Morgunblaðið - 11.07.1964, Qupperneq 24
w VORUR
■****♦«♦♦♦«♦*♦»♦*♦»*»*♦»**♦♦*♦*♦♦♦*
BRAGÐAST BEZT
160. tbl. — Langardagur 11. júlí 1964
RE YK JAVÍK M*1 1000
: « «-■*« «vír .».*.* /*»!■;«,»«< Ct «X, tt 01 &<&*}*>*■',*■■
■ ' *•'+' ftí •'■'/IAW* ió ***M2
Merkur áfangi í samþykkt
aðalskipulags Reykjavíkur
BOEGARSTJÓRN Reykjavíkur
samþykkti á aukafundi sínum í
gær tillögur um aðalskipulag
Reykjavíkur að taluta, ásamt upp
dráttum. Þó óskaði borgarstjórn
með tilliti til lokaumræðu um
aðalskipulagið í september nk. að
fá nokkur atriði nánar skýrð.
Tillaga Geirs Hallgrímssonar
borgarstjóra, um þetta efni, var
samþykkt með 15 samhljóða at-
kvæðum allra borgarfulltrúa.
Létu fulltrúar minnihlutaflokk
anna í borgarstjórn í ljós ánægju
sína með skipulagstillögurnar í
öllum meginatriðum og létu í ljós
þakkir til þeirra manna, sem að
þeim hafa unnið nú um alllangt
skeið. Tillögur þessar komu fram
í greinargerð dönsku skipulags-
fræðinganna, Peters Bredsdorffs
og Anders Nyvig og Aðalsteins
Richters, skipulagsstjóra’Reykja-
víkur, en greinargerð þeirra lá
fyrir á fundinum til umræðu.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, fylgdi tillögunum úr hlaði
og skýrði einstök atriði greinar-
gerðarinnar (sbr. grein á bls. 10).
í upphafi máls síns sagði borgar-
stjóri, að höfuðatriði- þess, sem
hér væri um að ræða, hefðu áður
verið rædd í borgarstjóm og á-
kvarðanir um marga þætti þegar
nilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllimilllllllllllllltllllllllllllllllllliillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllt
Deilt um reykinga-1
bann á uppboði (
NOKKURT málþóf varð um
kafla í brunamálareglugerð-
inni á uppboði, sem taaldið
var í Toledo í Fischersundi í
fyrradag. Margt manna kom
til uppboðsins, sem hófst kl.
2 Lhúsakynnum fyrirtækis-
ins, og þar sem mikið var af
eldfiir.um vamingi á staðn-
um fékk lögreglan kvörtun
einhvers staðar að með þeim
tilmælum,- að tóbaksreyking-
ar yrðu ekki leyfðar meðan
uppboðið færi fram.
Lögreglumenn fóru á vett-
vang og mæltust til þess við
uppboðshaldarann, að reyk-
inigar yrðu bannaðar, en hann
neitaði. Tilkynnti lögreglan
slökkviliðinu þessi málalok
og fóru fulltrúar slökkviiiðs-
ins þá á uppboðsstaðinn í
fylgd lögreglunnar, en fengu
sömu svör.
Gunnar Sigurð®9on, vara-
slökvkiliðsstjóri, sem gegnir
störfum í fjarveru Valgarðs
Thoroddsen. slökkviliðsstjóra
fór þá í Toledo og fór fram
á að brunavakt yrði á staðn-
um og reykingar bannaðar.
Benti hann uppboðshaldara á
09. grein brunamálasam-
þykktarinnar, þar sem segir
meðal annars, að slökkviliðs
stjóra sé heimilt að fyrir-
skipa brunavakt þar sem
manmfjöldi er saman kominn
og eldhætta yfirvofandi, t.d.
í samkomuhiúsum, sjúkralhús-
um, skólum, markaðshúsum
o.fl. Taldi varaslökkviliðs-
inn, að í þessu tilviki væri
um markaðsihús að ræða Og
krafðist þess, að brunavakt
væri á staðnum og reyking-
ar bannaðar.
Var bann hans virt og í
gær við áframhaid upphoðs-
ins var feomið fyrir aðvörun-
armiðum á veggjunum í
Toledo.
uimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniii
verið teknar, ýmist beinlínis eða
óbeinlínis, en þó væri um ein-
stakar nýjar ákvarðanir að ræða.
Greinargerð sú, sem hér er lögð
fyrir borgarstjórn safni saman í
eina heild aðdraganda, rökstuðn-
ingi og forsendum fyrir tillögum
og niðurstöðum, sem sýnir þann
áfanga, sem náðst hefur í því að
búa aðalskipulag Reykjavíkur úr
garði. G.ert sé ráð fyrir, að gefin
verði út bók um skipulagið með
texta og kortum. Auk formála
borgarstjóra verði í 1. kafla inn-
gangsorð, í 2. kafla gerð grein
fyrir forsendum skipulagsins, í 3.
kafla markmiðum þess, í 4. kafla
meginþáttum aðalskipulagsins, í
5. kafla skipulagstillögum um
Miðbæinn og Austurbæinn, í 6.
kafla tillögur um Reykjavík vest-
an Elliðaáa, í 7. kafla skipulags-
tillögur um Reykjavík austan
Elliðaáa og í 8. kafla fram-
kvæmd skipulagsáætlunaririnar.
