Morgunblaðið - 24.10.1963, Side 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 24. okt. 1963
V
-i
Gunnar Guðmudsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhijc
O'Duir.n, Erling Blöndal Bengtson og Arní Kristjánsson.
„Bið bara eftir íslenzk-
um cellókonsert“
— segir Erling BL Bentsson, sem er
nýkominn hingað í hljómleikaför
ERLING Blöndal Bengtsson,
cellóleikari, kom til Reykja-
víkur í fyrrakvöld og mun
leika einleik með Sinfóníu-
hljómsveit Islands í kvöld í
konsert fyrir celló og hljóm-
sveit op. 107 eftir Dimitri
Sjostakovitsj. Verk þetta er
tiltölulega nýtt, var samið árið
1959.
Erling tjáði Morgunblaðinu
í gaer, að hann myndi leika
fyrir ríkisútvarpið allar 6 sóló
sónötur Bachs, halda cellótón-
leika á Selfossi á sunnudag,
á Akureyri á mánudag og loks
leika með Árna Kristjánssyni
í Austurbæjarbíó á vegum
Tónlistarfélagsins nk. þriðju-
dag og miðvikudag.
Hann kvaðst halda aftur
til Kaupmannahafnar næsta
fimmtudag, en þar kennir
hann við Konunglegu musik-
akademiuna. í desember mun
hann fara í þriggja vikna
hljómleikaferð til Rússlands
og leika þar á fjölmörgum
stöðum. >að verður í þriðja
skiptið, sem Erling fer í hljóm
leikaferð til Rússlands. I>á
mun hann einnig halda hljóm-
leika í Stokkhólmi í janúar-
mánuði, en annars kennir
hann cellóleik þar í borg á
vegum sænska útvarpsins.
Erling var á æfingu í Há-
skólabíói í gærmorgun og
kynntist þá í fyrsta skipti hús-
inu, en hann var hér á landi
Erling Blöndal Bengtson stíg-
ur út úr flugvélinni á Reykja-
víkurflugvelli.
síðast árið 1959. Lét Erling
mjög vel af bíóinu; finnst það
bæði fallegt og sóma sér ágæt-
lega sem hljómleikasalur.
Listamaðurinn kvaðst eink-
ar ánægður að vera kominn
enn einu sinni til íslands, hér
finndist honum hann vera
heima hjá sér. Bætti hann við,
að hið eina, sem hann biði
eftir, væri, að saminn yrði ís-
lenzkur cellókonsert.
Erling hefur haft íslenzka
nemendur í Kaupmannahöfn
og skýrði hann frá því, að
einn þeirra, Pétur Þorvalds-
son, væri nú konsertmeistari
hjá borgarhljómsveitinni í Ár-
ósum. Hann kvaðst ekki hafa
íslenzka nemendur um þessar
mundir, en þeir væru ætíð
velkomnir.
Erling Blöndal Bengtsson
fæddist í Kaupmannahöfn 8.
marz 1932 og eru foreldrar
hans Sigríður Nielsen og
Valdemar Bengtsson, fiðlu-
leikari. Hann kom fyrst fram
opinberlega á jólatónleikum
Politiken árið 1936, aðeins 4
ára gamall.
Á hljómleikum Sinfóníu-
hljómsveitarinnar í kvöld
verður leikinn forleikur að
óperunni Ruslan og Ljúðmila
eftir Michael GJinka, þá
konsert Sjostakovitsj og loks
sinfónía í c-moll eftir Jóhann-
es Brahms.
Stjórnandi hljómsveitarinn-
ar verður írinn Proinnsias
O’Duinn.
Loftleiðaflugvél
sveimaði yfir
meðan skemmd var afmöricuð með ljósum
ÞEGAR ein af flugvélum Loft-
leiða kom frá New York um 6
leytið í gærmorgun bað flug-
maðurinn Björn Guðmundsson
um að ljósmerkjum yrði kom-
ið fyrir kringum lokaðan hluta
af brautinni, og sveimaði hann
yfir bænum í um 25 mínútur,
að því er hann telur, meðan
það var gert. Lenti hann síðan.
Mbl. spurði Gunnar Sigurðs-
son, flugvallarstjóra, um hvað
væri að brautinni. Hann sagði að
utan til í Norður- suður- braut-
inni væri svolítill veikur kafli,
sem væri verið að gera við, og
þætti vissara að láta ekki DC-6
vélarnar lenda þar. Brautirnar
væru 300 feta breiðar og þar
eð venjulegar brautir séu 200
fet og niður í 150 fet sé nægilegt
rými þó ekki sé lent á um 100
fetum yzt meðan viðgerð fer
fram. Þetta sé „rútínuverk“,
oft komi fyrir t.d. meðan mal-
bikað er að þannig þurfi að loka
brautum Þetta hefði ekki kom-
ið að sök á Norður-suður-braut-
inní, margar flugvélar hafi lent
þar undanfarna sólarhringa, en
•flugmaðurinn í þessu tilfelli ósk
aði eftir að staðurinn væri af-
markaður með ljósum og sjálf-
sagt verið að gera það fyrir
hann.
Sig undan flugvél
Undanfarna daga hafa þungir
vagnar hlaðnir sandi verið á
ferð á brautunum á Reykjavík-
urflugvelli, til að reyna þær.
Mbl. spurði Gunnar einnig um
þetta. Hann sagði að í sumar
hefðu farið fram burðarþolsat-
huganir á brautunum og þar eð
miklar rigningar hefðu verið að
undanförnu, hefði þótt rétt til
öryggis að reyna brautimar með
því að láta þessa þungu vagna,
um 20 lestir að þyngd, aka eftir
þeim.
