Morgunblaðið - 19.06.1964, Page 21
Föstudagur 19. jönf 1964
MORGUNBLAÐIÐ
21
Síðastur talaði inspector scolae,
þráinn Þorvaldsson, og kvaddi
skólann, skólan'.eistara og kenn-
ara með hlýjum orðum og þakk-
læti fyrir hönd nýstúdenta.
Skólameista*i þakkaði kveðjur
og gjafir en sneri svo máli sínu
að lokum til nýju stúdentanna.
Honum mæltisc m.a. á þessa leið:
„— Megingalli íslenzkra skóla
er sennilega sá, að nemendur eru
ekki nógu virkir í kennslustund-
um. Þær breytingar, sem fram
undan eru í kennslumálum,
liggja að líkintíum í því að ráða
bót á þessu. Kyrrsetan innan
veggja kennslustofunnar getur
ekki keppt við kvikuna fyrir
utan. Skólar þurfa að vera glaðir
skólar. Dýrmætasta lífsins list er
að kunna að vinna verk sitt með
gleði, — einnig að stunda nám
sitt með gleði.
IMenntaskólanum
eyri slitið 17.
73 stúdentar brautskráðir
MBNNTASKÓIiANUM á Akur-
eyri var slitið 17. júní, og hófst
ethöfnin á Sal kl. 10.30 með því
að sunginn var skólasöngurinn,
Undir skólans menntamerki, við
undirleik Margrétar Eiríksdótt-
ur, skólameistarafrúar.
Skólameistarí, Þórarinn Björns
son, flutti síðan skólaslitaræðu
og lýsti stárfinu í vetur og úr-
slitum prófa. I skólanum voru
í vetur 427 nenvendur í 17 deild-
um, 152 stúlkur og 275 piltar.
Stúlkum fer fjölgandi í skólan-
um, t.a.m. er 31 stúlka í hópi
73 nýstúdenta o| hafa aldrei ver-
ið jafnmargar. I máladeild voru
164, í stærðfræðideild 118, í 3 bekk
114 og í landsprófsbekk 31. Mið-
skóladeildin verður nú lögð nið-
ur vegna þrengsla og vaxandi
aðsóknar að menntadeildinni, og
var iandspróf þreytt við skólann
í síðasta sinn í vor.
Akureyringar voru 120, og fer
þeim hlutfalislega fjölgandi í
skólanum frá Reykjavík og Kópa
vogi rúmiega 30 og frá Siglu-
firði 24. Úr Norðlendingafjórð-
ungi voru 254, af Suðurlandi um
60, af Vesturlandi rúmlega 40,
af Austurlandi tæplega 40 og af
Suðvesturlandi tæpl. 30, þar af
um helmingur frá Akranesi.
í heimavist bjuggu 175, og 260
borðuðu í mötuneytinu. Varð að
vísa nokkrum frá vegna þrengsla,
og mun enn verða næsta vetur.
Kostnaður mun verða um 1700
krónur á mánuði fyrir karla og
1/8 minna fyrir konur.
Fastakennarar voru 16 og
stundakenriarar 6.
Heilsufar í vetur var ágætt og
hefir sennilega aldrei verið betra.
Félagslíf nemeiida var með allra
blómlegasta móti, og kvað skóla-
meistari það varla hafa mátt
meira vera vegna námsins. Mál-
fundafélagið Huginn starfaði af
miklu fjöri, svo og leikfélag,
skákfélag, bridgefélag, raunvís-
indafélag og ýmsir tómstunda-
klúbbar.
Landspróf þreytti 31 nemandi;
þar af hlutu 23 framhaldseink-
unn og 3 ágætiseinkunn. Hæstu
einkunnina, 9,47, hlaut Steinunn
Þórhallsdóttir, og var það hæsta
einkunn, sem tekin hefir verið á
landsprófi við M.A. — Hæstu
einkunn á bekkjarprófi hlaut
Ríkharður Kristjánsson frá
Bíldudal, 4. bekk stærðfræði-
deildar, 9,37.
Nýstúdentar eru 73, 44 úr mála
deild og 29 úr stærðfræðideild.
Af þeim hluiu 2 ágætiseinkunn,
30. I. einkunn og 35 II. einkunn
og III. einkunn 6. Hæstir urðu
þessir stúdentar: Úr máladeild:
,Hart í bak' tekið
mjög vel í Þórshöf n
LEIKFLOKKUR Leikfélags
Reykjavíkur frumsýndi í fyrra-
kvöld gamanleikinn „Hart í bak“
eftir Jökul Jakobsson í Sjónleik-
arhúsinu í Þórshöfn í Færeyjum.
