Morgunblaðið - 24.10.1963, Qupperneq 8
8
MORGU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 24. okt. 1963
ITHRIGE
Fyrirliggjandi fyrir 200 —
500 og 1000 kg.
EiiTnig rafmagns-
KEÐJUTALÍUR 2 — hraða.
Sérstaklega hentugar fyrir
renniverkstæði og léttan
iðnað. —
Á
f UDVI ;tori IU
>
TÆKNIOEILD
Félagslíi
Knattspyrnufélagiff ÞRÓTTUR
ÆFINGATAFLA
Knattspy rna:
3. fl.. sunnud. kl. 4,20.
4. fl.: sunnud. kl. 3,30.
5. fl.. laugard. kl. 6.50.
Allar æfingarnar fara fram
í KD-húsinu. — Þjálfarar.
Knattspyrnufélagiff Þróttur
Knattspyrnumenn.
í KRihúsinu. — Þ.iálfarar.
Áríðandi fundur að Café
Höll n.k. laugardag kl. 6,30.
Rætt um vetrarstarfið og til
kynhtir æfingatímar.
Verið með £rá byrjum,
— Þjálfarinn.
Somkomur
Kristniboðsvikan. - Samkoma
í húsi KFUM og K í kvöld kL
8,30. Margrét Hróbjartsdóttir
kristniboði og Ástráður Sigur
steindórsson skólastjóri tala.
Tvísöngur og einsöngur. —
Allir velkomnir.
Kristniboffssambandið.
Samkomuhúsið Zion,
óSinsgötu 6A.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20,30. Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Fíladelfía, — Bi'blíuvika.
Biblíulestur hvern dag kl. 5.
Vakningasamkoma kl. 8,30.
Ame Dahl predikar. Fjöl-
breyttur söngur.
Sniðanámskeið
Nýir flokkar byrja næst-
komandi mánudag 28. okt.
Skráning í símum
13735 og 15054.
Þing-
fréttir
í stuttu máli
Á Á fundi í Sameinuðu Þingi
í gær, var samþykkt að senda
fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar-
innar til fjárveitinganefndar
með 40 samlhljóða atkvæðum.
★ Helgi Bergs og sjö aðrir
þingmenn Framsóknarflokksins
hafa lagt fram í Sameinuðu
Þingi, þingsályktunartillögu um
samningu nýrrar þjóðhagsáætl-
unar fyrir árin 1064-68. Leggja
flutningsmenn til að sú áætlun
skuli miðuð við örari hagvöxt
og meiri framleiðniaukningu í
atvinnuvegunum en áætlun sú,
sem ríkisstjómin lagði fyrir Al-
þingi í apríl s.L
Á Lagt hefur veriff fram í
Neðri deild frumvarp um lausn
kjaradeilu verkfræðinga. Er hér
um að ræða frv. til staðfestingar
á bráðabirgðalögum, sem sett
voru í ágúst s.l.
Á Einar Olgeirsson flytur
ennþá einu sinni í Neðri deild,
frumvarp um áætlunarráð rík-
isins.
Á Ágúst Þorvaldsson o.fl.
flytja tillögu til þingsályktunar
um heyverkunarmál.
Á Jón Skaftason flytur þings
ályktunartillögu um lagningu
Vestuflandsvegar þ.e.a.s. frá
Elliðaám og inn fyrir Kollafjörð.
★ Sigurffur Bjarnason 2. þm.
Vestfjarða, hefur verið kjörinn
formaður samgöngumálanefndar
Neðri deildar. Menntamálanefnd
Neðri deildar hefur valið sér for-
mann Einar Ingimundarson 4.
þm. Norðurlands vestra.
ATHUGIÐ!
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara aff auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Nýkomnar
Innrammaffar
BARNAMYNDIR
Frimerkjasalan
Lækjargötu 6A
Áttræð i dag:
Skáldkonan
Jakobína Johnson
Þú reyndir hvert hugur og
harðfylgi ná,
þótt hendurnar tvískiptar
vinni:
að brjóta með annarri braut
sinni þrá,
en berjast við lífið með hinni.
Þ. E.
Frú Jakobína Joihnson skáld
kona í Seattle er áttræð í dag.
Hún fluttist til Vesturheims
með foreldrum sínum fimm
ára gömlu og sá ekki ísland
afur, fyrr en hún kom hing-
að sumarið 1935, þá rúmlega
fimmtug. Síðan hefur 'hún
heimsótt ættjörð sína tvisvar
sinnum, síðast árið 1959, og
á hún hér fjölda vina og að-
dáenda.
