Morgunblaðið - 11.07.1964, Blaðsíða 4
4
MORGU N BLAÐIÐ
i
Laugardagur 11. júlí 1964
Hlaða — fjós
eða skúr ca. 60—100 ferm.
óskast fyrir iðnað í bænum
eða nágrenni hans. — Upp
lýsingar í síma 24820.
Stúlka óskast til að leysa af í sumarfrí- um. Uppl. í kaffisölunni, Hafnarstræti 16.
Bíll — Leiga Vil taka bíl á leigu í 10 daga. Sími 17351.
Svefnbekkir -- svefnsófar — Sófasett BÓLSTRUN ÁSGRÍMS, Bergstaðastr. 2. Sími 16807
Hestamenn Hnakkar, beisli og fleira til reiðtýgja, til sölu. Uppl. í síma 51559.
Húsnæði 3 herb. íbúð óskast til leigu sem fyrst. Reglusemi og góð umgengni. — Sími 32379.
/ Keflavík Vegna sumarleyfa- verður lokað frá 20. júlí til 10. ág. Efnalaug Keflavíkur.
Tveggja herb. íbúð óskast til leigu. Þrennt í heimili. Fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 36563, eftir kl. 7 á kvöldin.
Lokað vegna sumarleyfa frá 13. júlí til 27. júlí. Stúdíó Guð.mundar Garðastræti 8.
Kvöldvinna Stúlká Sskar eftir kvöld- vinnu fimm daga vikunnar. Verzlunarmenntun. Uppl. í síma 24937.
Miðstöðvarkatlar o*r brennarar til sölu. Uppl. eftir kl. 1 í dag í síma 17317.
Vespa í ágætu lagi, til sölu. — Sími 17233.
Samkomor Almennar samkomur Boðun fagnaðarerindisins á morgun (sunnudag), að Austurg. 6, Hafnarf. ki. 10 f.h. Hörgshlíð 12, Rvík kl. 8 e.h.
Almenn kristileg samkoma á bænastaðnum Fálkag. 10, kl. 4 sunnudaginn 12. júlí.
A T II U G I Ð að boríð saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglysa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum.
ÉG bý á háum og helgum stað, en
einnig hjá þeim sem hafa sundur-
marinn og auðmjúkan anda (Jes. 57,
15).
f dag er laugardagur 11. júlí og
er það 193. dagur ársins 1964. Eftir
iifa 173. dagar. Benediktarmessa á
sumar. Árdegisháflæði kl. 7:36.
Bilanatilkynningar Bafmagns-
veitu Heykjavíkur. Sími 24361
Vakt allan sólarhringinn.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki vikuna 20.—27. júní.
Slysavarðstofan í Heilsuvernd-
arstöðinni. — Opin allan sólar-
hringmn — sími 2-12-30.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunn, vikuna 11. júlí til 18. júli.
Neyðarlæknir — simi: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h, alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alia
virka daga kl. 9:15-8 iaugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga fra 'kl.
1-4 e.h. Simi 40101.
Nætur- og helgidagavarzla
lækna i Ilafnarfirði í júlímánuði
aðfaranótt þess:
7/7 Bjarni Snæbjörnsson, simi
50245. 8/7 Josef Ólafsson, sími
51820. 9/7 Eiríkur Björnsson, sími
50235. 10/7 Jósef Ólafsson, sími
51820. 11/7 Eirikur Björnsson,
simi 50235.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavikur eru opin alla
virka daga kl. 9-7, nema laugar-
daga frá ki. 9-4 og helgidaga
frá kl. 1-4. e.h.
Orð flfsins svara I slma 10000.
Safnhús Árnessýslu
' ‘i t /tW/r— f. ww rrt.tr/tt t/r/r
FRÁ því var skýrt um daginn,
að reist hefur verið Safnhús Ám
essýslu á Selfossi. Á annarri
myndinni má sjá húsið að utan,
en það er liið reisulegasta. Á
hinni myndinni sér á málverka-
safnið, en það er myndað utan
um hina höfðinglegu gjöf frú
Bjarnveigar Bjamadóttur, sem
Messur á morgun
Munkabverárkirkja í Eyjafirði, og er myndin tekin, þegar
kirkjan áltti 100 ára afmæii.
Keflavíkurprestakall
Messur falla niður í júlí-
mánuði vegna sumarleyfis
séra Björns Jónssonar.
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Messa kl. 10:30. Séra Krist-
inn Stefánsson.
Kristsskirkja í Landakoti
Messur kl. 8:30 og og kl. 10.
Hallgrímskirkja
Messa kl. 11. Séra Jakob
Jónsson.
Fríkirkjan í Reykjavík
Messa kl. 2. Séra Þorsteinn
Björasson.
Elliheimilið
Guðsþjónusta kl. 2. Séra
Jón Skagan fyrir altari.
Séra Jón Pétursson í stól.
Heimilispresturinn.
Hafnir
Messa kl. 2. Séra Jón Árni
Sigurðsson.
Mosfellsprestakall
Messa að Lágafelli kl. 2.
Séra Bjarni Sigurðsson.
Dómkirkjan
MessarTd. 11, Séra Óskar J.
Þorláksson.
Neskirkja
Nú er messutími kl. 11
vegna útvarpsins. Séra Jón
Thorarensen.
Kirkja Óháða safnaðarins.
Messa kl. 11 árdegis (Þetta
er síðasta m.essa fyrir sumar-
leyfi. Athugið breyttan messu
tíma). Séra Emil Björnsson.
