Morgunblaðið - 24.10.1963, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 24. okt. 1963
MORCU N BLAÐIÐ
23
Bllar, fólk
í gær kom Laxá siglandi fullhlaðin inn í Reykjavíkurhöfn. Hafði skipið tekið 770 lesta farm í Pól-
landi og Sviþjóð, en komið síðan við í Haugasundi og bætt á síldartunnum, sem nota á fyrir síld-
arvertíð við Suðvesturlandi. Var skipið æði hlaðið, er það sigldi inn í gær. (Ljósm.: Sv. Þorm.
þá og síðan eitthvað út í busk-
ann. Urðu þeir undir brakinu
og meiddist annar þeirra í baki
og marðist nokkuð, en hinn
hlaut mikinn skurð á höfði og
slæman heilahristing. Meiðsli
hans eru þó ekki könnuð til fulls
enn og liggur hann á sjúkrahús-
inu — HSJ.
Mesta flóð í 30 ár
Fréttaritarinn í Grindavík
Símaði:
Hér var mikið hvassviðri á suð
vestan framan af degi og nú er
hann genginn í suðaustan með
ofsaroki. Sjórinn gengur ekki
mikið upp núna. En í stórstreymi
og óveðri á laugardagskvöldið
brotnaði 20—30 m skarð í varnar
garð, sem hér var steyptur í
fyrrasumar. Eins hefur lækkað
mikið í þessu flóði grjótgarður,
sem verið var að keyra í grjót í
haust og átti að verða uppfylling.
Hefur hann lækkað mikið og
skolað frá honum öllu smáu
grjóti. Enda hefur sjórinn ekki
gengið jafn hátt og í laugardags
flóðinu í 30 ár.
Mikið tjón er að skarðinu í
varnargarðinn. Skarðið myndað
ist framarlega á honum og er
það sem eftir stendur, framend
inn og efri hlutinn orðið mikið
sigið. Er hætt við að það legg
ist út af líka, ef gerir mikið
brim. — GÞ.
Framh. af bls. 24
Nýreist mastur vegna fjölsíma-
sambands við Hornafjörð og einn
ig ér fyrir móttakara er við sím-
stöðina. Það laskaðist eitthvað.
xft ■ >*.
Plötiim rigndi um Friðarhöfn
..Més'tui' ’hiuti. af . syðsta húsi
yihhslustöðvárinnái', 'sem nefnt
er „KÍna“, faúk og einnig er tal-
)ð að'„tölúverðjrp hluti af plötúm
af nýja pökkunarsainum hafi far-
ið. Hundruð af yfir 20 feta plöt-
um rigndi um alla Friðarhöfn,
trúlega af yfir hundruð fermetra
fleti. Annars var hvergi gerlegt
að fara nálægt til að kanna nán-
ar skemmdir, og er stórmildi, ef
ekki hefur orðið meiðsli á mönn-
um sem voru að bjarga bátum
sínum. Hver hafði í rauninni nóg
með að hemja sjálfan sig og urðu
margir að henda sér niður, svo
þeir steyptust ekki í sjóinn. Auk
þess var margt lauslegt á ferð-
inni í rokinu.
Á símstöðinni var jafn mikið
að gera og þegar brunalúðurinn
fer í gang, borðið varð hvítt og
númerin hrundu niður, því allt
fór á annan endann í bænum.
3 bátar halda sjó
Þrír Vestmannaeyjabátar eru á
leið til Eyja frá því að hafa selt
erlendis. Þeir halda sjó 70 mílur
A-SA af Eyjum og voru kl. 6—7
í 14 til 16 vindstigum eða í
„spænuroki", eins.og þeir sögðu,
en sjór var ekki að sama skapi
mikill. Bátarnir eru Mb. Krist-
björg, Eyjaberg, sem eru saman
og Leo er lítið eitt á eftir. Þetta
eru allt stórir stálbátar.
, — FréttaritarL
Hvíta bandið í
Osló og Ólafía
Jóhannsdóttir
f FRÉTT frá Ósló í blaðinu í gær
misritaðist eitt orð. Þar segir, að
Hvítasunnukonur hafi heiðrað
minningu Ólafíu Jóhannsdóttur,
en átti að vera, að Hvíta bandið
í Ósló hafi gengizt fyrir útisam-
komu við styttu Ólafíu þar í
borginni í tilefni af, að 100 ár
voru liðin frá fæðingu hennar,
en Ólafía starfaði í mörg ár á
vegum Hvíta bandsins.
