Morgunblaðið - 06.06.1964, Qupperneq 14
14
MOHGUNBLAÐIÐ
r
taugardagur 6. júní 1964
Jón Pálsson, yfirsund-
kennari, sextugur
SEXTUGUR er í dag Jón Páls-
son yfirsundkennari við Sund-
höll Reykjavíkur. Hann þarf
ekki að kynna íslenzkum sund-
unnendum, því nafn hans hefir
verið tengt hinum stórstígu fram
íörum í sundkennslu og sund-
þjálfun hér á landi í rösk 40 ár.
Þó finnst mér ekki mega
undír höfuð leggjast á þessum
merku tímamótum í lífi Jóns, að
minnast nokkuð á hið mikla
starf, sem hann hefir innt af
hendi í þágu sundíþróttarinnar.
Sund lærði Jón sex ára gam-
all í Sundlaugunum í Reykja-
vík hjá Páli Erlingssyni föður
sínum, hinum landskunna braut-
ryðjanda sundlistarinnar hér á
landi. Þrettán ára að aldri tók
Jón þátt í hinu þekkta Nýjárs-
sundi, sem háð var í sjónum á
nýjársdag frá árinu 1910 til 1922.
Vegalengdin var 50 m og varð
Jón þriðji í keppninni. Þótti það
frábært afrek af svo ungum pilti
að vera. Tvisvar varð hann sig-
urvegari í Nýjárssundinu og
hlaut bikar að launum.
Ungur drengur gerðist hann
einn stofnenda Sundfélagsins
„Gáins“ árið 1916 ásamt Eiríki
Magnússyni bókbindara, er síðan
varð fyrsti formaður Sundfélags-
ins „Ægis“.
Árið 1927 verða merk þátta-
skil í sundíþróttinni fyrir for-
göngu Jóns og nokkurra annarra
sundáhugamanna með stofnun
Sundfélagsins „Ægis“. Jón tók
að sér þjálfun félagsmanna og
auk þess bætti hann á sig þjálf-
un sunddeilda Glímufélagsins
Ármanns, Knattspyrnufélags
Reykjavíkur og íþróttafélags
Reykjavíkur, er stofnaðar voru
um svipað leyti og síðar.
Óiafur Pálsson sundkennari
bróðir Jóns tók við kennslu Sund
deildar „Ármanns" tveim árum
síðar og lagði hann mikla alúð
við starf sitt og náði sundfólk
undir hans handleiðslu glæsi-
legum árangri eins og til dæmis
hinn frábæri skriðsundsmaður,
Hafliði Magnússon, sem setti
setti mikinn svip á sundmótin á
árunum 1931—’35.
Eftirminnilegast er þó nafn
Jóns Pálssonar tengt Sundfélag-
iinu „Ægi“, sem hann gerði að
slíku stórveldi innan íslenzku
sundhreyfingarinnar, að heita
mátti, að sundfólk þess færi með
sigur af hólmi á nær öllum sund-
mótum og sundknattleikum, er
háð voru frá stofnun félagsins
•árið 1927 og allt fram yfir árið
1940.
Láta mun nærri, að á þessu
blómaskeiði „Ægis“ hafi félagar
þess sett um 130 sundmet, og
átti fræknasti nemandi Jóns,
Jónas Halldórsson, sundkappi,
þar bróðurpartinn.
Rösklega 1300 menn og konur
hefir Jón þjálfað til þátttöku í
sundmótum hérlendis og til
keppni á erlendum vettvangi.
Landsþjálfarastöðu gegndi hann
fyrir Olympíuleikana í Berlín
1936, Evrópumeistaramót í sundi
í London 1938, sundkeppni við
Dani í Reykjavík 1946, þar sem
íslendingar báru hærri hlut,
landskeppni við Noreg 1948, einn
ig háð í Reykjavík, var það mjög
tvísýn og spennandi keppni er
lauk með sigri okkar manna.
Til London fór hann það sama ár
á Olympíuleikana með glæsileg-
an sundflokk karla og kvenna er
stóð sig þar með mikilli prýði í
harðri keppni. Og svona mætti
lengi telja.
Er Páll Erlingsson, faðir Jóns,
lét af störfum við Sundlaugar
Reykjavíkur árið 1921 tóku syn-
ir hans, Jón og Ólafur, við af
'honum. Auk hinnar almennu
sundkennslu tóku þeir bræður nú
að sér sem áhugastarf að leið-
beina fólki undir keppni í hinum
ýmsu sundgreinum með reglu-
bundinni þjálfun eins og tíðkað-
ist meðal erlendra kappsunds-
manna. Þrátt fyrir einangrun
Hjartanlegar þakkir til allra ættingja og venzlafólks
og kvenfélags Kjósahrepps, sem allir gerðu mér 70 ára
afmælisdaginn ógleymanlegan með skeytum, gjöfum og
heimsóknum.
Bið guð að blessa ykkur öll og ykkar framtíð.
