Morgunblaðið - 19.06.1964, Page 15
Fðstudagur 19. Júní 19ffl
MORGUNBLAÐIÐ
15
Veltur mest á okkar eigin
vilja til sjálfstæöis
Ræða dr. Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra
FYRIR tuttugu árum var lýð-
veldið endurreist á afmæli þess
íslendings, sem við teljum svo
rrukinn, að þjóðin hafði þegar
löngu fyrir 1944 gert atfmælj
hairs að hátíðardegi sínum.
íæssu skulum við ekki gleyma,
J>ví að það staðfestir og skýrir
skiining þjóðarinnar á þýðingu
manngildisins fyrir tilveru henn
ar, frelsi og sjálfstæði. Atburð-
ir st'íkir sem endurreisn lýð-
veldisins verða ekki af sjálfu
sér eða fyrir nein sögu-
leg lögmál. I>að er fyrir atbeina
ákveðinna manna, misjafnlega
margra, sem þeir gerast og
stundum með löngum aðdrag-
anda. Jón Sigurðsson hafði
1944 legið í gröf sinni ’ nær tvo
mannsaldra, en engu að síður
var það, sem þá gerðist, öll-
um öðrum fremur honum að
þakka.
Jón Sigurðsson var þvílíkur
maður, að enginn annar íslend-
ingur stenzt samanburð við
hann. Viljastyrkur hans, starfs-
orka og framsýni í stjórnmál-
um var með ólíkindum. I>ó vann
Ihann ekki einn afrek sín heldur
varð hann mikilmenni meðal
annars af því, að hann kunni að
vinna með öðrum a.m.k. að
laða þá til fylgis við sig og
yfirgnaefandi meirihlluti lands-
manna hafði þroska til að lúta
forystu hans.
Að sjálfsögðu var Jón Sigurðs
*on háður mannlegum breisk-
leika og eins og allir aðrir son-
ur síns tíroa og mótaðist af
t>eim hugmyndum, sem þá voru
uppi. en hann ánetjaðist aldrei
neinu kenningakerfi, lét það
aldrei verða sér fjötur um fiót.
Lærdómur hams var mikill, ein-
beitni hans bar af, en kennimg
hans var einföld. Hann taldi,
að fra'si og þekking væri drif-
fjöður og forsenda framifara og
veisældar.
Sá óbrotni boðSkapur á ekki
síður við nú en fyrir hundrað
órum. Menn verða að hafa frelsi
til að leita þekkingar og njóta
hennar en einnig þekkingu til
að nota frelsið rétt. Fátt hefur
fyrr og síðar reynzt óheillavæn-
legra en kenningakerfi, sem
eetlað er að leysa allan vanda,
en bila vegna þess að þau eru
byggð á vanþekkingu úrslita-at-
riða. Æ ofan í æ hefur eðlileg
framþróun tafizt og jafnvel á
okkar dögum hefur mannfólk-
inu verið ógmað og því steypt í
hyldýpisógæfu vegna ofurveldis
postula vanþekkingarinnar, sem
einir þóttust vita allt og vera
sjálfkjörnir til að hafa ráð allra
annarra í hendi sér. Hættan af
Jívliíkum ímynduðum alvitring-
um er því meiri sem sjélfstraust
þeirra og sannfæring um eigin
óskeikulleika er óbrigðulli.
Frjálshuga menn vita aftur á
tnóti, að engum einum er allt
gefið. Þekkinguna ber öllum að
virða. En þótt hún nád til æ
fleiri viðfangsefna, svo að stöð-
ugt verða fleiri staðreyndir,
sem ekiki tjáir um að deila,
J»á nær hún enn ærið
skammit og ótal margt er
getgótum háð. Bæði af þeim
sökum og vegna þess að
sjálfar staðreyndimar má skoða
frá ýmsum hliðum, hljóta
skoðanir oft að verða skiptar.
Sjónarmiðin eru ólík, enda hafa
engir tveir menn enn litið heim
úin sömu augum.
