Morgunblaðið - 19.06.1964, Side 15

Morgunblaðið - 19.06.1964, Side 15
Fðstudagur 19. Júní 19ffl MORGUNBLAÐIÐ 15 Veltur mest á okkar eigin vilja til sjálfstæöis Ræða dr. Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra FYRIR tuttugu árum var lýð- veldið endurreist á afmæli þess íslendings, sem við teljum svo rrukinn, að þjóðin hafði þegar löngu fyrir 1944 gert atfmælj hairs að hátíðardegi sínum. íæssu skulum við ekki gleyma, J>ví að það staðfestir og skýrir skiining þjóðarinnar á þýðingu manngildisins fyrir tilveru henn ar, frelsi og sjálfstæði. Atburð- ir st'íkir sem endurreisn lýð- veldisins verða ekki af sjálfu sér eða fyrir nein sögu- leg lögmál. I>að er fyrir atbeina ákveðinna manna, misjafnlega margra, sem þeir gerast og stundum með löngum aðdrag- anda. Jón Sigurðsson hafði 1944 legið í gröf sinni ’ nær tvo mannsaldra, en engu að síður var það, sem þá gerðist, öll- um öðrum fremur honum að þakka. Jón Sigurðsson var þvílíkur maður, að enginn annar íslend- ingur stenzt samanburð við hann. Viljastyrkur hans, starfs- orka og framsýni í stjórnmál- um var með ólíkindum. I>ó vann Ihann ekki einn afrek sín heldur varð hann mikilmenni meðal annars af því, að hann kunni að vinna með öðrum a.m.k. að laða þá til fylgis við sig og yfirgnaefandi meirihlluti lands- manna hafði þroska til að lúta forystu hans. Að sjálfsögðu var Jón Sigurðs *on háður mannlegum breisk- leika og eins og allir aðrir son- ur síns tíroa og mótaðist af t>eim hugmyndum, sem þá voru uppi. en hann ánetjaðist aldrei neinu kenningakerfi, lét það aldrei verða sér fjötur um fiót. Lærdómur hams var mikill, ein- beitni hans bar af, en kennimg hans var einföld. Hann taldi, að fra'si og þekking væri drif- fjöður og forsenda framifara og veisældar. Sá óbrotni boðSkapur á ekki síður við nú en fyrir hundrað órum. Menn verða að hafa frelsi til að leita þekkingar og njóta hennar en einnig þekkingu til að nota frelsið rétt. Fátt hefur fyrr og síðar reynzt óheillavæn- legra en kenningakerfi, sem eetlað er að leysa allan vanda, en bila vegna þess að þau eru byggð á vanþekkingu úrslita-at- riða. Æ ofan í æ hefur eðlileg framþróun tafizt og jafnvel á okkar dögum hefur mannfólk- inu verið ógmað og því steypt í hyldýpisógæfu vegna ofurveldis postula vanþekkingarinnar, sem einir þóttust vita allt og vera sjálfkjörnir til að hafa ráð allra annarra í hendi sér. Hættan af Jívliíkum ímynduðum alvitring- um er því meiri sem sjélfstraust þeirra og sannfæring um eigin óskeikulleika er óbrigðulli. Frjálshuga menn vita aftur á tnóti, að engum einum er allt gefið. Þekkinguna ber öllum að virða. En þótt hún nád til æ fleiri viðfangsefna, svo að stöð- ugt verða fleiri staðreyndir, sem ekiki tjáir um að deila, J»á nær hún enn ærið skammit og ótal margt er getgótum háð. Bæði af þeim sökum og vegna þess að sjálfar staðreyndimar má skoða frá ýmsum hliðum, hljóta skoðanir oft að verða skiptar. Sjónarmiðin eru ólík, enda hafa engir tveir menn enn litið heim úin sömu augum. Oft er sagt, að skoðanaágrein h»gur og deilur séu til ófarnað- »r. En viðurkenning á mismun- »ndi skoðunum og þar af leið- »ndi skoðanaágreining er for- »pnd.a lýðræðisins. Þegar til lengdar lætur kann