbelti skilur þá frá
sendinni strönd hafsins á
einn veg.
Vellirnir eru stórir. á borð
við heilan hrepp, vaxnir
harðgerðum gróðri. Okkur ís
lendingum finnst það furðu-
legt að nokkuð skuli vaxa úr
þeim jarðvegi, sem er líkast-
ur hálfharðnaðri steinsteypu.
Á Maraþonvöllum er nú
risinn all myndarlegur bær,
með 14—15 þúsund íbúum,
frá 85 þjóðum og öllum álf-
um heims, af öllum litum og
trúarskoðum.
Suður og norður markanna
:
Konstantin prins (lengst til híegri) við setningu mótsins.
HeSgi S. Jónsson;
Jamboree á Maraþonvðllum
gæta Ástralía og fsland, en
hringurinn frá austri til
vesturs er órofinn.
í þessum Jamboree bæ, má
finna flest það sem fylgir og
fylgja ber — nema kvenfólk
— því Jamboree er forrétt-
indi drengjaskáta, enn sem
komið er.
Tjaldbúðunum er skipt nið-
ur í 12 svæði (Sub camps),
sem hvert hefur sína stjórn
sinnar birgðastöðvar og ann-
að sameiginlegt. Svæðin bera
nöfn grískra fornhéraða og
erum við íslendingarnir í
AEANTIS, sem er héraðið
umhverfis Aþenu og kemur
hérað þetta mjög við forn-
sögu Grikkja. Einn af höfð-
ingjum þessa héraðs var Ulys
ses, sá er Homerskviður
greina frá að Hector hafi fellt
í Trojustríðinu, 1200 f. K. og
dregið um götur Trojuborgar.
Mikill undirbúningur
Grísku skátarnir
höfðu
innt af höndum mikinn og
góðan undirbúning, sem hófst
fyrir um tveimur árum.
Götur, vatnsleiðslur og skolp-
rásir voru lagðar, símalínur,
götuljós og þjónustubygging-
ar reistar, svo sem póstur,
símstöð, banki og sjúkrahús,
síðustu vikurnar risu svo aðr
ar stöðvar, skrifstofur og
verzlanir.
Gríski herinn veitti skát-
um mikla aðstoð, því svo vel
vill til að hans konunglega
tign Konstantin krónprins er
skáti og núverandi skátahöfð
ingi Grikklands.
Á tjaldbúðasvæðinu eru
sýningaskálar, þar sem hver
þjóð hefur sýningu til land-
kynningar og á sinni skáta-
sögu og erum við þar þátt-
takendúr í með sýningar-
svæði á góðum stað.
Hver tjaldbúð er auk
þessa einskonar þjóðlegur
sýningarstaður og eru tjald-
skátabúningurinn sé einn og
hinn sami um allan heim,
sýnir hann mörg tilbrigði í
litum og formi og íblöndun
þjóðlegra einkenna.
Þegar göngum var lokið,
um kl. 7,30 og áhorfendasvæð
ið fulisetið, munu þar hafa
verið um 25 þús. manns, því
mjög var gestkvæmt.
Mótssetningin hófst með
því að allur skarinn söng
Jamboreesönginn, með undir
leik þriggja lúðrasveita, var
ein þeirra finnsk en hinar
grískar. Þá ávarpaði æðsti
stjórriandi mótsins skátana og
rakti sögu fyrri alheijns móta
og störf þeirra í þágu friðar
og bræðralags og var leikinn
og sungin söngur hvers móts
— og fögnuðu ákaft þær þjóð
ir sem mótin höfðu haldið og
þeir aðrir, sem þar höfðu ver
ið. Þá var Filppseymga
minnzt og þeim vottuð samúð
að skáta sið.
Konstantin krónprins
setur mótið
Þögnin er rofin með gríska
þjóðsöngnum og skátahöfð-
ingi Grikkja, Konstantin
prins gengur inn á svæðið í
sínum gamla skátabúning og
kveikir í bálkesti, sem hlað-
inn var miðsvæðis, með þeim
ummælum að hann og allir
Grikkir vildu vinna að því að
lýsa og verma leiðir skáta-
starfa. Þegar prinsinn steig í
Inngangur í tjaldbúðimar.
búðir óspart heimsóttar og
skipt á upplýsingiun.
Hreinlætistæki, þvottastöðv
ar og steypiböð eru vel útbúin
og nægjanleg fyrir allan
þennan fjölda.
