Morgunblaðið - 07.03.1964, Page 12
MORCUNBLAÐIÐ
r
Laugardagur 7. marz 1964
JWí>rj0im#í&M|í
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 80.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinssoa.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
4.00 eintakið.
Aukinn stuðningur
N-Vietnam við skœruliða
FJÖLBREYTTARA
ATVINNULÍF
Allir íslendingar eru sam-
^ mála um það, að atvinnu-
líf þeirra og framleiðsla þurfi
að verða fjölbreyttari. Við
þurfum að hagnýta landsins
gæði betur og treysta þar
með afkomugrundvöll fólks-
ins.
Til þess að ná þessu tak-
marki er nú hafinn undir-
búningur nýrra stóriðjufyr-
irtækja. Þegar hefur verið
komið á fót áburðarverk-
smiðju og seinentsverk-
smiðju, sem hafa reynzt stór-
merk og gagnleg fyrirtæki.
Nú er hins vegar rætt um
kísilgúrverksmiðju og alúm-
iníumverksmiðju. Báðum
þessum stórfyrirtækjum, á-
samt olíuhreinsunarstöð, verð
ur vafalaust hrundið í fram-
kvæmd innan tiltölulega
skamms tíma. Þau munu síð-
an eiga sinn þátt í að treysta
afkomugrundvöll þjóðarinn-
ar í framtíðinni.
En þrátt fyrir það, að at-
hyglin beinist í bili mest að
þessum stóriðjufyrirtækjum
framtíðarinnar, megum við
ekki gleyma hinu, að við höf-
um á undanförnum árum
byggt upp fiskiðnað, sem í
dag stendur undir meginhlut-
anum af gjaldeyrissköpun
landsmanna. Hraðfrystiiðnað
urinn er í dag afkastamesta
og fullkomnasta grein iðnað-
arframleiðslu okkar. Sá iðn-
aður framleiðir vörur, sem
hafa getið sér ágætt orð á er-
lendum mörkuðum, og er
stöðugt að vinna nýja mark-
aði. Þennan iðnað er hægt að
efla enn að miklum mun og
stórauka útflutningsverð-
-mæti hans. Betri og fjöl-
breyttari nýting íslenzkra
sjávarafurða er í dag tví-
mælalaust fljótfarnasta leið-
in til þess að auka útflutn-
ingsframleiðslu þjóðarinnar
og verðmæti hennar.
Að vísu má segja, að svik-
ull sé sjávarafli. Það er rétt.
Einmitt af þeirri ástæðu verð
ur þjóðin að gera atvinnulíf
sitt fjölbreyttara, þannig að
öll afkoma hennar velti ekki
á aflabrögðunum við sjávar-
síðuna. En það breytir ekki
þeirri staðreynd, að fiskurinn
er bezta og útgengilegasta
hráefnið, sem við getum unn-
ið úr til útflutnings.
Ull, gærur og dilkakjöt
eiga einnig í framtíðinni að
geta orðið verulegur þáttur í
útflutningsframleiðslunni. ís-
lenzka dilkakjötið er afbragðs
vara, sem hlýtur að vera hægt
að vinna markið fyrir víðar
J en ennþá hef ur tekizt.
Til þess að efla fiskiðnað-
inn eru margar leiðir, meðal
annars sú, að bæta verulega
hafnarskilyrðin í fjölmörgum
verstöðvum, sem vel liggja
við miðum en ennþá búa við
alltof léleg hafnarskilyrði.
Fiskiðnaðurinn þarf einnig
að eiga kost á meira lánsfé
til uppbyggingar framleiðslu-
tækjum sínum og hagnýting-
ar hinnar fullkomnustu tækni
sem völ er á.
HAGNÝTING
SKELFISKSINS
A ðeins örfá ár eru liðin síð-
an íslendingar fóru að
hagnýta humar og rækjur.
Nú eru þessir verðmætu skel-
fiskar veiddir í stórum stíl og
fluttir út fyrir tugi milljóna
króna árlega. Engu að síður
erum við alltof skammt á veg
komnir með hagnýtingu skel-
fisks hér á landi. Bæði krækl-
ingur og kúfiskur, sem víða
um heim er verðmæt vara og
þykir hið mesta lostæti, eru
ekki hagnýtt hér á landi. Víða
við strendur landsins getur
þó að líta ógrynni af þessum
skelfiski.
Fyrir nokkrum árum var
samþykkt þingsályktunartil-
laga á Alþingi um hagnýtingu
skelfisks, en lítið eða ekk-
ert hefur verið gert til fram-
kvæmdar henni.
