Morgunblaðið - 06.06.1964, Síða 8
8
MORGUNi*' At%lO
I
Latierarcla^ur 6. júní 1964
Listahátíðin sett á morgun
í samkomusal Háskólans
Bók um Kjarval eftir Thor Vilhjálmsson
og nýtt bindi Shakespeare-þýðinga Helga
Hálfdánarsonar koma út í sambandi
við hátíðina
A MORGUN, sunnudag, hefst
Listahátíð Bandalags íslenzkra
listamanna með setningarathöfn
í samkomuhúsi Háskólans. Gefin
hefur verið út vönduð skrá yfir
hátíðina, sem stendur til 19. júní.
Á forsíðu skrárinnar er litprent-
uð mynd af málverki Jóhannesar
S. Kjarvals, „Úti og inni“. Fremst
í skránni er mynd af forseta-
hjónunum, en forsetinn, Asgeir
Ásgeirsson er verndari Listahá-
tíðarinnar. í skránni eru ávörp
frá Gylfa Þ. Gíslasyni, mennta-
málaráðherra, og Geir Hallgríms-
syni, borgarstjóra, og greinin
„Listahátíð og listamannaþing“,
eftir Sigurð Nordal prófessor.
• TVÆR BÆKUR
Á fundi með fréttamönnum í
gær skýrðu Ragnar Jónsson,
framkvæmdastjóri Listahátíðar-
innar, og Jón Þórarinsson, for-
maður Bandalags íslenzkra lista-
manna, frá því, að á sunnudag-
inn kæmu út tvær bækur í sam-
bandi við hátíðina, bók um Jó-
hannes S. Kjarval, eftir Thor
Vilhjálmsson, sem Helgafell gef-
ur út, og nýtt bindi Shakespeare-
þýðinga Helga Háldánarsonar,
sem Mál og menning gefur út. Af
báðum bókunum verða sérstök
tölusett og árituð eintök til sölu
á bókasýningu Listahátíðarinnar
í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Af
Shakespeare-þýðingunum verða
100 tdlusett eintök og kostar
hvert 500 kr. Af bókinni um
Kjarval verða 300 slík eintök og
kostar hvert 1000 kr.
Thor Vilhjálmsson, rithöfund-
ur, var viðstaddur fundinn í gær.
Sagði hann m.a., að lesmálið í
bókinni væru persónulegar hug-
leiðingar um feril Kjarvals og
list. Kvaðst Thor hafa umgengizt
listmálarann mikið frá því að
Ragnar Jónsson fór þess á leit
við hann fyrir þremur árum, að
hann tæki að sér samningu bók-
arinnar. Mestan hluta bókarinnar
sagðist Thor hafa skrifað sl. sum-
ar. —
í bókinni um Jóhannes S.
Kjarval eru 75 svarthvítar mynd-
ir eftir hann og 25 síður eru lit-
prentaðar. Engin litmyndanna
hefur verið prentuð áður. Sú
elzta er frá 1914, en þá yngstu
lauk Karval við fyrir rúmum hálf
um mánuði. Er það málverkið sem
Alþingi sendi norska Stórþing-
inu að gjöf í Jilefni 150 ára af-
mælis stjórnarskrár Noregs 17.
maí sl.
• LEIKRITIÐ „BRUNNIR
KOLSKÓGAR"
Einar Pálsson, rithöfundur,
og Guðmundur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Leikfélags Reykja-
víkur, skýrðu fréttamönnum frá
leikriti Einars, sem nefnist
„Brunnir kolskógar" og er fyrsta
leikrit eftir hann, sem flutt er.
Leikritið verður sýnt í Iðnó nk.
þriðjudags- og miðvikudagskvöld
í tilefni Listahátíðarinnar. Þetta
er einþáttungur, sem gerist í
móðuharðindunum 1783 í Öræf-
um. Aðalpersónur leiksins eru
fjórar, síra Jón, prestur á Meðal-
landi, sem Gísli Halldórsson leik-
ur, Arnór, bóndi á Öræfum, leik-
inn af Brynjólfi Jóhannessyni,
Steinvör, systir hans, Helga Bach-
mann, og Geirlaug, dóttir hans,
Kristín Anna Þórarinsdóttir. Dr.
Páll fsólfsson hefur samið tón-
listina við leikinn. Leikstjóri er
Helgi Skúlason og leiktjöld gerði
Steinþór Sigurðsson. Á undan
leiksýningunum lesa rithöfundar
upp úr verkum sínum. Á þriðju-
dagskvöldið Guðmundur Daníels-
son, Gunnar Dal og Kristján frá
Djúpalæk, en á miðvikudags-
kvöldið Guðmundur Frímann,
Hannes Pétursson, Indriði G.
