Morgunblaðið - 15.05.1964, Page 19
ðllllllllllllllll!llllllllllllllllllllllllllllll!lllllllllllli!lílillllll!llll!lillllllllj!llll!llllllllllllillliillllllll!lllllll!lllllllllllll!ill!llllllllllillllllllllllll!linij||||||^ lllllllillllllllllllllllllllllll!!llllllllllllllllllllllll!lll!lillllll!lll!l
Föstudagur 15. maí 1964
19
MORGU N BLAÐIÐ
Hemingway
ákvað að fara ekki í veizlur,
þar sem búast mátti við nátt
langri drykkju og ákvað að
sjá sér fyrir nægilegri úti-
vist og hreyfingu á hverjum
degi og vinna reglulega.
Hann byrjaði líka að vinna
— en jafnskjótt og hann var
kominn vel á veg tók Zelda
að kvarta yfir því, hve sér
leiddist óskaplega og henni
tókst alltaf að draga hann
út á fyllirí á ný. Svo rifust
þau, en saettust aftur og
hann sveitti úr sér áfenginu
á löngum gönguferðum með
mér, mannaði sig upp og
sagði, að í þetta sinn skyldi
hann vinna, svo um mimaði,
og komast vel á skrið. Síð-
an byrjaði sama sagan á ný.“
Síðan minnist Heming-
way á, að Scott hafi verið
mjög ástfanginn af Zeldu og
hræddur um hana „Eins og
málurn var háttað, mátti
hann prísa sig sselan yfir
því, að hann skyldi yfirleitt
nokkuð skrifa. Zelda- gaf
mönnum yfirleitt ekki undir
fótinn, þótt þeir litú hana
hýru auga, og kvaðst ekkert
kaera sig um þá. En hún
hafði engu að síður gaman af
og það olli Scott afbrýði svo
aS hann taldi sig tilneyddan
til að fylgja með begar hún
fór út. Þetta eyðilagði starf
hans og hún var aifbrýðis-
samari út í starf hans en
nokkuð annað“.
Hemingway segir frá þvi,
að sumarið 1925 hafi hann
og kona - hans dvalizt á
Spáni, þar sem hann hafi lok
ið uppkasti að skáldsögu. Það
sumar hafi Fitzgerald verið
með fjölskyldu sína á Rivier-
unni og er þeir hittust um
haustið „var hann mikið
breyttur. Hann hafði ekki
drukkið minna á Rívierunni
og nú var hann ölvaður jafnt
á daginn sem á kvöldin og
nóttunni . . „Ég sá'hann
mjög sjaldan ódrukkinn,
segir Hemingway, og hetdur
áfram, „en þegar hann var
ódrukkinn var hann aUtaf
þsegilegur og sagði sögur, og
stunduim jafnvel þrandara
um sjáltfan sig. En þegar
hann var ölvaður settist
hann gjarnan að hjá mér og
undir áhrifum víns hafði
hann næstium eins mikla
ánaagju atf því að hindra mig
í starfi eins og Zelda hafði
af því að koma í veg fyrir að
hann ynni. Þannig gekk árum
saman, — en árum saman
átti ég heldur engan vin
betri né trúari en Scott, þeg
ar hann var ódrukkinn“. Síð
ar segir Hemingway, að kom-
ið hafi í Ijós, að Zelda var
veil á geðsmunum og Scott
Fitzgerald hafi þá fyrst, er
hann vissi það, farið að
skrifa eitthvað, sem máli
skipti.
Sem v ænta má í endur-
minningum frá París fjallar
Hemingway einnig um ásit-
ina og vorið, „þegar eina
vandamálið er. hvar maður
geti orðið hamingjusamast-
ur“. Hið eina, sem gat spillt
gleði dagsins var fólk, og
gæti maður- sneytt hjá því
átti dagurinn sér engin tak-
mörk. Það var alltaf fólk sem
lagði steina í götu hamingj-
unnar, nema þeir fáu, sem
voru eins góðir og vorið
sjáltft". Og hann lýsir vor-
morgni í París:
„A vorin var ég vanur að
vinna snemma á morgnana,
en konan min svaf. Glugg-
arnir voru opnir upp á gátt
og steinarnir á strætunum
voru að þorna eftir náttfallið.
