Morgunblaðið - 24.03.1964, Blaðsíða 15
Þrifjjudagur 24. n7pr?,1964
MO RC U N B LAÐIÐ
15
Fjölþætt starísemi
íélags til hjálpar íöngum og
dómfelldum mönnum
FÉLAGSSAMTÖKIN Vernd
héldu sl. mánudag fund með
blaðamönnum og skýrði
stjórn félagsins frá starfsemi
þess. Formaður félagsins, frú
I»óra Einarsdóttir, og aðrir
st'órnarmenn skýrðu blaða-
monnum frá störfum síðasta
aðalfundar og svöruðu spurn-
ingum þeirra.
Félagið afhenti fréttamönnum
útdrátt úr skýrslu formanns frá
síðasta aðalfundi og fara hér á
eftir helztu atriðin:
Félagsmál
Á árinu var kjörinn þriggja
msnna framkvæmdanefnd, þar
eð þungt þótti í vöfum að kalla
aila stjórnina saman til af-
greiðslu ýmissa daglegra við-
fangsefna. Nefndina skipuðu:
Þóra Einarsdóttir, Lára Sigur-
björnsdóttir og Leifur Sveinsson.
Skúli Þórðarson hefur sem
fyrr verið aðalstafsmaður Vernd
ar. Hann annast ferðir í fangels-
in. umsjón og fyrirgreiðslu fyrir
skjólstæðinga Verndar og fjöl-
skvldur þeirra, eftir því sem tök
eru á hverju sinni.
Formaður hefur séð um út-
br.iðslumál samtakanna, haft
eftirlit með vistheimilinu, séð
fundir á árinu. Hinn fyrri var
haldinn í samráði við Skúla Tóm
asson, yfirframfærslufulltrúa, og
sátu hann forustumenn ýmissa
hjálparfélaga. Fundur þessi sam-
þykkti að fara þess á leit við
borgarráð, að það beitti sér fyrir
nánara samstarfi þessara aðila
til hagræðis og sparnaðar í þess-
um málum.
Síðari fundurinn var boðaður
af Sveini Ragnarssyni, skrif.stofu
stjóra. Á þeim fundi fluttu full-
trúar Verndar tillögu um sér-
stakt náttskýli fyrir heimilisleys-
ingja og að einnig verði komið
upp stóru mötuneyti og vist-
heimili í Reykjavík, þar sem ein-
staklingar geti fengið fæði og
húsnæði og notið réttrar að-
hlynningar og meðferðar.
Vistheimili Verndar að Stýri-
mannastíg 9 hefur verið rekið
með svipuðu sniði og áður. Sú
breyting var þó gerð sl. vor að
stjórnin ákvað að taka nokkra
menn frá vistheimili Bláa bands
ins, sem þá var lagt niður, til
dvalar á heimilið. Að jafnaði
hafa 15 manns dvalizt á heimil-
inu um lengri eða skemmri tíma,
auk þeirra, sem fá inni nótt og
nótt í vandræðum sínum. Þeir,
sem koma úr fangelsunum og
leita til Verndar eru ávallt látnir
sitja fyrir um heimilisvist. Þórð-
Úr einu herbergi vistheimilisins.
ttm spjaldskrá og inniheimtu og
úí ífu ársritsins.
ibigurlaug Sigurðardóttir hefur
annast fátaviðgerðir, en jafnan
berst töluvert af notuðum fötum
tii heimilisins.
A árinu var ráðinn til starfa
tiálfan daginn Kristján Friðbergs
son og hefur hann á hendi bók-
hald, skýrslugerðir og fjármál
eamiakanna.
í Félagssamtökunum Vernd
eru nú 79 félög og um 500 ein-
staklingar.
Vernd fékk á árinu 210 þús. kr.
etyrk úr ríkissjóði og 60 þús. kr.
styrk úr borgarsjóði Reykjavík-
ur. Aðrar tekjur eru styrkur
nokkurfa bæjarfélaga, ágóði af
eölu ársritsins og gjöld og gjafir
féiagsmanna og annarra velunn-
ara þessa starfs, en slíkar gjafir
Ihafa verið margar og sýna glöggt
góðhug og skilning fólks á mál-
efnum Verndar.
