Morgunblaðið - 14.04.1964, Side 24

Morgunblaðið - 14.04.1964, Side 24
24 MORCUNBLABIÐ triðjudagur 14. aprfl 1964 l%FUZAB£rrí TSRRtSlSPPi 52 ‘HlÆTCR ÆLUM 9 — Hann veit það, er það ekki, sér, hvenær maður losni full- Stephen? Ég á við, þegar hann sagði þrjú. . . . Hún leit kring um sig með kvíðasvip, en vildi ekki segja meira, af því að heyrðist til þeirra. — Jú, eitthvað veit hann, svar aði Stephen, — en bara ekki eins mikið og hann vildi láta þig halda. — Það datt mér einmitt 1 hug. En ef þeir hafa nú fundið það . . . — Það er ekki víst, að þeir hafi það. Þeir geta náttúrlega hafa itomizt að einhverju um hitt. Mér finnst það líklegra. Og úr því að það ert þú, sem barst ranglega kennsl á hann, halda þeir ef til vill, að þú vitir, hvað varð af þeim rétta, og hafa verið að reyna að hræða þig til að glopra því út úr þér. — Og kom ég upp um mig þessum andlitssvip mínum? — Nei, þú stóðst þig prýði- lega. — Það gerðir þú líka. En þessi ferð okkar hefur bara borið býsna lítinn árangur, finnst þér ekki? — Nei, góða mín. í rauninni höfum við áorkað því, sem við ætluðum og haft ýmislegt annað þarflegt upp úr ferðinni, auk þess. — Til hvers fórum við þá? — Ja, ég vil segja, að það hafi strax verið gott að við eyddum einum eða tvennum misskilningi okkar í milli, eða finnst þér ekki við hafa gert það? Hann hallaði sér fram og greip hendur hennar. — Er ekki þeim misskilningi lokið? Við eigum bæði við það sama, er það ekki? — Jú, Stephen . . og það er eitt, sem ég vildi segja þér. . . Hann dró hendurnar á henni betur að sér og kyssti á fingurna. — Það er óheppilegt að vera að tala um morð í almennings- farartæki, sagði hann. — Ég veit það, og ég skal heldur ekki gera það. En ég ætla að segja þér þetta undir eins og við erum orðin ein aftur. Ég hefði átt að segja þér það strax, þegar þú komst inn og fannst mig með . . . . Samt vissi ég ekkert um þig þá. En nú verð ég aðsegja þér það. ;— Gott og vel, ég skai fylgja þér heim og þá geturðu sagt mér það. — Já. En jafnskjótt sem hún hafði sagt þetta, iðraðist hún eftir það. Því að það hafði runn- ið upp fyrir henni, að fyrir einu andartaki, þegar hún hafði spurt um erindi þeirra til Napólí, hafði hann leitt spurn- inguna hjá sér. Kannski hafði það enga þýð- ingu. En það gat það nú haft samt. Kannski þekkti hún hann alls ekkert ennþá. Kannski hafði hún enn enga gilda ástæðu til að treysta honum. Kannski . . kannski . . . Hún tók að velta því fyrir komlega við vantraust á einum manni. Tekur það vikur . . mán- uði . . ár? Á stöðinni í San Antioco tóku þau hestvagn. En þau voru lengi á leiðinni heim til hennar, af þvi að hátíðahöldin töfðu fyrir þeim og torgið var sneisafullt af fólki, sem hnappaðist saman og gerði enga tilraun til að víkja fyrir umferðinni, sem var að reyna að komast leiðar sinnar. Eldflaugar sþrungu enn 'í ioft- inu og trúarleg skrúðganga, ber- andi helgimyndir og syngjandi, var að nálgast torgið. Og þegar vikið var fyrir skrúðgöngunni varð mannþröngin ennþá þéttari á torginu. Leiguvagnstjórinn fór að tala við þau um manninn, sem skot- inn var um daginn. Hann hafði þó ekki söguna rétta, að því leyti, að hann hélt, að Sebast- iano hefði verið einhver hátt- settur maður í svartamarkaðs- viðskiptum og hefði verið myrt- ur af keppinaut sínum. Hvorugt þeirra reyndi að leiðrétta hann. Ruth var að hugsa um það, sem hún ætlaði að segja Stephen þegar þau kaemu heim í húsið. Hún vissi ekki enn, hvort hún myndi segja honum það eða ekki, og hú,n var hrædd við að verða of fljót á sér og svo kannski sjá eftir öllu saman á eftir. Hún var hrædd um, að ef hún ákvæði nú að se,gja hon- um það, gæti hún hæglega sagt honum eitthvað meira, eða minna, án þess að hugsa sig um. Yfirleitt var þetta svo líklegt, að það var næstum þýðingar- laust að vera að hugsa sig um fyrirfram. En hann hafði ekki gleymt því. Þegar þau höfðu stigið út úr vagninum og hann hafði snú- ið við og lagt af stað aftur til þorpsins, greip Stephen hana í fang sér og þrýsti henni fast að sér. — Hlustaðu, sagði hann í eyra henni. — Eg vil ekki, að þú seg- ir mér neitt. Eg vil ekki heyra það. Héðan af er alveg sama um það. — Já, en .'