Þorsteinsson og Thor Vilhjálms-
son.
Sala aðgöngumiða hefst í Iðnó
kl. 2 e. h. á sunnudag.
Einar Pálsson skýrði frétta-
mönnum frá því, að „Brunnir kol
skógar" væri annað tveggja leik-
rita, sem hann hefði samið um
4Hiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii
1 Gróskumikil sýning á myndlist |
1 Sýnincj Listahátíðarinnar opin næstu 3 vikur 1
= í TILEFNI Listahátíðarinn-
3 ar verður opnuð sýning á ís-
S lenzkri myndlist, höggmynda-
= list og grafík í sölum Lista-
S safns ríkisins í Þjóðminjasafn
= inu.
3 Sýningin verður opnuð kl.
3 4 e.h. á sunnudag fyrir boðs-
3 gesti, síðan mun hún verða
3 opin daglega frá kl. 1.30 —
= 10 í 3 vikur.
3 Samtals sýna á sýningu
3 þessari 32 listamenn, þar 9
Krlstján eftir Jóh. Sv. Kjarval
menn, 18 málarar og 2 vefnað-
arlistakonur.
Öll þessi verk eru gerð á
síðustu 5 árum, og er mein-
ingin með því tímamarki að
sýna þá list, sem nú er upp
á að bjóða á íslandi.
Þarna kernir margra grasa
og er öll sýningin hin girni-
legasta til fróðleiks. Þarna
eru nafnkunnir listamenn lista
menn að sýna verk sín, og
ekki síður þeir, sem minna
eru þekktir. Sýning þessi er á
margan hátt mjög stórbrotin,
og til þess fallin að vekja
menn til umhugsunar um,
hvar íslenzk list er á vegi
stödd í dag.
Það ætti að vera óþarfi að
nefna nöfmn með föðurnöfn-
um, þetta aetti að nægja:
Kjarval, Scheving, Jóhannes,
Þorvaldur, Hjörleifur, Stein-
þór, Júlíana, Sigurjón, Guð-
munda, Nína og Nína Sæ-
mundsd., Jóhann Briem, Hörð
ur, Snorri Sveinn, Kristján,
Rikharður, Guðmundur Ben.,
Sverrir, Hafsteinn, Vigdís,
Ólöf, Jón Ben., Guð. Elíasd.,
Ásgerður, Bragi, Benedikt,
Sigurður, Valtýr, Magnús,
Barbara, Gunnfríður, Eiríkur,
An^’ítsmynd eftir Sigurjón =
Ólafsson
Hringur Jóhannsson og nokr- 3
rr liciri. Aiit eru þeua oroin Z
þeKitt nötn í iistasogu okkar. 3
Synmg þessi sýmr grósku í 3
ísien2Kii írst og þess er að =
vænta að hún veroi vei sótt 2
aí aimennmgi. Listahatioin =
á masKi eitjr að vera arlegur h
viðDuiour hér á íslanai, og =
það hlýtUi að vera mark og 2
mið að sýna á hverjum tíma, s
hvar við eium staddir á hinu ||
listræna sviði.
sama vandamálið á ólíkum tím-
um. Væru þessi leikrit samloka,
en ekkert því til fyrirstöðu að
sýna þau sitt í hvoru lagi. Það
fyrra nefnist „Trillan" og sagðist
Einar hafa samið það með sjón-
varp í huga. Það gerist í Reykja-
vík 1964. Hitt er „Brunnir kol-
skógar“, sem nú verður sýnt.
• DAGSKRÁ
LISTAHÁTÍÐARINNAR
Á sunnudaginn verður Lista-
hátíðin sett í samkomusal Háskól
ans að viðstöddum forseta ís-
lands, herra Ásgeiri Ásgeirssyni,
og konu hans, frú Dóru Þórhalls-
dóttur. Jón Þórarinsson, formað-
ur Bandalags íslenzkra lista-
manna, setUr hátíðina, Gylfi Þ.
Gíslason, menntamálaráðherra,
og Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, flytja óvörp og Halldór
Laxness, rithöfundur, heldur
ræðu. Þá leikur Sinfóníuhljóm-
sveit íslands undir stjórn Igors
Buketoffs, „Minni fslands", for-
leik eftir Jón Leifs, ljóð eftir
Einar Benediktsson og Jónas Hall
grímsson. — Söngsveitin Fíl-
harmónía og blandaður kór Fóst-
bræðra syngja. Síðan lesa rit-
höfundarnir Guðmundur Böðv-
arsson, Guðm. G. Hagalín og Þór-
bergur Þórðarson úr verkum sín-
um og að lokum er lofsöngur fyr-
ir hljómsveit og kór eftir dr. Pál
ísólfsson, ljóð eftir Davíð Stefáns
son frá Fagraskógi.
