Morgunblaðið - 19.06.1964, Side 13
Föstudagur 19. Jönf 1964
MORGU N BLADtD
13
igitiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiHiiiiiiiiiuiiiiiiiiiMMiiiiiiiiiiitimimiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiuiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiHimiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiitiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHi
Tómas Guðmundsson:
Ávarp Fjallkonunnar
Enn vitjaði átthaga vorra í morgun sá dagur,
sein vænstar ástgjafir þjóð sinni hefur borið.
Og ísland, sem nam gegnum sólhvítan óttusvefninn
hans svanaflug, kom til móts við hann út í vorið.
Og eins og dagurinn leggur sér land sitt að hjarta,
svo leitar hann uppi frá heiðum til yztu miða
hvert barn sinnar foldar og hyggur að hlustandi eyra,
hvort heyn hann enn sínar lindir í barmi þess niða.
í>ín ættjörð — hér hófst hún af holskeflum eldbrims og flóða.
Að himinskautum stóð nóttin í glampandi bálú
Og svipmeira land hefur aldrei af unnum stigið,
né ávarpað hnött sinn og stjörnur á skáldlegra máli.
Og aldanna hönd tók að rista sitt rúnaletur
í rauðar borgir og f jallbláa hamrasali.
Þar léku á basalthörpunnar stuðlastrengi
þeir stormar, sem báru með regninu moidir í dali.
Já, moldir, sem eiga sér miskunn himinsins vísa
E og mildar vorskúrir ástríki sínu glæða
s — það stenzt ekkert líf til langframa þeirra ákall,
því loks mun það veglausa firð yfir útsæinn þræða.
Og hafborin frækorn og flugprúða gesti ioftsins
bar fyrsta til landnáms á útmörkum norrænnar slóðar.
Þá helgaðist niðandi lífi og lifandi óði
það land, sem í tiginni einsemd hér beið sinnar þjóðar.
Það beið sinnar þjóðar, og hingað var ferðinni heitið.
Þinn hamingjudraumur tók svipmót af landinu bjarta,
sem gerðist þín ættjörð og lagði þér Ijóð sín á tungu.
Ó, lát ekki rödd hennar farast í æskunnar hjarta.
Það spyr engin saga, það forvitnast aldrei nein framtíð
um fólk, sem er ætt sinni horfið og reisn sinni glatar.
Þvi land þitt er einnig þín örlagaborg og þitt vígi,
i og einungis þangað um sál þína hamingjan ratar.
liiiiiimimimmminmiiMMmiimmiiiiiiimiimiiniimmmmiimiimiiimiiiimiiiiiiimmmiiHiiimimmiimmmiimmiiiiiii
En, fsland, þín börn hafa enn ekki þjóð sinni brugðizt
og aldrei í bráðustum háska frá sæmd þinni vikið.
Og þau munu enn verja hugrökk þinn heiður og frelsi
gegn hverjum þeim voða, sem ógnar þér — nógu mikið.
En biðjum þess einnig að aldrei megi það henda,
að andi þeirra og sál láti fyrirberast
í slævandi öryggð hins auðsótta veraldargengis.
Nei, önnur og stærri skal sagan, sem hér á að gerast.
Og, æska míns lands, það er aldanna hamingjudraumur, ="
sem á sína ráðningu í dag undir trúfesti þinni.
Ó, opna þú honum þinr barm, þitt brennandi hjarta.
Legg bernskunnar niðandi lindir á fullorðið minni.
Þar geymist sú saga, sem guð hefur trúað þér fyrir.
Þar gefst þér sú ættjörð, sem þér hefur sungið og angað.
Og seytjándi júní — til þess er hann heim til þín horfinn,
að hann á að vígja þér landið og fylgja þér þangað.
iiimmmmmmmmimmiimmiMiiMiiimimiiMimmmmmmmiiiiiiiimMMmiMmmmmmmmmimiimimmmimMiiiMMl
laiiŒo
Háákólabíó:
Þetta er sérst.æ'ð mynd, gaman
söm á ytra borði, en undir niðri
býr alvara og nokkur boðskapur.
Nafnið er í stuttu máli á þá leið,
eö morðingi, sem særzt hefur í
viðureign við lögregluna leitar
skjóls í gamalli hlöðu. 3 börn af
bæ-num finna morðingjann, en
vegna smávegis misskilnings álíta
þau, að hér sér kominn Jesús
Kristur snúinn aftur til jarðar-
innar. Skilzt þeim, að á mestu
ríði, að leyna felustað hans, svo
mennirnir krossfesti. hann ekki
aftur. Smátt og smátt kvisast
þetta út til barna í nágrenninu,
og öll eru þau sammála um að
halda hlífiskildi yfir Kristi. Trú
barnanna er sterk. Þau kippa sér
ekki upp við það, þótt Kristur
reynist kunna vel að meta ýmis
þessa heims gæða, þar á meðal
vin og tóbak.
Hér skai þráðurinn ekki rak-
inn lengra. Þetta er ensk mynd,
frábærlega vel leikin. Einkum er
þó leikur barnanna aðdáunar-
verður, svo annað eins hefur
naumast sézt á leiksviði. Fólki er
eindregið ráðlagt að sjá mynd
þessa. Kímni hennar er jafnlát-
laus og sá boðskapur, sem hún
flytur. Hér er engum skrípalátum
beitt, til að framkalla hjárænu-
leg hlátrasköll, og alvara hennar
höfðar til mannlegra tilfinninga
án nokkurrar væmni eða annar-
legra gervikennda.
Sveinn Kristlnsson.
Cape—Town, 16. júní.
NTB.
Dr. Henrik Verwoerd, for-
sætisráðherra S.-Afriku ræddi
á þingfundi í dag dómana yfir
blökkumannaforingjanum,
Nelson Mandela og stuðnings-
mönnum hans, sjö að tölu.
Sagði hann réttarhöldin hafa
flett ofan af kommúnisku
samsæri er ekki aðeins væri
beint gegn S.-Afríku heldur
og öllum hinum vestræna
heimi. Viðbrögðin erlendis við
dómunum yfir Mandela og fé
lögum hans sagði Dr. Ver-
woerd hafa verið fráleit og
ýkt, og greinileg tiihneiging
væri til að gera þó að pislar-
vottum.
MÝTT!
Skerpum
Nýr og
fullkominn
vélakostur.
og réttum af allskonar bitverkf. svo sem:
Vélhefiltennur
Bandsaga- og
hjólsagablöð
o.m.fl.
hitstál
Grjótagötu 14 — Sími 21500.