Morgunblaðið - 24.03.1964, Side 12
12
MORCUNBLAÐIÐ
ÞrlðjudagUr 2|„.marz X&.64
Auðgunarbrot hjá
brezkum kommum
FYRRVERANDI aðalritari
sambands brezikra rafvirkja
hefur játað að hafa notað
nokkuð af fé samibandsins í
eigin þágu og í auðgunars/kyni
meðan hann gegndi þeim
störfum, en það var meðan
kommúnistar stjórnuðu sam-
bandinu. Maður þessi nefnist
Frank Haxel, og var hann
einn áihrifamesti maður komm
únista í félagsskap brezkra
rafvirkja á sínum táma, en
fyrir nokkru misstu komm-
únistar völdin í sambandinu
og komst þá óreiðan upp.
Mun Haxel hafa augazt um
rösklega 3000 sterlingspund
með því að nota fé sambands-
ins í eigin þágu í auðgunar-
skyni.
Árið 1059 bar einn af starfs-
mönnum sambandsins, Diok
Reno, fram ásakanir á Frank
Haxel fyrir að nota sjóði sam-
bandsins í eigin þágu. Haxel
bar af sér allar sakir á sam-
bandsfundi og sagði, að ásök-
un þessi væri einihver sú lítil-
mótlegasta og illkvitnislegasta
sem hægt væri að hugsa sér
og væri algjörlega úr lausu
lofti gripin. Taldi stjóm
kommúnista, að - Haxel hefði
gert svo hreint fyrir sínum
dyrum, að hún vék Dick Ren<r
frá starfi, sem hann hafði
háft á vegum samibandsins
Frank Haxel vill sættir
fyrir að reyna að „bera út
óhróður" um stjórn samtak-
anna.
En eftir, að kommúnistar
höfðu misst völdin voru málin
tekin til nýrrar athugunar og
kom þá í ljós, að ekki var allt
með felldu um fjárreiður sam-
takanna. Var gerður reki að
því að koma lögum yfir Haxel
og sá hann þá sitt óvænna og
leitaði samkomulags og sátta
við stjórn sambandsins. —
' ...
vmmm.
Dick Reno — „Óhróður“ hans
reyndist hafa við rök
að styöjast.
Bauðst hann til að greiða því
2000 sterlingspund í bætur og
500 pund fyrir kostnað, sem
sambandið hefði orðið fyrir
vegna máls þessa. Mun enn
ekki til fulls frá því gengið,
hvort sætzt verður á þessum
grundvelli, hins vegar hefur
Dick Reno verið veitt upp-
reisn æru fyrir „óhróður“ sinn
og honum boðið starf á veg-
um sambandsins á nýjan leik.
300 sjónvarpsáhugamenn
stofna félag
Skora á Alþingi að hafa áskorun
60 manna um sjónvarpsmál
að engu
— Viðreisnarsjóður
Framh. af bls 8
hygg, að Alþingi hafi að jafn-
a tekið með skilningi á þess-
um málum. Það hefur ekki
s :ort á það, að samþykktar hafa
ve.ið margar þingslályktunar-
tiiiögur varðandi þetta mál.
Þ: inig samþykkti Alþingi árið
IRÖ'3 t. d. tillögu til þingsálykt-
u r a r frá þeim alþingismönnum
Gi la Jónssyni og Kjartani J.
J öannssyni um 5 ára fram-
k. æmdaáætlun til stöðvunar á
f ksflótta úr Veslfjarðarkjör-
d::mi. Skyldi ríkisstjórnin fela
Fi amkvæmdarþanka íslands, að
sei. ja 5 ára framfcvæmdaráætl-
un í samráði við stjórn Atvinnu-
bttasjóðs til stöðvunar fólks-
flóttanum úr Vestfjarðarkjör-
-dæmi. Á vegum Framkvæmdar-
b:. uka íslands og Efnahagsstofn-
unarinnar er nú þegar hafinn
ur.dirbúningur að verki þessu.
