Morgunblaðið - 14.04.1964, Síða 10

Morgunblaðið - 14.04.1964, Síða 10
! ' 10 MORGUNBLAÐIÐ ?>r!í!judaéúr ’apríl 1964 Fyrir nokkru efndu konur í Styrktarfélagi Vangefinna til kaffidrykkju í Lyngási, dagheim ili vangefinna, fyrir konur sendiráðsstarfsmanna og aðrar konur, sem lagt hafa málefni þeirra lið. Konur sendiráðs starfsmanna hafa látið í ljósi mikinn á.huga á starfsemi félags- ins og fyrir forgöngu þeirra voru stofnaðir tveir klúbbar, saumaklúbbur og bridgeklúbbur. Saum.aklúbburinn saumar ýmislegt og gefur á bazar, sem haldinn er rétt fyrir jólin til styrktar starfsemi vangefinna, en félagar í bridgeklúbbnum leggja ákveðna fjárhæð í sjóð í hvert skipti sem þær hittast við spilaborðið. Nýlega afhentu þær félajginu greindarprófunartæki, sem keypt höfðu verið fyrir fé það sem safnazt hafði í bridgeklúbbnum. Öllum konum er heimill aðgangur að klúbbnuir.. Meðfylgjandi mynd var tekin úr boðinu í Lyngási. Á myndinni sézt frú Sigríður Thorla- cius ávarpa gesti og segja þeim stuttlega frá starfsemi Styrktarfélags vangefinna frá upphafi. Dana Jóhannesdóttir. f>EIR eru skringilegir hatt- arnir, sem sýndir eru á tízkusýningum, eins og til dæmis þessi á meðfylgj- andi mynd. Hann var sýnd ur á vorhattasýningu Sim- one Mirman í Chesham Place, London, einna lík- astur ananas. Kollurinn er gulbrúnn og stráin gras- græn. — Sýningarstúlkan heitir Sue Elliott. andinn hefur breytzt og ungl- imgarnir hafa ekki áhuga á fimdum; þeir vilja miklu fíekar fara í bíó eða á dans- Lsiki. f>ó starfar leikfélagið okkar með miklum blóma, ía:rði upp „Þrjá skálka“ í vetur, fór í leikför til Akur- eyrar og fékk prýðilega ö«óma“. „Vinna giftar konur mi'kið vitan heimilisins í Ólafsfirði, eins og títt er í sjávarpláss- tim?“ „Ójá, einkum yfir sumar- tímann þegar síld er. Þá fara íillar niður á plan sem vettl- ingi geta valdið og koma tiörnunum í gæzlu. Því miður ar etokert dagheimili starf- rækt í Ólafsfirði, en barna- leikvöllurinn hefur komið í góðar þarfir. Ég sem for- maður barnaverndarnefndar hef reynt ag koma því til leiðar að dagheimili verði starfrækt í barnaskólanum yfir sumartímann, én sú hug- mynd er ekki enn orðin að veruleika, þó ég voni að það málefni eigi ekki langt í land“. „Þó að ég hafi verið að hnýta í eitt og annað“, sagði frú Dana Jóhannesdóttir að lokum, „þýðir.það ekiki að ég trúi ekki lengur á framtíðina. Þegar öllu er á botninn hvolft finnst mér allt frekar færast upp en niður. En hvað gerir maður ekki í blaðaviðtali? Ég gæti bætt því við að ég er óánægð með að þurfa að kaupa mjólk í flöskum cn fá ekki mælt í brúsa eins og áður var, þarf nú að bera mörg tonn af gleri á ári, kannski misjafnlega hreinu. Enda sagði ég si sona við kaupfélagsstjórann, að mér fyndist ástæðulaust að kaupa óþverrann í búð, ég gæti fengið nóg af honum annars staðar. Að ‘maður tali nú ekki um kartöflurnar. En sem sagt, ég trúi enn á lífið og framtíðina eins og við gerð- um í Ungmennafélaginu 1 gamla daga. Mér finnst eðli- legra að fól'k byrji með smáu og bæti við sig, en að það krefjist alls af öðrum og heimti allt upp í hendurnar í einu. Hg. Tíðarandinn hefur breytzt Rætt við Dönu Jóhannesdóttur frá Ólafsfirði „EKKI SKIL ég í því, bvern- ig þið á Morgunblaðinu feng- uð veður af því að ég væri í bænum", sagði frú Dana Jó- Ihnnesdóttir frá Ólafsfirði, „né að koma mín vekti svona athygli. Alltaf kemur eitthvað manni á óvart. Er eittlhvað sérstakt sem þið eruð á hött- unum eftir?“ Við kváðum það ek'ki vera, heldur langaði Okkur til að spjalla við hana örlitla stund um daginn og veginn, fá frétt ir að norðan og þess háttar. Hún sagði: „Þess er þá fyrst að geta að ég kom hingað suður 17. febrúar s.l. í Volkswagen- bifreið og mun það einsdæmi að bílfært sé frá Ólafsfirði á þessum tíma árs. Við í Ólafs- firði búum við öll hugsanleg þægindi núna, 'höfum heitt vatn í krönum, rafmagn og góð húsakynni, nema hvað vegasambandið er lélegt, en vonandi lagast það þegar veg- urinn fyrir Múlann verður opnaður. Nú, nú, afli héfur verið fádæma lélegur það sem af er vertíð, og muna elztu menn vart eftir verri vertíð. En byggingar eru tals- verðar og fólkinu fjölgar ört í kaupstaðnum, nú munu vera um það bil 1030 íbúar í Ólafs firði, ef ég man ré.tt.