Morgunblaðið - 19.06.1964, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.06.1964, Blaðsíða 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Fostudagur 19. juní 1964 Bergþdrshvoll eftir sr. Jón Skagan Fá íslenzk bæjarnöfn bera jafn mikinn ljóma frá sögu- öld sem Bergþórshvoll í Land eyjum. Jafnframt er og bund in við það ein mesta harm- sagan, sem á þeim tímum gerðist. Bergþórshvoll er ekki land- námsjörð og kemur því ekki við sögu í Landnámu. Tví- vegis er þar þó vikið að Njáls brennu sem þekktum atburði. Njáll býr á Bergþórshvoli á árunum 960—1011 að því ætl- að er. Hann var sonur Þor- geirs gollnis og Ásdísar Ás- kelsdóttur, hersis hins ómálga. Bjuggu þau undir Eyjafjöll- um, sennilega að Holti. Kona Njáls var Bergþóra Skarphéð insdóttir. Uppi er tilgáta um það, að afi hennar hafi heitið Bergþór og sé nafnið Berg- þórshvoll við hann bundið. Gæti hann tímans vegna vel hafa byggt þar fyrstur manna og Njáll svo fengið staðinn með kvonfangi sínu. Nafnið Bergþóruhvoll, sem nokkuð hefur tíðkazt eystra, er rang- mæli, sem enga stoð á í sögu- legum rökum eða skjölum. Að því er fróðir menn telja fór Njálsbrenna fram 23. ágúst árið 1011. Tilefni hennar var víg Höskuldar hvítanessgoða, áður fóstur- sonar Njáls. Að því vígi stóðu Njálssynir og Kári Sölmund- arson, einkum vegna rógs Marðar Valgarðssonar sam- kvæmt frásögn Njálu. Var það víg mjög að ósekju unnið og því illa þokkað. Að eftir- málum um víg Höskuldar stóðu margir höfðingjar, þar á meðal Flosi Þórðarson að Svínafelli í Öræfum. Sættir náðust engar á Alþingi sum- arið 1011. Flosi beitti sér síð- an fyrir aðför að Njáli og son um hans og brenndi þá inni síðla sama sumars eins og áður er frá greint. — Ýmsir hafa undrazt þá fyrirskipun Njáls, að allir skyldu inn ganga, þegar Flosi nálgaðist bæinn með hundrað manna liði. Hann hafði þó heima nær þrem tugum vígra manna. Sumir telja að kristi- legt hugarfar, elli og feigð, hafi lagzt á eitt um þá fyrir- skipun. Ég hygg að allt annað hafi vakað fyrir hinum vitra og framsýna manni. Njáll vissi, að húsin á Bergþórs- hvoli voru ramger og eigi síðri til varnar en húsin á Hlíðarenda, þar sem Gunnar varðist einn lengst og bezt gegn ofurefli liðs. Hann hafði einnig — um hásumarið — nægilegt vatn, sýru og keytu í húsum inni til að slökkva eldana fyrst í stað. Hann virð ist einnig hafa haft uppi njósn ir og liðssafnað, því að rétt eftir brennulokin er kominn að Bergþórshvoli her manns, vinir hans hvaðanæva. Flosi hraðar sér svo frá brennunni, að hann fer þaðan fyrr en hann er örugglega viss um, að allir, sem við eldana börðust, séu dauðir. Arfasátan flýtir brennunni, breytir áætlun Njáls um vörnina, og er það í fullu samræmi við allan ímugust sögunnar á henni Þannig hygg ég að bak við fyrirskipun Njáls hafi legið hugsuð vörn en engin upp- gjöf. Um rökin fyrir því hef ég ritað í tímaritið Dvöl 1940 og í Lesbók Tímans 11. nóv. 1962. Þær greinar vil ég góð- fúslega benda á öllum þeim, sem kynna vildu sér efni þetta nánar. Eftir Njálsbrennu er hljótt um Bergþórshvol öldum sam- an. Hann kemur ekki við sögu í Sturlungu og lengi þar á eftir. Vafalítið hefir þó verið byggt þar eftir brennuna og bændur setið þar að búum sínum, þótt lítt fari af því sögur. Bergþórshvoll er all stór jörð eða 20 hundruð að fornu mati. Lengst mun hún hafa verið einbýlisjörð. En í jarðabók Árna og Páls frá 1704 eru þar þó tveir ábúend- ur. Er áhöfn þeirra á jörð- inni 20 nautgripir, 26 hross og rúmlega 200 fjár. Tekið er þó fram að jörðin fóðri aðeins 16 kýr, 2 hesta og 30 sauð- fjár. Hefir því djarflega ver-‘ ið ásett eins og oft hér á landi fyrr og síðar. Talið er í jarðabókinni að vatn og sandur spilli mjög túni og engjum. Eigandi jarðarinnar er þá Oddakirkja og var svo