Vinnnveitendur iæðn viðhorfið
■ su s
fengið mun betri og fjölbreytit-
ari mat. Þegar við fórum að
grennslast eftir ástæðunni til
ihins mismunandá mataræðis
undirmanna og yfirmanna flot-
ans var okkur tjáð, að yfirmenn
iborði á eigin kostnað en undir-
imenn á kostnað stjórnarinnar
og séu þvi kröfuharðarL
Annar þáttur dvalarinnar í
Norfolk, sem mér virtist mikil
áherzla væri lögð á var að
kynna okkur bandaríska sögu
og menningu. í þeim tilgangi
heimsóttum við m.a. mjög merk
an og sérstæðan stað, sem heit-
ir Colonial Williamsburg og er
nokkurs konar Árbær þeirra
Virginíumanna. Þar hefur heilt
þorp verið endurreist með því
útliti sem það hafði fyrir nær
200 árum síðan. Williamsburg
var um tíma höfðuborg Virg-
iníufylkis og aðsetursstaður
ihina brezbu landstjóra fylk-
isins. Þar var þing fylkisins
einnig háð og sóttu það ýms-
ar helztu frelsishetjur Banda-
ríkjanna, svo sem George Wash
ington og Thomas Jefferson.
Er mjög athyglisvert hversu
snilldarlega hefur tekist til um
endurreisn þessa staðar og hve
ríkt hið gamla andrúmsloft
staðarins er. í einni svipan
var maður hrifinn 200 ár aftur
1 tímann og var farinn að
ganga innanum fólk klætt bún
ingum hins gamla tírna.
Eftir rúmlega 3 daga dvöl
í Norfolk hélt hópurinn flug-
leiðis til Washington D. C.
hinnar undurfögru höfuðborg-
ar Bandaríkjanna. Borgin hef-
ur frá upphafi verið skipu-
lögð með það fyrir augum að
vera höfuðborg landsins.
Hverri stjórnarbyggingu hefur
frá upphafi verið valinn þar
staður, en á milli teygja sig
skrúðgarðar með glæsilegum
minnismerkjum um merka
menn og viðburði í sögu
Bandaríkjanna.
Meðal annarra stjómarbygg
ínga er þinghúsið (Capibod)
sem byrjað var að reisa 1793
og er nú ein stærsta og feg-
ursta stjórnarbygging í heim-
inum. Þar eru til húsa bæði
ifulltrúa- og öldungadeild
Bandaríkjanna.
Segja má að hápunktur dval-
ar okkar í Washington hafi ver-
ið heimsókn okkar í þessa bygg
ingu. Þar hittum við að máli
Lyndon B. Johnson, varaforseta
Bandaríkjanna og forseta öld-
ungadeildarinnar. Ræddum við
við varaforsetann nokkra stund
og lét hann í þeim samræðum
m.a. í ljós mikla ánægju með
heimsókn sína til íslands og
móttökur þær er íslendingar
hefðu veitt honum.
I skrifstofubyggingu fulltrúa-
deildarinnar tók síðar á móti
okkur þingmaður frá Kansas-
ríki, Ellsworth að nafni, og var
einnig rætt við hann drýkk-
langa stund.
Eftir heimsókn okkar í Capi-
tol var haldið til dómsmála-
ráðuneytisins í þeim tilgangi að
hitta og ræða við Robert Kenne
dy dómsmálaráðherra. Meðan
dvalizt var hjá honum voru
lagðar ýmsar spurningar fyrir
ráðherrann, m.a. um kynþátta-
vandamálin og afstöðu hans og
álit til ýmissa helztu alþjóð-
legra vandamála, sem Banda-
ríkjamenn eiga nú við að glíma.
Leysti hann mjög greiðlega úr
6purningum okkar og notaði
einnig tækifærið til að beina
orðum til okkar. Var heimsókn-
in í alla staði hin ánægjuleg-
asta og fróðlegasta.
Að öðru leyti var tími okkar
í Washington ekki mjög bund-
inn og reyndum við því hver
fyrir sig að njóta þess, sem þessi
sérstæða borg hefur upp á að
bjóða.
Næst síðasta kvöld okkar í
Washington var okkur boðið til
heimilis íslenzku ambassadors-
hjónanna, þeirra frú Ágústu og
Thiors Thors og nutuan við gest-
risni þeirra í ríkum mælL Þar
hittum við fyrir m.a. utanríkis-
ráðherra Dana, Per Hækkerup,
sem staddur var í Washington
um þessar mundir.