Baðströndin er vel útbúin
af öryggistækjum og sjórinn
þægilega saltur og svalur,
enda er ströndin mikið sótt af
okkur sem þróum svalann.
Sól og heitar nætur
Það er vandaminna að reisa
tjaldborg á Maraþonvöllum
en á Þingvöllum. — Hér er
staðveður nær því allt sum-
arið, gola á daginn, kyrrara
á kvöldin, hitinn frá 30 til 40
stig, og væri okkur lítt þol-
andi, ef golan, sturtuböðin,
og sjórinn væru ekki við
hendina. Næturnar eru heit-
ar og dimmar og sofa allir
fyrir opnum tjöldum með upp
rúlluðum veggjum eða fyrir
utan tjöld — engin hætta á
regni eða kulda — ef regn-
skúr kæmi mundu Grikkir
halda að heimsendir væri í
nánd.
Tjöld og byggingar eru stað
sett eftir stöðugri átt golunn-
ar, öfugt við það sem gert er
á íslandi, hér snúa opin móti
vindi svo golan geti blásið í
gegn.
Skuggi hjá íslandi
öðru megin við fsland er
skuggi, sem þó er ekki hægt
að svala sér við — þar er
svæðið autt, utan ein fána-
Flugeldasýning.
stöng með fána Filippseyja
dregin til hálfs, því svo
hörmulega vildi til að flug-
vélin sem þeir voru í, á leið
til Jamboree fórst nálægt
Bombay í Indlandi og þar
með 24 skátar eða allir þátt-
takendur Filippseyja, auk
skátanna fórust aðrir 36 far-
þegar. Margir leggja leið sína
til hins auða svæðis Filipps-
eyinga til að votta fána
þeirra samúð sína, sem blakt-
ir þar í hálfa stöng.
Við söknum Filippseyinga
sem nábúa, því vafalaust
hefðu svo fjarskyldar þjóðir
haft um margt að tala.
Setning mótsins
Að áliðnu kveldi hinn 1.
ágúst fóru íbúar sambúðanna
að safnast saman, hver þjóð
út af fyrir sig, því hin form-
lega setning mótsins skyldi
fara fram kl. 8 að kvöldi.
Þegar nokkuð hafði dregið úr
hftanum og húmið færðist
yfir. — Mótseningin átti að
fara fram í stórum dal, þar
sem búið var að ýta til brekk
unum, sem áhorfendasvæði
og reisa sýningarsvæði, sem
hafði í baksýn merki hinna 10
fyrri alheimsnvpta, svo og
merki þess 11.
Um kl. 7 fylltust allar götur
af gangandi, syngjandi hóp-
uih þjóðanna, og allra leiðir
lágu í dalinn þar sem mótið
átti að setja.
í göngu þessari, mátti sjá
margt nýstárlegt, enda þótt
ræðustól var honum ákaft
fagnað, og þaðan flutti hann
afburða snjalla ræðu til
Jarboreeskáta og alls skáta
heims, hinnar 10 milljón
manna fjölskyldu. Hann
hvatti alla til að gerast Mara
þonshlauparar á þann hátt að
bera sigurfregnir um víða
veröld — fregnir um sigur
mannúðar, samvinnu, friðar
og bræðralags.
Að hinni snjöllu ræðu lok-
inni lýsti hann 11. alheims-
mótið sett og bauð alla vel-
komna til starfa — þá tendr-
aði hann kyndla frá eldum
fyrri alheimsmóta og afhenti
foringjum sambúðanna og
bað þá bera anda Jamboree
út um heiminn til friðar og
farsældar öllu mannkyni.
Þá voru lesin á forngrísku
skilaboð þau sem hlaupið
verður með Maraþonsboð-
hlaup 85 þjóða til Aþenu og
afhent borgarstjóranum þar,
um að 11. Jamboree hafi ver-
ið sett að Maraþonsvöllum.
Setningu lauk með því að
flutt var friðarbæn og hófust
þá á loft marglitir flugeldar,
sem lýstu upp nóttina og
fylltu dalinn töfraljóma.
Mannfjöldinn féll eins og
lifandi elfa útúr dalnum og
stefndi í allar áttir til búða
— glaður og þakklátur, og
albúinn að taka til starfa. —
Framundan var heitur dagur
og mikið starf.
— hsj..