Morgunblaðið - 10.10.1963, Blaðsíða 3
Fimmíuijagur 10. okt. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
i
M
“7"
1
FUIX.TRÚAR tveggja stærstu
kjötútflutningsfirma írlands,
sem selja um 60% af öllu því
kjöti sem írar selja Banda-
ríkjamönnum, sátu í gær í
skrifstofu Óttars Möllers for-
stjóra Eimskipafélags íslands
ásamt umboðsmanni Eimskips
í írlandi.
Þeir eru hingað komnir til
að ræða um framhaldssamn-
inga á kjötflutningum, sem
Eimskip hefur annazt með
reglubundnum ferðum frá ír-
landi til Bandaríkjanna frá
því 1961.
— Forráðamenn Eimskii>s
hafa komið til okkar til ír-
lands og samið þar um kjöt-
flutningana, hlýtt á óskir okk-
ar og uppfyllt þær í alla
staði. Nú eru það við sem
komum hingað og ræðum um
framhaldssamninga á flutning
unum. Það voru W. Murphy
sölustjóri Irish Meat Packers
og R. Reid sölustjóri The.
International Meat Co. sem
Irarnir í skrifstofu Eimskips. Sitjandi Raymond Reid umboðs-
maður Eimskips í trlandi, frú Murphy og W. Murphy sölu-
stjó»-L Standandi Óttar Möller forstjóri og R. Reid sölustjóri.
Eimskip flytur okkar gull
þannig skýrðu ferðir sínar.
Með þeim var og Raymond
Burke umboðsmaður Eimskip
í írlandi ásamt frú M.
Murphý.
Eimskip hefur annazt um
flutninga á um 23.000 tonnum
af kjöti árlega til New York,
en firmu þau er við sölustjór-
arnir erum fulltrúar fyrir
selja um 60% af því magni
sem írar selja Bandaríkja-
mönnum.
— Flytur Eimskip vöruna
fyrir lægra gjald en aðrir?
— Nei. Við gætum fengið
slíka flutninga fyrir sama
verð hjá öðrum skipafélögum,
en sú þjónusta sem Eimskip
hefur veitt okkur er svo góð
að við gætum ekki á betra
kosið.
Það sem er aðalatriðið fyrir
okkur er að við getum treyst
því eins og staf á bók að Eim-
skipafélagsskip tekur þessa
viðkvæmu vöru okkar þriðja
hvern mánudag og skilar
henni í sama ástandi til mark-
aðsins i Bandaríkjunum sem
er okkur svo þýðingarmikill.
— Hvers konar kjötvörur
eru þetta?
— Það er frosið nautakjöt,
beinlaust. Áður fyrr fluttu ír-
ar ekki út unnið kjötmeti,
heldur nautgripi á fæti. En
nú hefur umfangsmikill kjöt-
iðnaður verið byggður upp.
Þegar lifandi búfé var flutt út
var hagnaðurinn sáralítill af
hverri skepnu, en nú þegar
slátrað er heima og unnið verð
ur álitleg upphæð eftir í land-
inu fyrir vinnulaun og annað.
— Er samkeppni mikil á
kjötmarkaðinum í Bandaríkj-
unum.
— Mjög. Hörðust frá Nýsjá-
lendingum og sVo að sjálf-
sögðu frá innlendum framleið
endum. Við eigum við þá erfið
leika að etja í keppni við þá
að hvert pund af kjöti sem við
flytjum inn er tollað með 3
centum (43 aurar).
— Og þið treystið fslending
um fyrir flutningunum?
— Og getum ekki á betra
kosið. Af hálfu Eimskip hef
ur allt verið gert til að láta í
té fullkomna þjónustu. Og á-
hafnirnar á skipum EÍ eru
svo samvaldar að ekki verður
á betra kosið. Þar er valinn
maður í hverju rúmi — menn
sem leggja sig fram um að
þjóna viðskiptavinum félags
síns,
— Nokkuð kynnst íslandi?
— Við komum með Gull-
fossi og förum í fyrramálið.
En þessir dagar hafa verið dá
samlegir, Gullfoss, Geysir,
heitu hverirnir og sundlaug
arnar, sem maður getur setið
í og notið þó kallt sé í lofti
og hryssingslegt. Þetta eru.
hlutir sem engir eiga nema
þið íslendingar.
Og ég held, sagði W.
Murphy, að ísland þurfi eins
og írland á margfalt meiri
landkynningarstarfsemi á að
halda. Þið eigið margt, sem
engir aðrir geta státað af —
og við líka. Þjóðirnar eru einn
ig líkar og eiga svipaða sögu,
ekki sízt í baráttu fyrir sjálf-
stæði, sem hefur mótað þær
öðru fremur.
Og Reid 'cók í sama streng
og lýsti jafnframt furðu sinni
yfir þeirri uppbyggingu, sem
hann hefði séð, ekki sízt varð
and skipastólinn.