Sólin þerraði vot andlit hús-
anna handan götunnar. Hler-
arnir voru enn fyrir búðar-
gluggunum.
„Geitahirðirinn kom upp
götuna, blásandi í flautu sína,
og kona, sem bjó á hæðinni
fyrir ofan kom út á gang-
stéttina með stóran brúsa.
Geitahirðirinn valdi úr eina
geitina og mjólkaði hana í
brúsann, en hundurinn hans
smalaði hinum upp á gang-
stéttina. Geiturnar horfðu í
kringum sig, eins og ferða-
menn. Geitahirðirinn tók við
greiðslunni af konunni, og
þakkaði henni fyrir og hélt
áfram , upp götuna, blásandi
í flautuna og hundurinn rak
geiturnar áfram og hornin á
þeim gengu upp og niður.
„Ég fór aftur að skrifa og
konan kom upp stigann með
geitamiólkina. Hún var á
inniskóm með mjúkum sól-
um og ég aðeins heyrði hana
anda. þegar hún staldraði við
á stigapaMinum framan við
dyrnar okkar, og síðan, er
hún lokaði hurðinni hjá sér.
Hún var sú eina í húsinu, §§
sem keypti geitamjólk.
Ég ákvað að fara niður og H
kaupa veðreiðablað! Ekkert H
hverfi var svo aumt, að þar s
væri ekki hægt að fá- a.m.k. =
eitt veðreiðablað, en á slíkum ^
degi varð að kaupa það j§
snemma. Ég fann blað í Rues |§
Descartes, við homið á Con- p
trescarpe. Geiturnar voru á =j
leiðinni niður Rues Descartes =
og ég dró að mér ferskt'Toft H
ið og gekk hratt til baka, §f
upp stigann til að ljúká því H
sem ég átti ógert. Það hafði =
verið freistandi að vera kyrr g
úti og fylgja geitunum eftir. =
En áður en ég byrjaði að s
vinna aftur leit ég á blað- j=
ið. Það voru veðreiðar í M
Enghien . . . .“
Á slíkum degi fóru Mary M
og Ernest Hemingway á veð- =
reiðar — eftir nokkrar vanga ||
veltur um það, hvort þau M
ættu að verja þeim pening- s
um, er þau áttu, til þess eða M
einhvers annars. Og af langri =
göngu í yndislegu veðri urðu s
þau svöng og settust inn í §§
veitingahús. þar sem matur- s
inn var of dýr fyrir þejrra =
efnahag — en góður. dásam- g
legur .... “ en þegar við =
vorum búin að borða og ekki M
lengur svöng og tókum ásétl-
uriarbílinn heim. þá vorum =
við enn haldin tilfinningunm =
sem hafði verið eins og hung §§
ur. Við vorum enn haldin M
henni, þegar við kamum og =
eftir að við höfðum af- =
klæðzt og elskazt í myrkrinu §§
og einnig þegar ég lá vakandi g
— og gluggarnir voru opn- §§
ir og tunglskinið lék á þök- §§
um háhýsanna.
Ég sneri andliti mínu und- H
an tunglsljósinu að skuggan s
um en gat ekki sofið og lá =
vakandi og hugsaði um þessa ||
tilfinningu. Við höfðum bæði =
vaknað tvisvar um nóttina, =
en ,nú svaf konan mán sœtt §§
og rótt og tunglsljósið á and- §|
liti hennar. Ég varð að reyna =
að skilia þetta. en ég var otf §?
fávís. Lífið hafði virzt _ svo =
einfalt þennan morgun, þeg- H
ar ég vaknaði og fann vor- =
boðann dg heyrði í flautu §§
geitahirðisins os fór út og =
kevpti veðreiðablaðið.
