Morgunblaðið - 05.06.1964, Page 27
Föstudagur 5. i'únf 1964
MORG"u*t AÐIÐ
27
Bein finnost
í Pntreksfirði
Líklega kuml írá
heiðni
Patreksfirði 4 júní
SL. ÞRIOJUDAG fundust
mannabein í hól við Vatnsdalsá,
sem fellur um Vatnsdal í Patreks
firði. Er líklegt talið, að liér sé
um að ræða kuml frá heiðni, og
ef svo er, þá cr hér um allmerkan
fund að ræða, því sárafá kuml
bafa fundizt á Vestfjörðum.
Eigandi jarðarinnar Vatnsfals,
Páll Guðfinnsson, var á þriðju-
daginn að láta taka steypuefni í
hól innarlega í Vatnsdal. Kom
jarðýtan þá niður á mannabein,
og ennfremur virðist vera þarna
járn, eitthvað sem líktist spjóts-
oddi eða einhverju öðru vopni.
Þjóðminjaverði var tafarlaust
gert aðvart urn fundinn, og ósk-
aði hann eítir því að mokað
yrði yfir þetta og ekki hróflað
við hólnum frekar fyrr en hann
hefði komið hingað og rannsakað
inálið. — Trausti
Mbl. snéri sér í gær til Krist-
jáns Eldjárns, þjóðminjavarðar.
Hann sagði það vafalítið, að hér
væri um kuml frá heiðni að
ræða. Ekki væri annað um málið
að segja a þessu stigi, en þetta
yrði rannsakað, vonandi áður en
Xangt um liði.
• ENDURSKOÐA MÆTTI...
London, 4. júní NTB
Sir Alec Douglas Home
sagði í dag, að ástæða væri til
að taka tii endurskoðunar þá
afstöðu Vesturveldanna að
selja ekki kjarnorkustöðvar
til kommúnistaríkjanna.
- ífrróitlr
Framhald af bls. 26
íslenzku stúlkurnar verja
annað sætið.
Síðasta Norðurlandamót kvenna
fór fram í Fagersta í Svíþjóð.
Þá unnu Danir en ísland varð
í 2. sæti. f>að er bezti árangur
sem ísl. stúlkur hafa náð á mót-
inu en þær hafa verið með þri-
vegis. Danir og Svíar hafa yfir-
leitt skipt á milli sín sigrum í
þau 10 skipti sem mótið hefur
farið fram. Hafa bæði löndin hlot
ið 5 sigra. Danir eru sigurstrang
legastir nú.
Pétur Bjarnason er þjálfari ísl.
liðsins, en hann sagði við blaða-
menn í gær, að endánlegt val í
íslenzka liðið færi ekki fram fyrr
en um aðra helgi. Stúlkurnar
æfðu vel, þrívegis vikuleg úti
auk annarra æfinga. Var l ar.n
bijartsýnn á getu beirra þó hann
teldi að varla væri hægt að telja
liðið eins sterkt, og það var 1960
á síðasta móti. Fimm stúlkur er
þá voru með eru við æfingar nú
auk margra nýrra o» mtö-r efni-
legra.
— Larsen
Frh. af bls. 2F
MYND þessi er frá átökunum í Seoul á miðvikudag, er um þúsund manns, stúdentar og lög
reglumenn særðust (Símamynd frá AP).
mjög upp og ofan, teflt skarpt
og lagt út í á'hættusamar
leikfléttur. í gær t. d. tefldi
Tal við Berger og var nærri
búinn að tefla skákina af sér
. . . en hann er í öðru sæti
núna, ásamt Spasski og
Bronstein.
— Gligoric hefur teflt illa
móti Rússunum, hann hafð
ekki nema % vining tvisvar
eftir fimm viðureignir við
þá, tapaði fyrir þremur og
gerði jafntefli við tvo.
