Morgunblaðið - 12.02.1964, Page 6

Morgunblaðið - 12.02.1964, Page 6
6 MORGU N BLAÐIÐ Miðvikudagur 12. febr. 1964 Herranótt: ímyndunarveikin Leikstjóri: Haraldur Björnsson Höfundur: IVIoliére Kjartan Thors i hlutverki Argans. ÞAÐ ríkti mikil kátína á Herra- nótt Menntaskólans í Iðnó á mánudagskvöld, þegar nemendur frumsýndu hinn sögufræga og gamalkunna skopleik Moliéres, „ímyndunarveikina“, undir leik stjórn Haraldar Björnssonar. Þennan leik þarf ekki að kynna íslenzkum leikhúsgestum af eldri kynslóð, svo oft sem hann hefur verið fluttur hér- lendis, síðast í Þjóðleikhúsinu ár- ið 1951. Að þessu sinni er hann fluttur í þýðingu Lárusar Sig- urbjörnssonar og Einars Ól. Sveinssonar, en felldir hafa ver- ið niður dansþættirnir, sem upp haflega voru sniðnir fyrir hirð Loðvíks 14. í Versölum. „ímyndunarveikin" er af ýms- um talinn skemmtilegasti skop- leikur Moliéres, þó honum verði ekki sem leikhúsverki jafnað við „Tartuffe" eða „Le misanthrope“. Eins og í flestum verkum hans blandast hér saman gaman og beisk ádeila á þjóðfélagið, og þó einkum á mannlegan breyskleik og fordild. Moliére var mjög í nöp við læknastéttina, eins og víða kemur fram í verkum hans, og hér eru þeir helzti skotspónn hans ásamt trúgirni góðborgar- anna, sem láta lækna og aðra spákaupmenn hafa sig að féþúfu. Inn í þetta fléttast svo ádeila á pretti eiginkvenna og klæki lög- fræðinga. Margt af þessu á sér rætur í persónulegri reynslu höf- undarins sjálfs, og „ímyndunar- veikin" verður ekki sízt hugleik- in sökum þess að hér er um að ræða síðasta verk skáldsins, og aðalhlutverkið samdi hann handa sjálfum sér, en hann var eins og kunnugt er góður leikari. Hann gekk um þettá leyti með sjúk- dóm, sem hann vissi að mundi draga sig til dauða, og í ljósi þess fá ummæli hans um lækn- ana mjög svo persónulegan blæ, ekki sízt í atriðinu þar sem Bér- alde, bróðir Argans, gerir grín að veikindum hans og hvetur hann til að fara í leikhúsið og sjá verk Moliéres. Hann virðist tala fyrir munn skáldsins, þegar hann segir að menn verði að hafa hraustan'skrokk til að þola lyf læknanna ofan á eigin veik- indi. Það var á fjórðu sýningu „fmyndunarveikinnar" árið 1673, sem Moliére fékk blóðspýting og | lézt nokkrum stundum síðar. Leikrit Moliéres voru hápunkt- ur þeirrar öldu franskra gaman- leikja, sem hófst fyrir miðja 17. öld fyrir tilstilli Richelieus kardí- nála. Á þremur áratugum skilaði skáldið lífsverki, sem skipar hon- um á fremsta bekk meðal leik- skálda heimsins. Eftir Aristófan- es, Menander og Shakespeare má ugglaust telja Moliére fremsta gamanleikaskáld heimsbókmennt anna, þó verk hans beri að vísu ekki öll sama snilldarbragðið . í gamanleikritum sínum, sem einatt eru allfarsakennd, dró hann upp snjallar myndir af sam tíðinni og skapaði nokkrar eftir- minnilegar manngerðir, sem enn í dag standa okkur ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Ádeila hans byggðist framar öllu á heil- brigðri skynsemi, og hann for- dæmdi hvers konar öfgar á svip- aðan hátt og grísku leikskáldin höfðu gert 2000 árum áður. Ég er ekki sammála þeim um- mælum Haraldar Björnssonar í Leikskrá, að alvarleg leikhús- verk séu heppilegri viðfangsefni fyrir áhugaleikara en gaman- leikir eða beinir farsar. Þó það sé rétt að