Morgunblaðið - 24.10.1963, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 24. okt. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
3
*
Síðastliðið lauffardagskvöld
| tóku til starfa nýir skemmti-
! kraftar í Sigtúni, veitinga-
staðnum í Sjálfstæðishúsinu,
sem rekinn er af Sigmari Pét-
; urssyni, þeim sem undanfarin
ár hefur rekið Breiðfirðinga-
búð og nú hefur báða veit-
ingastaðina undir stjórn sinni.
Blaðamaður og ljósmynd-
ari Mbl. heilsuðu upp á Sig-
mar veitingamann í Sigtúni
! um klukkan 11 á laugardags-
kvöldið, og hittist þá svo vel
á, að yfir stóð íbngur hinna
nýju skemmtikrafta.
Þar syngja þau Sigurveig
Hjaltested og Guðmundur
Guðjónsson, sem bæði eru
i landsþekktir söngvarar, og
1 Guðmundur Guðjónsson eftir
sóttur óperusöngvari erlendis.
Undir söng þeiyra lék hið vin-
sæla tónskáld, Skúli Halldórs
son.
Margt gesta var í Sigtúni
i þetta kvöld, og ríkti almenn
ánægja yfir söngnum. Var
l klappað lengi og innilega eftir
| hvert lag, og urðu söngvar-
Hér sjást þau Sigurveig og Guðmundur syngja dúett, og leggja sig öll fram.
Góðir skemmtikraftar í Sigtúni
IVEikill fiierpningaratiki af framtaki Sigmars
arnir að syngja mörg auka-
Mynd þessi er tekin í kjallara hússins á eftir. Á henni eru talið frá vinstri: Skúli, Sig-
urveig, Sigmar og Guðmundur.
lög.
Viðfangsefni þeirra voru
ýmsar aríur og dúettar úr vel-
þekktum óperum.
Á eftir ræddi blaðamaður-
inn við listafólkið og Sigmar
veitingamann sem var auðsjá-
anlega mjög ánægður með
sönginn. Kvaðst hann myndi
hafa meira af slíkum góðum
skemmtiatriðum í vetur.
Þremenningarnir sögðust
syngja meira af íslenzkum lög
um næsta laugardagskvöld.
Það var álit gesta, sem
blaðamaðurinn hitti að máli
þarna, að nýtt spor væri stig-
ið í skemmtanalífi höfuðstað-
arins með því að bjóða upp á
skemmtiatriði, sem væri í
senn listrænt og til mikils
menningarauka. Báru gestirn-
ir þetta atriði saman við
mörg önnur, sem önnur veit-
ingahús hafa verið með, dæg-
urlagasöngvara og trúða, í
fötum og fatalitla, og var sá
samanburður Sigtúni í vil.
Gestir voru þakklátir Sig-
mari fyrir framtak hans.
Svo virtist sem annar andi
ríkti á þessari skemmtun, og
er það víst, að skemmtiatriði,
sem þannig hafa um leið list-
rænt gildi, munu mjög bæta
umgengisvenjur gestanna, og
ber það sízt að lasta.
Má búast við fjölmenni um
helgar í Sigtún tii að hlusta á
skemmtikraftana, því að marg
ir kunna vel að meta hina
iéttu og ljúfu list þexrra
Sigurveigar, Guðmundar og
Skúla.
Myndirnar, sem fylgja grein
þessari tók Sveinn Þórmóðs-
son í Sigtúni s.l. laugardags-
kvöld.
STAKSTtlMR
Skattar lækkaðir >
Gunnar Thoroddsen, fjármála-
ráðherra, lýsti því yfir í fjár-
lagaræðu sinni, að fyrir þaS
þing, sem nú situr, verði lagt
frumvarp um lækkun á tekju-
skattsstigum. Sú lækkun mun
leiða til þess að skattfrjálsar tekj
ur hækka um 30% til samræmis
við breytingar á launum og verð-
lagi, sem orðið hafa síðan skatt-
stigar voru ákveðnir 1960. Sam-
kvæmt nýju lögunum munu skatt
frjálsar tekjur einstaklinga verða
65 þús. kr. í stað 50 þús. kr. nú,
fyrir hjón verða skattfrjálsar
tekjur um 90 þúsund kr. en eru
nú 70 þúsund og fyrir hvert barn
verður frádrátturinn 13 þúsund
krónur í stað 10 þúsunda nú. —
Þannig er fylgt þeirri stefnu, sem
mörkuð var 1960, að almennar
launatekjur skyldu verða skatt-
frjálsar. Er þessi breyting á skatt
stiganum mikiÖ hagsmunamál og
hjálpar stórlega þeim, sem lægst-
ar tekjur hafa.
Tíminn
Timanum er illa við það, aS
Morgunblaðið skuli hafa rifjað
upp ummæli blaðsins frá því t
september í haust, þegar árásirn-
ar voru hvað hatrammastar á
ríkisstjórnina og kröfurnar há-
værastar, bæði af hálfu Fram-
sóknarmanna og kommúnista, um
það, að ríkisstjórnin gerði ráð-
s^afanir til þess að stöðva hækk-
anir og hefja jafnvel lækknar-
aðfjerðir, eins og Tíminn nefndi
það. 4. september sagði Tíminn
m.a.:
„f stað þess að láta ríkisvaldið
hafa forustuna um þessa hækk-
unarstefnu, þarf ríkisvaldið að
hafa forustu um að stöðva hana
með því að ganga á undan og
gefa þannig öðrum fordæmi.
Það, sem ríkisstjórnin og þingið
þurfa að segja nú og standa við
er: Við ætlum ekki að lækka
gengið, ekki hækka tolla og
skatta, ekki að hækka vextina.
Við ætlum ekki að gera neinar
hækkunarráðstafanir. Þvert á
móti ætlum við að byrja að
klifra niður dýrtíðarstigann með
lækkunaraðgerðum."
Þegar þessi ummæli birtust í
Tímanum, benti Morgunblaðið á,
að þau væru óvenjulega hófsöm
og rétt að taka þau til rækilegrar
yfirvegunar.
Aðgerðir
Því hefur verið lýst yfir. að
innan skamms muni ríkisstjórn-
in leggja fram tillögur sínar
um aðgerðir til þess að stöðva
þær víxlhækkanir kaupgjalds
og verðlags, sem hér hafa
verið og stjórnarandstæðingar
hafa sérstaklega varað við. —
En þá bregður svo við, að
Tíminn lýsir sig fyrirfram and-
vígan slíkum aðgerðum, þótt
hann hafi sjálfur krafizt þeirra
fyrir hálfum öðrum mánuði. Til-
lögur ríkisstjórnarinnar verða
sjálfsagt ekki í einstökum atrið-
um nákvæmlega eins og stefna
sú,. sem Framsóknarflokkurinn
boðaði, að minnsta kosti hefur
stjórnin ekki lýst því yfir, að
hún muni liefja beinar lækkanir
eins og Tíminn óskaði eftir, held-
ur fyrst og fremst að stöðva þró-
unina í hækkunarátt. Skattalækk
unin nú mun þó greiða fyrir
lausn málsins. En því miður virð
ast stjórnarandstæðingar ætla að
beita sér gegn væntanlegri lausn,
þó að þeir hafi áður barizt fyrir
því, að slikar ráðstafanir yrðu
gerðar.