Starfið
Fangahjálpin er kiiarninn í
611u starfi Verndar, en oft er erf-
itt að draga markalínu milli
hjálpar við fanga og aðstoðar við
það fólk, sem leitar til skrifstofu
Verndar með margvísleg vanda-
mái. Stjórn Verndar gerir sér því
glögga grein fyrir því, að sam-
atarf milli hinna ýmsu hjálpar-
og líknarstofnana er nauðsynlegt.
í þessu sambandi fóru fram tveir
ur Guðmundsson hefur um eins
árs skeið verið húsvörður. Ráðs-
konur hafa verið tvær og skipt
með sér verkum.
Jólafagnaður Verndar fyrir
heimilislausa einstæðinga fór í
þetta sinn fráhi að Bræðraborgar
stig 9 í húsakynnum S. í. B. S.
Þangað komu urh 20 manns. Sér-
stök jólanefnd sá um fagnað
þennan en formaður hennar er
Sigríður J. Magnússon.
Vernd sendi á þessu ári bóka-
gjöf í hegningarhúsið í Reykja-
vík, en áður hafa bækur ■ verið
sendar að Litla-Hrauni. Ennfrem
ur gefur félagið öllum föngum
og dvalargestum á vegum þess
jólagjafir.
Ársrit Verndar 1963 er nýkom-
ið út. Prentsmiðjan Oddi hefur
prentað ritið og gefið meira en
helming kostnaðar.
Árið 1963 hafði skrifstofa
Verndar afskipti af 193 ein-
staklingum, þar af komu úr fang
elsum 38, fyrrverandi fangar
voru 81 og svo annað fólk, eink-
um drykkjumenn, 74 að tölu.
Vernd veitti 24 heimilum aðstoð
á árinu.
Að marggefnu tilefni gat for-
maður þess, að þann 21. júlí sl.
losnuðu ,17 menn frá Litla-
Hrauni. Allir komu þessir menn
til Verndar og leituðu aðstoðar.
Síðan komu 4 menn til viðbótar.
Af þessum hópi hafa aðeins 4 j
Verndar,
komizt undir manna hendur að
nýju og vonandi tekst hinum að
finna lífi sínu nýjan og betri
grundvöll."
í stjórn Verndar voru kosnir:
Þóra Einarsdóttir, formaður, séra
Bragi Friðriksson, Lára Sigur-
bjönsdóttir, Leifur Sveinsson og
Sigríður J. Magnússon. Au-k þess
á sæti í stjórn Verndar Baldur
Möller ráðuneytisstjóri sem full-
trúi dómsmálaráðuneytisins, og
forstjórinn á Litla-Hrauni, Guð-
mundur Jóhannsson.
Varamenn: Hanna Ingólfsdótt-
ir, Eimelía Samúelsdóttir, Vil-
hjálmur Árnason lögfr. og Guð-
mundur Jóhannsson fyrrv. for-
stjóri Bláa bandsins.
Jólanefndina skipuðu þessar
konur: Sigríður J. Magnússon,
form., Lóa Kristjánsdóttir, Unn-
ur Sigurðardóttir, Ilanna Ingólfs-
dóttir og Emelía Húnfjörð.“
Efnahagsleg fyrirgreiðsla
Stjórnarmenn svöruðu síðan
nokkrum spurningum blaða-
manna og létu í té nánari upp-
lýsingar um starf félagsins og
framtíðaráætlanir.
Eins og fyrr segir er megin-
starf félagsins hjálp til handa
dæmdum mönnum og föngum og
síðan stuðningur við fanga eftir
að þeir hafa tekið út dóm.
Félagið sendir fulltrúa sinn í
fangelsin, t. d. Litla-Hraun, og |
þar er leitast við að hiálpa föng-
unum og þó fyrst og fremst með
þvi að greiða úr persónulegum
erfiðleikum þeirra t.d. í fjármál-
um og liðsinna aðstandendum
þeirra, ef þörf krefur. Þá veitir
félagið lögfræðilega aðstoð, ef
þörf er á, einnig leitast það við
að veita læknishjálp, en í því
sambandi hefir félagið notið góð-
vilja ýmissa sérfræðinga, því fiár
hagsgeta til slíks er af mjög
skornum skammti, og í heild er
fjárhagur félagsins mjög þröng-
ur og stöðugt þörf fyrir meira fé
og frekari hjálp og liðsinni al-
mennings í þessum mikilsverðu
líknarmálum.