alvarleg leikhúsverk séu að jafnaði viðameiri og standi meir undir sér sjálf, eru þau vissulega mun vandasamari óreyndum leikurum, einmitt vegna þess að í þeim er sjaldan hægt að beita þeim ýkjum og einföldu leikbrögðum, sem grín- leikir bjóða upp á. Það er að mínu viti engin tilviljun, að slík- ir leikir verða oftar fyrir valinu, þegar áhugamenn eiga í hlut: ærslin og ýkjurnar útheimta auð veldari tækni en alvarlegur leik- ur. Þetta kom berlega fram á Herranótt Menntaskólans. Það sem bezt heppnaðist í sýningu hinna óreyndu leikara var fars- inn, en tilburðir til raunsærrar túlkunar voru heldur ósannfær- andi. Þar fyrir var sýningin furðulega góð þegar á heildina er litið. Haraldur Björnsson hef- ur gefið henni hreinan stíl og dregið fram kjarnann í verkinu, Fleiri tukthús Þessa dagana eru blöðin yfir- full af fréttum og frásögnum af þjófnuðum, innbrotum, fjár- svikum og öðru því um líku. Oft hefur verið greint frá stór- um og smáum afbrotum á ís- landi, en ég held, að þetta hafi aldrei verið jafnlíflegt og nú í seinni tíð. Samtímis er kvartað yfir því, að meira fé vanti til vegalagna, til sjúkrahúsbygginga, til flug valla — og þar fram eftir göt- unum. En hvernig er það — þarf ekki að byggja fleiri tukt- hús? Hvar á að koma öllum þessum skara fyrix, sem hýsa þarf nú orðið? Hvernig fer í vor? Það liggur við, að komin sé sól og sumar. Oft er ekki hlýrra að sumarlagi en núna — í miðj um febrúarmánuði. Tún og blettir eru farnir að grænka, rábarbari og túlipanar lifna við í görðum. Þvílíkt og annað eins. Og svo koma vorkuld- arnir og drepa allt saman. Ekki þó ýmis fínni blæbrigði fari for- görðum, eins og vænta mátti. Þetta hefur hann gert með því að undirstrika ýkjurnar, leggja áherzlu á nokkur megineinkenni í fari hverrar persónu, gera hana sem skýrasta í útlínum. Vitan- lega tekst það misjafnlega vel, því hópurinn er sundurleitur og nemendur ekki allir gæddir sömu leikhæfileikum. í þessu sambandi er sérstök ástæða til að þakka Birni Björnssyni úr fjórða bekk Menntaskólans fyrir stíl- hrein og skemmtileg leiktjöld, sem gáfu sýningunni einkar fal- lega umgerð. Um 'frammistöðu einstakra leikenda er það helzt að segja, að Kjartan Thors bar sýninguna uppi með skemmtilegri túlkun á Argan. Rödd hans, látbragð og horfir vel fyrir gróðrinum 1 sumar. Þessi veðurblíða hefði þótt saga til næsta bæjar fyrir 20. árum. Nýmæli Töluvert merk tíðindi i sam- göngumálum Vestmannaeyinga eru það, að Flugfélagið og Björn Pálsson hafa gert sam- komulag um, að Lóa Björns fljúgi með farþega Flugfélags- ins til Eyja þegar vindur stend ur á nýju þverbrautina. Þetta er allmerkilegt samkomulag finnst mér og getur markað þáttaskil í flugvallagerð á ís- landi. Það er sem sagt ekki ólíklegt, að hér eftir verði hætt að miða alla meiriháttar flug- vallagerð á landinu við Douglas DC-3, flugvélar, sem eru í rauninni orðnar úreltar fyrir löngu enda þótt þær séu mikið notaðar enn þann dag í dag — víða um heim. Ef við ætlum að koma okkar strjálu byggð í gott flugsamband við Reykjavík er viðbúið að við verðum að leggja höfuðáherzlu á að fá flugvélar, sem þurfa göngulag var mjög í stíl við per- sónuna, og hann datt sjaldan út úr rullunni: það var helzt að hann slakaði á andlitsvöðvunum og fengi yfirbragð