Burke umboðsmaður Eim-
skips í írlandi sagði það
ánægjulegt að vera umboðs-
maður þéss félags og þeirra
skipshafna er svo vel kynntu
sig sem Eimskipafélagsmenn
hefðu gert.
SIAKSTHKAR
— Macmillan
Framh. af bls. 1
•’kap Macmillans geysilega, og
var honum síðan sent skeyti
með beztu óskum.
Eitt af þvi, sem fyrst vakti
•thygli á þinginu, voru hin
geysilegu fagnaðarlæti, sem
wrðu, er Hailsham lávarður
gekk í salinn, en hanii hefur
verið talinn einn af líklegustu
•rftökum Macmillans í flokkn
»m. Hailsham átti 56.ára af-
mæli í dag. Hann var á árun-
um 1957-1959 formaður íhalds
flokksins, og talið er að
hann sé sá maður, sem meatu
fylgi á að fagna í röðum
óbreyttra flokksmanna. Hins
vegar mun þingflokkur íhalds
éuanna styðja Butler, eða jafn-
vel Reginald Maulding, fjár-
málaráðherra, Eins og er virð
Engin smásölu-
verzlun heíur
verið kærð
I í TILEFNI blaðaskrifa undan-
farna daga um ófullnægjandi
vigt á ýmsum varningi í smá-
söluverzlunum, hefur Sigurð-
ur Magnússon, form. Kaup-
l mannasamtakanna, beðið blað
ið að geta þess, að ekki hafi
ein einasta smásöluverzlun
verið kærð fyrir ófullnægj-/
andi vigt á sundurvigtuðum 7
vörum.
ist Butler þó hafa yfirhönd-
ina, en þó skal bent' á að
engan veginn er víst að Mac-
millan setjist ekki við stjórn-
völinn aftur, er hann hefur
náð heiisu.
„The Times“ í London, bend i
ir á það í dag, að alls ekki sé
tryggt að Butler yrði forsætis
ráðherra, þótt Macmillan drægi
sig í hlé. Butler hafi einnig
verið varaförsætisráðherra er
Anthony Eden fór frá vegna
veikinda í Súezdeilunni 1956,
en ekki hafi það dugað honum
til að setjast í stól forsætis-
ráðherra.
Hailsham lávarður, flutti í
dag ræðu á pólitískum fundi
í Morecambe, skammt frá
Blackpool. Ræddi hann Mac-
millan þar mjög og sagði m.a.:
„Við berum dýpstu virðingu
fyrir stjórnmálaleiðtoga okk-
ar. Nú, er hann liggur sjúkur,
sendum við honum og konu
hans beztu kveðjur og árnað-
aróskir .... Er hann stýrði
ráðuneytisfundinum á þriðju-
dag vissi ég að hann mundi
ekki, þrátt fyrir hugrekki sitt,
geta haldið ræðuna á laugar-
dag, sem e.t.v. mundi hafa ver
ið sú erfiðasta, sem hann hefði
til 'þessa flutt,“ sagði Hails-
ham. Mælt er að á ráðuneytis-
fundinum hafi Macmillan
sagt að í ræðunni á laugar-
dag, er flokksþinginu lýkur,
mundi hann gera grein fyrir
hvort hann hygðist stjórna
baráttu flokksins í þingkosn-
ingunum, eða víkja fyrir ein-
hverjum öðrum.
„Nú vitum við, hvað að
honum gengur, og við vitum
að með hjálp nútíma skurð-
lækninga kemst hann aftur
til heilsu,“ sagði Hailsham.
„Flestir okkar þekkja menn,
sem skornir hafa verið upp,
og hafa ekki aðeins náð
heilsu á ný, heldur öðlast
nýjan lífskraft. Þess vegna
segjum við: Harold, því ósk-
um við þess að þú verðir
frískur á ný .... Þegar þú •
kemur brátt til þess að taka
við þeim ábyrgðarhlutverk-
um, sem þú gegnir,' þá muntu
finna flokkinn í góðu ástandi
og fullan baráttuhugar;
flokk, sem sameinaður er um
að þjóna landi okkar“, sagði
Hailsham.
Stjórnmálafréttaritarar
telja, að ræða Hailsham hafi
verið flutt í þeim tilgangi, að
draga úr þeim upplausnar-
áhrifum, sem talið var að
flokkurinn hefði orðið fyrir,
■er tíðindin um veikindi Mac-
millans spurðust.
í fundi með íhaldsmönnum
í Bolton á miðvikudag, lagði
Nabarro, þingmaður íhalds-
flokksins áherzlu á að Hails-
ham lávarður tæki við af
Macmillan er þar að kæmi.
„Macmillan ætti að láta
Hailsham taka við innan
tveggja vikna“, sagði Na-
barro.
Richard Butler kom til
Blackpool í dag og átti þegar
fund með mörgum forráða-
manna íhaldsmanna, til þess
að skipuleggja þær breyting-
ar á þinginu, sem nauðsynleg-
ar eru vegna veikinda Mac
millans. — Þinginu heldur
áfram í dag.
Stjórnarant’staðan
NÚ orðið gengur enginn þess
dulinn, hve ábyrgðarlausa stjórn
málastefnu Framsóknarflokkur-
inn rekur. Þeim, sem fylgt hafa
flokknum lengi og í upphafi trú-
að á hann, gengur kannski erfið-
lega að viðurkenna þá stað-
reynd. En það er ekki svo auð-
velt að loka augunum fyrir
þessu, þar sem Tíminn hjáipar
til að minna á það nær daglega.
Skrif Tímans að undanförnu
eru nokkuð rædd í ritstjórnar-
grein Vísis í gær. Þar segir m.a.:
„Tíminn segir að það sé ekki
til siðs í lýðræðislöndum, að
stjórnarandstaða sé krafin um
stefnu eða tillögur í landsmál-
um. Það sé meirihlutans að
leggja línurnar, sem stjórna
skuli eftir. Ríkisstjórninni beri
að skilja það, að hún hafi verið
kjörin til að stjórna, og því eigi
hún að marka stefnuna og
stjórna eftir henni.
Það verður tæplega með sanni
sagt um núverandi ríkisstjórn,
að hún hafi ekki markað stefnu
og stýrt eftir henni. Hún tók upp
nýja stefnu, sem i ölium meginat
riðum er alger andstæða þeirrar
stefnu, sem vinstri stjórnin
valdi“.
Síðar segir:
„Ríkisstjórnin sagði þjóðinni
>að þegar í upphafi, að óhjá-
kvæmilegt yrði að gera ýmsar
ráðstafanir, sem yrðu miður vin-
sælar a. m. k. fyrst í stað. En
meirihluti þjóðarinnar sá, að
ekki var um aðrar Ieiðir aS
ræða, til þess að komast út úr
þeim ógöngum, sem stefna
vinstri stjórnarinnar hafði leitt
út í; og sá skilningur var staS-
festur í kosningunum. Það er
því einkennilegt hjá Tímanum
að vera að tala um að rikis-
stjórnin hliti undarlegum lög-
málum — hún hlítir nákvæm-
lega þeim lögmálum, sem blaðið
segir að ríkisstjórnir eigi að
fara eftir.
En það má segja, að þaS séu
dálítið skrítin lögmál, sem Tim-
inn viU að stjórnarandstaðan
hlíti. Eftir kenningu blaðsins
má hún vera algerlega ábyrgð-
arlaus; hún þarf ekki aS gera
annaS en ráðast á og rifa niður,
á ekkert jákvætt að leggja tií
málanna.
StjórnarandstaSan er sífelit aS
bölsótast út af dýrtíðinni, en
hún hefur ekki bent á eitt ein-
asta nýtilegt ráS til þess að
halda henni i skefjum — þvert
á móti unniS að þvi öllum ár-
um, að magna verðbólguna sem
mest“.
| /* NA /5 hnutor W SV SOhnútar X Snjókoma >úéi 17 Skvrir B Þrvmur W/rlZ: KuUotltil W HiUthH H Hml L Lmol
LÆGÐIN fyrir austan land Vestfjörðum og snjóaði mikið
og norðaustan var að grynn- á Hornströndum í gærmorg-
ast í gær og varð norðanátt- un. Lægðin fyrir S land
in því ekki hörð hér á landi. geistist austur og kom ekki
Þó var allhvasst um tíma á hér við sögu.
íslenzk gestrisni
BLAÐIÐ Siglfirðingur skrifar
um þá sérstæSu háttvisi, sem
kommúnistar og aftaniossar
þeirra sýndu, er varaforseti
Bandarikjanna heimsótti tsland.
Blaðið segir m. a.:
„Kommúnistar, sem hvorkl
virða vináttu né háttvísi, gerðu
fávíslega tilraun til að skyggja
á viðeigandi móttöku Lyndon B.
Johnson, til að setja blett á ís-
lenzka gestrisni og gistivináttu.
Svo langt geta öfgarnar dregið
þessa ofstækismenn á eyrunum,
að erlendur þjóffliöfðingi, sem
hingað kemur í vináttuheimsókn,
sem fulltrúi annarrar þjóðar, fær
ekki að vera i friði fvrir skríls-
látum þeirra, slagorðum og á-
gangi.
Sem betur fer var hér á ferð
fámennur hópur, sem lítið mark
er á tekið, og sem náði þvi mark-
miði einu, að verða sjálfum sér
til skammar og gengisfellingar í
hugum allra góðra manna. Hitt
er svo síðra, að Alþingisfulltrúi
úr Norðurlandskjördæmi vestra,
sem að vísu er aðfluttur hingað,
er sagður potturinn og pannan
í skipulagningu þessara sérstæðn
gestamóttöku íslenzkra kommún-
ista, eða höfuffverkfærið í við-
leitninni.“