Morgunblaðið - 24.03.1964, Side 30

Morgunblaðið - 24.03.1964, Side 30
99 MORC U N BLAÐIÐ f>riðjudpgur 24. marz 1964 ísland vann Danmörk en tapaöi fyrir Finnum og leirii í 3. sæti á Mordur- landavnótÍRu í körfuknattleik ÍSL.ENDINGAR unnu Dani i körfuknattleik á laugardaginn með 56 stigum gegn 55 eftir mjög jafnan, tvísýnan og sérlega æs- andi leik að því er fréttamaður Mbl. á staðnum segir. — Fjögur lönd tóku þátt í keppninni. Finn- ar unnu mjög öruggan sigur, Sví- ar urðu næstir eftir knappan sigur yfir íslendingum, íslend- ingar urðu þriðju í röðinni og Danir ráku lestina nú sem í síð- ustu keppni. En ánægjulegast er að einn leikmanna úr íslenzka liðinu, Þorsteinn Hallgrímsson, er í keppnislok talinn bezti leik- maður á Norðurlöndum í körfu- bolta. Þorsteinn var langsam- lega stigahæstur á mótinu, skor- aði 77 stig, en sá er næst komst er Finninn Limo með 55 stig. Við sögðum frá leik íslendinga og Svía fyrir helgina. Svíar unnu með 65-59. Það var minni stiga- munur en búizt var við. Liðin skiptust á um forystu framan af, en í hálfleik stóð 25-23 fyrir Svía. Sjö sinnum í leiknum voru íslendingar yfir í stigum, en urðu að láta í minni pokann í lokin. * „ÞÁ HEFÐI ÍSLAND UNNIГ Einar Matthíasson, frétta- maður Mbl. á staðnum segir að ef Guðmundur Þorsteins- son hefði verið í liðinu eins og upphaflega var ráð fyrir gert, en hann forfallaðist vegna veikinda og liggur í sjúkra- húsi, þá hefði ísland án efa unnið Svíþjóð. Leikur íslendinga og Finna var mjög vel leikinn. Að vísu voru Finnar öruggir sigurvegar- ar, en íslenzka liðið sýndi mjög góðan leik og á köflum ekki síð- ari leik en Finnar. Úrslitin urðu 81-48 fyrir Finna. * FRAMFARIR ÍSLENDINGA í síðustu keppni um Polar- bikarinn, sem er verðlaun fyrir Norðurlandameistaratign í körfu- knattieik, lentu fslendingar einnig í 3. sæti. En af markatölu má ráða að islenzka liðið hefur mjög nálgast Svía og Finna, sem einir Norðurlandaþjóða standa framar ísiendingum í þessari grein. Úrslit frá fyrri keppni gefa nokkra hugmynd um fram- farir fslendinga. Svíar unnu okk- ur þá með 63-38 eða 25 stiga mun og Finnar unnu okkur þá með 100 gegn 47 stigum eða 53 stiga mun, nú 37 stiga mun. * SPENNANDI LEIKUR Leikur íslendinga og Dana var sérlega spennandi. Þetta var barátta um að verða ekki í neðsta sæti og taugaspenningur og á- kafi einkenndi keppnina mjög. í þeirri baráttu voru íslendingar undir í byrjun og það leit út sem þeir myndu bíða lægra hlut. En á síðustu mínútum leiksins var það Þorsteinn Hallgrímsson sem hreinlega breytti tapi í sigur. Hann skoraði sigurmarkið fáum sekúndum fyrir leikslok. ísland hélt — ekki sízt Þorsteins vegna — 3. sæti í norrænu keppninni og •sýndi að sigur er mögulegur yfir Svíum. Enn eru Finnar ókrýndir konungar í þessari grein. Finnar fara eftir þessi úrslit í lokakeppni um heirpstitilinn í greininni. Sví- ar, sem urðu nr. 2, fara í undan- keppni móti einhverju einu landi um sæti