Sunnudagsmorguninn 6. okt.
var síðan haldið heim aftur frá
Washington eftir mjög vel
heppnaða dvöfL
Hér á undan hefur aðeins ver-
ið stiklað á stóru og mörgu
merku sleppt, en að lokum vil
ég aðeins segja að móttökur
Bandaríkjamanna voru að mínu
áliti og annarra í einu orði sagt
frábærar og tilgangi ferðarinn-
ar fyllilega náð.
— Alsír
Framh. af bls. 1
Marokkóstjórn einni að kenna að
ekki hafi náðst árangur með heim
sókn keisarans. Eftir brottför
keisarans var tilkynnt í Algeirs-
borg að stjórn Ben Bella hafi ósk
að eftir því að utanríkisráðherr-
ar í Afríkuríkjasambandinu, sem
stofnað var í Addis Abeba
snemma á þessu ári, verði kvadd-
ir til aukafundar um landamæra-
deiluna.
Sendinefndir frá frak og frá
Arababandalaginu hafa einnig
dvalið í Algeirsborg, og ræddu
þar við stjórnarvöldin imi hugs-
anlega lausn í deilunni, en ekki
hefur frétzt um árangur af þeim
viðræðum. Hinsvegar var skýrt
frá því í Algeirsborg að fulltrúi
Alsírstjórnar, sem sendur var til
Rabat, höfuðborgar Marokkó,
með orðsendingu stjórnar Ben
Bella, hafi ekki fengið landgöngu
leyfi í Marokkó. Fylgir það frétt-
inni að öll alsírsk blöð séu nú
bönnuð í Marokkó.
Egypzkir fangar í Marokkó
Mohamed Oufkir hershöfðingi,
yfirmaður öryggisþjónustunnar í
Marokkó, bauð í nótt erlendum
fréttariturum ao hitta fjóra af
fimm egypzkum herforingjum,
sem handteknir voru í Marokkó
sl. sunnudag. Herforingjar þessir
komu með alsírskri þyrlu, sem
annaðhvort lenti eða var neydd
til að lenda í Marokkó. Ekki
fengu fréttamennirnir að ræða
við Egyptana, en hinsvegar að
taka af þeim ljósmyndir. Fimmti
Egyptinn var ekki við, og var
ástæðan sögð sú að hann væri
enn til yfirheyrslu.
Að sögn Oufkirs hershöfðingja
hafa egypzku herforingjarnir við
urkennt að hafa verið sendir til
landamærahéraðanna til að
þjálfa alsírska nýliða og gefa
skýrslu til egypzku stjórnarinnar
um þörf Alsírstjórnar á hernað-
araðstoð frá Arabíska sambands-
lýðveldinu.
Franska stjórnin á fundi
Franska fréttastofan hafði það
í dag eftir André Peyrefitte upp-
lýsingamálaráðherra að franska
stjórnin hafi ekki í hyggju að
láta landamæradeilu Alsír og
Marokkó til sín taka, en voni að
deiluaðilum takizt að finna frið-
samlega lausn hennar. Haldinn
hefur verið fundur frönsku stjórn
arinnar um deiluna og þar gáfu
þeir Maurice Couve de Murville
utanríkisráðherra og Jean de
Broglie Alsírmálaráðherra skýrsl
ur um ástandið.
★
Moskvuútvarpið hefur í frétt-
ifm sínum jafnan tekið málstað
Alsír að sögn Marokkóstjómar-
innar. í dag var skýrt frá því í
Rabat að sendiherra Sovétríkj-
anna þar hefði átt klukkustund-
ar símtal við Nikolai Firubin, að-
stoðarutanríkisráðherra, og mót-
mælt því harðlega að rússnesk
blöð og útvarp flyttu einhliða
fregnir, sem byggðar væru á til-
kynningum Alsírstjórnar.
1 kvöldfréttum frá Algeirs-
>org var skýrt frá því að her-
sveitir Marokkó hafi neyðst til
að hörfa 70 kílómetra inn í
landið undan sókn alsírska hers-
ins á svæðinu við Hassi Beida.
Segir Alsírstjórn að hersveitum
hennar hafi tekizt að ná aftur
Hassi Beida í sókn þessari. Þótt
Marokkóherinn hafi notið stuðn
ings skriðdreka, flugvéla og
stórskotaliðs, hafi honum ekki
tekizt að hindra sóknina.
Þá skýrði herstjórnin í Alsír
frá því að hún hafi sent áskor-
un til hermanna í Marokkó um
að neita að berjast fyrir Hass-
an konung. Segir í áskoruninni
að Hassan sé þjónn heimsvalda-
sinna, og að margir yfirmenn
úr hernum hafi verið skotnir
fyrir að neita að berjast gegn
bræðraþjóðinni í Alsír.
