Morgunblaðið - 06.06.1964, Blaðsíða 11
Laugardagur 6. júní 1964
MORGUNBLAÐIÐ
11
Fréttatilkynning frá
Samkvæmt 1. grein laga nr. 40, 9. júní 1960, um takmarkað
leyíi til dragnótaveiða í fiskveiðilandhelgi íslands undir
vísindalegu eftirliti, getur ráðherra, samkvæmt tillögum
fiskideldar háskóians og Fiskifélags íslands, ákveðið fyrir
fyrir eitt ár í senn, að dragnótaveiði sé heimil á ti'íteknu
svæði eða svæðum á tímabilinu 15. júní til 31. október eða
skemmri tíma, eftir því sem nánar er ákveðið.
Fiskifélag íslands hefur leitað álits sveitarstjórna og
annarra aðila, sem hagsmuna hafa að gæta í þessu efni.
í samræmi við ákvæði téðra laga og athuganir Fiskifélags
íslands hefur sjávarútvegsmálaráðuneytið ákveðið að
leyfi til dragnótaveiða skuli veitt frá og með 19. þessa
mánaðar á eftirgreindum svæðum:
1. Milli lína réttvísandi norðaustur um Bjarnarey sunnan
Vopnafjarðar, og réttvísandi norðaustur frá Kögri sunn-
an Héraðsflóa.
2. Milli lína réttvísandi austur úr Borgarnesi norðan Seyð-
isfjarðar, og réttvísandi austur frá Gerpi
Þó skulu veiðar óheimilar innan línu úr Borgarnesi í
Skálanes fynr mynni Seyðisfjarðar, og úr Flesjartanga
í Fjúksnes fyrir mynni Mjóafjarðar.
3. Frá línu réttvísandi austur úr Hafnarnesi norðan Fá-
skrúðsfjarðar að línu réttvísandi austur úr Hafnarnesvita
að sunnan.
Þó skulu veiðar óheimilar innfjarða í Fáskrúðsfirði inn-
an línu úr Hafnarnesvita að sunnan í Hafnarnes að
norðan.
4. Frá línu réttvísandi suðaustur úr Kambanesi norðan
Breiðdalsvíkur suður og vestur um að línu réttvísandi
suður úx Geitahlíðarfjalli (22° v. 1.) austan Grindavíkur.
5. Samfellt svæði frá línu réttvísandi vestur úr hólman-
um Einbúa í Ósum, fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð og Vest-
firði, að línu réttvísandi norðaustur frá Geirólfsgnúpi á
Ströndum.
í Faxaflóa takmarkast svæðið af línum, sem hugsast
dregnar þannig:
1. Úr Garðskagavita um punktinn 64°8’n.br. 22°42’v.l. í
Gerðistangavita.
2. Úr Hólmbergsvita um bauju nr. 6 í Faxaflóa í Kirkju-
hólsvita.
Á Vestfjörðum er dragnótaveiði óheimil innfjarða, inn-
an lína sem hér segir:
1. Úr Ólafsvita um Tálkna, þvert yfir Patreksfjörð og
Tálknafjörð.
2. Milli Svarthamra að sunnan og Tjaldaness að norð-
an í Arnarfirði.
3. Milli Keidudals að sunnan og Arnarness að norðan í
Dýrafirði.
4. Milli Mosdals að sunnan og Kálfeyrar að norðan í
Önundarfirði.
5. Milli Keravíkur að sunnan og Galtabæjar að norðan
í SúgandafirðL
6. Milli Óshólma að vestan og Bjarnarnúps að austan í
ísafjarðardjúpi.
7. Milli Maríuhorns í Grunnavík að sunnan og Láss að
norðan, í Jökulfjörðum.
Bátum innan lögmætra stærðarmarka, sem skráðir eru og
gerðir hafa verið út frá verstöðvum á þessum svæðum,
verður veitt leyfi til að veiða hvar sem er á svæðunum.
Ennfremur hefur sjávarútvegsmálaráðuneytið ákveðið, að
svæðið frá línu réttvísandi norður úr Nestá á Vatnsnesi
(20°40’v.ld.) vestan Húnafjarðar að línu réttvísandi norður
frá Straumnesi austan Málmeyjarfjarðar (19°20’v.dl.) skuli
opnað til reynslu til dragnótaveiða. Þó skulu dragnóta-
veiðar óheimilar á svæði í Skagafirði, sem takmarkast af
línu, sem hugsast dregin úx norðurenda Tindastóls (Lans-
endi) í Drangey og þaðan beina stefnu í Hegranestá. Bátum,
sem skráðir eru og gerðir hafa verið út frá verstöðvum á
hinu leyfða veiðisvæði verður einum veitt leyfi til að veiða
á svæði þessu, en hins vegar verður þeim ekki leyfðar drag-
nótaveiðar annars staðar innan fiskveiðilandhelginnar.
Sjávarútvegsmálaráðuney tið, 4. júní 1964.
Húseigendur
óskum eftir 1—2 herb. ibúð.
Tvennt fullorðið. Vinnum
bæði úti. Reglusemi. — Sími:
36045, milli kl. 2 til 6 laugar-
dag O'g sunnudag.
ATHUGIU
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
■ Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Séfasettið K.R. 332
Ódýrasta sófasettið á markaðnum — en þó í gæðaflokki.
Formfagurt og
Teak armar og
fætur.
★
Verð frá kr. 9450.-
K.R. er í fyrstu deild — K.R.-húsgögn í fyrsta flokki.
K.R.-húsgögn
petíunt
r a r» a c m,
UTANBORÐSMÓTORAR
FARA SIGURFOR UM HEIMINN
ÞEIR ERU FRAMLEIDDIR I STÆRDUNUM
4'/j, 6Vi, 18, 30 OG 40 HESTÖFL
Utanborðsmólorana má panla
* Með mismunandi skrúlum
« I tveim lengdum (dýptum)
* Með st|órnbúnaði og öðrum
aukaútbúnaði eftir vali
LEITIÐ NANARI UPPLYSINGA HJÁ OSS EÐA
KAUPFÉLÖGUNUM -
DRATTARVELAR H.jÉ
LTGERÐARMEINiiM
SÍLDVEIÐIIUENIVi
Perkins 18 ha. utanborðsmótorinn hefur
gefið góða raun við notkun
á síldveiðum.
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA VARAHLUTIR
Dráttarvélar h.f.
ÍTALSKAR
T Ö F F L U R
NÝTT ÚRVAL
Laugavegi og
AUSTURSTRÆTI.
Hvers vegna krefjast SÍA-piltar 200 þús.?
Lesið RAUÐU BÚKINA