Að setningarathöfninni lokinni
eða kl. 4 e.h. verða opnaðar tvær
sýningar í Þjóðminjasafnshúsinu,
myndlistarsýning í Listasafninu
og bókasýning í Bogasalnum. —
Ragnar Jónsson opnar báðar sýn-
ingarnar með ræðu, að viðstödd-
um forsetahjónunum. Fyrsta dag-
inn verður myndlistarsýningin að
eins opin myndlistarmönnum og
gestum þeirra, en fyrir aðra gesti
er hún opin kl. 2—10 e.h. frá
mánudegi. 30 listamenn taka þátt
í sýningunni og sýna málverk,
höggmyndir og vefnað. Öll lista-
verkin eru gerð sl. fimm ár.
Það er Rithöfundafélag íslands,
sem sett hefur saman bókasýning
una í Bogasalnum, en hún skipt-
ist í sjö flokka. Er sýningunni
ætlað að vera nokkurt yfirlit ís-
lenzkra bókmennta þau 20 ár,
sem liðin eru frá lýðveldisstofn-
uninni.
Á sunnudagskvöldið verður há-
tíðasýning á óperettunni Sardas-
furstinnunni í Þjóðleikhúsinu.
• Á mánudaginn hefst sýn-
ing Arkitektafélags íslands á þró-
un íslenzkra íbúðarhúsabygginga
sl. 20 ár, og fer hún fram í húsa«
kynnum Byggingaþjónustunnar
að Laugavegi 26. Um kvöldið eru
tónleikar í samkomuhúsi Háskól-
ans. Þar syngur Kristinn Halls-
son tvo ljóðaflokka eftir Beet-
hoven og Schuman með undir-
leik Vladimirs Askhenazy, sem
leikur einnig píanósónötu eftir
Beethoven.
• Á þriðjudags- og miðviku-
dagskvöld verða sýningar á leikn
um „Brunnir kolskógar“ eftir Ein
ar Pálsson, sem fyrr segir, en á
undan sýningunum lesa rithöf-
undar úr verkum sínum.
• Á fimmtudagskvöldið sýnir
Þjóðleikhúsið „Kröfuhafa“, leik-
rit í einum þætti eftir August
Strindberg. Leikstjóri er Lárus
Pálsson og leikendur þrír, þau
Helga Valtýsdóttir, Gunnar Ey-
jólfsson og Rúrik Haraldsson.
• Föstudaginn 12. júní verð-
ur Listamannakvöld í TónabíóL
Þar lesa rithöfundarnir Jóhann
Hjálmarsson, • Stefán Jónsson og
Þórunn Elfa Magnúsdóttir úr
verkum sínum og flutt verður
tónlist eftir Árna Björnsson, Hall
grím Helgason og Leif Þórarins-
son. — Flytendur eru Averil
Williams (flauta), Einar G. Svein
björnsson (fiðla) og Þorkell Sig-
urbjörnsson (píanó).
• Á laugardaginn verður
ljóðakvöld í Austurbæjarbíói. —
Þar syngur Ruth Little lög eftir
Edvard Grieg, Gustav Mahler,
Franz Schubert og íslenzk söng-
lög með undirleik Guðrúnar
KTÍstinsdóttur.
• Um eftirmiðdaginn 14. júnl
verða tónleikar Musica Nova að
Hótel Borg. Þar verða flutt tón-
verk eftir Gunnar R. Sveinsson,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Pál
S. Pálsson, Magnús Bl. Jóhanns-
son og Atla Heimi Sveinsson. —
Flytjendur: Polýfónkórinn, stjórn
andi Ingólfur Guðbrandsson,
Ingvar Jónasson (fiðla), Einar
Vigfússon (celló), Þorkell Sigur-
björnsson (píanó), Einar G.
Sveinbjörnsson (fiðla og víóla),
Gunnar Egilsson (klarinett), Sig-
urður Markússon (fagott) og
Magnús Bl. Jóhannsson (píanó).
• Á sunnudagskvöldið verður
listamannakvöld í Tjarnabæ. Þar
lesa rithöfundarnir Guðbergur
Bergsson Jón úr Vör, Stefán
Júlíusson og Þorsteinn frá Hamri
úr verkum sínum og fluttur verð
ur einþáttungurinn „Amalía" eft-
ir Odd Björnsson. Það er tilrauna
leikhúsið Gríma, sem sér um
Framihald á 15-siðu.