. . — Gerðu það ekki, sagði hann. — Því er öllu lokið. Talaðu ekki um það. Um leið og varir þeirra mætt- ust, fann Ruth, að hann hafði haldið, að hún hefði a»tlað að fara að segja honum um sam- band sitt við Lester Ballard. Hann hafði ekki grunað, að hún hafði ætlað að trúa honum fyrir — Afsakið’ Viljið þér gjöra svo vel og hafa auga með manninun nafni morðingja Ballards. — Halló, herra! sagði rödd, rÉtt hjá þeim í dimmunni. — Elú skal ég spá fyrir þér og döm unni! .Fram úr myrkrinu kom lítil mannvera til þeirra. Þegar ljósið s fcein á hana, sáu þau, að þarna v ar kominn drengurinn með páfa gaukinn. — Spá fyrir ykkur,' endurtók hann í bænarrómi. — Góð spá. Jtikilvæg spá! Hann stakk hendinni inn í búr i'i og kom út með páfagaukinn. Setti hann á röndina á bakkan- um, sem var framan á búrinu. Fuglinn greip þegar lítið umslag með nefinu. Drengurinn tók umslagið af fuglinum og rétti Stephen. Stephen hló. — Gott og veþ sagði hann og seildist til vasa síns eftir peningum. En um leið og hann gerði það, sagði drengurinn: „Nei, nei!“ og stakk um leið umslaginu í hina höndina á Stephen og hvarf svo út í myrkrið. En áður en hann hvarf, leit hann einu sinni um öxl. Og í tunglsljósinu sást skelf ingarsvipur á fölu andlitinu. 52 B Y L T 1 q G 1 N É RÚSSLANDI 1917 ALAN MOOREHEAD Annar illræmdur Okhrarja- njósnari, sem hér verður gerð- ur að umtalsefni, og það nokkru ítarlegar en Azev, er Roman Malinovsky. Hann var ekki jafn áberandi og Azev, en fast að því jafn undirförull, og sumt í sjálfri ósvífninni og dirfskunni ferli hans er næstum hlægi- legt. Malinovsky var talsvert — átta árum — yngri en Lenin og honum er lýst sem aðlaðandi manni, rjóðleitum og uppstökk- um, og tölugur var hann og flóð mælskur ræðumaður. Rússnesku lögreglumyndirnar af honum — og þær voru sjaldnast fegraðar — sýna hnöttótt, rússneskt höf- uð, þétt, snoðklippt hár, hang- andi yfirskegg og greindarlegt og bjartsýnilegt augnaráð að öllu samanlögðu er þetta álitleg- ur maður. Hann hafði orð á sér fyrir að vera eyðsluseggur og drykkjumaður, og á yngri árum sínum var hann oftar en emu sinni dæmdur fyrir smávægilega glæpi. Ætterni hans var bæði rússneskt og pólskt og ekki sér- lega göfugt; hann var málmiðn- aðarmaður og árið 1917 fram- kvæmdastjóri félagsskapar málm iðnaðarmanna í Petrograd. Ein- hverntíma um þessar mundir náði Okhrana í hann cig hann byrjaði eitthvað smávegis sem lögreglunjósnari og njósnaði þá um samverkamenn sína. En bráð lega komst hann á fast kaup hjá Okhrana og honum var fengið það mikilvæga starf að kljúfa sósíaldemókrataflokkinn. Lenin hitti hann í fyrsta sinn á Pragþinginu 1912, þar sem hon um skaut upp sem æstum bol- sjevíka og fulltrúa fyrir iðnfélög in í Moskvu. Frá fyrstu byrjun virðist Lenin hafa orðið hrifinn af honum, og hann studdi að kosningu Malinovskys tiil Dúm- unnar, sem bolsjevíkafulltrúa. Okhrana studdi mjög þennan leik — því hærra sem Malinov sky væri skrifaður hjá bolsje- víkunum, því betra — og lög- reglan gat stutt kosningu hans á þann einfalda hátt nð taka mótframbjóðendur • hans fasta. Malinovsky gerðist