Morgunblaðið - 24.03.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.03.1964, Blaðsíða 2
2 MORGUNni AÐID ; .'.f>r$M$agiír .24.. maí?, 1964 IJtlýt íyrir ka!saveður REYKVÍKINGAR fengu að- inn lækkaði á nokkrum mínút kenningu af vorhreti í gaer, um úr 8 í 3 stig. Kulaaskiun, þegar vindurinn snerist skyndi sem sjást liggja yfir Snæfells- lega klukkan kortér yfir eitt, nes, voru þá að fara hér yíir. gekk úr suðaustri til vesturs, Heldur er útlit fyrir kalsaveð- rigningin varð að krapi og hit- ur, a.m.k. vestan lands. Gullfoss-farþegar FARÞEGAR úr vetrarferðum Gullfoss, og áhöfnin, efna til skemmtikvölds í Þjóðleikhús- kjallaranum n. k. miðvikudags- kvöld kí. 9. Þar mun Þórir Hersveinsson sýna myndir úr fyrstu vetrar- ferð Gullfoss, en einnig eru aðrir hvattir til að koma með myndir, sem þeir vildu sýna. Ýmislegt fleira verður til skemmtunar, m. a. dans. Vetrarferðir Gullfoss hafa náð miklum vinsældum og hafa margir látið í ljósi óskir um að mönnum gæfist tækifæri til að hitta ferðafélagana og rifja upp gömul kynni og gleðistundir. VERZLUNIN Blóm & Avextir, sem hefur verið til húsa í Mjólk- urfélagshúsinu, Hafnarstræti 5, í sl. 35 ár, er nú flutt í rnjög vistlega og smekklega búð í Hafnarstræti 3 (O. J. og Kaaber húsið). Verzlunin var stofnuð í nóv- ember 1929 af þeim Ólafíu Ein- arsdóttur í Hofi og Astu Jóns- dóttur, Reykjum, en núverandi eigandi verziunarinnar, Hendrik Berndsen, hefur rekið búðina við vaxandi vinsældir í sl. 25 ár. Breytingar á hinni nýju búð teiknaði Skúli Norðdahl, arki- tekt. Tréverk annaðist Rósmund- ur Runólfsson, trésmíðameistari og raflögn Alfreð Eymundsson, rafvinkjameistari. þá sá Hendrik Berndsen, yngri, um alla skreyt- ingu á búðinni, soju er eitLKar smekkleg. Einhvern tíma héfði það þótt saga til næsta bæjar að sláttur væri byrjaður seinast í marz. — En Einar Stefánsson, múrarameistari í Eskihlíð 23, var i gær snöggkiæddur úti í garði að slá blettinn sinn. Hann kvaðst aldrei hafa vitað aðra eins tíð eins og í vetur, þegar ljósmyndarinn vatt sér inn í garðinn og tók þessa mynd af honum. Gunnar J. Friðriksson endurkjörinn formaður FII ÁRSÞINGI iðnrekenda 1964 er lokið. Síðasta dag þingsins voru tekin fyrir álit starfsnefnda þingsins og þau afgreidd. Sam- þykktar voru ályktanir um láns- — Kýpur Framhald af bls. 1. koma þar til misjafnar skoðanir þeirra, er hlut eiga að máli. Haft er eftir áreiðanlegum heimild- um, að mikið sé undir því komið, hvort Makarios, erkibiskup og forseti, samþykki, að sáttasemj- arinn sé frá einhverju því landi, er hlut á að gæzluliðinu. Sú spurning, er mesta athygli vakti í þinginu í dag, var sú, er Emanuel Shinwell, fyrrum land- varnaráðherra í stjórn Verka- mannaflokksins, lagði fyrir Butler. Hann spurði: „Teljið þér ekki, að Bretar hafi lagt óeðlilega mikið af mörk Ufrx til gæzlustarfs á Kýpur?