Á þessu verður að verða
breyting. Við íslendingar höf-
um ekki efni á því að láta
undir höfuð leggjast að hag-
nýta þessar skelfisktegundir,
sem hlýtur að vera hægt að
afla markaða fyrir. Við verð-
um að hefjast handa um hag-
nýtingu kræklings og kú-
fisks á sama hátt og gert
var þegar rækju- og humar-
veiðarnar voru hafnar.
7,7 MILLJÖNIR
TRJÁPLANTNA
TJákon Bjarnason, skógrækt-
* arstjóri, skýrði blaðinu
nýlega frá því, að í starfs-
áætlun skógræktarinnar fyrir
yfirstandandi ár, væri gert
ráð fyrir að skógræktin hefði
til ráðstöfunar 1.1 milljónir
plantna en hefði átt að hafa
1.5 milljónir trjáplantna. —
Vegna áfallsins í páska-hret-
inu á sl. ári væru nú fyrir
hendi mun færri plöntur en
gert hafði verið ráð fyrir.
Vonandi tekur ekki langan
tíma, að vinna upp það tjón
sem skógræktin varð fyrir í
Hfscncmara héSf til Saigon í gær
Washington 5. marz
NTB.
Varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, Robert Mc-
Namara, hélt í dag áleiðis
til Saigon. Á flugvellinum
sagði hann, að Bandaríkja-
menn hefðu nú undir hönd-
um skýrslur, sem sýndu, að
á síðasta hálfa ári hefðu
skæruliðar kommúnista, sem
berjast í S.-Víetnam, notið
aukins stuðnings frá N.-Víet-
nam. Ráðherrann sagði, að
mörg hundruð sérfræðinga,
sem nú væru í S.-Víetnam,
yrðu send heim til Bandaríkj
anna í náinni framtíð.
McNamara ræddi við frétta-
menn á flugvellinum í Washing-
ton. Sagði hann, að Bandarí'kja-
myndu halda áfram að styðja
íbúa S.-Víetnam í baráttunni við
skæmliða kommúnista eins lengi
og nauðsyn krefði. Þeir myndu
þjálfa hermenn stjórnarinnar og
útvega þeim hergögn.
McNamara sagði, að skýrslur,
sem Bandaríkjamenn hefðu nú
undir höndum, sýndu ljóslega, að
stjórn N.-Víetnam hefði aukið
stuðning sinn við skænxliða Víet
Cong til muna síðastliðið hálft
ár. Hjá skæruliðum hafi fundizt
vélbyssur, sprengjur og ýmis út-
hinu geigvænlega páskahreti
vorið 1963. Stefnan í skóg-
ræktarmálunum hefur verið
mörkuð. Haldið er markvisst
áfram að gróðursetja skóg í
öllum landshlutúm. Eitt
páskahret mun ekki draga úr
trú þjóðarinnar á möguleika
skógræktarinnar í landinu.
Nokkurra áratuga reynsla er
búin að sanna það, að hér er
hægt að rækta skóg, ef rétt er
að farið.
Skógræktarstjóri skýrði frá
því að nú stæði til að breyta
nokkuð um fræsöfnunarstaði
í Alaska og verða nú fræ tek-
in þar nokkru sunnar en áð-
ur vegna fenginnar reynslu.
Ekkert er eðlilegra, en að
mörgum hafi sviðið sárlega
það afhroð sem einstakar
trjátegundir biðu í trjágörð-
um þeirra í páskahretinu í
fyrra. En eins og kunnugt er,
voru það einkum tvær trjá-
tegundir, ösp og viss afbrigði
af sitkagreni sem verst urðu
úti. En við íslendingar verð-
um að gera okkur ljóst, að öll
ræktun í okkar landi krefst
þolinmæði og þrautseigju.
Áföll einstakra ára mega
ekki lama trúna á gróðrar-
möguleika landsins. í öllum
löndum, hvar sem er á hnett-
inum, getur orðið uppskeru-
brestur vegna óhagstæðs veð-
urfars. En engum kemur þó
til hugar að gefast upp og
hætta að sá, í von um hag-
stæðari tíma og betri upp-
skeru.
búnaður til skemmdarverka, allt
framleitt í Kína. Ráðherrann
sagði, að meðan hann dveldist
í Saigon, myndi hann og aðstoð-
armenn hans reyna að gera sér
grein fyrir því hve umfangs-
mikill stuðningur stjórnar N,-
Víetnam við skæruliða Víet-
Cong væri og hvað væri unnt að
gera til þess að auka árangur
baráttunnar gegn þeim.
Ráðherrann sagði ennfremur,
að sérfræðingar, sem Bandaríkja
menn hefðu sent til þess að
kenna hermönnum S.-Víetnam,
Sakaður
um 15 þús.
morð
Frankfurt 2. marz (NTB).
