Morgunblaðið - 19.06.1964, Blaðsíða 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 19. júní 1964
Framlag hvers einstaklings skiptir máli
Ræða Geirs HaElgrámssonar,
horgarstjóra
TUTTUGU ár er ekki langur
^tími, þegar við hugleiðum, að
einn áratugur er þangað til ís-
landsbyggð verður ellefu alda
gömul.
Tuttugu ár er heldur ekki lang
ur tími, þegar við minnumst
þess, að hið forna sjálfstæða ís-
lenzka þjóðveldi stóð í 332 ár.
Það skeið íslenzkrar sögu þyk-
ir okkur — í dag —, allt of
stutt, og ekki er umburðarlyndi
fyrir að fara, þegar við áfellumst
forfeðurna fyrir að halda ekki
sjálfstæði landsins lengur.
Þó er það markvert umhugs-
unarefni, að þjóðveldið skyldi
standa svo lengi sem raun bar
vitni.
Og nú hljótum við að gera
okkur grein fyrir því, að engum
einum manni eða kynslóð var
ism að kenna, að það leið undir
lok. Aðdragandinn var langur,
margir komu við sögu og áttu
hlut að sögulokum.
Sú staðreynd kennir okkur, að
framlag hvers einstaklings getur
ávallt skipt máli.
Saga framtíðarinnar verður
skrifuð af öllum íslendingum,
sem nú lifa og eftir eiga að starfa,
— að vísu mismunandi sterkum
og örlagaríkum dráttum.
— ★ —
Tvö mikil samtímaskáld hafa
nýlega rætt um líf þjóðarinnar
og framtíð.
Annað skáldanna komst svo
að orði: „Það er ekki hægt, en
við gerum það samt“, og hitt
sagði: „Sjálfstæði þjóðarinnar
hefur aldrei náðst í eitt skipti
fyrir öll, heldur verður það að
ávinnast Á hverjum degi þjóðar-
innar.“
Ef við eigum þannig að vera
verkefni okkar vaxin, er okkur
því fátt nauðsynlegra en finna
mikilvægi, fullnægingu og þ§m-
ingju í hinu daglega lífi, sinna
svo daglegum viðfangsefnum, að
þau gangi ósjálfrátt upp í stærri
heild og eigi sér markmið í sam-
félagi manna.
Sumum mönnum finnst stund-
um allt vera leiðinlegt og fánýtt,
— telja að enginn hugsi nema
þeir, en allir aðrir sinni aðeins
líðandi stund.
Slíkur nöldurtónn getur ein-
staka sinnum komið af stað gagn-
legum lífshræringum, en al-
Einar M.
skólastjóri —
EINAR MAREL JÓNSSON, rit-
höfundur og skólastjóri á Reykja
lundi er látinn. Lík hans verður
vígt til moídar í dag.
Mér er söknuður i huga við
fráfall þessa vinar míns. Því eru
hér fáein orð til minningar um
^ann.
Einar M. Jónsson var fæddur
á Stokkseyri 1. desember 1904.
Ungur missti hann föður sinn og
ólst upp í skjóli móður og móð-
ursystra.
Einar varð stúdent vorið 1927.
Þá hóf hann guðfræðinám hér
við háskólann. í miðju námi veikt
ist hann af inflúenzu, er leiddi
til annarra og alvarlegri sjúk-
dóma, er bundu hann við sjúkra-
beð í nær tvo tugi ára. Hann
komst þó til nokkurrar heilsu á
ný fyrir góðra lækna hjálp, eink-
um erlendra. Hin síðari æviár
sín gat hann því unnið að hugð-
arefnum á sviði bókmennta og
fræða. Skólastjóri við iðnskólann
í Reykjalundi var hann um nokk
ur ár.
Einar var skáld gott og mennt-
ir og fræði áttu hug hans. Hann
var trúmaður mikill og unnandi
allrar fegurðar. Að ritstörfum
gaf hann sig til hinztu stundar.