“ „Ert þú fædd í Ólafs- firði?“ „Já, og hef búið þar aflla mína ævi, nema hvað ég var smátíma stuttu eftir að ég giftist á Akureyri. Þar kunni ég ekki nema mátulega vel við mig, og því fluttumst við fajónin til Ólafsfjarðar. Það var árið 1921. Við keyptum okfcur pínulítið bús, sem var ein stofa ag eldhús, og þótti það mifcið fyrirtæki í þá daga, enda fólk nægjusamara en það er nú. Þetta litla hús stendur enn. Það var byggt fæðingarárið mitt 1008, og er í frásögur færandi að þar hef- ur aldrei dáið manneskja, þó alltaf hafi verið búið í húsinu. Ég er viss um að húsinu fylg- ir mifcil gæfa, og þau átta ár sem ég bjó í því voru yndis- leg. Þaðan fluttum við í stórt steinhús upp á tvær hæðir, sem við höfðum látið byggja, á þeirra tíma mælikvarða þótti það 'heilmikil höll þó ekki fari miikið fyrir því í samiburði við stórhýsi nútím- ans. Þar höfum við átt heima síðan og vegnað vel.“ „Hvað starfar maðurinn þinn?“ „Maðurinn minn, Jón Björnsson, er nú fiskikaup- maður, en hefur fengizt við sitthvað um dagana, einkum útgerð. Árið 1023 keypti hann 8 tonna bát frá Akureyri og gerði hann út frá Ólafsfirði. Svo áttum við jörð inn í firði, Lón, og höfðum þar smá bú- skap, um 50 kindur, 3-4 kýr og mest man ég eftir fjórum 'hestum. Eiginlega var það mér að kenna að við vorum að bauka við þennan búskap, því ég hef ævinlega verið meira fyrir sveitastörf en fiskvinnu, og þótti gott að fara um tíma upp í sveit með krakkana þrjá og fást við heyskap. En auðvitað hef ég lífca unnið í fiski, þegar svo bar undir, og það við erfiðari aðstæður en nú eru. Satt að segja skil ég ekki þessa of- þreytu sem allir eru tala um, vinnandi ekki nema 8-10 stundir á sólarhring. Ég er hrædd um það yrði hikstað núna, ef verkafólkiðnu væri sagt að bera saltfisk í drusl- um á bakinu, vaska fisfc og bera allt vatn í kerin, og vinna meðan stætt væri. Og ekki hef ég orðið var við að heilsufarið sé neitt betra nú til dags en þá“. „Svo þú mannst tímanna tvenna?“ „Ójá, margt hefur breytzt til batnaðar, en ekki allt. Að hugsa sér að smjörstykkið skuli nú kosta yfir 13'8' krón- ur! Það hefði - þótt trúleg saga til næsta bæjar eða hitt þó heldur, þegar borgaðir voru 10 aurar fyrir að beita línustoikk. Einnig finnst mér félagsþroska fara hnignandi“. „Hefur þú tekið mikinn þátt í félagsstarfsemi? “ „Ekki bera að neita því. Ég hef verið í Kvenfélaginú Æskan í 45 ár og verið for- maður um skeið, en nú er ég farin að eldast og hef dregið mig til baka fyrir yngri kon- um. Kvenfélagið var stofnað árið 1917 með örfáum kon- um, en nú eru félagskonur milli 70 og 80. í fyrstu starf- aði félagið sem líknarfélag, en tímarnir hafa breytzt og starfsemi félagsins sömuleið- is. Við lögðum fé í félagsheim ilið okkar, Tjarnarbo]-.g, sem er mjög myndarlegt heimili, og þar er góð aðstaða til að halda fundi, auk þess sem haldnar þar eru árslhátíðir og þorrablót, og svo auðvitað danssamkomur um helgar. En nú er efst á dagskiá hjá okkur að koma upp elliheim- ili, og er fyrirhugað að reisa það í sambandi við væntan- lega sjúkrahúsbyggingu. Eins og kunnugt er hefur frú Jón- ina Sæborg, mágkona mín, sem búsett er í Noregi, gefið stórfé til væntanlegrmr elli- heimilisbyggingar í mi nningu manns hennar og má búast við að elliheimilið rísú upp nokkru á undan sjúkrahús- inu, þó þess sé engu «vð síður þörf. Einnig er ég moðlimur í Sjálfstæðisfélaginift, og sakna ég þess mjög hs að það sem önnur stjórnmálafélög í kaupstaðnum eru dauf til að- gerða núorðið. En þaí er nú svona, í Ólafsfirði «tr fólk hógvært í pólitík, nema fyrir 'kosningar, og þá færisrt heldur betur líf í tuskurnar. En fundarsófcn er mun lélegri nú en hérna áður fyrri. Tíðar-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.