Morgunblaðið - 28.08.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.08.1964, Blaðsíða 1
24 siður 51 árgangur 200. tbl. — Föstudagur 28. ágúst 1964 Prentsmiðia Morgunblaðsins Krúsjeff í Prag Vecfair errn að Kinverjum Prag, 27. ágúst (AP—NTB). NIKITA Krúsjeff, • forsætisráð- herra Sovétríkjanha, kom í dag í opinbera heimsókn til Prag í boði stjórnar ■ Tékkóslóvakíu. Þúsundir borgarbúa fögnuðU ráð herranum er hann ók um götur höfuðborgarinnar. Mun Kúsjeff dveljast í Tékkóslóvakíu í tíu daga, en tilefni heimsóknarinn- ar er að 20 ár eru liðin frá því að landið losnaði undan oki naz- ista. «Kom Krúsjeff raeð fríðu föruneyti, og meðal annarra er Andrei Gromyko, utanrikisráð- herra í fylgd með honum. Krúsjeff kom með flugvél frá Moskvu, og tök Antonin Novotny, forseti, á móti gestinum á flug- vellinum. Óku leiðtogarnir síð- an saman inn í borgina og er talið að um 100 þúsund manns hafi verið saman komnir með- fram götunum, sem ekið var um, til að fagna gestinum. Á aðaltorgi Prag var mikill mannfjöldi saman kominn, * en þar steig Krúsjeff í ræðustól og flutti ávarp. Og í ávarpi þessu réðist Krúsjeff harkalega á Kín- verja, sem hann sagði 'að vildu kljúfa kommúnistahreyfinguna og eyðileggja eininguna, sem ríkt hefði innan kommúnista- flokka heims. I Peking reyna þeir nú að nota sérhvert alþjóða vandamál til að skapa glundroða í heimi komm- únismans og til að vekja van- traust milii flokkanna. Kín- versku kommúnistaleiðtogarnir gera allt til að eyðileggja efna- hags- og stjórnmálastarf okkar, jafnhliða því sem þeir hafa ekkert á móti beinum samning- um við heimsvaldasinnana, ef þeir þjóna þjóðarhagsmunum þeirra“, sagði Krúsjeff. Taldi hann að þessi stefna Kinverja væri mjög þóknanleg heimsvalda sinnum og auðvaldi Vesturveld- anna. Þessi símamynd frá AP var tekin í Atlantic City í fyrrinótt þegar ákveðið var að Lyndon B. Johnson og Hubert Humphrey yrðu í kjöri fyrir demókrataflokkinn við forsetakosningar í haust. Johnson og Humphrey gegn Goldwater og Miller Hiobert Humphrey varaforsetaefni demókrata LANDSÞING bandaríska Demókrataflokksins sam- þykkti í nótt (eftir ísl. tíma) með lófataki að Lyndon B. Johnson skyldi vera fram- bjóðandi flokksins við for- setakosningarnar í haust. — í»egar samþykkt þessi hafði verið gerð gekk forsetinn í þingsal og tilkynnti að hann hefði kosið sér Hubert Humphrey, öldungadeildar- þingmann frá Minnesota, sem varaforsetaefni. Var þessari yfirlýsingu forsetans fagnað með hrópum og langvinnu lófataki þingfulltrúa. Johnson forseti, sem verður 56 ára í dag, mun flytja þing- inu ávarp í kvöld eftir að minnzt hefur verið Kennedys fyrrum forseta. Verður það sennilega um kl. 1,30 í nótt (isl. tími). Johnson og Humphrey komu saman til landsþingsins frá Washington, og vissu þing- fulltrúar ekki fyrirfram hvern Johnson kýsi sem varaforseta- efni þótt líklegast hafi verið talið að Humphrey yrði fyrir valinu. £>iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinmiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii £= jr = I Ihaldsmönnum ( spáð sigri London, 27. ágúst (AP) VEGNA þingkosninganna í Bretlandi í haust er stöðugt verið að kanna hugi kjósenda þar og reyna að spá fyrir um úrslitin. Skoðanakannanir fara fram vikulega, og úrslit þeirrar síðustu voru birt í dag. Sýnir sú könnun að mjótt er á mununum og vafa- samt hvor flokkurinn hlýtur meirihluta. Skoðanakönnun þessi var gerð á vegum dagblaðsins Daily Mail, og segir blaðið að ef kosningar yrðu haldnar í dag væru mestar líkur fyr- ir því að íhaldsflokkur sir Alec Douglas-Home, forsæti- isráðherra, hlyti um 50—60 þingsæti meirihluta. Segir blaðið að frá 1061 hafi allar skoðanakannanir sýnt meiri- hlutafylgi við stjórnarand- stöðuna, verkamannaflokk- inn, þar til nú að dæmið sé að snúast við. Niðurstöður Daily Mail eru þær að íhaldsflokkurinn muni fá 48,8% atkvæða, verka- mannaflokkurinn 44,9% og frjálslyndir 5,5%. Kosningar eiga að fara fram í Bretlandi fyrir 5. nóv- ember n.k. en talið er að stjórnin muni efna til þeirra í október. UllllllllllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllbilitillliPtiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu Þótt þingfulltrúar hafi fagnað vali Johnsons, voru ekki allir flokksmenn á sama máli. George Wallace, ríkisstjéri í Alabama og eindreginn andstæðingur John- son í kynþáttamálum, var stadd- ur í Cleveland, Ohio, þegar fregn in um að Humphrey yrði vara- forsetaefni barst út. Sagði Wallace þá við fréttamenn að þetta val Johnsons ætti ef.tir að skaða flokkinn og hafa mikil áhrif í Suðurríkjunum. Aðspurð- ur hvernig hann hyggðist greiða atkvæði í kosningunum í haust svaraði Wallace: „Ég veit það ekki. Ég ætla að bíða og sjá til eins og aðrir íbúar Alabama." Johnson sjálfur segir um þetta val sitt: „Þetta er ekki gert til að skapa jafnvægi. Humphrey er bfezti maðurinn í Bandaríkjun- um í þetta embætti.“ Eftir að tilkynn-t hafði verið á flokksþinginu um framboð Jóhnsons og Humphreys urðu þar mikil fagnaðarlæti. Uþphaf- lega var ætlunin að þingfulltrú- Framhald á bls. 23. Fellibylurinn „Cleo“ hefur gengið yfir Karibíska hafið undaH- farna dag og valdið miklum spjöllum. Þessi mynd var tekin í Ponce, á eyjunni Puerto Rico á þriðjudag, og sýnir þegar björg unarmaður var að bera ungbarn í var áður en ofviðrið skall á. Þriggja manna herforingjaráö tekur við völdum í S-Vietnam Khanh, fyrrum forseti, á sæti í ráðinu Saigon, 27. ágúst (AP-NTB) HERSTJÓRNIN í Suður Viet nam hefur nú skipað þriggja manna herforingjaráð til að fara með vcM í landinu fyrst um sinn, eða þar til kosning- ar hafa farið fram í landinu, en kosningar fara fram innan tveggja mánaða. í herfor- ingjaráðinu eiga sæti Nguyen Khanh, fráfarandi forseti landsins, Tran Thien Khiem, hershöfðingi og fyrrum varn armálaráðherra, og Duong Van Minh, hershöfðingi, sem eitt sinn var forseti landsins. Götubardagar yoru háðir í Saigon daglangt í dag og er vitað að sex manns létu lífið en 30 særðust. Óeirðirnar í Saigon hófust þegar fjöldi stúdenta og Búdda- trúarmanna gerði aðsúg að að- Framh. á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.