Morgunblaðið - 08.09.1963, Qupperneq 3
r Sunnudagur 8. sept. 1963
MORGUNBLADIÐ
3
Sr. Jón
Stórar
Ásgeir Gsílasoa viö nvjasta
EITT guðspjall þessa sunnudags
geymir söguna af Salóme, kon-
unni sem ætla má að hafi verið
móðursystir Jesú.
Það er djarfmannleg kona,
sem á fund hans gengur með
syni sína tvo, sem voru vinir og
lærisveinar Jesú. Henni er mikið
erindi á höndum, og hún lýtur
honum áður en hún ber erindið
upp: „Seg þú að þessir tveir
synir inínir skuli sitja annar til
hægri handar þér og hinn til
vinstri handar þér í ríki þínu“.
Hvað fyrir Salóme hafi vakað
með þessari beiðni, er ekki auð-
farkost
Norðurleiðar h.f.
46 klst. norður, eina til baka
Spjallað við Ásgeir Gíslason, bílstjóra
hjá Norðurleið
ÞÓTT flugvélar annist nú að
talsverðu leyti þær samgöng-
ur, sem áður fóru fram á
landi, eykst enn tala þeirra,
sem ferðast með langferðabif
reiðum. Ein helzta leið þeirra
er milli Reykjavíkur og Akur
eyrar, sem Norðurleið h.f.
annast. Elzti og reyndasti bíl-
stjóri Norðurleiðar er Ásgeir
Gíslason og hittu frétta-
maður og ljósmyndari Mbl.
hann fyrir skömmu að máli
á viðgerðaverkstæðinu við
Reykj avíkurveg.
Hvað hefur þú ekið Akur-
eyrarrútunni lengi
— Síðan árið 1950, en á
síðari árum hef ég stundum
hætt um tíma að vetri til og
unnið á BSR.
— Þú ert sennilega búinn
að fara talsvert margar ferð-
ir?
— Já, ég hef ekki hugmynd
um hve mörg hundruð, en í
fyrrasumar fór ég yfir 60
ferðir. Þó var meira að gera,
þegar við ókum stanzlaust á
milli tveir, Jósúa og ég.
— Hverjar eru þínar erfið-
ustu ferðir?
— Lengsta ferð mín til
Akureyrar tók 40 klst. Það
var fyrir 5 árum að vetra-
lagi, í sama ofsaveðrinu og
varð togaranum Agli rauða að
grandi. í Giljareitnum ók
ég fram á 4 vörubíla, sem
bílstjórarnir höfðu orðið að
yfirgefa. Voru tveir fremstu
læstir, en hinir síðari opn-
ir. Ef einhver hefði haft hug
á að stela bílunum, var þetta
tilvalið tækifæri, þar sem
hægt var að komast til baka
en ekki áfram. Ég varð að
ganga í snjókomu og roki nið
ur í Bakkasel, til þess að fá
vörubifreiðarnar fjarlægðar
og komast fram hjá.
— Önnur ferð er mér
einnig minnisstæð. Þá höfð-
um við orðið að gista á
Akranesi, en lögðum af stað
norður þaðan snemma að
morgni Þorláksmessu. Til Ak-
ureyrar komumst við loks
síðdegis á aðfangadag, eftir
36 klst. ferðalag. Þá var kom
ið bezta veður og náði ég
flugvélinni til Reykjavíkur,
sem flutti mig heim á einni
klst.
— Er oft gist á leiðinni nú
orðið?
— Nei, það kemur varla
fyrir. Ég hef tekið eftir því,
að það er ekkert, sem fólk
vill síður en að þurfa að gista.
Farþegar leggja á sig hvers-
konar harðindi, til þess að
komast hjá því.
— Eru næturferðirnar vin-
sælar?
— Já, já. Fyrst eftir að þær
hófust var fólk alltaf að
hringja og spyrja hvort ekki
væri rétt að hafa með sér
sæng.
— Og hefur nokkur tekið
með sér sæng?