Að því verki starfar nú Valdi-
mar Kristinsson, viðskiptafræð-
ingur, en hann hefir sett fram
n erkar hugmyndir um þróunar-
S ' æði á íslandi og hvernig þau
gætu haft áhrif á dreifingu
b;.ggðarinnar.
Ekki efast ég um, að núver-
andi ríkisstjóm láti ljúka þeim
athugunum og áætlunum, sem
nú er verið að’ vinna að 'Við-
víkjandi Vestfjörðum. En þá em
eftir framkvæmdirnar sjálfar,
og þær eru að sjálfsögðu mestu
um verðar. Þetta segi ég, því að
svo mjög sem þessi mál hafa
verið á dagskrá hin síðari ár,
verður ékki annað sagt, en
nokkuð hafi skort á raunhæfar
aðgerir til úrbóta.
Mér virðist, að þetta sé vegna
þess, að menn horfast ekki nægi
lega beint í augu við þá stað-
reynd, að til þess að stuðla að
jafnvægi í byggð landsins, þurfa
þeir landshlutar, sem Hollustum
fæti standa ekki einungis að
njóta þeirra framfara og fram-
fcvæmda, sem stuðlað er að um
allt land með venjulegum hætti,
heldur þurfa þeir sérstakra að-
gera við, sem sérstakt fjármagn
þarf tií. Þess hefur ekkj alltaf
verið nægilega gætt í fram-
kvæmd.
Hér hefur reynzt vera við
ramman reip að draga. Ég held
að það sé ekki vegna skilnings-
leysis, né vegna fjandskapar við
hugmyndir um jafnvægi í byggð
landsins, heldur vegna vissrar
áráttu og viðhorfs, sem tröllríð-
ur þjóðfélagi ofckar í dag. Þetta
viðhorf tekur ekki tillit til sér-
stakra þarfa né breyttra að-
stæðna. Við höfum nóg dæmi af
að taka. Þetta viðhorf veldur
því t. d., að vegafé landsins hef-
ir verið skipt milli landshluta
eftir úthlutunarformúlu, sem
fundin var upp fyrir um það bil
tveim áratugum eftir því sem
fróðustu menn telja. Þetta við-
horf tekur ekki í mál, að bætt
séu kjör hinna lægstlaunuðu í
þjóðfélaginu, nema allir aðrir
fái samsivarandi launabætur.
Þetta viðhorf veldur því að
fjárframlög, sem ætluð eru til
sérstakra þarfa eru sett í al-
mennar þarfir samanber báta-
styrki Atvinnubótasjóðs. Þetta
viðhorf fordæmir, þegar ein-
stakir útgjaldaliðir ríkissjóðs
hreytast í hlutfalli við aðra,
vegna breyttra aðstæðna og
toreyttra þarfa. Þannig mætti
halda áfram lengi.
En það er þetta viðhorf, sem
er erfiður þröskuldur allra
raunhæfra aðgerða til aukins
jafnvægis í byggð landsins.
(Menn vilja gjarnan gera það,
sem gera þarf, en þegar farið er
að tala um leggja fram fjármun-
ina í því skyn, þá getur það
líka kannske verið í lagn, en
það verður oft á tíðum að gera
samg konar hluti eða samsvar-
andi hluti um allt land. Af þessu
leiðir oft, að annað hvort verður
lítið sem ekkert aðhafst, eða
möguleikinn til aðgerða felst í
því að heimfæra sérstakar þarfir
eins byggðarlags eða landshluta
til landsins í heild. En aðgerðir
á slíkum grundvelli kosta slíkt
fjármagn, að þær eru oft til
þess eins fallnar að umturna
efnahagskerfi þjóðarinnar. Eftir
SL. SUNNUDAG var haldiim
fjölmennur stofnfundur Félags
sjónvarpsáhugamanna í . Sigtúni
í Reykjavík. Fundinn sóttu á 4.
hundrað manns og gengu 300 þeg
ar í félagið. Á fundinum voru
lög félagsins samþykkt og kjör-
in fimm manna stjórn, sem síðar
mun skipta með sér verkum. —
Listar liggja nú frammi hjá Got-
fred Bernhöft, stórkaupmanni,
slíkar aðgerðir er enginn betur
settur en áður og sízt þeir, sem
verst voru settir áður.