hver og einn -— og þar með allur fjöldiiui — bezt að meta hvað honum er fyr ir beztu. Enginn velur vísvitandi yfir sig ógæfu, en menn eiga rétt á að láta sér missjást og læra af reynslunni, ef ekki með öðrum hætti. Deilur þurfa því sízt af öllu að vera til ills; oft knýja þær hið heflaríkasta fram og án gagnrýni er a.m.k. engum stjórnmálamanni holit að vera. En deilum verður að stilla í hóf.. Eðlilegt er, að hver fyl.gi fram sinni sannfæringu, en end- ir verður að vera allrar þrætu og tll þess þurfa menn að kunna að slá af og samlaga sig öðrum. I>eir verða að geta sett sig í annarra spor og gæta þess, að persónulegur metnaður eða sár- indi verði ekki til hindrunar því samstarfi um málefni, sem þjóð arþörf krefur. Deilugirni má aldrei ná svo langt að haldið sé áfram að deila um það, sem ekki er lengur deiluvert vegna þess að reynslan hefur felit sinn dóm. Svo er t.d um sikilsrmun ein- staklingsfrelsis og gagmkvæm- rar sainhjálpar nú á dögum. Um það tjáir ekki Ien.gur að þræta, að ekkert frjálst þjóðfié- lag verður eimgömgu byggt á öðru hvoru þessa. Þar hLýtur hvorttveggja að koma til; þótt ætíð kunni að verða áhorfsmál um, hve miikiil hlutur hvors um sig skuli vera. En einnig í þeim efnum er aukin þekking til ómetanlegrar leiðbeininigar. Allar þjóðir leggja nú höfuð- áherzlu á að hagnýta sér tækni og vísindi. Af því að allt þrennt gerðist hér nokkurn veg'inn sam tímis að þjóðin hlaut frelsi, margiháttuð almannasamtök voru stofnuð og tækniþróun hafin, er erfitt að greina áhrif hvers um sig. En víst er, að þekkingin og hagnýting hennar í öllum grein- um er nú haldfoezta leiðin til lífskjarabóta, Þetta á við um óteljandi úrlausnarefni daglegs lífs. Þar er í rauninni ekkert svo smátt, að ekki sé þess vert að grandskoða, hvernig það megi færa til betri vegar, meiri hag- ræðingar eins og nú er kallað. Margt smátt gerir eitt stórt. En það er ekki einumgis með hinu marga smáa, sem við get- um bætt okkar hag, heldur bíða enn stór verkefmi óleyst. Sjáv- arafli er okkar helzta útfliutn- ingsvara. Sigurinn í landihelgis- málinu, vaxandi þekking á fiski göngum og ný tækni gera afl- ann mun tryggari en áður. En óveiddur fiskur, syndandi í djúpi hafsins, hlýtur ætíð að veröa ótrygg höfuðundirstaða heils þjóðríkis. Enn höfum við einungis að litlu leyti nýtt þá orku, sem fellst í vatnsafli og jarðhita. Sumir segja, að við eigum að mestu að geyma hana komandi kynsl'óðu.m. En þessi orka eyðist ekki, þótt af sé tek- ið. Þvert á móti er mögulegt, að aðrar aðferðir til orkufram- leiðslu, aðferðir, sem við ráðum ekki yfir, verði arðvænlegri eft- ir nokkurt árabil, þótt hag- kvæmt væri að halda þeim vatnsaf lsvirkj unum sem þá þegar hafa verið gerðar. Víst er, að engum gagnar, að vötn haldi áfram að falla óbeizluð til sjávar. Það er jafn-sjálfsagt að gera stórátak tfll að núlifandi kynslóð geti hagnýtt sér þossi auðæfi og að reyma að hindra, að mokkur byggilegur hluti landsins fari I auðn eða að lát verði á ræktun gróðurmoldarinn ar. Bkki má æðrast yfir, þótt fólkið sæki þangað, sem lífvæn Legast er í landinu, svo sem ætíð hefur verið, heldutr keppa að hinu, að gera sem flestar byggðir lífvænlegar. Við þurf- um að fá fleiri