Ljóð hans, ekki sízt trúarljóðin,
bera andagift hans fagurt vitni.
Ég kynntist Einari einkum síð-
asta áratuginn. Hann var hinn
góði gestur á heimili okkar hjón-
anna hin síðari árin. Okkur og
börnunum okkar þótti vænt um
hann. Nú hafði talazt svo til
með okkur, að hann kæmi í sum-
ar og dveldi um hríð. Það átti
ekki að verða. Önnur för var hon
um búin.
Einar var ferðamaður af lífi
og sál. Það sýndu allir ferðaþætt-
Trnir hans í blöðunum. Nú hefir
hann verið kvaddur til annarrar
og meiri farar — þeirrar einu,
sem allra bíður. Við, vinir hans,
vissum, að til þeirrar farar átti
hann gott vegarnesti. Það er ást-
vinum og vinum huggun harmi
gegn. Blessuð veri hans minn-
ing.
Einar Guðnason.
EINAR M. Jónsson, skólastjóri
iðnskólans að Reykjalundi, sem
Jónsson
minningarorð
andaðist af hjartaslagi 15. þ. m.,
átti mjög óvenjulegan og næsta
merkilegan æviferil að baki, þótt
hann næði ekki sextugsaldri.
Hann var fæddur að Stokkseyri
1. desember 1904, og voru for-
eldrar hans Jón Gíslason og Hild
ur Einarsdóttir. Föðúr sinn missti
hann þegar hann var 5 ára gam-
all, en móðir hans annaðist hann
og systur hans yngri af stökum
dugnaði og kom þeim vel til
manns. Var hún öllum, sem hana
þekktu, minnisstæð mannkosta-
kona. Þau voru bræðrabörn, hún
og Steinn Sigurðsson heitinn
skólastjóri og rithöfuhdur, en síra
Sigurður Einarsson skáld í Holti
var sem kunnugt er bróðurson-
ur Steins.
Frú Hildur flutti með börn sín
til Reykjavíkur 1923 og sama
haust settist Einar í 3. bekk
menntaskólans. Lauk hann stúd-
entsprófi vorið 1927 og var næsta
vetur kennari í Hornafirði, sett-
ist haustið 1928 í guðfræðideild,
en haustið eftir veiktist hann
hastarlega, svo að námi hans
varð lokið, og stóð á tæpu að
lífinu héldi. Svo þjáður var hann
árum — já áratugum — saman,
að hann gat naumast reist höfuð
af kodda, og hvorki þoldi hann
Geir Hallgrímsson borgarstjóri, flytur ræðu á kvöldvökunni við Arnarhol.
mennt ber hann vitni þess, að
nöldrarinn gerir meiri kröfur til
annarra en sjálfs sín.
Fullyrða má, að engin kyn-
slóð hefur átt betra hlutskipti á
íslandi en við, sem nú lifum,
og vafasamt er, að annars staðar
um víða veröld sé nú skemmti-
legra að lifa en á íslandi, meiri
tækifæri að tjá sig og betri mögu
leikar að njóta hæfileika sinna.
Óvíða á ungt fólk fleiri leiðir
að lesa né skrifa sakir ákafs
höfuðverkjar og augnkvala. Gekk
svo í átján ár, að ekkert virtist
vilja úr rætast, unz honum var
komið til góðs læknis í Svíþjóð,
og tókst honum þá loks að sigra.
Horfði nú allt vel um hríð. Hon-
um batnaði óðum, og veturinn
1949—50 var hann kominn heim
og tekinn að hressast. Haustið
1954 gerðist hann vistmaður á
Reykjalundi og tók brátt að
starfa þar. Frá nóvember 1958
var hann skólastjóri iðnskólans
þar. Undi hann hið bezta hag
sínum, stundaði starf, sem hon-
um féll. hið bezta og átti ótal
áhugamál. En því miður varð
þessi hamingjutími hans og
starfsævi ekki lengri.