Til þess að vinna raunhæft að
jafnvægi í byggð landsins þurf-
um við að vera lausir við þau
misskildu hræðslugæði, að öll-
um verði í leiðinni að gera eitt-
hvað gott. Við verðum að horfast
í augu við hinn raunverulega
vanda, sem ekfci verður ráðið
við, nema með sérstöku átaki og
sérstökum fjárframlögum, því
að vandinn er sérstæður. Meðan
við ekki gerum þetta, þá skortir
á raunhæfar aðgerðir til úrbóta.
Ég viðurkenni að hér koma að
nokkru leyti til þær skýringar,
að fjármagn hefur skort. Verk-
efnin hafa kallað að, hvar sem
er á landinu. Framfarir hafa og
vissulega orðð um allt land, en
á sama tíma hefur ekki dregið
úr fólksflótta frá sumum lands-
hlutum. Við stöndum því enn
andspænis þessu vandamáli. Og
við getum ekki Skotið okkur
undan því að horfast í augu við
það, ef við á annað borð mein-
Kirkjuhvoli, og Heimilistækjum
h.f., Hafnarstræti 5. Geta þeir,
sem áhuga hafa á sjónvarpsmál-
um ritað þar nöfn sín á lista um
leið og þeir greiða 50 kr. félags-
gjald. Félagsskírteini verða send
út innan tíðar.
Á fundinum á sunnudag kom
fram mikill áhugi á sjónvarps-
málum yfirleitt, og var einhug-
ur um að stuðlað verði að stofn-
um eitthvað með öllu talinu um
jafnvægi í byggð landsins.
Til þess að stuðla að jafnvægi
í byggð landsins þurfum við
fyrst og fremst fjármagn. Mögu-
leiki getur verið á því, að Við-
reisnarsjóður Evrópuráðsins
sjái sér fært að bæta bér úr. En
lántaka úr Viðreisnarsjóðnum
myndi ekki einungis veita fjár-
magn, heldur og fjármagn, sem
einungis verður notað í þeim til-
gangi, að stuðla að jafnvægi í
byggð landsins. Það yrði ekki
hægt að taka til annarra þarfa,
hversu mikil freisting, sem til
þess kynni að vera.
Ég segi, að möguleiki eigi að
vera á því, að Viðreisnarsjóður-
inn veiti okkur aðstoð. Það fer
þó eftir því, hvert mat sjóðs-
stjórnin leggur á fyrirhugaðar
aðgerðir. Málið þarf því athug-
unar við. Þessi tillaga, sem hér
liggur fyrir, er flutt í þeim til-
gangi, að sú athugun fari fram.
Ég vænti þess, að háttvirtir þing-
menn séu mér sammála um rétt-
mæti þess.
un íslenzks sjónvarps hið fyrsta
svó að þær sjónvarpssendingar,
sem nú er völ á, verði ekki stöðv
aðar.
Vignir Guðmundsson, blaða-
maður, setti fundinn fyrir hönd
undirbúningsnefndar, sem starf-
að hafði í sl. viku. Var undir-
búningsnefndin svo skipuð: —
Hreinn Pálsson, forstjóri, Hrafn
Þórisson, verzlunarmaður,, Vign
ir Guðmundsson, blaðamaður,
Haukur Hauksson, blaðamaður
og Rafn Johnsori, forstjóri.
Fundarstjóri var tilnefndur
Hreinn Pálsson, forstjóri, og
fundarritari Haukur Hauksson,
blaðamaður.
