Morgunblaðið - 22.07.1964, Síða 15
f Miðvikudagur 22. júlí 1964
MORCU N BLAÐIÐ
15
FRETTAM YNDIK
1
Richard Nixon, forsetaefni repúblikana 1960, ræðir við Barry Goldwater, forsetaefni flokksins nú.
Myndin var tekin daginn áður en Goldwater varð fyrir valinu. Nixon hafði þá lýst fullum stuðn-
ingi við öldungadeildarþingmanninn.
IIIIII
Jomo Kenyatta gengur af síðasta fundi samveldisráðstefnunnar brezku. Fyrr um daginn hafði ver-
ið ráðizt á hann. Sir Alec Douglas Home, forsætisráðherra Breta, baðst oninberlega afsökunar á at-
burðinum. Lögreglan greip árásarmennina.
— Útlend borg
Framh. af bls. 8
tveir á því að halda um stjórn
völinn. Mangar töflur eru
þarna á veggjum. Kveikna
ljós á þeim, ef hringt er bruna
'boðum einhversstaðar í skip-
inu og sést þá strax hvar eld-
tir er laus. Má þá, með því að
þrýsta á hnapp í brúnni, fylla
viðeigandi herbergi kolsýringi
, og kæfa þannig eldinn. Þarna
| er einnig hægt að hafa sam-
| band við talstöð hvers og eins
hinna 22 björgunanbáta, sem
utan á skipinu eru. Hver bát-
ur ber 772 menn. í Hanseatic
er 34 þúsund hestafla vél, sem
drífur 2 skrúfur .Gengur skip
ið 19,5 sjómílur.
J Á þilförunum fyrir neðan
er margt að skoða. Sumsstað-
ar eru sólbaðsstólar eftir endi
löngu, annarsstaðar kaffisalir
j ©g margt fleira. Tvær sund-
j laugar eru á skipinu, önnur
! undir beru lofti, hin neðar-
j lega i skipinu. Þar eru ýmis
1 tæki tjl íþróttaiðkana. Tveir
j borðsalir eru um borð, annar
! fyrir 1. farrými, en hinn fyrir
2. farými. Þá eru 4 danssalir
©g 4 vínstúkur, næturklúbbur,
sem einnig er hægt að breyta
í kvikmyndasal, svo að nokk-
uð sé talið. Búðir, pósthús og
upplýsingaskrifstofur eru
dreifðar um sfkipið.
Að síðustu heimsóttum við
eldhúsið, sem ekki er nein
smásmíði, eins og gera má sér
í hugarlund, þegar matreiða
þarf með fullri nýtingu skips
ins fyrir 1700 til 1800 manns.
Þar hittum við fyrir yfirmat-
sveininn, Riéhard Becker, sem
hefur í sinni þjónustu 75
manns, þar af 25 sprenglærða
kokka. Er stór og mjög fall-
egur matseðill, eins og á fín-
ustu veitingahúsum erlendis,
prentaður fyrir hvern dag og
hverja máltíð, meira að segja
morgunmat. Fjöldi kræsilegra
rétta var á þeim seðlum sem
Becker sýndi okkur.
„Fáið þið ekki stundum end
ursendar steikurnar með
kvörtunum framan úr matsöl
unum frá erfiðum farþegum?“
spurðum vig yfirmatsveininn.
Hann hló við og sagði: „Það
kemur aldrei fyrir. Kokkarnir
hérna um borð í Hanseatic
eru svo pottþéttir. Það er ekki
bara ég, sem er snillingur, og
aðstoðaryfirmatsveinarnir 2
(gætið þess að kalla þá aðstoð
aryfirmatsveina, því að þeir
mundu flýja til Suður-Ame-
ríku, ef þeir yrðu kallaðir að
stoðarmatsveinar), heldur er
hér einvalalið. Nei, það kvart
ar enginn undan matnum okk-
ar.“
„Á meðan Becker átti þess-
ar samræður við okkur gaf
hann að minnsta kosti 20 fyrir
skipanir, sem hann gaf hárri
raustu, svo að heyrðist um
allt eldhúsið. Er hann greini-
lega eins og konungur i ríki
sínu þarna í eldhúsinu og ekki
fer fram hjá neinum, að hann
nýtur óblandinnar virðingar,
því að kokkarnir hlupu til um
leið og hann ávarpaði þá og
flýttu sér að gera það sem fyr
ir þá var lagt.