Það ýtti einnig undir þessa at-
hugun að fyrir skömmu kom
smá sig undan flugvél, sem stóð
og var að reyna hreyflana á
braut.
11.500 kr.stolið
frá sofandi konu
BÍRÆFNI þjófa í Reykjavík fjögur. Er hún vaknaði, tók i
•hefur verið töluvert mikjj húþ,ý|tir þyi Av.ær hítnd-v
undanfarna daga. Fyrir nokkr töskur, sem í herberginu áttu £1
um kvöldum réðust þrír ung- að vera, vom horfnar, og fann »
Íir menn að 75 ára gamalli hún þær opnar frammi á i
konu á Skólavörðustíg og gangi. Var úr annarri tösk- U
hrifsuðu af henni veskið, og unni horfið seðlaveski með ■ J
síðdegis í gær gerðist það á fyrrgreindri upphæð. Kona, 1
efri hæð húss við Barónsstíg, sem býr í annarri íbúð í hús- ’ i
að iþjófur fór inn í herbergi inu, Barónsstíg 53, varð á um- £
konu, sem hafði fengið sér ræddum tíma vör við férðir' í
eftirmiðdagsblund, og hafði á ungs manns í húsinu. Vinnur I
brott með sér veski með rannsóknarlögreglan að því að 1
11.500 krónum. upplýsa mál þetta, og eru þeir, £
sem einhverjar upplýsingar é
Konan hafði lagt sig á tíma- gætu gefið, vinsamlegast beðn I
bilinu frá kl. hálf þrjú til ir að snúa sér til hennar. \
Home afsalar sér
aðalstign
Umræður í dag um frestun þingsetningar
London, 23. okt. — AP —
HOME lávarður, forsætisráð-
herra Bretíands, afsalaði sér
í dag aðalstign sinni til að
geta tekið sæti í neðri mál-
stofu brezka þingsins. Býður
hann sig fram við aukakosn-
ingar, sem fara fram í Kin-
ross í Skotlandi 7. nóv. nk.
Með undirskrift sinni af-
salar Home sér f jórum aðals-
titlum, sem ætt hans hefur
hlotnazt á undanförnum 500
árum. Þegar afsal hans hefur
verið samþykkt tekur lávarð-
urinn upp nafnið Sir Alec
Frederich Douglas-Home.
Home lávarður missir nú
sæti sitt í Lávarðadeildinni,
og tekur ekki sæti á þingi
að nýju fyrr en eftir auka-
kosningarnar í næsta mánuði
Verður hann fyrsti forsætis-
ráðherra Bretlands í mörg
hundruð ár, sera ekki á sæti
á þingi. Og ekki getur Home
verið viðstaddur þingslitin á
morgun.
Elísabet Bretadrottning hefur
fallizt á ósk Home lávarðar um
að fresta þingsetningu til 12.
næsta mánaðar, en þingið átti að
koma saman 29. þ.m. Hefur frest-
un þessi vakið nokkrar deilur, og
lýsti Harold Wilson, leiðtogi
Verkamannaflokksins, því yfir að
hún væri brot á stjómarskránni.
-Þingmenn íhaldsmanna benda
hinsvegar á að forsætisráðherr-
ann verði að eiga aðgang að
Neðri málstofu þingsins, en það
hefur hann ekki meðan hann sit-
ur í Lávarðadeildinni.
Brezka þinginu verður slitið á
morgun, fimmtudag, en fyrir
þingslit verða umræður um frest
unina í báðum deildum.
Spilakvöld í
Hafnarfirði
Hafnarfirði — f kvöld kl. 8.30
hefjast spilakvöld Sjálfstæðisfél
agana. Spilað verður 4 sinnum
fyrir jól og verðlaun veitt. Eftir
-nýár verður spilað 6 sinnum og
þá veitt heildarverðlaun fyrir
veturinn og verðlaunin eru hring
ferð með Ríkisskip kringum land
ið
Framvegis verður spilað á
miðvikudagskvöldum í Sjálf-
stæðishúsinu og hefst spila-
menskan kl. 8.30
NA /5 hnvior yf SV 50/múttr X SnjóAotnt • Úit -'*■> \7 Skúrir K Þrumur mss >< KuUmkH Hifutkit 551
Veðurkort frá hádegi í gær. Stóra lægðin að koma upp að ísIandL
Veðrið kl. 22 í gærkvöldi:
Vestan rok um allt land og
á hafinu suður undan. Suðvest
urland til Breiðafjarðar og
miðin: V-stormur eða rok og
skúrir fram á nóttina, heldur
hægari SV og slydduél á morg
un. Vestfirðir og miðin: NA-
stormur, slydda en síðan snjó-
koma, hægari og éljagangur á
morgun. Norðurland til NA-
lands og miðin: V-rok eða ofsa
veður með skúrum og síðar élj
um í nótt, en hægir heldur á
morgun og léttir til. Austfirð-
ir og miðin: V-rok eða ofsa-
veður í nótt, hægari á morg-
un, víðast léttskýjað. Suðaust-
urland og miðin: Sv-rok í nótt,
hvasst á morgun skúraveður.
Horfur á föstudag: Suðvest-
an með éljum sunnan og vest-
an lands, en bjartviðri á Norð-
ur- og Austurlandi, snýst í vax
andi SA-átt við suðvestur-
ströndina um kvöldið.