Morgunblaðið - 07.03.1964, Side 5
Laugardagur 7. marz 1fl64
MOr%'m,t 4 0 |Ð
5
SVERTIIMGJAHÖFUÐ
Einu frægasta málverki mál
arans Rubens var í þessum
mánuði stolið úr Málverka-
safni í Briissel í Belgiu. Það
var málverkið af Negrahöfð-
unum, er Belgir þekkja einna
bezt verka hans, vegna þess,
að það hefur verið notað sem
mynd á 500 franka seðil um
lengri tíma, en fyrirmyndin
var sjómaður frá Norður-Af-
ríku.
Innbrotið var framið með
sérkennilegum hætti. Þjófn-
um eða þjófunum hafi tekizt
að ko.mast niður um þak lista
safnsins. Reistir höfðu verið
vinnupallar við nærliggjandi
og reyndust þeir einskonar
stökkpallar fyrir þjófinn eða
þjófana yfir á þakið.
Þjófnaðurinn var uppgötv-
aður af varðmanni milli kl. 2
og 5 um nóttina.
Safnið er í hjarta Briissels
nálægt konungshöllinni.
Almennt var talið, að hér
hefðu miklir kunnáttumenn
verið að verki.
Daginn eftir kom þó annað
á daginn. Þá handtók lögregl-
an 19 ára gamlan ungling, sem
reyndist vera þjófurinn.
Drengurinn var handtekinn
á götunni eftir að lögreglan
hafði rakið til hans símhring
ingu úr almennissíma til lista
safnsins. Einnig hafði drengur
inn skrifað safninu bréf og
farið fram 17.000 dollara fyrir
myndina.
Myndin fannst, að því er,
nær óskemmd.
Unglingurinn heitir André
Beugnies, og kvaðst hafa feng
ið hugmyndina að ráninu í
Radio Luxemburg.
Þá veit maður það.
STORKURINN sag&i!
»ð hann hefði undanfarið legið í
einhverri slæmsku, en væri nú
orðinn flugfær aftur. Máski hefði
enginn saknað hans, sagði hann
með grátstafinn í kverkunum. Nú
væri veðrið svo gott, og hann
hefði varið að fijúga hérna yfir
tniðbænum og þá hefði hann séð
•kemmtilega sjón.
Hann hefði séð, sagði storkur-
jsnn, fjöldann allan af ungu fólki
úr Verzlunarskólanum marséra
um göturnar, og var það allt
klætt eins og amma og afi hér
fyrr á árum.
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar
heldur bazar 17. rr.arz n.k. Þeir er
vildu styrkja hann eru góðfúslega
beðnir að snúa sér til kirkjuvarðar
Dómkirkjunnar eða frú Elísabetar
Ámadóttur, Aragötu 15.
SKÁTAKAFFI. Kvenskátar
hafa haft kaffisölu árlega undan-
farin 17 ár og er það fjársöflun-
ardagur Minningarsjóðs Guðrún-
ar Bergsveinsdóttur. Ágóða sjóðs
ins skal varið til kaupa á hús-
gögnum í dagstofu kvenskáta í
Reykjavík. Hinn árlegi kaffidag-
ur verður nú í LÍDÓ á sunnu-
daginn. Margt verður til skemmt
unax m.a. tízkusýning, Ómar
Ragnarsson skemmtir, spurninga
keppni, danssýníng og söngur.
Gott kaffi, heimabakaðar kökur
og hinir vinsælu lukkupokar.
Junior Chamber Island
Fundur á vegum stjórnþjálfunar-
nefndar verður í klúbbnum n.k. þriðju
dag kl. 12:15. Frummælandi: Geir
Hallgrímsson borgarstjóri. Fyrir-
spurnir, umræður.
Langholtssöfnuður. Er til viðtals í
saínaðarheimili Langholtsprestakalls
alla virka þriðjudaga miðvikudaga og
föstudaga kl. 5—7 e.h. svo og klukku-
stund eftir þær guðsþjónustur, er ég
annast. Sími 35750. Heimasími að Safa
mýri 52 38011. Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson.
K.F.U.M. og K. í Hafnarfirði. Gunn-
ar Sigurjónsson cand. theoi talar á
samkomunni á sunnudagskvöldið kl.
8:30.
Bræðrafélag Dómkirkjunnar heldur
aðal- og fræðslufund. Sunnudaginn 8
marz 1964 kl. 20:00 í áður auglýstum
stað. Mætið vel og stundvíslega.