Oft er sagt, að skoðanaágrein
h»gur og deilur séu til ófarnað-
»r. En viðurkenning á mismun-
»ndi skoðunum og þar af leið-
»ndi skoðanaágreining er for-
»pnd.a lýðræðisins. Þegar til
lengdar lætur kann hver og einn
-— og þar með allur fjöldiiui —
bezt að meta hvað honum er fyr
ir beztu. Enginn velur vísvitandi
yfir sig ógæfu, en menn eiga
rétt á að láta sér missjást og
læra af reynslunni, ef ekki með
öðrum hætti. Deilur þurfa því
sízt af öllu að vera til ills; oft
knýja þær hið heflaríkasta
fram og án gagnrýni er a.m.k.
engum stjórnmálamanni holit að
vera. En deilum verður að stilla
í hóf.. Eðlilegt er, að hver fyl.gi
fram sinni sannfæringu, en end-
ir verður að vera allrar þrætu
og tll þess þurfa menn að kunna
að slá af og samlaga sig öðrum.
I>eir verða að geta sett sig í
annarra spor og gæta þess, að
persónulegur metnaður eða sár-
indi verði ekki til hindrunar því
samstarfi um málefni, sem þjóð
arþörf krefur. Deilugirni má
aldrei ná svo langt að haldið sé
áfram að deila um það, sem
ekki er lengur deiluvert vegna
þess að reynslan hefur felit sinn
dóm.
Svo er t.d um sikilsrmun ein-
staklingsfrelsis og gagmkvæm-
rar sainhjálpar nú á dögum.
Um það tjáir ekki Ien.gur að
þræta, að ekkert frjálst þjóðfié-
lag verður eimgömgu byggt á
öðru hvoru þessa. Þar hLýtur
hvorttveggja að koma til; þótt
ætíð kunni að verða áhorfsmál
um, hve miikiil hlutur hvors um
sig skuli vera. En einnig í þeim
efnum er aukin þekking til
ómetanlegrar leiðbeininigar.
Allar þjóðir leggja nú höfuð-
áherzlu á að hagnýta sér tækni
og vísindi. Af því að allt þrennt
gerðist hér nokkurn veg'inn sam
tímis að þjóðin hlaut frelsi,
margiháttuð almannasamtök
voru stofnuð og tækniþróun
hafin, er erfitt að greina áhrif
hvers um sig.
En víst er, að þekkingin og
hagnýting hennar í öllum grein-
um er nú haldfoezta leiðin til
lífskjarabóta, Þetta á við um
óteljandi úrlausnarefni daglegs
lífs. Þar er í rauninni ekkert
svo smátt, að ekki sé þess vert
að grandskoða, hvernig það megi
færa til betri vegar, meiri hag-
ræðingar eins og nú er kallað.
Margt smátt gerir eitt stórt.
En það er ekki einumgis með
hinu marga smáa, sem við get-
um bætt okkar hag, heldur bíða
enn stór verkefmi óleyst. Sjáv-
arafli er okkar helzta útfliutn-
ingsvara. Sigurinn í landihelgis-
málinu, vaxandi þekking á fiski
göngum og ný tækni gera afl-
ann mun tryggari en áður. En
óveiddur fiskur, syndandi í
djúpi hafsins, hlýtur ætíð að
veröa ótrygg höfuðundirstaða
heils þjóðríkis. Enn höfum við
einungis að litlu leyti nýtt þá
orku, sem fellst í vatnsafli og
jarðhita. Sumir segja, að við
eigum að mestu að geyma hana
komandi kynsl'óðu.m. En þessi
orka eyðist ekki, þótt af sé tek-
ið. Þvert á móti er mögulegt, að
aðrar aðferðir til orkufram-
leiðslu, aðferðir, sem við ráðum
ekki yfir, verði arðvænlegri eft-
ir nokkurt árabil, þótt hag-
kvæmt væri að halda þeim
vatnsaf lsvirkj unum sem þá
þegar hafa verið gerðar. Víst
er, að engum gagnar, að vötn
haldi áfram að falla óbeizluð til
sjávar. Það er jafn-sjálfsagt að
gera stórátak tfll að núlifandi
kynslóð geti hagnýtt sér þossi
auðæfi og að reyma að hindra,
að mokkur byggilegur hluti
landsins fari I auðn eða að lát
verði á ræktun gróðurmoldarinn
ar. Bkki má æðrast yfir, þótt
fólkið sæki þangað, sem lífvæn
Legast er í landinu, svo sem
ætíð hefur verið, heldutr keppa
að hinu, að gera sem flestar
byggðir lífvænlegar. Við þurf-
um að fá fleiri og öruggari stoð-
ir undir þjóðarbúskap okkar og
afkomu. Land okkar verður
aldrei auðvelt til ábúðar. En
fyrir verk tveggja — þriggja
síðustu kynslóða er það nú allt
annað og miklu byggilegra en
áður. Látum það þó einungis
verða uppihaf þess, er koma skal.