í lokakeppninni. Þorsteinn Hallgrímsson fékk almennt orð á Norðurlanda- mótinu fyrir að vera beztur allra körfuknattleiksmanna á Norðurlöndum. Hann skoraði 77 stig, en næsti maður Finn- ? inn Limo 55. En allir sem ísl. körfuknattleik þekkja vita að Þorsteinn er ekki síðri í vörn en að skora stig. Islenzku Finna ÍSLAND varð í 4. sæti meðal 5 keppenda í keppninni um Norð- urlandameistaratitil í handknatt- leik unglinga 18 ára og yngri. — Svíar urðu sigurvegarar í fjórða sinn í röð í keppninni, en sá sig- unglingarnir unnu og urðu fjórðu Afmælismót handbolta i KR / kvöld Handknattleiksmót K.R. hófst á sunnudagskvöid að Háloga- landi og fóru þá fram 6 leikir. Þau óvæntu úrslit urðu í leik Fram og Ármanns, að Ármann sigraði með 6-5. Um tíma hafði Ármann 4-1 yfir, en Fram jafn- aði, en Ármenningar tryggðu sér sigurinn á síðustu sekúndum leiksin. Valur sigraði Í.R. eftir framlengdan leik með 8-7, Vík- ingur sigraði Þrótt 6-5 og F.H. sigraði K.R. 16-7. í 2. umferð sigraði Fram Í.R. með 9-6 og K.R. sigraði Þrótt með 12-6. Mótinu lýkur í kvöld og fara þá fram 6 leikir. Fyrstu leikimir verða: Valur — Ármann, F.H. — Víkingur, Þróttur — Í.R., K.R. — Fram. Síðan leika liðin, sem tapa í fyrstu 2 leikjúnum og að síðustu fer fram úrslitaleikurinn milli þeirra sem sigra í 2 fyrsttöldu leikjunum. Fyrir síðustu 2 leikina munu fimleikamenn úr K.R. sýna æf- ingar á hesti og stökk. Að mót- inu loknu mun formaður K.R. Einar Sæmundsson, afhenda sigurvegurunum verðlaunin. ur þeirra vannst á markahlut- falli. Svíar, Norðmenn og Danir fengu allir 6 stig, ísland 2 stig en Finnar ekkert. 1 leikjum íslendinga urðu úr- slit þessi: ísland—Finnland 11-10 fslands—Svíþjóð 10-18 fsland—Danmörk 19-25 ísland—Noregur 10-13 Leikur íslendinga við Finna var heldur lélegur og íslenzku piltarnir langt frá sínu bezta. Móti Svíum náðu íslenzku pilt- arnir sér vel á strik og sýndu mjög góðan leik á köflum. eink- um í fyrri hálfleik, sem lyktaði 9-7 fyrir Svía. í síðari hálfleik sagði þreyta til sín í 2. leik ís- lendinga sama daginn. En fyrir leikinn fengu íslenzku piltarnir mjög góða dóma. í leiknum við Dani var keppni mjög hörð og jöfn. í hálfleik stóð 11-11 en í þeim síðari stóðust ís- lendingar Dönum ekki snúning. Gylfi Jóhannesson, Viðar Símon- arson og Hermann Gunnarsson skoruðu 5 mörk hver, Jón Viggós son og Jón Ágústsson 1 hvor. 175 manns horfðu á leikinn og dóm- Titillinn tekinn af Clay? Vegna þess að hann er ekki frjáls að næsfa leik sínum ALLT ÚTLIT er nú fyrir að Cassius Clay missi sinn heims m.:istaratitil í þungavigt hnefa leika. Ástæðan er sú að al- þjóðasamband hnefaleika- manna — og einkum formað- ur þess Ed Lassman — hefur nánast samþykkt (formleg at- kvæðagreiðsla er eftir) að svipta Clay heimsmeistara- tigninni og að hvorki hann né Sonny Liston fái að taka þátt í keppni 4 eða 8 manna um titilinn. Ástæðan til sviptingarinn- ar er sú að Cassius Clay undir ritaði samning