Húsfyllir var og leikriti og leik
endum afar vel tekið og virtist
íslenzkan ekki trufla skilning á-
horfenda á því sem fram fór
jieitt að ráði.
1 Það mátti varla á tæpara
standa, að helmingur leikflokks-
ins næði sýningu, sem hófst kl.
6 e.h. á miðvikudag. Lagði hann
af stað frá Reykjavík flugleiðis
kl. 8 um morguninn, en skömmu
eftir flugtak var tilkynnt, að
lenda þyrfti á Egilsstöðum vegna
veðurs. Þar var hálfrar stundar
töf meðan eldsneyti var bætt
á vélina, en síðan flogið áfram til
Vogeyjar. Þaðan eru samgöngur
erfiðar vegna vegagerðar til
Þórshafnar og tók ferðin því
lengri tíma en annars. Varð fyrst
að fara í bíl um Vogey, svo í bát
og síðan aftur í bíla, því að
vegakaflarnir ná ekki saman.
Klukkan að ganga fimm komu
leikararnir loks til Þórshafnar og
áttu þá eftir að búa sig fyrir sýn
inguna eftir erfiða ferð.
Eins og áður segir voru undir
tektir áhorfenda mjög góðar. Að
lokinni sýningu þakkaði Sveinn
Einarsson, leikhússtjóri Leikfé-
lagsins, áhorfendum móttökurn
ar og leikfélaginu í Færeyjum
og Færeysk-íslenzka félaginu fyr
ir aðstoð þess. Sveinn afhenti
leikfélaginu málverk eftir Stein
þór Sigurðsson, listmálara, sem
jafnframt er leiktjaldamálari
Leikfélags Reykjavíkur. Formað
ur leikfélagsins í Færeyjum þakk
aði og færði leikurum blóm. Síð
an ávarpaði formaður Færeysk-
íslenzka félagsins leikarana og
þakkaði þeim komuna.
Síðar um kvöldið hófst sam-
kvæmi 1 á vegum Færeysk-ís-
lenzka félagsins og var öllum ís-
lendingum boðið þangað. Voru
margar ræður fluttar. Meðal
þeirra, sem tóku til máls, voru
formaður færeyska leikfélagsins,
Sigurður Jónsson, Erlendur Pat
ursson, fjármálaráðherra, Bryn-
jólfur Jóhannesson o. fl. Að borð
haldi loknu var stiginn færeysk
ur dans fram eftir nóttu.
á Akur-
júnl
1. Sesselja Einarsdóttir, Akra-
nesi, 8,69, 2. Guðrún Jónsdóttir,
ísafirði, 8,67, og 3. Eiríksína Ás-
grímsdóttir, Siglufirði, 8,52. Ur
stærðfræðideild: 1. Haraldur Jó-
hannesson, Suðureyri, 9,29, 2.
Bragi Ólafsson, ísafirði, 9,08 og
3. Jóhann Heiðar Jóhannsson,
Siglufirði, 8,51.
Námsverðlaun fengu þessir
stúdentar:
Úr Hjaltalínssjóði (fyrir kunn-
áttu í ensku); Anna Hauksdóttir.
Frá íslenzka stærðfræðafélag-
inu: Bragi Ólafsson, Guðjón Sam
úelsson, Haraldur Jóhannesson
og Þengill Oddsson.
Frá Dansk-íslenzka félaginu:
Jóhann Heiðar Jóhannsson.
Úr Minningarsjóði Þorsteins J.
Halldórsson (fyrir vaskleik í
námi og íþróttum): Guðjón Sam-
úelsson og Karlína Malmquist.
Kveðjur bárust frá 20 ára stúd-
entum ásamt 20 þúsund króna
minningargjöf um látna bekkjar-
systur, frú Inger Schiöth, og
skyldi gjöfinni skipt milli 4
stúlkna í nýstúdentahópnum,
sem fram úr sköruðu um náms-
gáfur og prúðmannlega fram-
komu. Þær voru þessar: Eirík-
sína Ásgrímsdóttir, Guðrún Jóns
dóttir, Ingibjörg Möller og Sess-
elja Einarsdóttir.
Fulltrúi stúdenta frá 1962,
Hreinn Pálsson, stud. jur., af-
henti skólanum að gjöf vandaða
bók með tréspjöldum til minning
ar um bekkjarbróður þeirra Sig-
urð Guðmundsson, sem fórst af
slysförum fyrir ári, og er vanga-
mynd hans skorin framan á bók-
ina. í bók þessa skal latínudux
á stúdentsprófi ár hvert rita nafn
sitt og enn fremur eitthvað frá
eigin brjósti á latínu. Núverandi
latínudux er Páll Sigurðsson, og
hlaut hann bókaverðlaun, sem
fylgdu gjöfinni
Auk framangreindra verð-
launa hlutu svo ýmsir stúdentar
bókaverðlaun fyrir umsjón og
félagsstörf.