burðarlyndi »g þolgæði. Vík
skyldi miili vina og fjörður
milli frænda, sögðu fórfeður
okkar og víst eru okkur ýms
sérstök vandiamáll búin sökum
fámennis og nábýlis. En ís-
lenzka þjóðin á hinsvegar ekki
við að etja ýmsan þann vanda,
sem aðra hrjáir. HæfiLeikar og
aðstaða og þar af leiðandi lífs-
afkoma er vissulega misjöfn. En
hvergi er þessi munur minni né
menntun jafn-almenn og hér. í
dag fögmum við hinum nýút-
skrifuðu stúdentum, sem rétti-
lega skoða sig arftaka fórvera
sinna, er sóttu menntun sina í
Skálholt og að Hólum. En jatn-
vel á meðan aðrir voru ekki tald
k- „skólagengnir“ en þeir, sem
Dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, fLytur ræðu af svölum
Alþing ishússins.
Sjálfsagt er að setja mairkið
hátt og sækja ótrauðir fram, en
markinu verður einungis náð
með því að fyrsta sporið í retta
átt sé stigið og síðan hvert af
öðru. Þess vegna tjáir ekki ann
að en að taka hvert úrlausnar-
efni fyrir sig, kanna það til hlít-
ar og eyða ágreiningi, ef unnt
er, en el!a hlýða löglegri ákvörð
un réttra valdhafa.
Með lögum skal land byggja.
í samskiptum manna á milli
ríðuir þó á engu meira en um-
höfðu verið í svoköl'luðum
lærðum skóla, þá greindust ís-
lendimgar aldrei í „tvær þjóð-
ir“, mennta og ómenntaða, auð-
uga og öreiga, eins og mikill
brezkur stjórnmálamaður sagði
um þjóð sína fyrir hór um bil
einmi öld. Nú eiga hér allir
kost á samskomar skólaig’öngu og
hver sá unglingur sem lokið
hefur skyildunámi, hefur öðlazt
meira af hagnýtri þekkingu en
fyrri tíðar menn hlutu á hinum
fornhelgu menntasetrum.
Fjölbreytt hátíða-
höld á Akureyri
AKURlEYRI 18. júní — 17 júní
hátíðahöldin á Akureyri hófust
um níu-leytið um morguninn
með því að blómskreyttur bíll ók
umgötur bæjarins með hljóðfæra
leikurum, sem léku fjögur lög og
óskuðu bæjarbúum gleðilegrar
hátíðar.
Eftir hádegi hófst útisamkoma
á Ráðhústorgi, Bæjarstjóri,
Magnús E. Guðjónsson setti sam-
komuna og séra Pétur Sigurgeirs-
son flutti messu með aðstoð
kirkjukórsins og iúðrasveitarinnT
ar uudir stjórn Jakobs Tryggva-
sonar. Árni Kristjánsson, mennta
skólakennari, flutti hátíðaljóð
eftir Helga Valtýsson, og Kristj-
ana Halldórsdóttir, nýstúdent á-
varp fjallkonunnar eftir Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi.
Síðan var farið í skrúðgöngu
til iþráttava.larins með lúðra-
sveit og fánaborg í broddi fylk-
ingar.
Þar flutti Ingvar Gíslason, al-
þingismaður, lýðveldisræðu og
Jóhann Heiðar Jóhannsson, ný-
stúdent, minni Jóns Sigurðsson-
ar. Karlakótinn Geysir söng og
lúðrasveit Akureyrar iék á milli
atriða.
Þá fór.fram iþróttakeppni, m.a.
kepptu meistaraflokkar Í.B.A.