öldum saman. Reka fyrir landi jarðarinnar átti einnig Oddakirkja. Naut hún hans fram yfir 1940, en þá lagðist rekinn allur aftur undir Bergþórshvolinn. — Á Berg- þórshvoli hefir aldrei verið kirkja. En árið 1876 varð hann prestsetur og hefir verið svo síðan, þótt prestarn ir sætu eigi ávallt staðinn. Verður nánar að því vikið síðar. Jörðin Bergþórshvoll ligg- ur syðst í Vestur-Landeyjum, á vestri bakka Affallsins, sem er kvísl úr Markarfljóti Lengd hennar meðfram Af- fallinu til sjávar er um 5 km. Á hinn veginn er hún marg- falt minni um sig. Næst Affallinu er mjó ræma þurr- lendis, en hitt allt mýrar- svakki með rimum, smátjörn um og keldudrögum. Engjar voru þar löngum fjarlægar og mjög blautar. Mestallt land jarðarinnar mun lengst af hafa verið gróið og því sæmilegt til beitar, þegar til náðist fyrir vatni eða snjó. En afskekkt hefir þar verið á umliðnum árum og öldum og erfitt til búrekstrar á marg- an hátt. Á árþúsundum hefir Mark- arfljót myndað Landeyjar með framburði sínum. Kvísl- ar þess hafa bylt sér á ýmsa vegu og breytt landi og landa mörkum. öryggi lands og landsnytja hefir víða verið þar fremur lítið og samgöng- ur í örðugasta lagi. Jarðirnar voru flestar smáar og búin löngum að sama skapi. Lágu til þess ýmsar auðsæjar or- sakir. Landeyjarnar eiga engan afrétt og verða því að hafa búpening í heimahögum árið um kring. Mótekja er og nálega engin í öllum Land eyjum. Grjót er þar og ekki að fá, nema aðflutt innan úr Fljótshlíð eða Þórólfsfelli. Þar vantaði því tilfinnanlega þessa þrjá hornsteina bú- rekstrarins, haga, eldsneyti og efni til bygginga. Fjölmenni og þéttbýli Landeyja á um- liðnum öldum hefir því byggzt meira á sjósókn frá Landeyja sandi en í fljótu bragði er unnt að gjöra sér grein fyrir. Um grjótleysið í Land- Sr. Jón Skagan eyjum vil ég skjóta inn ör- stuttri gamansögu. Vorið 1925 settumst við hjónin að á Bergþórshvoli. Einn af fyrst dögum okkar þar var konan að starfi í stofukytru á bænum, ásamt ungri stúlku úr Landeyjum. Festu þær upp myndir og létu hendur standa fram úr ermum. Höfðu þær sem áslag lítinn hamar og ótraustan. Gekk konan svo rösklega að verki að ham arinn brotnaði af skaftinu. Kallaði hún þá til stúlkunnar og sagði: „Skrepptu út, góða mín, og náðu mér í stein svo að ég geti lamið naglann bet- ur inn“. Unga stúlkan hrökk við, fór eins og hjá sér, en svaraði svo ákveðið: ,.Það er bara enginn svoleiðis steinn til hérna' í Landeyjunum“. Báðar hlógu svo hjartanlega að gefnum skýringum og málalokum. Þegar ekið er Heim að Bergþórshvoli vestan að, blasa þrír lágir hólar við aug- um. Á miðhólnum austan- verðum stendur bærinn og mun svo hafa verið frá fyrstu Séð heim að Bergþórshvoli. byggð á staðnum. Austasti hóllinn heitir Flosahóll og er þeirra hæstur eða 15 metra yfir sjávarmál. Vafalítið er hann kenndur við Flosa Þórðarson frá Svínafelli. Dæld er í þann hól, sem oft hefir verið nefnd bæði í ræðu og riti. Njála segir: „Dalur var í hválnum og bundu þeir Flosi þar hesta sína“. Sumir hafa ætlað að dældin í Flosa- hól og „dalurinn í hválnum“ sé eitt og hið sama. En ég fullyrði að svo geti ekki ver- ið. Bollinn í Flosahól rúmar engan veginn 200 hesta, sem Flosi hafði meðferðis. Suður af Flosahól er hins vegar lítið skarð í bakka Affallsins, sem rann þarna rétt hjá. Skarð þetta er leifar af dæld, sem hét Flosalág og Affalið braut smám saman undir sig. Þar ætla ég að Flosi og menn hans hafi bundið hesta sína. Þar voru þeir ekki í skotlengd frá bænum, og hóllinn skýldi þeim fyrir eftirgrennslan Njáls og sona hans. Ókunnug leiki höfundar Njálu á stað- háttum virðist ráða því að sagt er „dalur var í hválnum“ í stað dalur var sunnan við hválinn, sem öll rök mæla með. — Vestari hluti Flosa- hóls mun lengi hafa verið