Auk þess kvað borgarstjóri bók
ina um aðalskipulag Reykjavík-
ur hafa inni að halda fylgiskjöl
um könnun á húsnæðisflatarmáli,
hina sameinuðu skipulagsmögu-
leika, um umferðarkönnunina og
stofnanir Reykjavíkurborgar.
Það, sem lagt væri fyrir borg-
arstjórn að þessu sinni, væri 4. og
5. kaflinn um meginþætti aðal-
skipulagsins og grundvöll að
Framhald á bls. 8
Á MYNDINNI sjást framtíð- eins Hringbraut. Tryggvagata
arumferðagötur Miðbæjar og
norðurhluta Austurbæjar.
Helztu hreytingar eru þær,
að Skúlagata verður iroð 6
akreinum. Við Kalkolfnsveg
klofnar hún í grein, sem
tengist Lækjargötu og grein
sem tengist Geirsgötu, sem
ætlazt er til að Iyft verði yfir
hafnarsvæðið. Suðurgatan
verður framlengd um Grjóta
tengist Hverfisgötu og verða
þær götur fjórar akreinar.
Amtmannsstígur tengist
Kirkjustræti og greinist efst
í Njálsgötu og Grettisgötu.
Minnkandi umferðaþýðing
Austurstrætis er undirstrikuð
með því að ökusambandið
við Lækjargötu er rofið. Mik
ilsverð viðbót við Miðbæinn
fæst í Grjótaþorpi, þar sem
þorp og tengist Geirsgötu. nú er mikið af úreltum hús-
Snorrabraut verður aukin og um.
Síldarf lokkunai -
vélar fyrir austan
STÁLVINNSLAN í Reykjavík
hefur framleitt um 40 silda-
flokkunarvélar, sem Haraldur Á.
Flug Vestf jarða-
flugs liafið á ný
ÍSAFIRÐI, 10. júlí. — feafjarðar
flugvél 'Vestanflugs er nú aftur
byrjuð flugferðir, en eins og get
ur hefur verið í fréttum, hlekkt-
is flugvélinni á í lendingu á
Bíldudal í júníbyrjun. Talsverð-
ur dráttur varð á afgreiðslu vara
hluta frá Bandaríkjunum og tafði
það viðgerð vélarinnar mikið. —
Guðbjörn Charlesson, flugmaður
eigandi vélárinnar, hefur flogið
víða undanfama daga og virðast
vera næg verkefni fyrir þessa
flugvél hér vestra. Seint í kvöld
flutti Guðbjörn sjúka konu frá
Þingeyri í sjúkrahúsið hér.
— H. T.
Vatnajökull verður móð-
urskip fyrir gríska togara
HLUTAFÉLAGIÐ Jöklar hefur
nú samið við grískt skipafélag
um sölu á kæliskipinu Vatna-
jökli, sem félagið hefur haft í
siglingum með hraðfrystan fisk
síðan 1947. Samningar hafa verið
gerðir um sölu skipsins, en frá
þeim verður ekki endanlega
gengið fyrr en við afhendingu
skipsins í Rotterdam hinn 22.
eða 23. þ.m. Er skipig Selt í nú-
verandi ástandi þess, en í næsta
mánuði mun það fara í klössun.
Vatnajökull siglir í framtíðinni
undir Líberíufána og heima-
höfn hans verður í Monrovia.
Er hugmynd hinna grísku kaup-
enda að gera skipið að móður-
skipi fyrir gríska togara við
vesturströnd Afríku, þar sem afli
togaranna yrði frystur um borð.
Haraldsson smíðaði og notaðar
hafa verið aðallega á síldarsölt-
unarstöðum við suðvesturland
og gefið góða raun. í sumar eru
í notkun slíkar flokkunarvélar
a söltunarstöðvum á Austfjörð-
um, en saltendur þar höfðu
talið, að síldin, sem þangað
berst væri of feit og meyr til
að fara í flökkunarvélina.
Á Eskifirði er nýhafin notkun
þessarar vélar og virðist uggur
saltenda austanlands hafa verið
ástæðulaus, því að vélin hefur
reynzt mjög vel. Afkastar hún
60—70 tunnum á klukkustund.
Er það tveggja brauta vél, en
nú er værttanleg á markaðin ný
vél, þriggja brauta, sem verður
50% afkastameiri. Telja saltend-
ur, sem reynslu hafa af vélinni.
að illmögulegt væri að salta síld-
ina, sem nú berst að, án hennar.
Eldgos eðo
hvað?
MARGIR gerðu fyrrspum til
Reykjavíkurlögreglunnar og
lögreglunnar í Hafnarfirði
gærkvöld um það, hvort eldar
brynnu fyrir ofan Vífilsstaði.
Voru þar einhver undur í loft
inu, sem einna helzt líktust
miklum reykjarmekkL Lög-
reglan gerði sér ferð upp fyrir
Vífilsstaði og komst að hinu
sanna í málinu, sem sé, að
óvenju lágskýjað var í Sléttu-
hlíð og skýjamyndanir með
sérkennilegum hætti.
*
ir