Morgunblaðið - 12.02.1964, Qupperneq 4
4
MORGU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 12. febr. 1964
Permanent litanir
geislapermanent, — gufu
permanent og kalt perma-
nent. Háilitun og hárlýsing
Hárgreiðslustofan Perla
Vitastíg 18 A - Sími 14146
Eldhúsinnréttingar
Smíða eldhúsinnréttingar.
Leitið tilboða. Sími 33206.
Smurt brauð
og snittur allan daginn. —
Einnig kalt borð. Munið
ísterturnar.
Matbarinn, Lækjargötu 8.
Sími 10340.
Iljón með eitt barn
vilja leigja 2—3 herbergja
íbúð, ekki seinna en 14.
maí. Upplýsingar í síma
12097 milli 1—5.
Hægra frambretti
Hægra frambretti á Chevro
let fólksbil, ’51—'52, ósk-
ast. — Gylfi ólafsson,
sími 35489.
Mótatimbur
Notað mótatimbur til sölu,
aðallega 1x6 og 2x4. Uppl.
í síma 15186.
Gólfdúkur
Til sölu ea. 250 lengdarm.
af ítölskuim gólfdúk C-
þykkt. Sími 15186.
Til sölu >
Volkswagen sendiferðabíll
(rúgbrauð). Selst ódýrt
gegn staðgreiðslu. Uppl. í
Karfavog 11, sími 34825.
Til leigu
gott og rakaiaust geymslu-
pláss, sími 17133 kl. 12—1
og eftir kl. 8 á kvöldin.
Trésmíði
Vinn alk konar innanhúss
trésmíði í húsum og á verk
stæði. Hef vélai á vinnu-
stað. Get útvegað efni. —
Sanngjörn viðskiptL —
Sími 16805.
TIL LEIGU
1—2 herbergi með eldfhús-
aðgangi o.fl.
Tilboð með upplýsingum
óskast send Morgunblaðinu
fyrir fimmtudagskvöld, —
merkt: Herbergi — 9122.
Bíll til sulu
Glæsilegur Moskwich bíll,
árg. ’58, til sölu. Uppl.Ling
ar í síma 35148, eftir kl.
8 á kvöldin.
Óskum eftir
að taka á leigu í Hafnar-
firði 1—2 herb. íbúð. Erum
barnlaus, vinnum bæði úti.
Uppl. í síma 36055.
Til sölu
Einangraðar járnhurðir í
körmum. Timbyr og járn
bitar sverir. Uppl. í síma
50875.
Reglusöm stúlka
óskar eftir herbergi. Barna
gæzla kemur til greina. —
Uppl. frá kl. 3—7 í síma
35755.
GOTT mannorð er dýrmætara en
mikill auður, vinsæld er betri en
silfur og gull (Oorsk. 22, 1).
í dag er miðvikudagur 12. febrúar
og er það 43. dagur ársins 1964.
Eftir lifa 323 dagar.
í dag er Öskudagur.
Árdegisháflæði kl. 5:03.
Næturvörður 1.—7. febr. er í
Vesturbæjarapóteki- Sími 22290
Helgidagavörður i Apóteki Aust-
urbæjar sími 19270.
Nætur- og helgidagavarzla
lækna í Hafnarfirði í febrúar-
mánuði 1964: Frá kl. 17—13:
8. — 10. Ólafur Einarsson 10- —
11. Eirikun Björnsson 11. — 12.
Bragi Guðmundsson 12 — 13.
Jósef Ólafsson 13. — 14. Kristján
Jóhannesson 14. — 15. Ólafur
Einarsson.
Bilanatilkynningar Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Sími 24361.
Vakt allan sólarhringinn.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9:15-8 laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga fra kl.
1-4 e.h. Simi 40101.
Slysavarðstofan i Heilsuvernd-
arstöðinni. — Opin allan sólar-
hringinn — sími 2-12-30.
Neyðarlæknir — simi: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Holtsapotek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7, nema laugar-
daga frá kl. 9-4 og helgidaga
frá kl. 1-4. e.h.
I.O.O.F. 7 = 145212SH = Sp.