og öruggari stoð- ir undir þjóðarbúskap okkar og afkomu. Land okkar verður aldrei auðvelt til ábúðar. En fyrir verk tveggja — þriggja síðustu kynslóða er það nú allt annað og miklu byggilegra en áður. Látum það þó einungis verða uppihaf þess, er koma skal. burðarlyndi »g þolgæði. Vík skyldi miili vina og fjörður milli frænda, sögðu fórfeður okkar og víst eru okkur ýms sérstök vandiamáll búin sökum fámennis og nábýlis. En ís- lenzka þjóðin á hinsvegar ekki við að etja ýmsan þann vanda, sem aðra hrjáir. HæfiLeikar og aðstaða og þar af leiðandi lífs- afkoma er vissulega misjöfn. En hvergi er þessi munur minni né menntun jafn-almenn og hér. í dag fögmum við hinum nýút- skrifuðu stúdentum, sem rétti- lega skoða sig arftaka fórvera sinna, er sóttu menntun sina í Skálholt og að Hólum. En jatn- vel á meðan aðrir voru ekki tald k- „skólagengnir“ en þeir, sem Dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, fLytur ræðu af svölum Alþing ishússins. Sjálfsagt er að setja mairkið hátt og sækja ótrauðir fram, en markinu verður einungis náð með því að fyrsta sporið í retta átt sé stigið og síðan hvert af öðru. Þess vegna tjáir ekki ann að en að taka hvert úrlausnar- efni fyrir sig, kanna það til hlít- ar og eyða ágreiningi, ef unnt er, en el!a hlýða löglegri ákvörð un réttra valdhafa. Með lögum skal land byggja. í samskiptum manna á milli ríðuir þó á engu meira en um- höfðu verið í svoköl'luðum lærðum skóla, þá greindust ís- lendimgar aldrei í „tvær þjóð- ir“, mennta og ómenntaða, auð- uga og öreiga, eins og mikill brezkur stjórnmálamaður sagði um þjóð sína fyrir hór um bil einmi öld. Nú eiga hér allir kost á samskomar skólaig’öngu og hver sá unglingur sem lokið hefur skyildunámi, hefur öðlazt meira af hagnýtri þekkingu en fyrri tíðar menn hlutu á hinum fornhelgu menntasetrum. Fjölbreytt hátíða- höld á Akureyri AKURlEYRI 18. júní — 17 júní hátíðahöldin á Akureyri hófust um níu-leytið um morguninn með því að blómskreyttur bíll ók umgötur bæjarins með hljóðfæra leikurum, sem léku fjögur lög og óskuðu bæjarbúum gleðilegrar hátíðar. Eftir hádegi hófst útisamkoma á Ráðhústorgi, Bæjarstjóri, Magnús E. Guðjónsson setti sam- komuna og séra Pétur Sigurgeirs- son flutti messu með aðstoð kirkjukórsins og iúðrasveitarinnT ar uudir stjórn Jakobs Tryggva- sonar. Árni Kristjánsson, mennta skólakennari, flutti hátíðaljóð eftir Helga Valtýsson, og Kristj- ana Halldórsdóttir, nýstúdent á- varp fjallkonunnar eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Síðan var farið í skrúðgöngu til iþráttava.larins með lúðra- sveit og fánaborg í broddi fylk- ingar. Þar flutti Ingvar Gíslason, al- þingismaður, lýðveldisræðu og Jóhann Heiðar Jóhannsson, ný- stúdent, minni Jóns Sigurðsson- ar. Karlakótinn Geysir söng og lúðrasveit Akureyrar iék á milli atriða. Þá fór.fram iþróttakeppni, m.a. kepptu meistaraflokkar Í.B.A. 1954 og 1964 „Ungu“ mennirnir sigruðu 2:0, ea hinir „gömlu“ Okkar dýrasti arfur, íslenzk tunga, hefur og aldirei verið i hættu £rá atmenningi. Þó bera niú sumir þeirra sem lengst hafa dvalízt með erlendum þjóðuna sjálfum sér til þroska og auik- innar víðsýni kvíða í brjósti y£- ir, að ef aðrir komist í snert- ingu við