Fundur verður hjá Bræðrafélagi
Óháða safnaðarins sunnudaginn 8.
marz kl. 3 e.h. í Kirkjubæ. Stjórnin.
Kvenfélag Neskirkju heldur fund
fimmtudaginn 12. marz kl. 8:30 í Fé-
lagsheimilinu. Skemmtiatriði og kaffi.
Stjórnin.
Hjálprœðisherinn
H jálpræðisherinn heldur sérstakar
samkomur, sem æskulýðsforingi Hjálp
ræðish^rsins frá Noregi. Ofursti Arne
Fiskaa talar á.
Samkomurnar eru laugardaga, sunnu
daga, mánudaga og þriðjudaga kl.
8:30. Á sunnudag verður Yngri líðs-
mannavígsla kl. 5, og Hermannavígsla
kl. 8:30. Öllum er heimill aðgangur
meðan húsrúm leyfir.
í dag verða gefin saman í
hjónaband af séra Jóni Thoraren
sen ungfrú Sigrún Ingólfsdóttir,
Miðbraut 16, Seltjarnarnesi og
Hurbert C. Chism, Abilene, Texas
U.S.A.
Laugardagsskritlan
Hversvegna sagðirðu mannin-
um að bróðir minn væri bók-
haldari?
Einfaldlega vegna þess, að
hann hefir ekki skilað mér aftur
einni einustu bók, sem ég hefi
lánað honum.
GAMALT oc Gon
Kvöldúlfur er kominn í Gvönd,
konurnar vöku herða,
stirur í augum, stirðnar hönd,
stafirnir skakkir verða.
Sannast hér hið fornkveðna,
sagði storkurinn, að lömm er sú
taug, sem rekka dregur föður-
túna sína.
Víst er um það, að íslendingar
eiga allt of lítið af gömlum
skemmtilegum venjum, og því
var það, þegar óg flaug framhjá
hópnum sagði storkurinn, þá tók
ég hattinn ofan, og sagði um leið
©g ég flaug upp á 7. hæð á Morg-
unblaðshöllinni: Haldið þið þessu
bara áfram, börnin góð!
s«x N/EST bezti
Eitt simi sagði Konráð Gisiason við Magnús Eiríksson: „Ég gekk
í gærkve'.di í Litargöui og sá þar í glugga fallega og brosleita
stúlku. Datt mér þá í hug það, sem séra HaUgrímur Pétursson segir
í sálmi dnum:
„Þegar þig freisting fellur á, forðastu einn að vera þá“
Ég fylgdi ráðum hans og fór inn til stúlkunnar.“
Magnús Eiríksson: .,Já, frater, ég held, að séra Hallgrímur hafi
nú ekki meint þetta svona.“
(Að gefnu tilefni er þetta ekki úr „ísienzkri fyndni").
ÖLAFUR
GAUKUR
& hljómsveit
'ásamt SVANHILDl
GLAUMBÆR *fim
eiFBEIMEIGElUR
Vegna fyrirsjáanlegra
anna með vinnu, ráð-
leggjum við þeim bif-
reiðaeigendum sem ætla
að láta ryðfríja og hljóð
einangra bíla sína að
hafa samband við okk-
ur sem allra fyrst.
RYÐVORIM
Grensásvegi 18. — Sími 19945.
Tilboð óskost
í eina Dodge Weapon bifreið og nokkrar fólksbif-
reiðir er verða sýndar í Rauðarárporti mánudag-
inn 9. þ.m. kl. 1—3 e.h. Tilboðin verða opnuð í skrif-
stofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Framkvœmdanefnd
Við tökum að okkur að útvega steypuefni og leigj-
um hrærivél. Einnig útvegum við fyllingarefni, syo
sem í húsgrunna, lóðir og í vegi. Leigjum ámokst-
ursvélar Priéstman vélskóflur og ýtuskóflur.
Upplýsingar gefnar í símum 1494, Helgi Haralds-
son og 1924 Þorgeir Haraldsson.
Vinnuvélar hf.9 Akranesi
Handsetjari
óskast strax.
Félagsprentsmiðjan hf.
Spítalastíg 10. — Sími 11640.
Sjómannafélag Hafnarfjarðar
Aðalfundur
Sjómannafélags Hafnarfjarðar verður haldinn
sunnudaginn 8. marz 1964 kl. 2 sd. í Verkamanna-
skýlinu.
FUNDAREFNI:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Onnur mál.
Stjórnin.