Bent Larsen var við góða
heilsu og ókvíðinn að venju
og hann gladdist yfir áhuga
Islendinga á velgengni hans.
Átök þúsunda stúdenta og
lögreglu í 8 borgum S-Kóreu
Seoul, S-Kóreu, 4. júní
• í dag kom enn til alvar-
legra átaka í S-Kóreu, er
þúsundir stúdenta hófu mót-
mælaaðgerðir í átta borgum
gegn stjórn landsins. Linnti
þeim ekki fyrr en stjórnin
hótaði að lýsa yfir hernaðar-
ástandi í landinu öllu.
• Höfuðborgin, Seoul, er
enn í hernaðarástandi og
herma fregnir þaðan, að
hundruð stúdenta og fjöldi
blaðamanna hafi verið hand-
teknir. Fjölmennt herlið kom
til borgarinnar í nótt og í
morgun og ólga er sögð mikil
þar undir niðri.
Sameinast frjálslyndir
republikanar um Scranton?
New York, 4. júní AF—NTB.
• FREGNIR vestanhafs hern-.a,
að hinn frjálslyndi armur
republikanaflokksins eigi nú úr
vöndu að ráða vegna sigurs öld-
ungadeildarþingmannsins Barry
Goldwaters í pröfkosningunum í
Kaliforniu, enda hafi hann kom-
ið þeim allmjög á óvart. Þó sé
sú skoðun sterk meðal frjáls-
lyndra, að margt geti breytzt á
þeim mánuði, sem er til stefnu
þar til úr framboði flokksins
verður endanlega skorið og því
muni hentast að ákveða hið
fyrsta hvernig haga skuli barátt-
unni gegn honum.
• I stórblöðunum brezku og
bandarísku kemur sú skoð-
un ótvírætt fram, að frair.boð
Goldwaters yrði hið mesta ólán.
„New York Times“ sagir það
hörmulegt fyrir Bandaríkin
jafnt sem flokk republikana
verði hann frambjóðandi flokks-
ins. Og „Times“ í London segir,
að vart verði mönnum láandi
þótt þeir fyllist óróleik við um-
hugsunina um Goldwater sem
framb jóðanda.
• Þá fer sovézka tímaritið
„Literaturnaja Gazeta“ háðuleg-
um orðum um Goldwater i dag.
Segir hann hafa „Páfagauks-,
heila“ og að spaugilegt sé, að
hann hyggi á fran.boð. Grein
blaðsins um Goldwater ber fyrir
sögnina „Ferill Neanderthals-
manns“ og lýkur henni með
áminningu um, að Hitler hafi
ekki verið tekinn alvarlega í upp
hafi og það hafi orðið mannkyn-
inu dýrt.
Mikið er nú rætt uam þann
möguileika frjálslyndari republik
ana að fyl'kja sér um William
Scranton, ríkisstjóra í Pennsyl-
vaniu. Er hann talinn einna lík-
legastun' til að geta forðað klofn
ingi í flokknum. Scranton hefur
ekki enn látið beint í ljós óskir
um að komast í framboð og
síðast í gær lýsti hann því yfir,
að hann óskaði hvorki eftir fram
boði til forseta — né varaforseta
embættisins, nema því aðeins að
fram kæmi af hálfu flokksins
heiðarleg og alvarleg tilmæli þar
að lútandi.
Hinsvegar hafa verið uppi
raddir um að samþykkja fram-
boð Goldwaters en reyna að hafa
þau áhrif á hann, að hann taki
upp nokkuð sveigjanlegri stefnu
í utan- og innanríkismálum.
Talsmenn þessarar stefnu biðu
verulegan ósigur þegar í kvöld,
er talsmaður Goldswaters lét
hafa það eftir sér, að vísast muni
Goldwater greiða atkvæði gegn
því, að bundinn verði endi á
málþófið í öldungadeildinni um
stjórnarfrumvarpið um aukin
réttindi blökkumanna, hversu
mjög sem að honum verði lagt
að breyta afstöðu sinni í því
máli.