“ Butler svaraði: „Það er stað- reynd, að meginbyrðin hefur hvílt á okkar herðum. Bjóðist okkur hins vegar aðstoð annarra, sem vilja létta okkur byrðina, þá mun landvarnaráðherra okkar (Peter Thorneycroft) grípa það tækifæri". fjármál, verðlagsmál, tollamál og vinnumál. Þingið fagnaði fram komnu frumvarpi á Aliþingi um breyt- ingu á lausaskuldum iðnaðarins í föst lán. Hins vegar harmaði þingið, að ekki skyldi enn hafa verið farið að vilja Al/þingis og endurkaup hafin á hráefna- og framleiðsluvíxlum iðnaðarins. — Kvaðst þingið vilja vekja athygli ó því, að iðnaðurinn ætti nú í vö/k að verjast vegna vaxandi samkeppni erlends fjármagns. Erlendir keppinautar gætu boðið viðskiptavinum sínum löng lán á vörum og framleiðslutækjum. En íslenzk iðnfyrirtæki færu halloka í þeirri samkeppni sökum láns- fjárskorts. Þingið sam/þykkti að skora á Seðlabankann að taka nauðsyn- legt tillit til sérstöðu iðnaðarins í hráefnakaupum miðað við inn- fluttar fullunnar vörur. Stjórn Félags íslenzkra iðnrek- enda skipa nú þessir menn: Gunnar J. Friðriksson, formað- ur, Sveinn Guðmundsson, Ás- björn Sigurjónsson, Árni Krist- jánsson og Hannes Pálsson. Vara menn eru: Hallgrímur Björnsson og Haukur Eggertsson. Stjórnmálasam- band við Mexico RÍKISSTJÓRN íslands og Mexí- kó hafa ákveðið að taka upp stjórnmálasamband sín í milli í því skyni að efla vinsamleg tengsl beggja landa á sviði menn ingar og viðskipta. Hefur ríkis- stjórn íslands ákveðið, að sendi- herra íslands í Washington, Thor Thors, verði jafnframt sendi- herra íslands í Mexíkó, og veitt samþykki til þess, að sendiherra Mexikó í London, Antonio Ar- mendariz, verði sendiherra Mexí- kó á íslandi. (Frá utanríkisráðu- neytinu). AKUREYRI, 23. marz — Vörð ur, félag ungra Sjálfstæðismanna á Akureyri, gekkst fyrir kvöld- ráðstefnu um bæjarmálefni Akur eyrar í Sjálfstæðishúsinu í kvöld. Form.aður Varðar, Jón Viðar Guðlaugsson, setti fundinn, en að því búnu flutti Gísli Jónsson menntaskólakennari, framsögu- ræðu og lýsti' þar ýmsum fram- kvæmdum á vegum bæjarins, störfum og helztu málefnum, sem á döfinni eru í bæjarfélag- inu. Að ræðu hans lokinni hófust fjörugar umræður um bæjar- málin. Fram voru bornar margar fyrirspurnir, sem þeir svöruðu Stefán Stefánsson, bæjarverk- fræðingur, Árni Jónsson, bæjar- fulltrúi og Gísli Jónsson. Umræður spunnust einna helzt um skipulagsmál, lóða og bygg- Allt með kjörum á SKAGÁSTRÖND, 23. marz: — Allt hefur verið með kyrrum kjörum á Saurum síðan um há- degi á laugardag, en þá hentist matborðið til hjá hjónunum, nokkuð löngu eftir að gestir lögðu af stað suður ásamt tveim dætrum hjónanna. Eg talaði við Margréti og Björgvin um 7 leyt ið í kvöld. Hafði heimilisfólkið það þá ágætt og var allt í bezta lagi á bænum. Mikið hefur verið um gesta- komur um helgina. Laust eftir hádegi á laugardag komu 7 með limir Sálarrannsóknarfélags ís- lands fljúgandi norður. í leið- angrinum voru sr. Sveinn Vík- ingur, varaforseti félagsins, Haf steinn Björnsson miðill, frú Katrín Smári, Sigurlaugur Þor- kelsson, Helgi Vigfússon, frú Mildríður Falsdóttir frk. Sigur- veig Hauksdóttir. Dvaldi fólkið á Saurum allan daginn og fór um 10 leytið um kvöldið. Þá kom Lára Ágústsdóttir, mið ill, frá Akureyri á sunnudag og var þar allan sunnudaginn. — Þ. J. Miðilsfundur á Saurum Mbl. átti tal við sr. Svein Vík ing og spurðist fyrir um árang- ur af för Sálarrannsóknarfélags manna. Hann staðfesti að hald- inn hefði verið miðilsfundur á Saurum, en aðstæður ekki verið góðar, þar sem svo margt fólk var í kring. Um fundinn vildi hann lítið segja, sagði að alltaf kæmi hitt og annað fram á svopa fundum. — Eg fór norður af því að ég hafði gaman af að forvitnast um þetta, vita hvers miðill yrði var og reyna með miðilsfundum að freista þesa að hafa áhrif á þetta, ef um verur væri að.ræða. Hvort það hefur tekizt verður svo reynslan að skera úr. Og reyndar fæst aldrei full sönnun fyrir að það standi í sambandi við för okkar þó þetta lagist. ingamál, gatnagerð, hafnarmál, skóla- og íþróttamál ennfremur um væntanlega jarðhitakönnun í bæjarlandinu, og nágrenni þess. Fundurinn var hinn fróðleg- asti. Umræður almennar og á- hugi fundamanna mikill. kyrrum Saurum Það er ekki hægt að mynda sér neina skoðun í svona ferð. Þetta þyrfti langrar athugunar við, sagði sr. Sveinn Víkingur ennfremur. Mér fannst ég sann færast um að þetta mundu ekki vera jarðskjálftar. Það hlyti að stafa af öðru. Hitt veit maður aldrei hvaða kraftar gætu verið að verki. Persónulega hefi ég ekki mikla trúa á að þetta kunni að vera af mannavöldum, þó maður geti aldrei gengið úr skugga um slíkt nema með langri rannsókn. Mbl. hafði samband Ýið Haf- stein Björnsson, mlðil. Hann sagði: Eg vil ekkert um þetta mál segja á þessu stigi. Allt löngru liðnir sjómenn Fréttaritari blaðsins á Skaga- strönd spurði Láru Ágústsdót.ur hvað hún vildi segja um för sína. Hún vildi láta hafa þetta eftir sér: „Það var ekki gott að ná sam- bandi vegna ókyrrðar, en samt sá ég fljótlega margt, bæði við- víkjandi þessum hræringum og svo ýmsa framliðna vini fólks ins eins og gengur. En ég lagði aðalkraft í að komast að hverj- ir væru valdir að þessum hreyf- ingum. Tel mig hafa séð það. Allt eru þetta löngu liðnir s.ió- menn, en eru þó ekki tenpdir þessu fólki eða þessu byggðar- lagi. Kraftmestur af þessum fram liðnu mönnum fannst mér vera enskur maður og heyrði ég skot- hríð í sambandi við hann. Tel ég sjálfsagt að eina leiðin til að fjarlægja þetta séu góðar bæn ir og hugur til þessara framliðnu manna og heimilisfólksins á Saur um. Fleira segi ég ekki um þetta að sinni, en ég mun gera mitt bezta til að losa fólkið við þessi óþægindi“. Eiríkur Smith sýnir í Eyjum EIRÍKUR Smith, listmálari held- ur málverkasýningu í Akoges- húsinu í Vestmannaeyjum um páskana. Hann sýnir þar olíu- málverk og vatnslitamyndir, allt nýlegar myndir. Opnar Eiríkur á skírdag og verður sýningin opin fram yfir hátíðina. H Snjókoma 1 \7 Skúrir I ///// Kutíaski! I ~H Hm$ fd jg Þrw'Wy/aallkO' HiU.M ,i 23 3 */■ // v . ÆV' V”' J! Sjálfstæðvsmenn á Ak- ureyri ræða bæjarmál

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.