1954 og 1964 „Ungu“ mennirnir
sigruðu 2:0, ea hinir „gömlu“
Okkar dýrasti arfur, íslenzk
tunga, hefur og aldirei verið i
hættu £rá atmenningi. Þó bera
niú sumir þeirra sem lengst hafa
dvalízt með erlendum þjóðuna
sjálfum sér til þroska og auik-
innar víðsýni kvíða í brjósti y£-
ir, að ef aðrir komist í snert-
ingu við erlenda menningu þá
muni tungan og jafnvel þjóð-
ernið vera í voða. En þótt við
megum ekki ofmeta eigin styrk,
megum við ekki ætla allan þorra
manna svo Lítilsigldan að þola
ekki reykinn af þeim réttum,
sem hinir margsigldu telja sjállf
um sér lífsnauðsyn.
Hér eru nú staddir altmargir
Vestur-íslendingar sem við bjóð
um innilega Völkomna. Endur-
teknar hópferðir þeirra hingað
austur yfir hafið sýna, að römm
er sú taug, sem rekka dregur
föðurtúni til. íslenzk ætternis-
vitund þeirra er enn lifandi, og
hefur þó óendanlega meira á
hana reynt, en mögulegt er, að
verði um okkur, sem hér heúma
búum.
Einangrunin er að vísu úr
sögunni en hana ber sízt að
harma, því að ekkert hefur
komizt nær að tortíma kyn-
stofni okkar en einmitt hiún
svo sem raun varð á um okkar
fornu frændur, sem til Græn-
lands fluttu. íslenzk menning
þar með listir og vísindi, hafa
blómgazt vegna samskipta við
aðra. Svipuðu máli gegnir utn
sjálfstæðið. Það hé'zt á meðan
íslendingar fóru víða og höfðu
veruleg samskipti við aðra mið-
að við þeirra tíma nætti og end-
uriheimtist, þegar einangrunín
rofnaði.
En vissulega er ekki hættu-
laust fyrir litla þjóð að vera
í alfaraleið. Mest er þá undir
því komið hverjir eiga leið um.
Dæmin sýna, að margfalt mann-
fleiri þjóðir en okkar, sem ný-
lega höfðu haldið upp á tuttugu
ára lýðveldisafmæli sitt, glöt-
uðu sjálfstæði sínu meðal ann-
ars vegna þess, að öflugur ná-
granni taldi sér stafa hættu a£
máttleysi þeirra í stórstyrjöld.
Legu lands okkar verður efcki
breytit og sem betur fer girnast
nágrannar okkar ekki ísland.
En þeir og við höfum sameigin-
lega hagsmuni af því, að friður
haldist í heiminum. Þess vegna
ber okskur að leggja okkar litla
skerf af mörkumí til að sv>»
megi verða.
Ef það tekst eins og góðvilj-
aðir menn um heim allan leggja
sig nú fram um, þá ætti ekki
að þurfa að óttast að sjálfstæði
okkar verði einungis stundar-
fyrirbæri. Öll saga þjóðarinnar
sýnir, að engir hafa stjórnað
íslandi betur en íslendingar
sjálfir og einmitt þessa dagana
erum við vitná þess, hvílíkur
aflgjafi frelsið er margháttaðri
menningu og listsköpun. Þess
vegna veltur mest á okkar eig-
in vilja til sjálfstæðis, þeim
vilja, sem hefur verið upp-
spretta afreka þjóðarinnar síð-
ustu áratugi. Guð gefi, að hann
verði aldrei brotinn af annar-
legum ofbeldisöfluim né dofni
í okkar eigin brjóstum.
þóttu samt standa sig vel, enda
höfðu þeir styrkt lið sitt roeð
Helga Danielssyni markverði frá
Akranesi.
Við iþróttavöllinn voru einnig
10—20 dýrategundir til sýnis
börnum, sem líka fengu að
skreppa á bak nokkrum þægum
hestum.
Síðdegis var fjölbreytt barna-
skemmtun a Ráðhústorgi undir
stjórn Einars Haraldssonar. Um
kvöldið var þar almenn skemmt
un með margvíslegum skemmti-
atriðum og loks var stiginn dans
á torginu.
Þátttaka almennings var miktl
þrátt fyrir óhagstætt veður. Una
hádegið tók að rigna og hélzt
skúraveður fram undir kvöld. Þá
birti upp, en þó var kalt í veðri
og napur norðannæðingur. Bær-
inn var fánum skrýddur svo og
skip, sem lágu við bryggjur og
á Pollinum, Bæjarbúar voru í
hátíðarskapi. Formaður hátíðar-
nefndar var Hermann Sigtryggs-
son. — Sverric.