Sú skoðun er útbreidþ meðal
fréttamanna vestra, að aðrir sem
til greina hafa komið sem fram-
bjóðendur republikana muni
aldrei fást til að ljá Goldwater
fyigi.
Johnson ánægður
>á segir í AP-frétt frá Was-
hin.gton, að líklega sé Johnson
förseti að vissu leyti ánægður
með sigur Goldwaters, þar sem
hann telji hann einna hættu-
minnstan keppinaut úr hópi repu
blikana. Á það er bent, að John
son hefur fátt látið eftir sér hafa
að undanförnu um hugsanlega
frambjoðendur republikana. Þó
hefur hann farið viðurkenning-
arorðum um þá Rockefeller,
Scranton, Henry Cabot Lodge,
sendiherra og George Romney,
ríkisstjóra í Michigan. Hinsvegar
hafi Nixon, fyrrverandi varafor-
seti og Goldwater nokkrum sinn
um verið skotspænir heldur
háðulegra athugasemda forset-
ans.
Bandarísk og brezk dagblöð
harma yfirleitt að Goldwater
skyldi bera sigur úr býtum í
Kaliforníu en bandairísku siðdeg-
isblöðin telja Ólíklegt, að héðan
af verði komið í veg fyrir að
hann verði útnefndur frambjóð-
andi flokksins.
• „New York Journal-Ameri-
can“ segir í ritstjórnargrein, að
sigur Goldwaters hafi verið óum
deilanlegur, þótt naumur hafi
hann verið. Fáránlegt sé að
halda því fram, að Goldwater
hafi ekki fylgi meðal kjósenda,
úr því hann hlaut 51% 2.1 millj
óna republikana.
• „Wall-Street Journal“ segir
ðhjákvæmilegt að draga þá álykt
un, af úrslitunum í Kaliforníu,
að í Bandaríkjunum sé veruleg-
ur fjöldi mjög íhaldssamra
manna — eða a.m.k. manna sem
andstæðir séu lýðræðislegum
þjóðfélagsumbótum.
• „New York Times“ leggur á
það áherzlu, að nærfellt helm-
ingur republikana í Kaliforníu
hafi þó greitt atkvæði gegn Gold
water, og ekRi sé ástæða til að
telja, að hann hafi stuðning
meirihluta republikana í Banda-
ríkjunum öllum. Á hinn bóginn
séu litlar líkur til þess að unnt
verði að hindra framboð hans til
forsetakosninganna úr þessu.
Síðan segir blaðið, að það yrði
jafn hörmulegt fyrir Bandaríkin
og flokka republikana kæmi
hann fram sem frambjóðandi
flokksins, — og bætir við, að
það verði síður en svo til að
auðveldi republikönum Ieiðina
inn í Hvíta húsið. Öllu heldur
verði þetta til þess að auka á
andstæður bandarísku þjóðar-
innar og fjarlægja republikana
þeim milljónum óháðra kjós-
enda, sem hafi látið í ljós áhuga
fyrir þeim lýðræðislegu þjóðfé-
lagsumbótum, jafnvægi, réttlæf-
isviðleytni og efnahagslegum
framförum, sem orðið hafi síð-
ustu þrjá áratugi, sem stjórnii
republikana og demokrata hafa
skipzt á um völdin.
• Brezka blaðið „Guardian"
segir, að enginn vinur Bandaríkj
anna og jafnfrmt enginn, sem
óskar áframhaldandi tengzla
Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu
geti óskað Goldwater sigurs í
baráttu hans fyrir forsetaembætt
i-nu og „Times“ tekur svo til
orða, að erlendir fréttamenn
geti vart við því gert þó þeir
fyllist óróleika og kvíða við
umhugsunina um Goldwater
sem frambjóðanda til forseta-
kjörs. Þó muni sá kostur að
Johnson vinni kosningarnar með
því meiri yfirburðum. Segir
„Times“ að Goldwater sé mað-
ur, sem ekkert samband hafi við
raunveruleikann.