— Ofsaveður
i
Framh. af bls. 24
eru byggingar víða nýlegar og
traustlega gerðar og þeim sem
eldri eru vel við haldið.
Staurarnir á raflínunni sem
liggur frá norðri til suðurs und-
ir Eyjafjöllunum hafa látið
undan veðrinu og hallast
mjög til vesturs. Símalínunar
hafa bilað milli Seljalands og
Varmahlíðar. Holtsós líkist frem
ur úthafi en litlum ósi. — M. J.
Á Selfossi var næstum óstætt
í gærkvöldi og versta veður á
Eyrarbakka, en ekki neitt tjón
sem vitað var um.
Uruðu undir uppslættinum
AKUREYRI — Hér tók að hvessa
um kl. 6 í kvöld og náði veðrið
hámarki um kl. 8. Voru þá 9
S-SA vindstig á lögreglustöðinni
þar sem veðurathuganir fara
fram, en miklu hvassara í bylj
unum. Á brekkunum og á Ödd-
eyri mun veðurhæð þó hafa ver
ið miklu meiri. Mikið úrfelli
fylgir veðri þessu.
Rafmagn fór af öllum bænum
á 9. tímanum og var rafmagns-
laust í stundarfjórðung. Eitthvað
munu þakplötur hafa losnað og
fokið og varð ungur maður fyrir
einni þeirra og skarst á hendi og
á fæti Gert var að sárum hans
í sj úkrahúsinu.
Tveir ungir heimilisfeður voru
í kvöld að vinnu við hús, sem
þeir eiga í smíðum. Voru þeir
búnir að slá upp mótum útveggja
á efri hæð og voru rétt ófarnir
heim til kvöldverðar, er upp-
slátturinn fauk skyndilega yfir
í DAG mun stjórn Vinnuveit-
endasambands íslands halda
fund til að ræða um viðhorf
vinnuveitenda gagnvart kaup-
kröfum ýmissa stéttarfélaga. En
samningar eru lausir síðan 15.
október hjá fjölmörgum félög-
um.
Hafa mörg félög sett fram
kröfur sínar, ýmist krafist 43
% beinnar kauphækkunar, stytt-
ingar vinnutíma án þess að kaup
lækki o.fl. og sumir sett fram
sérkröfur. Verður þetta rætt á
fundinum.
1 gær hafði sáttasemjari fund
með undirnefndum deiluaðila
um kaup og kjör verzlunar- og
skrifstofufólks, og verður fund-
ur með sáttasemjara í kvöld.
Dómur vegna
Lifeguard í dag
ÍSAFIRÐI, 23. okt. — Réttar-
höldum í máli skipstjórans á
brezka togaranum Lifeguards
var haldið áfram í m.orgun og
mættu þá fyrir réttinum 1. vél-
stjóri togarans og loftskeytamað-
ur og staðfestu framburð skip-
stjórans um bilanir á ljósum og
sendiloftneti skipsins.
Kl. 16.30 barst ákæra frá sak-
sóknara ríkisins og var réttur þá
settur að nýju og vörn flutt Og
málið að því loknu dómtekið. —
Dómur verður kveðinn upp á
morgun. — H.T.
Stjórn Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur fékk á fundi trún-
aðarmannaráðs í fyrradag heim-
ild til vinnustöðvunar, ef sam-
komulag næst ekkL
FJÖRUTÍU OG
FJÓRIR FÓRUST.
Seoul, S. Kóreu, 23. okt. AP.
FERJU hvolfdi á á einni í
Suður Kóreu í dag, og fór-
ust þar 44 manns aðallega
skólabörn. Voru börnin í
skólaferð ásamt kennurum
sínum. Ekki er vitað um
orsök slyssins.
HEIMSÓKNIR
ERHARDS.
London, 23. okt. NTB.
DR. LUDWIG Erhard, hinn
nýi kanzlari Vestur Þýzka-
lands, hefur þegið boð
brezku stjórnarinnar um að
heimsækja Bretiand á næst-
unni. Ekki er ákveðið hve-
nær. Frá París er tilkynnt að
Erhard komi þangað í opin-
bera heimsókn 21. nóvember.
Þá hefur kanzlarinn skýrt frá
því að hann vilji gjarnan
fara til viðræðna við forustu-
menn í Bandarikjunum.
KOSNINGAR í
JAPAN.
Tokio, 23. okt NTB.
JAPANSKA þinginu var
slitið í dag og tilkynnti Ilay-
ato Ikeda forsætisráðherra að
nýjar þingkosningar færu
fram í landinu hinn 21.
nóvember n.k.