unglingsins, þegar hann var að hlusta á með- leikendur sína. Fyrir þetta hefði kannski mátt girða með ræki- legri andlitsförðun. Handbragð leikstjórans var greinilegt í túlkun Kjartans, því hann brá ósjaldan fyrir sig raddblæ og handahreyfingum Haraldar sjálfs. Pétur Lúðvígsson vakti mik- inn hlátur í litlu hlutverki Tóm- asar Diafoirusar læknissonar. Gervið var frábærlega skoplegt og látbragð hans allt hnitmiðað, klassískt dæmi um velheppnaðar ýkjur farsans. Ásdís Skúladóttir lék Toinette vinnukonu, annað aðalhlutverk stuttar brautir, fremur en að gera svo og svo langar brautir á öllum stöðum. Flugvél Björns er sjálfsagt góð að mörgu leyti, en hún slær eng- in hraðamet í innanlandsflug- inu. Á aðalflugleiðirnar innan- lands væri hins vegar æskilegt að hafa eitthvað hrað- fleygara og nýtízkulegra, en rekstrargrundvöllur fyrir slík tæki er e. t. v. ekki enn fyrir hendi. Loftleiðir og Fríhöfnin Nú er mikið rætt um að Loftleiðir flytji til Keflavíkur með alla sína flugstarfsemi, því talað er um nýjar og stærri flugvélar. Bæði flugfélögin hafa beðið í Reykjavík, ef svo mætti segja, eftir lokaákv-örð- un í flugvallarmálinu. Flug- málaráðherra hefur nú lýst því yfir, að flugvöllur á Álftanesi verði of dýr — og þess vegna er til lítils fyrir Loftleiðir að bíða lengur með flutninginn. Ýmsir telja, að þar með hafi Flugfélagið fengið sterkari sam leiksins. Hún lék af auðsærri gleði og átti góða spretti, en náði hvergi verulegum tökum á þess- ari raunsæju og hispurslausu vinnukonu, sennilega vegna þess að hún er ekki nægilega ýkt frá hendi höfundarins. Guðrún Finnsdóttir náði betri tökum á* Bélinde, hinni kaldrifj- uðu og útsmognu seinni konu Argans. Þórunn Klemenzdóttir lék Angélique, eldri dóttur Arg- ans, og var óörugg í hlutverkinu, en söng laglega. Halla Hauks- dóttir lék yngri dótturina, Loui- son, og var skemmtilega barns- leg í gervi sínu, eins og vera bar. Jóhann Guðmundsson lék Dia- foirus lækni af röggsemi og ýkti látbragðið hæfilega, þannig að Framh. á bls. 13. keppnisaðstöðu á innanlands- markað, flestir íslenzkir far- þegar í millilandaflugi muni eftir sem áður kjósa að fara frá Reykjavíkurflugvelli — og komast þannig hjá ferðalaginu til Keflavíkur. En ég er sannfærður um, að reynzlan verður ekki þessL Mér finnst nefnilega ekki ólík- legt, að Flugfélagið flytji sig suður eftir með millilandaflug ið skömmu á eftir Loftleiðum. Þá opnast líka möguleikar fyr- ir Flugfélagið að fá sér þot- urnar, sem allir bíða eftir. En hvernig er hægt að rök- styðja það, að Loftleiðir verði ekki ver settir í Keflavík en Flugfélagið í Reykjavik? Jú, á Keflavíkurvelli er hið stóra að dráttarafl — Fríhöfnin. Allir farþegar, sem fara út úr land- inu um Keflavíkurflugvöli, geta verzlað í Fríhöfninni. Hve margir íslendingar nota ekki utanferðir til verzlunarerinda í leiðinni? Hve margir farþegar mundu slá hendinni á móti þvi að fara í Fríhöfnina? Svari nú hver fyrir sig. Flugfélagsmenn segja e.t.v, að þetta sé Loftleiðaáróður. Ég þekki nefnilega ríginn á milli flugfélaganna. Þetta er samt enginn Loftleiðaáróður og vert að geta þess Flugfélagsmönn- um til uppörfunar , að þotur Flugfélagsins yrðu ekki síður aðdráttarafl en Fríhöfnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.