nefndur fjóshóll með því að fjós, hesthús — og síðar hlaða — stóðu þar öldum saman. En árið 1936 voru þessi hús öll endurreist og flutt vestur fyrir bæinn. Og nú hafa allar rústir á vestanverðum Flosa- hól verið jafnaðar við jörðu.. Norður af Flosahól er dæld nokkur, sem heitir Höskuld- erdæla. Stendur vatn í henni haust og vor. Nú orðið er hún botngróin, en talin miklu dýpri áður af elztu núlifandi mönnum. Vafalítið er nafn hennar tengt við Höskuld Njálsson, eða Höskuld hvíta- nessgoða, fósturson Njáls. Skyggn maður, sem sótti mig heim að Bergþórhvoli, taldi sig sjá dæld þessa sem djúpa tjörn og Njálssyni og Kára þar að sundleikjum. Mætti vel hugsa sér, að til forna hefðu þar verið góð skilyrði til sundiðkana og sundleikja. Vestan við Flosahól er ofur lítil lægð, en þá tekur við Bæjarhólinn. Á honum stend- ur bærinn og mun svo hafa verið alla tíð frá söguöld. Þar mun brenna Njáls, harmleik- urinn mikli, hafa gerzt á sín- um tíma. Ef til vill hefir bær inn eitthvað færzt til við end urbyggingar, en naumast mun þar miklu skeika frá fyrsta grunni. Vestan við bæjarhól- inn er slakki nokkur, en vest- ur af honum þriðji hóllinn, sem ekki hefir nafn borið. Er hann flatur að ofan, lang- ur til vesturs og allbrattur að norðanverðu. Á þeim hól hefir ekki verið byggt svo vit að sé. í Landeyjum er austanátt alltíð. Ég veitti því oft at- hygli, að í hægri austanátt lagði reykinn frá bænum með fram hól þessum norðanverð- um í áttina að Káragerði. Kemur það vel heim við sög- una um för Kára úr brenn- unni. Var sú leið sjálfsögð, bæði til að fylgja reyknum og dyljast um leið bak við hólinn. — Skammt vestur frá Bergþórhvoli er bærinn Kára gerði. Dregur hann nafn af Kára Sölmundarsyni. Þar eru tvö örnefni kennd við hann, sem vert er að skoða og muna. Rétt austan við bæinn er lægð, sem heitir Káratjörn. Sagt er að Kári hafi þar slökkt eldinn í klæðum sín- um. Sú tjörn er nú öll upp gróin. En leifar sjást enn af görðum, hlöðnum út í hana, sem sýna að þar hefir áður verið dýpi mikið. Svo sem 20 metrum vestur frá Kára- tjörn er svo Káragróf, örlítil dæld eða jarðfall í lambhús- hólnum á Káragerði. Þar er sagt að Kári hafi hvílzt eftir brennuna og baðið í Kára- tjörn. Gróf þessi hefir grynnzt frá Njálsbrennu. Hefir Krist- í rás tímanna eins og aðrar lægðir. Enn má þó einn mað- ur fela sig í henni nokkurn veginn. Og góð er útsýn það- an til bæjarins að Bergþórs- hvoli. Eitt örnefni frá dögum Njáls eru svonefndir Lín- akrar. Eru þeir við Affallið á austurmörkum jarðarinnar, um hálftíma gang frá Berg- þórshvoli. Reitir þessir eru ferkant f 5ir, einir sex að tölu, markaðir görðum, sem enn sést víða fyrir. Talið er, að þar muni Njáll hafa stundað kornyrkju og jafnframt rækt- að hör til língerðar og ann- arra þarfa. Bendir nafnið mjög til þess að svo hafi verið. Frá Bergþórshvoli er út- sýn ein hin víðasta og feg- ursta á landi- hér. í heiðskíru veðri blasa við augum lág- sveitir Rangár- og Árnes- þings umgirtar hálfhring tign- arlegra fjalla, jökla og heiða. í góðu skyggni sést þaðan í fjórar sýslur og til níu kirkna. í suðri- rísa Vestmannaeyjar úr sjó eins og „risar á verði við sjóndeildarhring". Austast er Elliðaey, þá Bjarnarey, en síðan Heímaey, sem er þeirra hæst og mest um sig. Úr byggð inni þaðan sést ljósadýrðin vel frá Bergþórshvoli, þegar skyggja tekur. Vestur af Heimaey er mest Álfsey, en Hani, Hæna o. fl. eyjar á milli þeirra. Vestur af Álfsey og lengra úti er svo hið nýja náttúruundur, Surtsey, ef til vill önnur stærsta eyjan í dag. Vestast í klasanum er Eini- drangur, mjór og hávaxinn einstæðingur. En skammt aust ur af honum Þrídrangar, þar sem nú er viti fyrir sæfar- Framhald á bls. 19 Á SÓGUSLÓÐUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.