RÍKISSAKSÓKNARINN i
Frankfurt skýrði frá því í
dag, að handtekinn hefði ver-
ið í Buenos Aires lögfræCing-
urinn Bernhard Bohne, en
hann er sakaður um þátttöku
í 15 þús. morðuim á árum síð
ari heimsstyrjaldarinnar.
Bohne er einn af fjórum
mönnum, sem stefnt var fyrir
rétt í Limburg fyrir skömmu.
Voru þeir sakaðir um þátt-
töku í yfir 200 þús. svonefnd
ur „meðaumkunarmorðum",
en flest fórnarlömbin voru
geðveik og vansköpuð.
Tveir þeirra, sem stefnt var
fyrir rétt í Limburg, Werner!
Heide og Friedrich Tillmann,1
frömdu sjálfsmorð áður en
réttarhöldin hófust, en sái
oriðji, Hans Hefelmann, hef-
ur verið yfirheyrður.
Brússel, 4. marz (AP)
Frú Golda Meir, utanríkis-
ráðherra ísraels, kemur í
næstu viku í þriggja daga
heimsókn til Belgíu og Lux-
emborgar. Ræðir hún þar við
ýmsa forustumenn Efnahags-
bandalagsríkjanna.
Nýju Dehli, Indlandi,
4. marz (AP)
Flutningavél eign indverska
hersins hrapaði í dag niður
í Hooghli-fljótið, um 20 km.
fyrir norðan Calcutta. í véi-
inni var fimm manna áhöfn
og 17 farþegar, og fórust ali-
ir. Véliq var af gerðinni
C-119.
yrðu kallaðir heim jafnskjótt og
S.-Víetnammenn gætu tekið við’
starfi þeirra. Mörg hundruð sér-
fræðinga héldu væntanlega til
Bandaríkjanna innan skamms.
Hinir hernaðarlegu ráðgjafar,
sem nú eru í S.-Víetnam yrðu
hins vegar ekki sendir heim.
Aukín oibrot
í USA
Washington, 5. marz (NTB).
YFIRMAÐUR F.B.I: (Sam-
bandslögreglu Bandaríkj-
anna), Edgar Hoover, skýrði
frá því í dag, að á árinu 1963
hefðu alvarleg afbrot aukizt
um 10% samanborið við árið
áður..
Hoover skýrði frá skiptingu
aukningarinnar og sagði, að í
borgum með yfir 1 milljón
íbúa hefði hún orðið 6%, en
í borgum með milli 25 þús. og
100 þús. íbúa hefði aukning-
in verið 13% og einnig í út-
hverfum stórborga. I sveitum
jukust afbrot um 6% miðað
við 1962.
Þau afbrot, sem mest fjölg-
aði, voru bifreiðaþjófnaðir og
innbrot, en morð og árásir
stóðu nær í stað.
Hoover sagði, að aðeins
hefðu handtökur fullorðinna
aukizt um 2% 1963, en hand-
tökur unglinga innan 18 ára
hefðu aukizt óhugnanlega
mikið.
Finnskur náms-
styrkur
FINNSK stjórnarvöld' hafa
ákveðið að veita íslendingi styrk
til háskólanáms eða rannsókna-
starfa í Finnlandi námsárið
1964—1965. Styrkurinn veitist til
8 mánaða dvalar og nemur 400
eða 500 finnskum nýmörkum á
mánuði, eftir því hvort um er að
ræða nám eða rannsóknir. Ætl-
azt er til þess, að öðru jöfnu, að
sá, sem styrk hlýtur til náms,
hafi stundað a.m.k. tveggja ára
háskólanám á íslandi.
Þá munu finnsk stjórnarvöld
veita norrænum fræðimanni
styrk til að leggja stund á
finnska tungu. Nemur sá styrkur
800 nýmörkum á mánuði og er ís
lenzkum fræðimönnum heimilt
að sækja um hann.
Umsóknir um framangreinda
styrki sendi menntamálaráðu-
neytinu, Stjórnarráðshúsinu við
Lækjartorg, fyrir 25. marz n.k,
og fylgi staðfest afrit prófskír-
teina, svo og meðmæli. Umsókn-
areyðublöð fást í menntamála-
ráðuneytinu og hjá sendiráðum
Islands erlendis.
(Frá Menntamálaráðuneytinu).
Hljómleikar í
Keflavík
RÖGNVALDUR Sigurjónsson
píanóleikari heldur hljómleika 1
Keflavík n.k. mánudagskvöld.
Hljómleikarnir eru á vegum Tón
listarfélags Keflavíkur og fyrir
styrktarfélaga þess.
Rögnvaldur leikur aðallega
verk eftir Beethoven og Schu-
bert og fara tónleikarnir fram
í Félagsbíói í Keflavík.