• í Sovétríkjunum hafa einnig
heyrzt raddir um Goldwater.
Tímaritið „Literaturnaja Gazeta'
fer þeim orðum um hann, að
hann hafi „páfagauksheila“, og
segir hann þekktan aðeins fyrir
tvenn.t, nærföt þau og ilmvatn
er hann selji. Blaðið segir i grein
undir fyrirsögninni „Ferill
Neanderthals-manns“, að Gold
water hafi aldrei lokið háskóla-
menntun sinni en bætir við, að
„auðvitað* þurfi ekki háskóla-
próf til að selja „brjóstahöld og
magabelti". Fer síðan háðuleg-
um orðum um, að hann skuli
bjóða sig fram til forsetaembætt
is. „En það sem okkur finnst nú
grín eitt kann að snúast upp í
mikinn harmleika fyrir Banda-
ríkin. Það er næsta ótrúlegt að
fólk skuli hugsa til þess að
leggja líf sitt og örlög í hendur
þessa fávísa manns“. Síðan
lýkur hann greininni þannig:
„Hitler var heldur ekki tekinn
alvarlega í byrjun — og það var
I mannkyninu dýrt spaug".
Alvarlegastar urðu óeirðirnar í
dag í borginni Kwangju, sem er
265 km suður af Seoul. Söfnuð-
ust þar saman á að gizka sex
þúsundir stúdenta og kröfðust
þess, að stjórn landsins segði af
sér. Köstuðu þeir grjóti og öðru
lauslegu að lögreglumönnum og
brutust gegnum varnarlínur
þeirra. Lögreglan beitti táragasi
og kylfum og tókst að dreifa
hópnum að mestu — en allmarg-
ir komust þó til aðsetursstaðar
borðarstjórnarinnar og kröfðust
þess að fá að ræða við borgar-
stjórann. Neitaði hann að tala við
stúdentana, sem þá hófu grjót-
kast á húsið, brutu a.m.k. 50 rúð-
ur og ollu fleiri skemmdum, áður
en lögreglu tókst að hrekja þá á
brott. Að minnsta kosti 20 stúd-
entar og 10 lögreglumenn meidd-
ust í átökum þessum.
Að sögn AP-fréttastofunnar er
talið að um níu þúsund stúdent-
ar hafi tekið þátt í mótmælaað-
gerðum í öðrum borgum, þar á
meðal í Chonchou, 70 km norð-
austur af Seoul; Chongju, um
100 km suður af borginni; hafn-
arborginni Pusan á suðaustur-
ströndinni; hafnarborginni Inch-
on skammt frá Seoul; borginni
Taejon og loks í Mokpo, sem var
helzti vettvangur óeirðanna 1960,
er leiddu til þess að Syngman
Rhee fór frá völdum. í öllum þess
um borgum urðu átök millf stúd-
enta og lögreglu, kröfðust stúd-
entar þess að stjórn Parks fæn
frá völdum, sökuðu hana um
fjármálaspillingu og óstjórn og
kröfðust þess jafnframt að hern-
aðarástandi yrði létt í Seoul
• Ólga í Seoul
Liðsstyrkur tók að st. u
til höfuðborgarinnar fljótlega eft-
ir að hernaðarástandi var’ lýst
yfir þar í gærkvöldi og útgöngu-
bannið sett. Var borgin sem í um-
sátri í allan dag. Talið er að 400—
500 manns hafi verið handteknir,
mest stúdentar og blaðamenn.
Einnig munu hafa verið hand-
teknir fimm starfsmenn Donga-
útvarpsstöðvarinnar, sem gagn-
rýnt hefur Park-stjórnina harð-
lega að undanförnu, og ritstjórar
blaðsins „Kyungyang“.