Morgunblaðið - 23.11.1963, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 23. nóv. 1963
„EF DROTTINN VERNDAR EIGE BORG-
■■
INA, VAKIR VORÐURINN TIL 0NYTIS“
John F. Kennedy, líf hans og starf
„EF Drottinn verndar eigi
borgina, vakir vörðurinn
til ónýtis“ (Sálmar Davíðs,
127, 1), voru niðurlagsorð
ræðu Kennedys Banda-
ríkjaforseta, sem hann
hugðist flytja í Dallas í
gær. — Boðskapurinn
í þessari ræðu hins unga
forseta átti að vera sá að
Bandaríkin hefðu aldrei
verið öflugri en einmitt nú,
en hann hugðist jafnframt
fullvissa landsmenn sína
um að máttur þeirra yrði
aldrei notaður til annars
en að efla friðinn í heimin-
um. En forsetanum entist
ekki líf til þess að flytja
þennan boðskap; hann féll
fyrir kúlum launmorðingj-
ans á leið til vörusýningar
í Dallas, Texas, þar sem
ræðan skyldi flutt.
„Hver maður gerir
skyldu sína — þótt að hon-
um steðji persónulegir erf-
iðleikar, hættur og ögranir
— og þetta er undirstaða
alls mannlegs siðgæðis“.
Þannig lýsti John F. Kenne
dy lífsviðhorfi sínu og þetta
einkenndi líf hans allt,
frammistöðu hans á styrj-
aldarárunum, framkomu
hans í innanríkis- jafnt
sem utanríkismálum, og
jafnvel dauðdaga hans.
John Fitzgerald Kennedy
var fæddur 29. maí 1917 í einni
af útborgum Boston, Brook-
line, Massachusetts, og var því
46 ára gamall er hann lézt.
Foreldrar hans voru Joseph og
Rose Fitzgerald Kennedy, og
eru þau bæði á lífi. Kennedy
var annað barn foreldra sinna,
en alls eru systkinin níu tals-
ins.
Kennedyættin er af írskum
uppruna eins og nafnið ber
með sér, og flúðu forfeður for-
setans írland er hungursneyð
■
varð í landinu vegna upp-
skerubrests á kartöflum á ár-
unum 1840—1850. Móðurafi
hans var John F. „Honey
Fitz“ Fitzgerald, þekktur og
litríkur stjórnmálamaður, sem
var borgarstjóri í Boston all-
mörg kjörtímabil. Föðurafi
Kenndys, Patri c.k J.
Kennedy, hafði einnig verið
öldungadeildarþingmaður fyr-
ir Massachusetts. Faðir Kenne
dys, Joseph Kennedy, varð
milljónamæringur af eigin
ramleik og var sendiherra
Bandaríkjanna í Bretlandi
1937—1940.
John F. Kennedy, eða
„Jack“, eins og hann var jafn-
an nefndur í fjölskyldunni,
ólst upp í Brookline, og síðar
í Riverdale og Bronxville í
New York, en þangað fluttist
faðir hans til þess að geta ver-
ið nær fyrirtækjum sínum þar
í borg.
Jafnvel þó að Joseph Kenne
dy væri milljónamæringur,
lét hann börn sín hafa tak-
mörkuð fjárráð. Umræður al-
varlegs eðlis voru jafnan hafð-
ar í hávegum á heimili Kenne-
dys og er börnin uxu úr grasi
voru stjórnmál oft ofarlega á
baugi.
Eftir að hafa gengið í barna
skóla í Brookline og River-
dale, var John Kennedy send-
ur í Canterbury-skólann í New
Milford í ' Connecticut. Var
hann þá 13 ára gamall. Næsta
ár settist hann í Choate Aca-
demy í Wallingford í sama
fylki, og þaðan útskrifaðist
hann 18 ára gamall árið 1935.
Kennedy innritaðist síðan í
Princetonháskóla 1936, nokkr-
um vikum of seint vegna gulu
sóttar. Neyddist hann til þess
að hverfa frá námi um jóla-
leytið vegna veikinnar.
1936 settist hann í Harvard-
háskóla og voru aðalnámsgrein
ar hans stjórnvísindi og al-
þjóðastjórnmál. Síðasta skóla-
ár sitt þar skrifaði hann rit-
gerð, þar sem hann reyndi að
brjóta til mergjar ástæðurnar
til þess að England vígbjóst
ekki sem skyldi gegn Hitler.