Ingveldur G. Baldvinsdóttir, Skorhaga, Kjós.
Maðurinn minn
STEINN ÓLAFSSON
lézt í Borgarspítalanum 5. þessa mánaðar.
Fyrir mina hönd
Katrín Kjartansdóttir og vandamenn.
Faðir okkar og tengdafaðir
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
sjómaður,
lézt að heimili sínu Barmahlíð 18 föstudaginn 5. júní.
Marin Guðmundsdóttir, Brynjólfur Jónsson,
Aðalsteinn Ó. Guðmundsson, Sigríður S. Sveinsdóttir,
ÓJafur Guðmundsson, Elín ísleifsdóttir.
Eiginmaður minn
KRISTINN JÓNSSON
Kirkjuvegi 1, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn
6. júní kl. 2,30.
Ragnhildur Stefánsdóttir.
Okkar beztu þakkir til allra er sýndu okkur vinarhug
við fráfall og minningarathöfn föður míns og bróður
okkar
ÓLAFS HALLDÓRSSONAR
loftskeytamanns.
Anna Ólafsdóttir og systkini hins látna.
okkar á þessu sviði, sem og flestu
öðru á þeim tíma, tókst þeim
bræðrum að koma upp álitlegum
hópi kappsundsmanna með sér-
kennilegan og fallegan sundstíl,
sem síðari tíma sundþjálfarar
okkar hafa tleinkað sér.
Má þetta teljast einstakt afrek
þegar þess er gætt, að enginn er-
lendur kappsundsmaður eða sund-
þjálfari kom hingað til lands
fyrr en að síðari heimsstyrjöld-
inni lokinni og kom þá í ljós,
að íslenzkt sundfólk hafði frá-
bæra getu í kappsundi eins og
kunnugt er og sérstaka aðdáun
hinna erlendu gesta vakti hið
stílhreina og fágaða sund hinna
íslenzku keppinauta þeirra,
Auk þess sem að ofan greinir
i efir Jón Pálsson samið stór-
merka bók um sundkennslu, sem
uppfyllti mikla þörf og hefur
reynzt sundkennurum eins konar
„biblía“ sundsins. Ennfremur
hefir Jón haldið fjölda fyrir-
lestra um sundíþróttina víðs veg-
ar um landið jafnframt því sem
hann hefir leiðbeint sundkenn-
urum um land allt.
Jón Pálsson hefir hlotið í
vöggugjöf miklar og góðar gáf-
ur. Skáldmæltur er hann vel og
fáa hefi ég heyrt tala jafn fag-
urt mál og hann, enda er unun
að hlýða á útskýringar hans og
leiðbeiningar við kennsluna. —
Hann hefir tamið sér vandvirkni
og samvizkusemi í starfi og fer
ekki troðnar slóðir og engan
nemanda vill hann láta frá sér
fara fyrr en hann hefir tileinkað
sér það bezta sem hann getur
honum í té látið.
Kvæntur er Jón Þórunni Sig-
urðardóttur .landpósts frá Árna-
nesi og eiga þau þrjú uppkomin
börn.
Ég vil að lokum þakka Jóni
þrjátíu ára vináttu og veit að
ég mæli fyrir munn hinan fjöl-
mörgu -vina og kunningja Jóns
er ég óska honum hjartanlega
til hamingju með daginn og alls
góðs á ókomnum árum.
Þorsteinn Hjálmarsson. '
Tannlæknirinn einn hreinsar
tennur yðar betur en Kolynos
— og auk þess er ága:tt og ferskt bragð a£ ‘Kolynos’ Super
Whlte, sem g'erir tennurnar hvítari, ferska lykt úr
munninúnl og bjartara bros. Leitið að
• túpunni með rauða f ánanum.
Frá
listahátíðinni
Nokkrir ósóttir aðgöngumiðar að
setningarathöfn Listahátíðarinnar í
Háskólabíói eru til sölu til hádegis
í dag hjá Lárusi Blöndal og Bókav.
Sigfúsar Eymundssonr en eftir það
í Háskólabíói.
LISTAHÁTÍÐINNI
Aðgöngumiðar að Tónleikum Asjkenazys og Kristins
Hallssonar í Háskólabíói, nk. mánudagskvöld, eru
til sölu hjá Lárusi Blöndal og Sigfúsi Eymundsen.
Það sem óselt kann að vera við innganginn.
Sportveiðimenn
Munið veiðitækin hjá okkur.........
Hagkvæmt verð. — Góð bílastæði.
TJ estíittöst
Garðastræti 2 — Sími 16770.
BIFREIÐAEIGENDUR
HJÓLBARÐAVIÐG E R ÐIR
HJÓLBARÐASALA
Opið alla daga helga sem virka
írá kl. 8 — 23.
KAPPKOSTUM FLJÓTA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU.
HJÓLeARÐAVERKSTÆÐIÐ HRAUNHOLT
gegnt Nýju sendibílastöðinni
neðan Miklatorgs.