K HELGAFELL 59642127 IV/V.
Orð lífsins svara I sima 1000«.
FRÉTTIR
Alþjóðlegur bænadagur kvenna.
Alþjóðlegur bænadagur kvenna
er föstudagurinn 14. febrúar.
Konur munu halda samkomu í
Fríkirkjunni kl. 8:30 um kvöld-
ið. Samkoma þessi er undirbúin
af konum frá ýmsum kristnum
hreyfingum í Reykjavík og verð-
ur þar ritningarlestur, stutt ávörp
vitnisburður og bæn, einsöngur
og almennur söngur. Sama dag-
skrá og yfirskrift er notuð á sam
komum dagsins um allan heim,
en 150 lönd taka þátt í þessum
bænahring í ár. Yfirskriftin er
„sameining" og „bæn“.
Munið Alþjóðlegan bænadag
kvenna föstudaginn 14. febrúar-
Samkoma í Fríkirkjunni kl. 8.30.
Aðalfundur félags austfirskra kvenna
verður haldinn fimmtudaginn 13. þ.m.
að Hverfisgötu 21. kl. 8:30. Til skemmt
unar myndasýning.
Kvenfélag Bústaðarsóknar. Félags-
vist verður spiluð á fundinum í Háa-
gerðisskóla fimmtudagskvöld kl. 8:30.
Upplýsingar um frímerkjasöfn
un veittar almenningi ókeypis í
herbergi félagsins að Amtmanns
stíg 2 (uppi) á miðvikudags-
kvöldum milli kl. 8—10.
Félag Frímerkjasafnara.
Kvenfélag Kópavogs. Fundur í Fé-
lagsheimilinu miðvikudaginn 12. febr.
kl. 8:30. Leifur Haildórsson sýnir
skuggamyndir. Mætið stundvísiega.
Stjómin.
Húnvetningafélagið heldur kvöld-
vöku í Silfurtungiinu annað kvöld kl.
8:30. M.a. sýnd kvikmynd frá gos-
stöðvunum við Vestmannaeyjar.
Kvenfélag Lágafellssóknar.
Námskeið í Hjálp í viðlögum |
verður haldið að Hlégarði og
stendur dagana næst komandi
mánudag, miðvikudag og fimmtu ;
dag, alla dagana kl. 8.30 — 10.30
síðdegis. Lárus Þorsteinsson frá
Slysavarnarféiagi íslands annast
Kennslu. Öllum íbúum á félags-
svæðinu er neimil þáttaka og
er það ósk félagsins að sem
flestir hagnýti sér þossa fræðslu.
í sambandi við námskeiðið verð-
ur sýnd kvikmyndin: Björgunin
við Látrabjarg.
Kvenfélagið Aldan. Afmælisfundur-
inn verður miðvikudagirui 12. febrúar
(öskudag) kl. 7:30. á Bárugötu 11.
Konur, sem ekki hafa tilkynnt þátt-
töku, geri það sem fyrst. Munið áhöld-
in. Næturviírður er í Ingólísapóteki
vikuna 8.—15. febrúar.
Laugardaginn 8. febrúaT voru
gefin saman í hjónaband af séra
Ólafi Skúlasyni ungfrú Jónína
Kristjánsdóttir og Jón Ásgeir
Jónsson. Heimili þeirra verður
að Steinagerði 3. (Ljósmynda-
stofa Þóris, Laugaveg 20 B)-_
Hér er skáld með Drottins dýrðarljóð,
djúp, svo djúp sem líf t heilli pjóð,
blíð — svo blið, að heljarhúmið svart,
hvar sem stendur, verður engilbjart.
Heill þér, Guðsvin, heill með böl og raun!
Herrann sjálfur var þín siqurlaun.
Guös-manns líf er sjaldan happ né hrós,
heldur tár og blóðug þyrni-rós.
Matthías Jochumsson
Laugarneskirkja
Föstuguðsþjónusta kl. 8.30-
Séra Garðar Svavarssan.
Dómkirkjan
Föstumessa í kvöld kl. 8.30.
Séra Hjalti Guðmundsson.