Hét ritgerðin „Why England
....SHMHBÍv 2 f
Hér sjást forsetahjónin leika við litlu dóttur sína, Caroline, sem verður sex ára í
viku. John Kennedy jr. á einnig afmæli í næstu viku. Hann verður þriggja ára.
næstu
Slept“ — „Hversvegna Eng-
land svaf“ — og var síðar gef-
in út í bókarformi. Vakti bók-
in mikla athygli og varð met-
sölubók bæði í Bandaríkjun-
um og Bretlandi.
Kennedy útskrifaðist með
láði frá Harvard 1940. Ráð-
gerði hann að setjast í laga-
deild Yale-háskóla, en breytti
áætlun sinni og settist í við-
skiptadeild Stanfordfsháskóla.
Kennedy gekk mjög vasklega fram í styrjöldinni við Japani á Kyrrahafi, og hlaut fyrir það
mörg heiðursmerki. llér sézt Kennedy (lengst tii hægri) ásamt áhöfn tiuidurskeytabátsins
PT-109. Myndin er tekin í Kyrrahafi á stríðsárunum. — Kvikmynd hefur verið gerð fyrir
nokkru um styrjaldarafrek Kennedys.
Þar hætti hann námi sex mán-
uðum síðar sökum þess að
honum líkaði ekki námsgrein-
in. Fór hann síðan í ferðalag
til S-Ameríku, en kom síðan
heim og gekk í sjóherinn.
STYRJALDARHETJA
Fyrstu mánuði sína 1 sjo-
hernum var Kennedy staðsett-
ur í Washington D.C. Eftir
árás Japana á Pearl Harbor
7. des 1941, sótti hann um að
komast á vígstöðvarnar í
Kyrrahafi. Var hann þá flutt-
ur til tundurskeytabátadeildar
og varði sex mánuðum til þess
að læra stjórn slíkra báta til
hlítar. Var hann síðan gerður
að liðsforingja og fenginn bát-
ur til stjórnar.
Tundurskeytabátur Kenne-
dys var síðan sendur til þess
að taka þátt í bardögunum
um Salomonseyjar. Nótt eina
í ágúst 1943 sigldi japanskur
tundurspillir á bát Kennedys
miðjan og kubbaði hann í
tvennt. Tveir af áhöfninni fór-
ust þegar. Kennedy og þeir 11,
sem eftir lifðu, héngu á brak-
inu alla nóttina, en er dagaði
skipaði Kennedy áhöfninni að
synda til næstu eyjar. Þrátt
fyrir að hann hefði særzt í
baki, synti Kennedy í fimm
klukkustundir og dró á eftir
sér særðan félaga sinn. Næstu
fjórum dögum eyddi Kennedy
að mestu á sundi, leitaði að
bandarískum skipum til að
bjarga áhöfninni. Á fimmta
degi synti hann ásamt öðrum
manni til Nauru-eyjar, þar
sem honum tókst að fá inn-
fædda menn til þess að sækja
hjálp til annarrar eyjar, þar
sem Bandaríkjamenn voru
staðsettir. Fyrir þessar hetju-
dáðir var Kennedy sæmdur
margvíslegum heiðursmerkj-
um.
í desember 1943 sendi sjó-
herinn Kennedy aftur til
Bandaríkjanna. Þjáðist hann
þá af malaríu og kvölum í
baki.
STJÓRNMÁLAFERILL
John Kennedy hóf afskipti
sín af stjórnmálum 1946. —
Bauð hann sig þá fram til setu
í fulltrúadeild Bandaríkja-
þings fyrir Massachusetts. —
Barðist Kennedy við átta aðra
frambjóðendur demókrata um
hver hljóta skyldi framboðs-
sæti flokksins.
Kosningabaráttan 1946 setti
það fordæmi, sem síðan varð
einkennandi fyrir stjórnmála-
baráttu John F. Kennedys, og
átti e.t.v. mestan þátt í því,
hversu honum varð ágengt.
Bræður hans og systur, sem
jafnan höfðu fylgzt vel með
stjórnmálum, gengu nú fram
fyrir skjöldu. Sömuleiðis móð-
ir hans, Rose. Að Kennedy
Framihald á bls. 13