Félagið hefir trúnaðarmenn
víðsvegar um landið, sem skjól-
stæðingar Verndar geta snúið
sér til.
Vistheimili Verndar að Stýri-
mannastíg 9 hýsti 67 einstaklinga
árið 1963.
Félagið hefir oft skotið skjóls-
húsi yfir umkom lausa menn,
sem hvergi hafa átt höfði sínu
að halla, en álitið er að jafnaðar-
lega muni um tveir tugir slíkra
Úr dagstofu vistheimilisins.
manna vera hér í höfuðborginni.
Erfitt er þó að gera sér nákvæma
grein fyrir fjölda þeira, enda er
hann breytilegur. Þetta fólk hefir
einnig komið á samkomur félags-
ins um jól og aðrar stórhátíðir.
Félagið telur að af þeim 193
mönnum, sem það hafði afskipti
af á sl. ári muni 41 hafa fengið
bata og telur stjórnin að mi-kill
sigur sé unninn hverjum sem
hægt er að liðsinna inn á rétta
braut á ný.
Fulltrúi Verndar mun nú taka
sæti í nýskipaðri nefnd á vegum
hins opinbera, sem leitast skal
við að sameina krafta þeirra
hj-álparstofnana, sem vinna að
líknarstörfum fyrir olnbogabörn
þjóðfélagsins, og hefir Vernd
þegar samið áætlun er hún mun
leggja fyrir nefndina. M'eð því
hyggst félagið stuðla að því að
meiri árangur náist, með skipu-
lögðu samstarfi. í þessari nefnd
munu starfa fulltrúar frá AA-
samtök-unum, öryrkjasamtökun-
um og áfengisvarnarnefnd undir
yfirs-tjórn fulltrúa borgaryfir-
valdanna.
Guðmundur Jóhannsson for-
stöðumaður fangelsins á Litla-
Hrauni svaraði nokkrum spurn-
ingum blaðamanna. Hann taldi
heimsóknir fulltrúa Verndar mi-k
ils virði fyrir fangana og að þær
hefðu oft orðið til góðs. Taldi
hann skaða skeðan ef þetta félli
niður.
Félagið hefir au-k persónulegr-
ar fyrirgreiðslu leitazt við að
styrkja skjólstæðinga sína til
andlegrar og trúarlegrar upp-
byggingar með fræðslu- og trú-
arfundum. Þá hefir félagið geng-
izt fyrir föndur- og tómstunda-
vinnu fyrir fanga og aðstoð við
útvegun efnis til þess.
Forráðamenn Verndar kváðust
ekki til kvaddir er um náðun
fanga væri að ræða. Þó heldur
félagið mjög ýtarlegar skýrslur
um alla pkjólstæðinga sína. Vitn-
uðu þeir til að erlendis væru
starfandi nefndir frá svipuðum
samtökum, sem væru dómsyfir-
völdum til liðsinnis í þessum efn
um.
Missa húsnæði sitt
Að lokum skýrði stjórn Vernd-
ar frá því að hinn 1. október nk.
mundi félagið missa það hús-
næði, er það hefði nú á Stýri-
mannastíg 9 og yrði því að vinda-
bráðan bug að útvegun nýs hús-
næðis og vonaðist félagið til að
einmitt það vandamál yrði tekið
til úrlausnar af bæjaryfirvöldun-
um eða nefnd nefnd þeirri, sem
nú hefir verið skipuð til lausnar
þessara mála. Stjórnin, eða for-
maður hennar frú Þóra Einars-
dóttir, lagði áherzlu á að margir
einstaklingar vildu leggja líknar-
málum Verndar lið og því þyrfti
um fram allt að skapa fólki að-
stöðu til að veita þessa hjólp og
virkja þá krafta er fólk af frjáls-
um vilja vildi leggja fram til
stuðnings þjóðfélaginu við oln-
bogabörn þess.
Samkeppni unglinga um táknmynd af
skaðsemi tóbaksreykínga
ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavík-
ur hefur ákveðið að gangast fyrir
sa.mkeppni meðal æsku Reykja-
víkurbor.gar um það, hver bezt
geti teiknað mynd (veggspjald)
er sýni, á táknrænan hátt skað-
semi tóbaksreykinga.