Einar var snemma íhugull og
hrifnæmur, enda tók hann ungur
að yrkja. Átti sú fegurðarþrá
efalaust sinn þátt í því hversu
vel honum tókst að bregðast við
þungum örlögum, þótt þar hafi
einnig til komið karlmennska, trú
og bjartsýni.
Um það bil, sem verst leit út
um heilsuna, tókst Einari að gefa
út Ijóðabókina „Brim á skerj-
um“, 1946. Var hann þá svo þungt
haldinn, að hann gat ekkert skrif
ag sjálfur en varð að lesa hvert
Ijóð fyrir, oft með hvíldum. Bera
þau ljóð það þó sízt með sér að
sárþjáður maður hafi orkt. Tólf
árum síðan gaf hann út ljóða-
bókina „Þallir“, 1958. Frá henni
gat hann að sjálfsögðu gengið
sjálfur. Liggur ekki annað eftir
hann á bókum, en fjölmargar
blaðagreinir skrifaði hann, eink-
um ferðasögur, því að hann gerði
all-víðreist eftir að hann náði
fullum bata.
Einari tókst það, sem sjaldgæft
má kalla, að snúa ósigri miklum
í algeran sigur, og naut hann
þar mest skapkosta sinna og sér-
stæðra gáfna. Æðruleysi, dreng-
lyndi og öfundleysi hygg ég vera
þau orð, sem einkenndu hann
bezt. Svo var og svipur hans og
yfirbragð, á hverju sem gekk,
bjartur, íhugull og launkíminn.
Oss bjekkjarbræðrum hans og
skólavinum þykir nú skarð fyr-
ir skildi, en sár harmur kveðinn
að systur hans, sem þekkti hann
bezt þeirra er nú lifa og var
honum ómetanlegt athvarf og
styrkur.
Bjarni Guðmundsson.
opnar. Óvíða getur æskumaður-
inn betur reynt krafta sína í lífs-
baráttunni og fundið, að það
munar um hann og framlag hans.
Hér þarf einstaklingurinn ekki
að hverfa í fjöldann.
Við búum í ungu landi með
gamla sögu. Við sjáum í dag,
hvernig náttúruöflin skópu land-
ið í upphafi. Fyrir augum okkar
er nýtt land að myndast, bæði
af náttúrunnar völdum og mann-
anna höndum, — og verkéfnin
blasa hvarvetna við.
Ekki verður nú sagt eins og
raunsæisskáldið sagði fyrir 70—
80 árum: „Það er óhætt að full-
yrða, að þó einhver maður hér
í bænum sofnaði núna og svæfi
í fimm eða tíu ár, þá væri hann
viss um, þegar hann vaknaði,
að hann hefði bara sofið í fáeina
klukkutíma. Því hvert sem hann
liti, þá stæði allt í sömu skorð-
um eins og þegar hann skildi
við það, þegar hann sofnaði."
Á tuttugasta lýðveldisvetri
hafa ólgað straumar og stefnur,
skoðanamunur, lyfting, sem gef-
ur lífinu gildi, en í bili er sátt og
samlyndi, sem á aðhald í varð-
stöðu ólíkra hugsana og hags-
muna.
— ★ —
En það er gömul og ný kenn-
ing, að erfið kjör séu ögrun og
hvetji til árvekni og sóknar. Við
teljum, að saga þjóðarinnar sýni
það, að menn buguðust ekki þrátt
fyrir erfiðleika. Þeir lásu Passíu-
sálma, hlýddu á eldmessur, báðu
og vonuðu, en framar öðru, gáf-
ust aldrei upp.
Spurningin er sú, hvort vel-
meguninni takist það, sem ör-
birgðinni tókst ekki, að slökkva
lífsneistann í brjóstum okkar,
hvort hagsældin stofni aðeins til
Kalt á þjóðhátíð
á Húsavík
HÚSAVÍK, 18. júní — Þjóð-
hátíðarhöldin á Húsavík hófust
með messu kl. 11 oig messaði
sóknarpresturinn séra Björn H.