En París var mjög gömul =
'borg og við vorum ung og §§
ekkert var einfalt hér — ekki §§
einu sinni fátæktin eða skjót =
fengið fé eða tunglsljós, =
hvorki rétt né rangt, né and =
ardráttur einhvers, sem lá §§
við hlið þér í tunglsljósi“.
IIIIIIHIIIIIIIIItilHIIMriiiiimiiiiiMiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii.^iiimillllllllliitli'i'l'IMIIIIIIIIIIIIIIIIIItlllllllllillllllMllllllllllllllllllllliiiiiiiiiiiiiiiíiiií
l; í.i:illlllliilkJllllllllllllllllllilllllllllli|llllllllllllllllllllllllllllllllllllll:l'.illllllllllllllli:ll lillllllllll
Framhald af 10. síðu.
að barriíostran hennar væn
ensk, því að hann vildi að
telpan talaði eins og Lady
Diana Manners, þegar hún
væri orðin stór.
Zelda var fráneyg og með
þunnar varir. Málhreimur
hennar og framkoma var
eins og gerist í Suðurríkjun-
um. Þegar andlit hennar var
athugað sást hvernig vitund
hennar bókstaflega létti sér
upp frá matarborðinu og
flaug aftur til veizluhalda
næturinnar — kom svo aft-
ur, — en augu hennar voru
tóm eins og í ketti, þar til
ánægjan gægðist fram í
þeim og birtist á smóum vör-
um hennar áður en hún
hvarf alveg. Scott lék hlut-
verk hins góða hjartanlega
gestgjatfa og Zelda horfði á
hann og brosti ánægjulega,
með augunum — og þegar
hann drakk vínið einnig með
vörunum. Ég kynntist þessu
brosi smám saman mjög vet.
Það merkti að hún vissi, að
Scott yrði ekki fær um að
skrifa. . .
Zelda var afbrýðissöm út
í starf Scotts, og þegar við
kynntumst þeírn betur, sáum
við hvernig þetta var. Scott
Fitzgerald-fjölskyldan á jólum i París árið 1925 — Scott,
Zelda og dóttirin, Scottie.
Stór rúmgóð
hálf húseign með 4ra og 5 herb. íbúðum í, á góðum
stað í Hlíðunum. Hæðin er um 165 ferm. 5 herb.
eldhús, bað, stórt, tvennar svalir.
í risi er 4ra herb.'íbúð um 120 ferm. — Bílskúr,
fin.it Sigurbsson hdl.
Ingólfsstræti 4.' Sími 16767.
Heimasími milli 7 og 8: 35993.
vörur
Kartóflumus — Kakómalt
Kaffi — Kakó
Egilskjör,, Laugaveg
Glœsileg íbúð
Til sölu er á 4. hæð í sambýlishúsi við Kleppsveg
næstum ný íbúð, sem er ca. 130 ferm. 3—4 herb.,
eldhús, bað o. fl. Innréttingar í íbúðinni eru vand
aðar. Gólf teppalögð. Mjög fagurt útsýni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
. Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4. — Sími 14314.
Nýtt frá BARTELS
Atvinna
Hótel Garð vantar stúlkur í gestamóttöku, ganga-
stúlkur og konu í þvottahús. — Einnig vantar að-
stoðarstúlkur í eldhús og við-flfgreiðslu í matsal.
Upplýsingar á Gamla Garði við Hringbraut laug-
ardaginn 16. maí kl. 15—17. — Fyrirspurnum ekki
svarað í síma.
Hófel Garður.
Bakarar
Námskeið verður haldið í Iðnskólanum í Reykja-
vík dagana 20.—30. maf nk. kl. 3—6 síðdegis
daglega nema laugardag 23. maí. — Kennt verður
sykursuða, ýmiskonar skreyting og vinna úr
sykri (karamell). — Þátttökugjald er kr. 500,00.
Þátttaka tilkynnist eigi síðar en 19. maí til skrif-
stofu skólans.
Iðnskólinn í Reykjavík.
Landssamband bakarameistara.