Foreldrar frú Jakobínu
voru, eins og flestir Vesturfar-
ar, snauðir að veraldarauð,
en þau fluttu með sér íslenzka
menningu, eins og hún var
bezt í sveitum landsins á þeim
tímum. Faðir hennar var ljóð
elskur, enda sjálfur skáld
gott og unni þjóðlegum fróð-
leik. Dóttirin unga var gáfuð
og næm og drakk í sig allt,
sem hún heyrði og las.
Hún þráði að menntast,
komast í skóla og lauk kenn-
araprófi 21 árs að aldri. Ekki
átti það þó fyrir henni að
liggja að gera kennslu að lífs
starfi sínu. Hún giftist ung,
eignaðist sjö börn og hefur
mestan hluta ævinnar verið
húsfreyja á stóru og gest-
mörgu heimili. öllum, sem til
þekkja, ber saman um, að frú
Jakobína hafi rækt skyldur
sínar sem móðir og húsmóðir
af alúð og samvizkusemi og
að heimilið hafi verið með
miklum myndarbrag, en enga
hjálp mun hún þó hafa haft
við heimilisstörfin.
Maður skyldi nú ætla, að
húsmóðir á slíku heimili ætti
ekki margar tómstundir til
lesturs og ritstarfa. En frú
Jakobína var mjög viljasterk
og ótrúlega þrekmikil. Auk
þess var hún hagsýn í störf-
um og kunni að nota tímann.
Þegar frú Jakobína kvaddi
sér hljóðs með kvæðum sín-
um, vöktu þau þegar athygli
skálda og ljóðvina vestan
hafs og bráðlega einnig hér
á landi, og fór hróður skáld-
konunnar stöðugt vaxandi. Nú
tók hún jafnframt að þýða is-
lenzk ljóð á enska tungu, og
hefur hún hlotið verðugt lof
cfg margháttaða viðurkenn-
ingu fyrir ljóðaþýðingar sín-
ar. Stephan G. Stephansson
skáld reið þar einna fyrstur á
vaðið, og var það skáldkon-
unni í senn mikill sigur og ó-
metanleg hvatning.
Ljóðabækur frú Jakobínu
hafa óerið gefnar út hér á
landi, nú síðast ljóðasafn
árið 1955, sem hún nefnir
Kertaljós eins og fyrstu
kvæðabókinS. Framan við þá
útgáfu rifar séra Friðrik A.
Friðriksson ágætan og ítar-
legap formála um skáldkon-
una, ævi hennar og ritstörf.
Ljóðaþýðingarnar hafa birzt
í fjölmörgum vönduðum tíma
ritum vestan hafs, sönglaga-
söfnum og sýnisbókum, og
þau hafa verið valin til birt-
ingar meðal úrvalsþýðinga úr
erlendum málum. Árið 1959
gaf Menningarsjóður út bók,
Northern Lights, með 50 ljóða
þýðingum skáldkonunnar. Þá
hefur hún og þýtt þrjú xslenzk
ieikrit og nokkrar smásögur.
Ekki má láta undir höfuð
leggjast að geta um hið mikla
og merka landkynningarstarf,
sem frú Jakobína hefur unnið
í heimalandi sínu í meira en
þrjá áratugi. Hefur hún hald-
ið fjölda fyrirlestra ár hvert
um íslenzka menningu, land
og þjóð, og verið mjög eftir-
sóttur fyrirlesari. Má nærri
geta, hve tímafrekt þetta starf
hefur verið, því auk þess að
semja erindin, hefur hún iðu-
lega orðið að takast á hendpr
löng ferðalög til þess að fiytja
þau.
Frú Jakobína er mjög að-
laðandi kona, kyrrlát og hóg-
vær. Ekkert væri henni fjær
skapi en að miklast af afrek-
um sínum. Með fágætri ró-
semi og stillingu hefur hún
mætt þeim erfiðleikum, sem
orðið hafa á vegi hennar, og
borið eins og hetja þyngstu
harma.
Ég þakka frú Jakobínu fyrir
ljóðin hennar fögru og ljúfu.
Ég þakka henni langa og
trygga vináttu við mig og
mína og sendi henni hjartans
kveðju og heillaóskir.
Svanhildur Þorsteinsdóttir.