Neskirkja
Föstumessa í kvöld kl- 8.30.
Hafið með yður Passí«sálma.
Séra Jón Thorarensen.
Halldór Kolbeins.
Fríkirkjan í Reykjavík
Föstumessa í kvöld kl. 8:30.
Séra Þorsteinn Björnsson.
Langh oltspr estaka 11
Föstumessu í kvöld kl. 8:30
séra Sigurður Haukur Guð-
jónsson. Altarisganga. Sókn-
arnefndin.
Hallgrímskirkja
Föstumessa kl. 8.30. Séra
75 ára er í dag Böðvar Pálsson,
fyrrum kaupféiagsstjóri á Bíldu-
dal, Leifsgötu 6. Hann verður
utanbæjar í dag.
65 ára er í dag frú Margrét
Kristjánsdóttir, Smáratúni 28,
Keflavík-
Vigfús Vigfússcwi bifreiðar-
stjóri Stóragerði 38, Reykjavík á
50 ára afmæii í dag. Vigfús er
að heiman í dag.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Ingibjörg Jónsdótt-
ir, Brekkugerði 13, og Guðjón
Þorkelsson, Frakkastíg 24 B.
Laugardaginn 1. febrúar voru
gefin saman í hjónaband í Filips-
kirken í Kaupmannahöfn ung-
frú Guðrún Sveinsdóttir, Réttar
holtsveg 87, Reykjavík og Bent
K. Andersen, Langö, Fjóni. Heim
ili ungu hjónanna er Tycho Bra
hes Allé 37. Köbenhavn S.
Æskulýðsvika
Æskulýðsvika K.F.U.M. og K.
í Reykjavík:
Miðvikudagur
Síra Frank M. Halldórsson-
Stína Gísladóttir, kennaranemi,
og Narfi Hjörleifsson, tæknifræð-
ingur, segja nokkur orð.
Æskulýðskór.
MiBvikudagsskrítlan
Stjörnufræðingurinn var að
skýra fyrir nokkrum gestum í
turninum gang himintunglanna,
— Þessi stjarna hér heitir Ak-
turus og fjarlægð hans frá jörðu
er nákvæmlega eitthundrað mill-
jón sjöhundruð og ellefu kíló-
metrar.
— Er það mælt neðan frá göt-
unni eða héðan úr tuminum?
sputði einn gestanna.
GAIVIALT oc goti
Þar sem Jón Árnason minnist
á öskudaginn, getur hann þess,
að sujnir segi að nóg sé, ef aska
eða steinn er borinn þrjú fet, en
sumir að burðúrinn sé ekki iög-
mætur, ef ekki er borið yfir þrjá
þröskulda. Ég hef heyrt báðar
þessar útgáfur, an auK~ þess, að
ekki væri að marka, þótt steinn
eða aska væri borin eftir dagset-
ur, og hefi ég vitað miklar stæl-
ur rísa út úr því, hvort dagsett
væri eða ekki.
Ólafur Daviðsson.
JÚMBÓ og SPORI — >f— — — -k— Teiknari: J. MORA
í»að kvöldaði og Jumbo og vinir
hans ákváðu að láta fyrirberast í kof-
anum um nóttina. „Mér þykir ósenni-
legt að hinir upprunalegu ít iar kof-
ans komi aftur í nótt“ sagði prófess-
or Mökkur, „svo öllu ætti að vera
óhætt. Eruð þið ekki þreyttir?11
í»eir buðu góða nótt allir þrír og
lögðust til svefns. En allt í einu stökk
Jumbó á fætur og hrópaði upp yfir
sig: „Það er eitthvað á seyði! Kof-
inn... kofinn hreyfist“. „Vitleysa",
sagði Spori, „þig hlýtur að vera að
dreyma“.
En Spora varð brátt ljóst, að þeir
voru vakandi allir þrír og það var
alvara á ferðum. Því nú hreyfðist
kofinn ekki hara smávegis, heldur
kastaðist hann fram og aftur eins og
smábátur í stórsjó og þeir sem inni
fyrir voru kútveltust og hentust sitt
á hvað.