— Ekki til þess að breiða
ofan á sig í bílnum, en ég
man eftir kerlingu nokkurri,
sem hafði meðferðis sængur
fatapoka, og vildi endilega
taka hann með sér inn í bíl-
inn, þar sem hun var hrædd
um að týna honun,, ef hann
væri utan sjónmáls. Mér tókst
þó að fá þá gömlu til að
leyfa mér að binda pokann
á bílþakið, með því skilyrði,
að ég gengi vel og vandlega
frá honum. Þegar ég var að
ljúka við að ganga frá far-
angrinum á þakinu, varð ég
fyrir því óhappi, að kaðall,
sem ég hélt í, rann út úr
lykkju. Við það féll ég aft-
ur á bak niður af bílnum,
einmitt fram hjá glugga kerl-
ingar. Glugginn var opinn og
á niðurleiðinni heyrðist út
um hann: „Ó guð minn góð-
ur, sængurfatapokinn minn
dottinn“. Ég var allur blár
og marinn eftir fallið niður
á hjarnið, en varð að harka
af mér og flýta mér til kerl-
ingarinnar og hugga hana.
Hún var með óráði, þar til
henni varð ljóst, að pokinn
var óhultur.
— Verðið þið bílstjórarn-
ir ekki stundum fyrir óþæg-
indum af farþegum?
— Það get ég ekki sagt.
Farþegar hafa alltaf reynst
mér hjálpsamir, þegar eitt-
hvað hefur bjátað á, en þá
ríður mest á, að þeir beri
traust til bílstjórans, þannig
að þeir standi með honum,
en ekki móti.
— Er ekkert ónæði af
skeggjuðum bakpokomönn-
um?
— Nei, það er svo til
óþekkt, vegna þess að þeir
reyna ekki að komast með
okkur. Þeir vita að þeir þurfa
að borga farið. Það var meira
að segja einu sinni, er ég ók
tómum langferðabíl á eftir
aðalrútunni, að ég stanzaði,
par sem ég sá nokkra slíka
fugla á gangi í Skagafirði, og
bauð þeim far til Akureyrar.
Þeir ætluðu aldrei að þora
upp í bílinn, svo hræddir
voru 'þeir um, að ég hyggð-
ist heimta greiðslu er á áfanga
stað kæmi.
— Eru farþegar aldrei
fullir?
— Við höfum það að reglu,
að flytja ekki drukkna menn.
Ef menn eru áberandi fullir,
hleypum við þeim. ekki inn
x bílana, en séu þeir aðeins
hreifir, flytjum við þá með
því skilyrði, að þeir afhendi
fyrst allt áfengi, sem þeir
hafa meðferðis. Fá þeir það
svo að ferðinni lokinni.
— Ferðast margir útlend-
ingar með Norðurleið?
— Þegar ég byrjaði að aka
norður, var það næstum
óþekkt, en síðustu árin, eink
um tvö síðastliðin sumur, hef
ur verið geysimikið um er-
lenda ferðamenn. Margir
þeirra fara aðra leiðina í
langferðabifreið og hina fljúg
andi, til þess að sjá sem mest
af landinu. Einnig er algengt,
Ásgeir sækir vátn á bílinn í skemmtiferð með norræna ráð-
herra.
að þeir gisti á miðri leið og
taki svo rútuna daginn eftir.
— Hefur umferðin breytzt
mikið á þessum 13 árum?
— Já, fyrir utan aukning-
una, finnst mér óvarlegur
akstur fara mjög í vöxt. T.d.
er algengt að menn dragi ekk
ert úr hraðanum þótt þeir
aki yfir blindhæðir, og sum-
ir gera sér það að leik að
víkja ekki fyrr en á síðustu
stundu, er við mætum þeim.
Þó er ég ekki frá því, að eitt-
hvað hafi úr rætzt í sumar,
og þakka ég það umferðar-
þætti Útvarnsiv's.