Ásprestakall
Almenn guðsþjónusta í Laug
arásbíói kl. 11. Séra Grimur
Grímsson.
Háteigspreskall
Messa í Hátíðarsal Sjó-
mannaskólans kl. 11. Séra
Jón Þorvarðsson.
Fíladelfía, Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 8:30. Ás-
mundur Eiríksson.
Fíladelfía, Keflavík
Guðsþjónusta kl. 2. Harald-
ur Guðjónsson.
VISIJKORN
Blíðuatlot þrái ég þin,
þau era lífsins yndi.
Um þig snýst ég, elskan mín,
eins og rella í vindi.
Stefán Stefánsson,
Siglufirði.
Laugaidagsskrítla
í einu af Suðurríkjunum kom
kvinna ein fasmikil inn á skrif-
stofu borgarstjóra og bað um
leyfi til að bera skamm/byssu.
„Komið eftir klukkutíma, þá
verður búið að ganga frá forms-
atriðunum“.
„Má ekki vera að því, ég verð
þá heldur að nota hníf."
70 ára er í dag Sigríður Guð-
jónsdóttir Suðurlandsbraut 82.
Hún verður að heiman í dag.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband í Dómkirkjunni ung-
frú Erna Jóhannsdóttir og Karl
E. Vernharðsson sjómaður. Heim-
ili þeirra er að Hátúni ð. Ljós-
mynd Studio Gests Laufásvegi
18.
70 ára er í dag Magnús Guð-
mundsson, starfsmaður Alþýðu-
hússins, til heimilis að Kvisthaga
16.
í dag verða gefin saman í hjóna
band í Dómkirkjunni ungfrú Jór-
unn Magnúsdóttir (Danielssonar)
Sogavegi 92 og Stefán H. Stefáns
son (A. Pálssonar Stigalhlíð 4.
í dag verða gefin saman í
hjónaband í KópavogSkirkju ung
frú Hólmfríður Gunnarsdóttir,
blaðamaður og Haraldur Ólafs-
son, fil. kand. Faðir brúðarinnar,
séra Gunnar Árnason, gefur brúð
hjónin saman. Heimili brúðhjón-
anna verður fyrst um sinn að
Digranesvegi 6, KópavogL
FRETTIR
GESTIR frá Noregi, hæstarétta-rlöí-
maður Ragnar Horr og Haddal rit-
stjóri taka þátt í samkomu hjá Hjálp-
ræðishernum sunnudag&kvöldið kL
8:30 Auður Eir Vilhjálmsdóttir guð-
fræðingur talar. Allir velkomnir.
Séra Grímur Grimsson hefur við-
talstíma alla vírka daga kl. 6—7 eik
á Kambsvegi 35. Sími 34819.
Kvenfél. Hvítahandið fer skemmti-
ferð þriðjudaginn 14. júlí n.k. Farið
verður um Borgarfjörðinn, að Bif-
röst og víðar. \ippl. í símum: 16360;
11609 og 15138
Óháði söfnuðurinn. Ákveðin hefur
verið skeromtiferð 19. júlí. Farið
verður suður á Reykjanes. Nánar i
næstu viku.
Ráðleggingastöðin um fjölskylduá- .
ætlanir og bjúskaparvandamál að
Lindargötu 9. er opin aftur að af-
loknum sumarfríum. Viðtalstlmi Pét-
urs Jakobssonar yfirlæknis um fjöl-
skylduáætlanir er á mánudögum kL
4—6.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur fer f
skemmtiferð priðjudaginn 14. 7. frá
Bifreiðastöð íslands Upplýsingar 1
símum 14442 og 32452.
Sumardvalarbórn, sem hafa verið 1
6 vikna dvöl á Laugarási koma í bæ-.
inn þriðjudagirm 14. júlí klukkan
11—1:30 f.h. á bílastæðið við Sölvhóls-
götu. ReykjavikurUeiild Rauða Krosa
tslands.
Spakmœli dagsins
Særðar konur eru miskunnar.
lausastar allra.
B. Bjömsson.
Nýlega voru gefin saman 1
hjónaband af séra Árelíusi Níels-
syni ungfrú Helga Jónsdóttir
verzlunarmær og Gunnar Guð-
mundsson verzlunarmaður. Heim
ili þeirra er á Heiðavegi 2 Sel-
fossL (Ljósm. Sti'dip Gests Lauf
ásveg 18).
sá NÆST bezti
Við getum nefnt hann Sigurvm. Grandvar, góður og vandaður
maður, en því miður sæll í sinni trú á Rússland og elskaði Stalin.
Eftir að Stalin var allur, eignaðist Sigurvia mikia myndabók
um Rússland og var þar að finna myndir af styttum allra mikil-
menna Rússlands og margt fleira.
Kunningi Sigurvins kom í lieimsókn til hans, og vild-i nú Sigi’iv
vin sýna honum þetta mikla ritverk, sem hann dáðist mjög af,
En þá kom babb í bátinn. Krúsjeff var tekinn við stjórntaum.
unum. Kunninginn fletti bókini og segir við Sigurvir.:
„Heyrðu. hérna er engin mynd af Stalin.“
Sigurvin: „Hvað, nei, það getur ekki verið.‘‘
Tekur hann síðan bókina og fletti henni al'.ri, en Stalin fyrir-
fannst ekki.
Segir þá Sigurvin mjög mæddur:
„Mikið skollans ofstækr ex þetta!“