við ákveðið fyrirtæki sem er í eigu Sonny Listons. Samningurinn hljóð- aði upp á að fyrirtækið gæti ráið næsta leik Cassiusar, ráðið leikdegi, ráðið mót- herja o. s. frv. Það er á móti reglum alþjóða-sambandsins að slíkur samningur sé gerður og þess vegna hefur formaður sambandsins snúizt til mót- aðgerða og er harður í horn að taka. Hann hefur undir- búið sitt mál mjög vel og rr.un hafa tryggan meirihluta í stjórn sambandsins þegar til atkvæðagreiðslu kemur. Cassius Clay hefur að sjálf- sögðu haft stór orð um þessa málavexti. Aðspurður af blaðamönnum kvaðst hann vera saklaus í málinu. Víst hefði hann skrifað undir samninginn en út á það væri ekki hægt að setja þvi „mín atvinna er að keppa í hnefa- leikum og það einasta sem ég hef áhuga fyrir er hvað mörg prósent af tekjunum ég fæ. Lassman form. alþjóða- sambandsins hefur sagt að Clay sé hnefaleikaíþróttinni sérlega óhagstæður maður. Gort hans og vanhugsað tal hafi skaðað íþróttina og ekki sizt það tiltæki hans að gerast félagsmaður í „Black Mus- lim“ hreyfingunni. Þessu hefur Cassius svarað með eftirfarandi: „Ég reyki ekki, ég drekk ekki, ég fer ekki óheiðarlega að kvenfólki og ég ber ekki vopn í óleyfi. Ég vann heimsmeistartign á heiðarlegan hátt og ég hef aldrei tekið þátt í neinu óheiðarlegu athæfi. Það er Sonny Liston, sem Lassman hefur í huga en ekki ég“ sagði Clay. ari var Sandeberg frá Finnlandi. Norðmenn unnu sigur sinn yfir íslendingum þegar í byrjun, náðu 3 marka forskoti og sigur þeirra í leikslok varð 3 mörk eða 13-10. Mörk íslendinga skoruðu Stefán Sandholt 3, Viðar 2, Gylfi 2, Jón Ágústsson, Jón Karlsson og Her- mann 1 hver. í úrslitaleik mættust Danir og Svíar. Danir unnu leikinn með 16-14 en það nægði ekki til sig- urs. Markahlutfall Svía var betra og Danir höfðu tapað fyrir Norð- mönnum, 16-15. Keflvíklngor og Menntskæling- nr unnu HEÐ síðara sundmót framihalds- skólanna í Reykjavík og ná- grenni fór fram í Sundlhöll Reykjavíkur fimimitudaginn 5. marz s.l. í sundlkeppni stúlkna voru þátt takendur frá 8 skólum. Keppt var í fjórum sundgreinum auk boðsunds. Keppnin var stiga- keppni. Sveit stúlkna úx gagn- fræðaskóla Keflavíkur vann keppni stúlkna. Stúlkur frá sama skóla hafa unnið stigakeppnina þrjú undanfarin ár og hlaut þvi skólinn til eignar þann verð- launagrip, sem um hefur verið keppt. Næstar að stigatölu urðu sveitir stúlkna úr Flensborgar- skólanum í Hafnarfirði og frá Gagnfræðaskólanum við Lindar- götu í Reykjavík. Til keppni í sundgreinum pilta komu þátttakendur frá 12 skól- um. Keppt var í fimm einstak- hngsgreinum og einu boðsundi. Menntaskólinn í Rey'kjavík og Kennaraskóli íslands urðu jafnir að stigum, en þar sem Mennta- skólinn vann boðsundið var þeiim skóla úrskurðaður sigurinn. Hlaut skólinn að verðlaunum keramikdisk. Næstir og jafnir að stiguim urðu gagnfræðaskóli Laugarnes- skóla og Iðnskóli Hafnarfjarðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.