erlenda menningu þá muni tungan og jafnvel þjóð- ernið vera í voða. En þótt við megum ekki ofmeta eigin styrk, megum við ekki ætla allan þorra manna svo Lítilsigldan að þola ekki reykinn af þeim réttum, sem hinir margsigldu telja sjállf um sér lífsnauðsyn. Hér eru nú staddir altmargir Vestur-íslendingar sem við bjóð um innilega Völkomna. Endur- teknar hópferðir þeirra hingað austur yfir hafið sýna, að römm er sú taug, sem rekka dregur föðurtúni til. íslenzk ætternis- vitund þeirra er enn lifandi, og hefur þó óendanlega meira á hana reynt, en mögulegt er, að verði um okkur, sem hér heúma búum. Einangrunin er að vísu úr sögunni en hana ber sízt að harma, því að ekkert hefur komizt nær að tortíma kyn- stofni okkar en einmitt hiún svo sem raun varð á um okkar fornu frændur, sem til Græn- lands fluttu. íslenzk menning þar með listir og vísindi, hafa blómgazt vegna samskipta við aðra. Svipuðu máli gegnir utn sjálfstæðið. Það hé'zt á meðan íslendingar fóru víða og höfðu veruleg samskipti við aðra mið- að við þeirra tíma nætti og end- uriheimtist, þegar einangrunín rofnaði. En vissulega er ekki hættu- laust fyrir litla þjóð að vera í alfaraleið. Mest er þá undir því komið hverjir eiga leið um. Dæmin sýna, að margfalt mann- fleiri þjóðir en okkar, sem ný- lega höfðu haldið upp á tuttugu ára lýðveldisafmæli sitt, glöt- uðu sjálfstæði sínu meðal ann- ars vegna þess, að öflugur ná- granni taldi sér stafa hættu a£ máttleysi þeirra í stórstyrjöld. Legu lands okkar verður efcki breytit og sem betur fer girnast nágrannar okkar ekki ísland. En þeir og við höfum sameigin- lega hagsmuni af því, að friður haldist í heiminum. Þess vegna ber okskur að leggja okkar litla skerf af mörkumí til að sv>» megi verða. Ef það tekst eins og góðvilj- aðir menn um heim allan leggja sig nú fram um, þá ætti ekki að þurfa að óttast að sjálfstæði okkar verði einungis stundar- fyrirbæri. Öll saga þjóðarinnar sýnir, að engir hafa stjórnað íslandi betur en íslendingar sjálfir og einmitt þessa dagana erum við vitná þess, hvílíkur aflgjafi frelsið er margháttaðri menningu og listsköpun. Þess vegna veltur mest á okkar eig- in vilja til sjálfstæðis, þeim vilja, sem hefur verið upp- spretta afreka þjóðarinnar síð- ustu áratugi. Guð gefi, að hann verði aldrei brotinn af annar- legum ofbeldisöfluim né dofni í okkar eigin brjóstum. þóttu samt standa sig vel, enda höfðu þeir styrkt lið sitt roeð Helga Danielssyni markverði frá Akranesi. Við iþróttavöllinn voru einnig 10—20 dýrategundir til sýnis börnum, sem líka fengu að skreppa á bak nokkrum þægum hestum. Síðdegis var fjölbreytt barna- skemmtun a Ráðhústorgi undir stjórn Einars Haraldssonar. Um kvöldið var þar almenn skemmt un með margvíslegum skemmti- atriðum og loks var stiginn dans á torginu. Þátttaka almennings var miktl þrátt fyrir óhagstætt veður. Una hádegið tók að rigna og hélzt skúraveður fram undir kvöld. Þá birti upp, en þó var kalt í veðri og napur norðannæðingur. Bær- inn var fánum skrýddur svo og skip, sem lágu við bryggjur og á Pollinum, Bæjarbúar voru í hátíðarskapi. Formaður hátíðar- nefndar var Hermann Sigtryggs- son. — Sverric.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.