Fundarstjóri las í upphafi svo
hljóðandi skeyti, sem fundinum
barst frá Ásgeiri Péturssyni,
sýslumanni í Borgarnesi:
„Um leið og ég óska þess að
gerast félagsmaður í samtökum
ykkar, skora ég á félagið að
stan.'a drengilegan vörð um per
sónufrelsi manna, sem þjóðinni
er svo dýrmætt. Látum það
aldrei henda, að okkur verði
bannað að lesa blöð eða bækur,
sjá leikrit, horfa á kvikmyndir,
hlusta á útvarp eða sjá sjónvarp
— hvaðan sem það kemur eða
hverjir, sem að því standa.
Það er vanmat á íslenzkri
menningu að halda því fram, að
kynni okkar af viðhorfi til sam-
tíðarinnar, ógni henni. Þvert á
móti færa slík kynni og saman-
burður okkur stöðugt nýjar sann
anir fyrir því, hversu sérstæð og
heilsteypt íslenzk menning er. —
Við eigum að efla hana með því
að auka þroska þjóðarinnar, vel
vlija hennar og víðsýni. Við vilj
um ekki láta skerða tækifæri
otokar til þess, en við vefengjum
ekki heldur rétt annarra einstakl
inga til þess að einangra sig frá
umheiminum, ef þeir æskja þess,
að því marki, sem þeir sjálfir
kjósa“.
Þá tók til máls Vignir Guð-
mundsson og fylgdi úr hlaði laga
uppkasti undirbúningsnefndar.
Voru lögin samþykkt óbreytt
með öllum greiddum atkvæðum.
Þá fór fram sjórnarkjör, og
voru þessir menn kjörnir: Hreina
Pálsson, forstjóri, Hrafn Þóris-
son, verzlunarmaður, Vignir
Guðmundsson, blaðamaður, Ás-
geir Bjarnason, skrifstofustjóri
og Magnús Jóhannsson, útvarps-
virki. Endurskoðendur voru
kjörnir þeir Rafn Johnson, for-
stjóri og Haukur Hauksson,
blaðamaður.
Nokkrar umræður urðu á
fundinum um sjónvarpsmál yfir
leitt, og voru ræðumenn á einu
máli um nauðsyn þess, að ís-
lenzkt sjónvarp kæmist á hið
fyrsta* svo og að ekki yrði tekið
tillit til áskorunar þeirra 60
manna, em nýlega hafa skorað á
Alþingi að takmarka sjónvarps-
sendingar frá Keflavík.
í fundarlok var einróma sam-
þykkt svohljóðandi ályktun til
Alþingis:
„Stofnfundur Félags sjónvarps
áhugamanna skorar á Alþingi að
hafna kröfu þeirra 60 manna, er
nýlega hafa beðið Alþingi að
hlutast til um að sendingar Kefla
víkursjónvarpsins verði takmark
aðar við herstöðina eina.
Fundurinn vill í þessu sam-
bandi vitna til 4. greinar nýsettra
laga félagsins þar sem segir að
tilgangur félagsins sé: Að stuðla
að stofnun íslenzks jónvarps, að
stuðla að því að þeir, sem vilja,
geti notið þeirra sjónvarpssend-
inga, sem íslendingum er kleift
að ná til, og tæknin á hverjum
tíma leyfir og að stuðla að hvers
konar fræðslu um sjónvarp og
sjónvarspmál.
Fundurinn skorar á Alþingi að
virða þann rétt, sem íslendingar
hafa sem einstaklingar notið ó-
skorað til þessa, að mega sjálfir
velja og hafna þeim menningar
lindum, sem kostur er á hverju
sinni“.
Ályktun þessi verður afhent
forseta sameinaðs þings að páska
leyfi þingmanna loknu.
(Fréttatilkynning frá Félugi
Sjónvarpsáhugamanna).