Auðuns:
vonir
velt að segja. Enginn maður veit
nú, hve margir þeirra, sem að-
hylltust Jesú, hafa í byrjun gert
sér vonir um hann sem þjóð-
málaleiðtoga og lausnara þjóðar-
inpar undan oki Rómverjá.
Áreiðanlega lítum vér nú mjög
öðrum augum á hann en þeir
menn gerðu, sem til fylgis við
hann gengu í byrjun. Ekki að-
eins þannig, að nú líta flestir
á hann með meira og minna
vafasama guðfræði allra þessara
alda, ag kenningar um hann, að
bakgrunni. Heldur einfaldlega
vegna þess, að vér skoðum mynd
hans með sögu hans alla, dauða
hans og upprisu í baksýn, en það
gátu þeir vitanlega ekki gert,
sem í öndverðu fylltu flokk hans.
En hvað um það, stórar vonir
bar Salóme í brjósti, stór var
metnaður hennar fyrir sonanna
hönd. Sá metnaður hennar v.erð-
ur skiljanlegri og sú dirfska
hennar að bera fram við Jesú
þessa ósk, hafi hún verið systir
Maríu móður hans.
Þegar gáfaða vitrananunnan
frá Avila, heilög Teresa, hafði
orðið fyrir auðmýkingu og mót-
blæstri í klaustri, sem hún hafði
stofnað, kvaddi hún systurnar
þessum orðum: „Biðjið Guð að
gefa yður stórar vonir, því að
upp af stórum vonum má stór
veruleiki fæðast."
Þetta er sannleiksorð. Margir
verða minni menn en efni höfðu
staðið til. vegna þess að þá brast
þor til að ala með sér stórar
vonir. En til þess að blessun
fæðist af stórum vonum verða
þær að beinast í rétta átt. Áköf-
ustu vonirnar beinast oft að fá-
nýtum metnaði, ag þær verða
mörgum að fótakefli, vegna þess
að mannkostir halda ekki í
tauminn.
Þannig dreymir marga sína
Ijúfustu drauma, og tíðum fer
svo, að rætist þeir draumar ekki
verða vonirnar stærri og metn-
aðurinn meiri fyrir dæturnar,
synina.
Trúlegt er að með sínar stóru
vonir hafi Salóme gengið særð
af fundi Jesú. En umhugsunar-
efni gaf hann henni nóg, þegar
hann svaraði beiðni hennar með
því að segja við syni hennar:
,,—sérhver sá, er vill Vera mik-
ill yðar á meðal, hann skal vera
þjónn yðar; og sérhver sá, sem
vill yðar á meðal vera fremstur,
hann skal vera þræll yðar.“
Sagan hermir ekki, hvernig
konunni varð við þessi orð Jesú.
En mörg tækifæri fékk hún síð-
ar á ævinni til þess að hugleiða
þessi orð, þegar hörmulegir at-
burðir urðu á vegi hennar og
stórar sorgir.
Synir hennar báðir uxu frá
þessum fánýtu metnaðardraum-
um og urðu þeir af lærisveinun-
um, sem hvað næstir stóðu Jesú.
Og móðir þeirra fylgdi þeim,
þótt skólinn rtvuni hafa orðið
henni erfiður. Hún er ein þeirra
fáu, trúu, sem fylgja Jesú á síð-
ustu för hans til Jerúsalem. Og
hún er ein þeirra sárfáu. vina,
sem standa við krossinn hans á
Golgata. Þá var fánýtur metnað-
ardraumur hennar dáinn.
Árin liðu og eldri sonur henn-
ar lét lífið fyrir Krist. Hann varð
fyrsti píslarvotturinn úr hópi
postulanna. Hún fékk að sjá
sigursveig píslarvættisins á lið-
inni ásjónu hans. Mun hún þá
ekki hafa skilið, að upp af stór-
um vonum hafði stærri veru-
leiki fæðzt en hana grunaði, þeg-
ar hún gekk á fund hans forðum
með metnaðardraumana sína?
Ævisaga þessarar konu er efni
í mikla bók, sem er óskrifuð enn.