Jónsson. Klukkan 13.30 söfnuðust
menn saman við barnaskólan og
var þaðan gengið í skrúðgöngu
á hátíðarsvæðið á Húsavíkur-
túni. Formaður þjóðhátíðarnefnd
ar, Þormóður Jónsson, setti
hátíðina. Ávarp fjallkonunnar
flutti Sigríður M. Arnórsdóttir
og ræður fluttu Áskell Einarsson,
bæjarstjóri og Sigurjón Jóhann-
esson, skólastjóri. Lúðrasveit
Húsavíkur lék undir stjórn
Reynis Jónassonar, og karlakór-
inn Þrymur söng undir stjórn
SiguiÖar Sigurjónssonar. Þjóð-
dansar voru sýnir unöir stjórn
Vigdísar Bjarnadóttur. Síðan fór
fram keppni í sundi og hand-
knattleik og að lokum var dans-
að í báðum samkomuhúsum
bæjarins. Veður var frekar
óhagstætt, frekar kalt, en þó ekki
mikil rigning. — Fréttaritari.
ólundar og kröfugerðar í stað
þess að vígja okkur til starfs í
þágu lands og þjóðar.
Öllum er rétt að sýna aðgát,
þegar vel gengur og létt er und-
ir fæti og huga að því, hvort
ástæðan sé sú, að þeir leiti und-
an brekkunni, í stað þess að
sækja á brattann.
Öllum er hollt að taka undir
orð nýlátins þjóðarleiðtoga:
„Spyrjið ekki, hvað landið getur
gert fyrir ykkur, heldur hvað
þið getið gert fyrir það.“
— ★ —
Góðir áheyrendur.
f Við leiðum ekki hugann nú að
því, hvort tuttugu ára afmælia
íslandsbyggðar eða tuttugu ára
afmælis Alþingis var minnzt 4
sínum tíma, en líf og tilveru okk-
ar eigum við að þakka þeirri
sögu, sem á eftir fór.
Af þessu megum við þann lær-
dóm draga, að hátíðahöldin í dag
skipta því aðeins máli, að þau
styrki þann ásetning okkar, að i
kjölfar þeirra og tuttugu lýð-
veldisára komi áratuga, alda og
árþúsunda þjóðarsaga.
í trausti þess fögnum við góð-
um löndum frá Vesturheimi og
óskum hvert öðru ánægjulegrar
þjóðhátíðar.
MliMMMMMMMIMMMMMMMIMMMMMIMMMMIMIMMIMMMM
ÚRSLIT í 4. umferð á Norður-
landamótinu í bfidge urðu þessi
í opna flokknum:
ísland 2 - Noregur 2 96—70 6—0
Svíþjóð 2 - Finnl. 2 126—88 6—0
Svíþjóð 1 - ísland 1 128—67 6—0
Danm. 1 - Noregur 1 85—30 6—0
Danm. 2 - Finnl. 1 91,—63 6—0
fjórum umferðum
þessi:
1. Sviþjóð
2. Danmörk
3. ísland
4. Finnland
5. Noregur
loknum, er
36 stig
33 —
19 —
17 —
15 —
Ársþing Bridgesambands ís-
lands var haldið 30. maí s.l. Mætt
ir voru fulltrúar frá félögunum
í Reykjavík, Hafnarfirði, Akur-
eyri, Kópavogi, Keflavík og Sel-
fossi.
Samþykkt var á þinginu að
bjóðast til að halda í Reykjavík
Norðurlandamótið árið 1966 og
athuga að senda spilara á Evrópu
meistaramótið í Briissel 1965.
Stjórn sambandsins var endur-
kjörin, en hana skipa: Forseti
Sigurjón Guðmundsson; ritari
Þórðux H. Jónsson; gjaldkeri
Kristjana Steingrímsdóttir. —
Fyrir Norðurland: Hörður Arn-
þórsson og Mikael Jónsson, — fyr
ir Suðurland Björn Sveinbjörns-
son og Óskar Jónsson. Fram-
kvæmdastjóri sambandsins er
Brandur Brynjólisson.