Allir, sem eru á aldrinum 18
ára og yngri geta tekið þátt í
keppninni. Þátttakendur verða
að vinna verkið sjálfstætt að
öllu leyti, þ.e. hugmynd, teiknun
litun og texta. Stærð myndanna
skal vera 25—30 sm á breidd og
45—50 sm á lengd. Hver mynd
skal merkt með dulnefni, og
aldri en nafn og heimilisfang
skal sent í sér umslagi. Verðlaun
verða veitt í tveim flokkum, þ.e.
börn 14 ára og yngri og ungling-
ar 15—18 ára.
í hvorum flokki verða veitt
ein 1. verðlaun kr. 2000,oo, 5
önnur verðlaun kr. 500, oo og
10 þriðju verðlaun kr. 100,oo.
Allir verðlaunahafar munu fá
sérstök viðurkenningarskjöl.
Sýning verður síðan haldin
fyrir almenning á teikningum.
Myndunum skal skilað til
skrifstofu æskulýðsráðs, Tjarnar
götu 12, fyrir 20. apríl n.k. Nán-
ari upplýsingar eru gefnar þar
í síma 21430. Dómnefnd er skip-
uð þessum mönnum: Bendt
Bendtsen frá Æskulýðsráði, Ó-
feigur J. Ófeigsson, læknir, Gisli
Sigurðsson, ritstjóri, Gísli B.
Björnsson, auglýsingateiknari og
Jón Oddgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Krabbameinsfélags
Reykjavíkur, sn haft hefur verið
samráð við stjórn þess félags og
VÍK í MÝRDAL, 23. marz —
í gær messaði sr. Jónas Gísla-
son í öllum kirkjum Víkurpresta
kalls og kvaddi söfnuðina. Sett-
ur sóknarprestur, sr. Páll Páls-
son, flutti stutt ávarp í kirkjun-
um við þetta tækifæri og drap
á helztu störf sr Jónasar, flutti
honurn þakkir fyrir störf hans
í þágu kirkjunnar og bað honum
og fjölskyldu hans blessunar
drottins á ókomnum tímum.
Sr. Jónas predikaði um upphaf
kristniboðs, en vék síðan að starfi
sínu í Víkurprestakalli og færði
sóknarbórnunum þakkir og bless
unaróskir.
Um kvöldið var svo sr. Jónasi
Gíslasyni og fjölskyldu haldið
veglegt samsæti í Vík. Valmund
ur Björnsson, sóknarnefndar-
formaður, stýrði hófinu og Gunn
ar Þorsteinsson stjórnaði almenn
um söng. Ræður voru fluttar og
mun það styðja samkeppnina
bæði fjárhagslega og á annan
hátt. Æskulýðsráð Reykjavíkur
væntir þess, að ungt fólk taki
höndum saman um varnir gegn
tóbaksneyzlu æskufólks og sýni
hug sinn í þeim efnum með
mikilli þátttöku í þessari sam-
keppni.
presthjónunum færðar aluðar-
þakkir fyrir dvöl þeirra og störf
í prestakallinu. Sr. Jónas hafði
verið prestur hér í 10 ár, en fékk
lausn frá bví embætti um sl.
áramót skv. eigin ósk.
Þessir fluttu ræður í kveðju-
hófinu: Björn Jónsson, skóla-
stjóri, Sigurður Gunnarisson í
Litla Hvammi, Gísli Skaftason
á Lækjarbakka og Gunnar Þor-
steinsson, dýraiæknir.
Síðan voru presthjónin leyst
út með gjöfum, allir kirkjukór-
arnir gáfu þeim stórt málverk
af Dyrhólaey og ýmsir aðrir í-
búar í Mýrdal gáfu þeim yfir 30
þús. kr. Að lokum tók sr. Jónas
Gíslason til máls, þakkaði þá
vináttu og þann höfðingsskap
sem þau hjónin hefðu orðið að-
njótandi, bað eftirmanni sinum
farsældar í starfi og öllum íbú-
um Víkurprestakalls blessunar.
Fréttaritari
(Frétt frá Æskulýðsráði).
PRESTUR KVEÐUR