Leiðrétting
í minningargrein um Magnús
Jónsson, húsasmíðameistara s.l.
föstudag urðu *tvær slæmar vill-
ur. Nafn Önnu systur Magnúsar
misritaðist og síðar í greininni
er sagt. „. . . og féll það vel í
garð“ en átti að sjálfsögðu að
vera: vel í geð.
Lögtaksúrskurður
Hérmeð úrskurðast lögtak fvrir ógreiddum trygg-
ingagjöldum til Tryggingastofnunar ríkisins, sem
greiðast áttu í janúar og júní s.l., söluskatti 4. árs-
fjórðungs 1962, 1. ársfjórðungs 1963 og 2. ársfjórð-
ungs .1963 svo og öllum ógreiddum þinggjöldum
og ti-yggingagjöldum ársins 1963, tekjuskatti, eign-
arskatti, námsbókagjaldi, slysatryggingaiðgjaldi,
atvinnuleysistryggingasjóðsgjaldi, iðnlánasjóðs-
gjaldi, kirkjugjaldi og kirkjugarðsgjaldi, sem gjald-
fallin eru í Kópavogskaupstað. Ennfremur bifreiða-
skatti, skoðunargjaldi bifreiða og vátryggingagjaldi
ökumanns, en gjöld þessi féllu í gjalddaga 2. janúar
s.l., svo og skipulagsgjaldi af nýbyggingum, skipa-
skoðunargjaldi, lestagjaldi og vitagjaldi, rafstöðva-
gjaldi, vélaeftirlitsgjaldi svo og ógreiddum iðgjöld-
um og skráningargjöldum vegna lögskráðra sjó-
manna, auk dráttarvaxta og lögtakskostnaðar.
Fer lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birtingu
þessa úrskurðar án frekari fyrirvara ef ekki verða
gerð skil fyrir þann tíma.
Bæjarfógetinn í Kópavogi, 19. okt. 1963.
Sigurgeir Jónsson.
Vetrarstarfsemi
tómstundaheimila
Æskulýðsráðs
VETRARSTARF tómstunda-
heimila Æskulýðsráðs Reykja-
víkur er að hefjast. Unglingum
gefst kostur á þátttöku í þessum
greinum:
/
Aff Lindargtöu 50
Ljósmyndaiðja, mánudaga —
fimmtudaga kl. 7 e.h., þar verð-
ur leiðbeint í framköllun á film
um, kopíeringum og stækkun
mynda og svo frv. Klúbbfundir
verða annan hvern laugardag kl.
3 e.h.
Leffurvinna, þriðjudaga kl. 7
e.h., leiðbeint um gerð ýmissa
leðurmuna og mynsturmótun á
þá.
Frímerkjaklúbbur, miðviku-
daga kl. 6 e.h., leiðbeint um söfn-
un, meðferð og sögu frímerkja
auk klúbbstarfa.
Bein- og hornavinna, miðviku-
daga kl. 8 e.h. Unnið að gerð
ýmissa skrautmuna úr beini,
horni og harðviði.
Skák, fimmtudaga kl. 7 e.h.
leiðbeint um skák, skákreglur
auk kappmóta og fjölteflis.
„Opiff hús“, laugardaga kl. 6
10 e.h., leiktæki, spil, hljómlist
o.fl.
Leikhús æskunnar, klúbb-
kvöld mánudaga kl. 8 e.h.
Fundir ýmissa annara klúbba
verða á föstudögum.
Unnið er að félags- og tó<m-
stundaiðju í gagnfræðaskóium
borgarinnar og verður sú starf-
semi kynnt síðar.
Nánari upplýsingar og inritun
á skrifstofu Æskulýðsráðs að
Lindargtöu 50, sími 15937, kL
2—4 og 8—9 e.h.
Vélhjólaklúbburinn Elding,
í Golfskálanum
fundir hvern miðvikudag kl. 8
e.h., viðgerðarstofa og önnur
starfsemi auglýst innan klúbbs-
ins.
Flugmódelklúbbur, fundir 4
fimmtudögum kl. 8 e.h., annar
starfstími auglýstur innan klúbba
ins .
Tónlistarklúbbur, fundir 4
föstudögum kl. 8 e.h.
Innritun er á klúbbkvöldun-
um. Nánari upplýsingar veittar
á skrifstofu Æskulýðsráðs að
Lindargötu 50, sími 15937, kL
2—4 e.ÍL