Þá kvaddi sér hljóðs fulltrúi
30 ára stúdenta, Jakob V. Haf-
stein, flutti skólanum kveðjur og
þakkir og afhenti málverk af Þór
arni Björnssyni, skólameistara,
málað af Örlygi Sigurðssyni. Skal
það vera í vörzlu skólameistara-
hjónanna, meðan þeirra nýtur
við, en varðveitást síðan í salar-
kynnum skólans.
Fulltrúi 25 ára stúdenta, Jó-
hann S. Hannesson, skólameistari,
talaði næstur og afhenti skólan-
um að gjöf gott safn orðabóka
og annarra handbóka, sem geym-
ast skal í bókasafni nemenda og
vera þar tiltækt til afnota.
Vilhjálmur Emarsson, fulltrúi
10 ára stúdenta, færði skólanum
fullkomið safn skólablaða, sem
gefin hafa verið út, prentuð og
fjölrituð, af nemendum M.A. frá
upphafi.
Allir þessir ræðumenn minnt-
ust skólans og dvalar sinnar inn-
an veggja hans með miklum hlý-
hug og þakklæti.
„— Nú eru uppi háværar kröf-
ur um styttingu vinnudagsins,,
en þó kalla verkefnin hvarvetna
á starfaridi hendur. Ég sé ekki
betur en hér æpi mótsagnirnar
hvor gegn annarri. Vegna fámenn
is þjóðarinnar er hver einstak-
lingur á íslandi miklu meira virði
en annars staðar. Það er líka
megimkosturinn við að vera ís-
lendingur. Við þurfum að vinna
meira og betur en aðrar þjóðir.
Við verðum að vinna þau verk,
sem fsland heimtar af okkur, ef
við viljum vera íslendingar.
Hugsið ekki um það, sem þið
eruð búin að vmna, heldur hitt,
hvað er ógert. Verkefnin eru
næg. —
„— Nú höfum við minni sam-
skipti við náttúruna en áður fyrr,
en því meiri mannleg samskipti,
og þá helzt peningaleg. í því
felast hættur og freistingar, sem
íslendingar virðast ekki við-
búnir að standast. Það, sem
áður voru hyggindi í samskiptum
við náttúruna, verður nú að
klókindum í viðskiptum við
mennina, það að leika á náung-
ann og beita gáfum sínum til
þess. Náttúran lét ekki leika á
sig í gamia daga. Heiðarleiki í
vinnubrögðum og samskiptum
manna á miili er það, sem við
"þörfnumst mest. Ég óska þess,
að þið eigið þá mannslund að
sigra hættur mannlegra sam-
skipta og standast þær freisting-
ar, sem þeim eru samfara.
Mikið fjölmenni var við skóla-
slitaathöfnina, m.a. fjöldi afmæl-
isstúdenta og foreldra ný-
stúdenta, auk annarra gesta.
Sv. P.
Hans G. Andersen, sendiherra I Osló og frú hans, bjóða Halvard Lange, utanríkisráðherra Nor-
egs, og frú, velkomin til þjóðhátíðar í sendiherrabústaðnum.
Gestakvæmt í íslenzka
sendiráðinu ■ Osló
Einkaskeyti til Mbl. frá
fréttaritara í Osló, 18. júní
FLEST Oslóarblöðin birtu í
gær viðtöl við Hans G. Ander-
sen, sendiherra íslands í Nor-
egi, í tilefni af þjóðhátíðar-
degi íslendinga, og önnur blöð
birtu greinar um land og þjóð.
Telja þau framfarir, sem orð-
ið hafa á íslandi, stórathyglis-
verðar, þrátt fyrir baráttu við
dýrtíðina.
Aldrei hafa jafnmargir kom
ið í móttöku sendiráðsins 17.
júní og nú. Meðal 300 gesta,
sem sóttu sendiherrahjónin
heim voru ýmsir sendiherrar
erlendra ríkja í-Osló, rúmlega
100 íslendingar og 150 Norð-
menn. Meðal þeirra voru Hal-
vard Lange utanríkisráðherra,
Brynjulf Bull, forseti borgar-
stj órnarinnar í Osló, fulltrúar
Norsk-islandsk samband og
Norræna félagsins. Veður var
með afbrigðum gott og þótti
móttakan takast mjö gvel.
liiiiiiiiiiiiiiimiiiiiitiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiiiiiiiiiimmimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmmimmimimmmiimmmimmHu