Morgunblaðið - 24.10.1963, Síða 1
24 síður
Hver fær bókmennta-
\
verölaun
Sænska akademían
Stokkhólmi, 23. okt. — NTB
SÆNSKA akademían
kemur saman á morgun,
fimmtudag, til að ákveða
hver hljóta skuli bók-
menntaverðlaun Nobels í
ár. Ovenju margir rithöf-
undar og skáld koma til
greina að þessu sinni. —
Unnið var að því í ársbyrj-
un að ganga frá endanleg-
um lrsta yfir þá, sem til
greina koma, og ej, alls 81
nafn á listanum, en voru
70 í fyrra. Verðlaunin eru
að þessu sinni um 265 þúsr
und sænskar krónur (um
2,2 millj. ísl. kr.)
Miklar vangaveltur eru um
það í Stokkhólmi, hver hljó.ti
verðiaunin í ár. Meðal þeirra,
sem oftast heyrast nefndir,
eru írski leikritahöfundurinn
Samuel Beckett og griska ljóð
skáldið Giorgios Sepheris. En
fleiri nöfn eru nefnd, svo sem
Fablo Neruda, Ijóskáld frá
Chile, brezka ljóðskáldið Ro-
bert Graves, brezki rithöfund-
urinn Graham Greene og
Nóbels?
kemur samon í dag
ítalski rithöfundurinn Al-
berto Moravia.
Ákveðnar reglur gilda um
það hverjir hafi tillögurétt um
hver hljóta skuli bókmennta-
verðlaunin, en þeirra á meðal
eru allir fyrri verðlaunatakar.
John Steinbeck, sem hlaut
verðlaunin í fyrra lýsti því
nýlega yfir að hann teldi að-
eins tvo menn koma til greina
í ár, bandaríska ljóðskáldið
Carl Sandburg og brezka ljóð-
skáldið Robert Graves. í árs-
byrjun gekk Nobelsnefnd
sænsku akademíunnar endan-
lega frá lista sínum, eins og
að framan greinir, og voru þá
útstrikuð mörg nöfn, sem bor-
izt höfðu frá aðilum, er ekki
höfðu um það tillögurétt.
Nokkrir rithöfundar á Norð
urlöndum hafa verið nefndir
sem hugsanlegir hljótendur
verðlaunanna í ár, og þá helzt
Finninn Wæinö Linna, Svíinn
Eyvind Johnson og Norðmenn
irnir Johan Falkberget og
Tarjei Vesaas. En þar sem rit-
höfundarnir Ivo Andric og
John Steinbeck hlutu verð-
launin síðustu tvö ár er senni-
legast talið að Ijóðskáld verði
fyrir valinu að þessu sinni.
Ludwig Erhard kanslari Vestur-Þýzkalands er mjög fylgjandi samvinnu vestrænna ríkja á sem
flestum sviðum og sameiginlegum her þjóða Atlantshafsbandalagsins. Hér sést kanslarinn
kanna heiðursvörð þýzkra landamæravarða, sem hylltu nýja kanslarann við Schaumburg-höll-
ina í Bonn á mánudag.
Árásum alsírska
hersins hrundið
Kaupa
korn og
hveiti í
U.S.A.
>
Kúba áfram í banni
Haile Selassie hættur sdttatilraunum
Washington, 23. okt. — NTB
BANDARÍSKA utan-
ríkisráðuneytið skýrði frá því
í dag að ekki yrði aflétt við-
skiptabanni á Kúbu meðan
Castróstjórnin heldur fast við
ofbeldisstefnu sína.
Yfirlýsing þessi er svar Banda-
rikjastjórnar við ósk Castros for-
sætisráðherra um að dregið
▼erði úr viðskiptabanninu vegna
Ðagur SÞ
New York, 23. okt. (NTB)
U. Thant, aðalframkvæmda-
rtjóri Sameinuðu þjóðanna, flutti
í dag ávarp í tilefni þess að
fimmtudagurinn 24. október er
dagur ' Sameinuðu þjóðanna.
Sagði framkvæmdastjórinn að
ítarf samtakanna undanfarin
étján ár gefi ástæðu til bjart-
sýni á þróun mála í framtíðinni.
U Thant sagði að þótt sífellt
haéi geisað stríð eða stríðshætta
einhversstaðar öll þessi átján ár,
væri það þó staðreynd að segja
mætti að nú ríkti friður í heim-
inum. Og samningurinn um tak-
markað bann við tilraunum með
kjarnorkusprengjur hefur opn-
•ð leiðina til nýrra samninga,
«em leitt geta til aukinnar af-
vopnunar og tryggt áframhald-
•ndi frið.
Þá sagði framkvæmdastjórinn
•ð kröfunni um fuill mannréttindi
öllum til handa ykist stöðugt
fylgi um allan heim.
örðugleika, er stafa af eyðilegg-
ingu uppskerunnar í fellibylnum
Flóru. í þessu sambandi benti
talsmaður bandaríska utanrikis-
ráðuneytisins á að Kúbustjórn
hafi afþakkað alla aðstoð frá
bandaríska Rauða krossinum.
Sagði talsmaðurinn að Banda-
ríkjamenn hafi fulla samúð með
íbúðum Kúbu, sem hafi verið
rændir frelsi sínu og velmegun.
„Stefna o'kkar varðandi Kúbu
hefur ákvarðast af kommúnisma
í landinu og fjandsemi gagnvart
Bandaríkjunum. Meðan Kúbu-
stjórn heldur fast við þessa of-
beldisstefnu eigum við ekki um
annað að velja en halda þeirri
línu, sem fylgt hefur verið hing-
að til“, sagði talsmaðurinn.
Rabat og Algeirsborg, 23. okt.
— NTB-AP —
TIL nýrra átaka kom í dag á
landamærum Alsír og Mar-
okkó. Réðust alsírskir her-
menn gegn landamærastöð-
inni Ain Tannezzara í Norð-
austur Marokkó, en áhlaup-
inu var hrundið. Báðir aðilar
halda áfram liðsflutningum
til landamæranna, og mála-
miðlunartilraunir Haile Sel-
assies Eþíópíukeisara virðist
hafa algjörlega misheppnazt.
Er keisarinn kominn til Túnis
þar sem hann ræðir við Habib
Bourguiba fórseta.
Marokkó-útvarpið skýrði svo
frá í dag að 350 manna alsírskt
lið hafi gert árás á virkið Hassi
Beida í gær, en verið hrakið á
brott. Þá hafi alsirskt herlið í
dag gert harða árás á Ain Tann-
ezzara, en þar voru engir her-
menn til varnar, aðeins borgarar.
Engu að síður tókst að hrinda
árásinni. Ekkert hefur verið
látið uppi um mannfall í átökum
þessum. Að sögn Marokkóstjórn-
ar hefur her hennar haft Hassi
Beida á sínu valdi undanfarna
viku, en Alsírstjórn hefur enn
ekki opinberlega viðurkennt fall
virkisins.
Haile Selassie í Túnis
Haile Selassie hefur dvalið í
Alsír í nokkra daga, og reynt áð
finna lausn á deilu Alsír og Mar-
okkó. Fór hann í morgun flug-
leiðis til Túnis, og skýrðu Alsír-
blöðin frá því í dag, að það væri
Washington, 23. okt. (NTB) —
BANDARÍSKA viðskipta-
málaráðuneytið veitti í dag
útflyjendum heimild til að
seljá 30 þúsund tonn af korni
til Ungverjalands. Höfðu Ung-
verjar óskað eftir að kaupa
allt að 100 þúsund tonn af
korni og nokkur hundruð
þúsund tonn af hveiti. Er von
á ungverskri samninganefnd
til Washington í fyrramálið
til að ganga frá kaupsamning-
um.
Einnig er í Bandaríkjunum
fjölmenn sendinefnd frá Sovét
rikjunum að ganga frá samn-
ingum um kaup á tveimur
milijónum tonna af hveiti. Sat
samninganefnd þessi í dag há-
degisverðarboð George Ball
aðstoðar utanríkisráðherra.
BREYTTAR
AÐSTÆÐUR.
Stokkhólmi, 23. okt. NTB.
í SUMAR var nokkrum
sænskum þingmönnum boðið
i kynnisför til Sovétríkjanna.
Boði þessu hefur nú verið
hafnað. Telja þingmennirnir
heimsókn þessa ekki heppi-
lega næstu mánuðina vegna
njósnamáls Stig Wenner-
ströms ofursta.
Forsetinn snæðir •
hjó Elísobetu
London, 23. okt. — AP
ÁSGEIR Ásgeirsson, forseti fa
lands, mun snæða hádegisverð
í Buckinghamhöll, er hann
kemur til Bretlands í opin-
bera heimsókn 18. nóvember.
Dagskrá heimsóknarinnar
verður birt um það bil 10 dög-
um fyrir komudag forsetans.
Framh. á bls. 23.
■ ■ ■ .........................................................................................................................................................................................................................................................................................
Svisslcndingar eru betur þekktir fyrir flest annað en hernað, því þeir leggja mikið upp úr hlut-
leysi sínu og afskiptaleysi af deilum þjóða. Engu að síðuv er svissneski herinn öfiugur og vel bú-
inn vopnum. Mynd þessi er tekin í Zúrich og sýnir skriödreka og brynvarðar bifreiðir á hersýn-
ingu. ,