Eftir að við vorum komnir í
land, rákumst við á hljómlist-
arfólk, sem hér var á ferð með
Hanseatic, fyrir utan veitinga
húsið Naust. Voru þau Josef
Dúnwald, hljómsveitarstjóri
við Óperuna í Stuttgart, Sonja
Schöner, söngkona við Óper-
una í Berlín, Frankfurt og
Vín, Walter Dicks, söngvari
við Óperuna í Suttgart, Sonja
Bay, söngvari við útvarpið og
sjónvarpið í Berlín, Grete
Kelling oig Achim Dúnnwald
ásamt Sigurði Björnssyni,
söngvara.
Sögðu þau, að sér fyndist
ísland mjög fallegt og sérlega
aðlaðandi land, en veðrið held
ur leiðinlegt. Vildu þau gjarna
koma aftur hingað til að fara
á laxveiðar. Þau höfðu séð
Gullfoss og Geysi og kváðu
það stórkostlega sjón. Einnig
voru þau mjög hrifin af ís-
lenzkum hestum og sögðust
vilja eignast einn eða tvo
slíka. Þau höfðu kyrmzt ís-
lenzkum hestum áður bæði í
Hamborg og Berlín. Mjög
hafði þeim þótt einkennilegt
að sjá tré hér á landi. Að síð-
ustu létu þau í ljós löngun
sína til að koma til íslands
síðar og syngja hér
Jomo Kenyatta, forsætisráðherra Kenya, varð fyrir árás í
London í fyrri viku, en þar sótti hann ráðstefnu forsætisráð-
herra samveldislandanna brezku. Myndin var tekin af Kenyáttá,
skömmu eftir árásina, sem virtist ekki fá mikið á hann, enda
slapp hann algerlega ómeiddur.
Fagnaðarlátum ætlaði aldrei að linna, er Barry Goldwater var
kjörinn forsetaefni repúblikana í Kýrhöll i San Francisco 15.
þ. m. Myndin sýnir spjöld stuðningsmanna hans, og bréfdríf-
una, sem þeytt var á loft.
Fjölmennt hérnðsmót Sjólf-
stæðismnnnn ó Ströndum
HÉRAÐSMÓT Sj álf stæðis-
manna í Strandasýslu var hald-
ið í Árnesi, Árnesihreppi s. 1.
laugardag. Samkomuna setti
Pétur Guðmundsson, bóndi í
Ófeigsfirði en Vígþór Jörunds-
son, skólastjóri, Hólmavik for-
maður Fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
félaganna í Strandasýslu stjórn-
aði síðan mótinu.
Dagskráin hófst á einsöng
Guðmundar Guðjónssonar,
óperusöngvara, undirleik annað-
ist Skúli Halldórsson, tónskáld.
Þá flutti Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins ræðu. Síð-
an söng Sigurveig Hjaltested,
óperusöngkona einsöng, því
næst flutti Ingólfúr Jónsson,
landbúnaðarráðherra ræðu. Að
lokinni ræðu ráðherrans
skemmti Ævar Kvaran, leifcari
og að lokum sungu þau Sigur-
veig Hjaltested og Guðmundur
Guðjónsson tvísöngva.
Ræðumönnum og listafólkinu
var mjöig vel tekið af áheyrend-
um. Samkomunni lauk svo með
dansleik.
Mótið var hið ánægjulegasta
og mjög fjölsótt, kom fólk um
laniga vegu að úr sýslunni.