nú hæst- launaði njósnarinn hjá Okhrana, með 500 rúblna laun á mánuði og hann virðist hafa lifað tvö- földu lífi til fullnustu. Hann sendi eintök af þingræðum sín- um bæði til Lenins og lögregl- unnar. Stundum gátu Lenin, F simenev eða Zinoiev samið ræð ubnar fyrir hann, og þessar ræð- ut sendi hann heiðarlega til lög- r'glunnar, áður en hann flutti þíEir. Efnahagur hans blómgað- ift; Okhranalaunin hækkuðu upp í 700 rúblur á mánuði og þígar hann gaf bolsjevíkaflokkn utn peninga gat hann látið skrifa upphæðina hjá lögreglunni, sem sferfskostnað. En lögreglan virð ií t líka hafa verið útfarin í þess- um leik, því aðeinu sinni sektaði hfm Pravda um 500 rúblur fyrir byltingargrein eftir Malinovsky. En snemma árs 1914. tóku bæði Okhrana og bolsejevíkarn- ir a'ð gruna mann sinn. Okhra #a ákvað að slíta sambandi við hann. Hún skipaði Malinovski að segja af sér þingmennsku og gaf honum 6000 rúblur í eitt skipti fyrir öll, til þess að koma undir sig fótunum að nýju. Hann fór þá beint til Galizíu, sem var heimskulegt tiltæki, því að bol- sjevíkarnir hófu þá tafarlaust rannsókn á framferði hans. En áhrifavald Lenins nægði til að bjarga höfði Malinovskis (enda þótt það hindraði ekki bolsje- víkana í að taka hann síðar af lifi í Moskvu). KALLI HARMAN Þú hefur svei mér verið heppinn fram til þessa — og enn ertu með ekambyseuna. Viltu reyna öðru sinni? — Nei, nei, alls ekki! — Losaðu beltið með vinstri hend- inni og hentu því hingað — svo ríð- um við af stað. Við komum líklega rétt mátulega til þess að sjá Frænku taka kalkúnsíeikina út úr Qfninum. — Kalkún — hvað áttu við? — Það er þakkargjörðardagurinn í dag — og væri ég í þínum sporum myndi ég flytja sérlega þakkargjörð fyrir að vera enn á lífi Svona persónusaga ævintýra- manns er kannski að einu leyti rxlerkileg: hún sýnir, að um þær mundir sem hinir mikilvægu dag ar voru að nálgast, rétt fyrir heimsstyrjöidina, þá var bylt- ingastraumurinn langt frá því að vera hreinn. Hann var gjöreitr- aður, og tímabundin blinda Len ins og annarra fyrirmanna á það, sem raunverulega var að gerast í þeirra eigin röðum, var engu minni en blinda keisarans á það, sem var raunverulega að gerast í Rússlandi yfirleitt. Hún er ein kennileg sjón, þar sem þverúðug ar sálir eru að mjakast áleiðis til sinnar eigin tortímingar, og enginn maður mundi veðja skild ingsvirði um það, hvort keisar- arinn eða bolsjevíkarnir ólu upp meiri fanta í liðskosti sín- um. Víst er um það, að hið svarta innræti Rasputins er ekki laust við að lýsast ofurlítið við saman burðinn við siðleysi manna eins og Azevs og Malinovskys. Að minnsta kosti voru nú — síðustu dagana fyrir 1914 — öfl að verki, sem voru sterkari en svo, að keisarinn eða Lenin, gætu við þau ráðið. Nú eins og 1905, voru það hræringar og tilfinn- ingar rússnesku þjóðarinnar i heild, sem ætlaði að fara taka málin í sinar hendur, og þarna fóru menn ekki eftir forskrift- um neinna foringja til hægri eða vinstri, heldur út frá eigin reynslu og þeirri meginsetningu sem Trotski hafði orðað þann- ig, að „gamla skipulagið var orðið óþolandi". Einveldi keisar- ans var hrundið. Tilraun hinna frjálsu í Dúmunni til að leita lækningar í lýðræðinu, hafði orð ið fyrir skemmdarárásum. Þvi leitaði rússneska þjóðin einu hugsanlegu lausnarinnar, sem eft ir var. Frá janúar til júlí fóru meira en milljón verkamenn í verkfall í stóru borgunum, og í maímánuði kom svo verkfall í vopnabúri flotans, vefnaðar- verkamenn í Moskvu neituðu að halda áfram vinnu, og götubar- dagar hófust í Baku, milli oliu- verkamann, kósaka og lögreglu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.