Morgunblaðið - 28.08.1964, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.08.1964, Blaðsíða 14
14 MORG UN BLAÐIÐ Föstudagtrr 28. ágúslrl964 Guðrún Stefánsdóttir Minniitg GUÐRÚN andaðist þann 21. ágúst síðastliðinn, eftir stutta legu. Hún verður jarðsungin þ.a. 28. þ.m. að Reynivöllum, þar sem maður hennar hvílir. Guðrún var 1 16. sept. 1876 og því tæplega 88 ára er hún lézt. Foreldrar hennar voru, Guð- björg Guðmundsdóttir frá Hvíta nesi í Kjós, og Stefán Stefánsson í Blönduholti, einnig í Kjós. Guð- rún giftist Gesti Bjarnasyni 16. maí 1903. En foreldrar Gests voru, Þórdís Gestsdóttir og Bjarni Jónsson frá Neðra-Hálsi í Kjós. Hófu þau búskap að Mið- dalskoti vorið 1903 og bjuggu þar í tæp 20 ár. Fluttust þaðan að Hjarðarholti í Kjós, sem er afbýli frá Meðalfelli og bjuggu þar til ársins 1954, er Gestur andaðist. Eftir það bjó Guðrún í Hjarðarholti með börnum sín- um, þó aðallega Bjarna, syni þeirra hjóna, þar til hann tók við búi, og býr hann þar enn. Þau eignuðust 8 börn, 3 dætur og 5 sonu, sem ÖH eru á lífi. En þau eru þessi: Stefanía Guðbjörg, Þórdís og Ásbjörg, allar í Reykjavík. Grímur, bóndi á Grímsstöðum í Kjós, Bjarni bóndi í Hjarðar- holti, Guðmundur og Stefán búsettir í Reykjavík, og Gísli í Kópavogi. En hjá honum dvaldi Guðrún, og konu hans Stefaníu, hin síðustu árin. Öllum þessum börnum komu þau vel til manns. Á þeim árum, sem börn þeirra voru að alast upp var lítt eða ekkert um el.lilaun eða barnalíf- eyri. Það er því næsta óskiljan- legt hvernig þessi hjón komu upp svo stórum barnahóp án hjálpar annarra. En því aðeins var það hægt með því að leggja hart að sér, og viðhafa sérstaka sparsemi. Og þó gjörðu þau mörg um gott af sínum litlu efnum. Gestur var einstakur þrifamað- ur, og hef ég fáa séð ganga eins vel um hey að vetrarlagi sem hann, og svo var um handbragð hans allt, og má segja að það hafi gengið í ættir til eftirkom- endanna. Voru þau hjón mjög samhent um uppeldi barna sinna. Þeir sem muna Hjarðarholts- býlið þegar Guðrún og Gestur komu þangað fyrst, sem var að- eins litið kotbýli. Þá er munur- inn svo mikil'l nú, að vart er hæ>gt að lýsa því, svo hefur það um- skapast á þessum árum bæði af byggingum og ræktun. Og á Bjarni sérstaklega sinn óskipta hlut í þessum umbótum. Með Guðrúnu er góð kona geng in, sem öllum vildi vel, er hún til náði. Var hún sérstakléga glaðlynd hversdagslega, þó að ekki virtist lífið alltaf brosa við henni, hvað við kom efnahagnum á stundum. Nú er hún kvödd með einlægri þökk frá nánustu ætt- mönnum og sveitungum öllum. „Þín hin mörgu æfiár okkur ber að muna og þakka, launin veitir Herrann hár, heyrir bæn og skilur þrár. Þitt hins vei'ka þeirrar tár, því til ferðar máttu hlakka. Þín hin mörgu æfiár, okkur ber að muna og þakka.*‘ St. G. Þakka hjartanlega auðsýnda vináttu, gjafir og góðar óskir á 80 ára afmæli mínu 5. ágúst síðastHðinn. Guð blessi ykkur öll. Vilhelmína Guðmundsdóttir, Kirkjuvegi 88, Vestmannaeyjum. Hjartanlega þakka ég vinum mínum og vandamönn- um góðar gjafir, heimsóknir og ástúðlegar kveðjur á 70 ára afmæli mínu 24. ágúst s.l. Haraldur Sigurðsson, Hrísateig 4. Eiginmaður minn EVVINDUR ÞÓRARINSSON andaðist á sjúkrahúsi Véstmannaeyja þann 25. ágúst síðastliðinn. Lilja SigurSardóttir... Konan min elskuleg MARGRÉT ERLENDSDÓTTIR andaðist að sjúkrahúsi Akraness 27. ágúst 1964. Halldór Arnason. Faðir okkar og tengdafaðir ARI JÓNSSON Patreksfirði, sem andaðist mánudaginn 24. ágúst verður jarðsettur frá Eyrakirkju Patreksfirði laugardaginn 29. ágúst kl. 1,30. Júlíana Aradóttir, Þórhallur Arason, Una Aradóttir, Ingólfur Arason, Erna Aradóttir, Steingrímur Arason, Jón Arason og tengdabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma INGIBJÖRG BRANDSDÓTTIR verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði laug- ardaginn 29. ágúst kl. 10,30 f.h., en ekki kl. 2 eins og áður var auglýst. Fyrir mína hönd, barna hennar og tengdabarna Erla Pálsdóttir. Jarðarför móður okkar SIGRÍÐAR EINARSDÓTTUR Sólhlið 3, Vestmannaeyjum, Sjötug í dag Ölafía Einarsdóttir FORRÁÐAMENN Dómkirkju- safnaðarins hefðu fegnir viljað heiðra formann sinn, frú Ólafíu Einarsdóttur, á sjötugsafmæli hennar. En þess er lítill kostur, því að afmælisdaginn heldur hún á sjúkrabeði. Gaman hefði verið að sækja hana heim, hina glaðlyndu, hug- sterku konu, njóta sem marg- sinnis fyrr mikillar rausnar hennar og sjá hana sjálfa njóta þess að vera umvafin vinarhug og þakklæti margra. En nú verð- ur hún að láta sér nægja að finna ylinn af ótal hlýjum óskum og bænum, og við vinir hennar verðum að láta vinarhug tjá henni það, sem handtak og orð hefðu ella átt að votta henni. Ólafía fæddist Reykvíkingur þennan dag fyrir 70 árum af góð- um foreldrum, Guðleifu Erlends- dóttur og Einari Ketilssyni skip- stjóra. Starfsárin öll hefur hún lifað í Reykjavík. Og þótt hugur hennar geymi minningar um glaða æskudaga vestur á Mýrum og kyrrlátar stundir við víðsýni Álftaness, er hún Reykvíkingur fyrst og fremst, hefur unnið þar, unnað og starfað. Hún lauk stúdentsprófi órið 1915 og vinsælda mikilla hefur hún notið bekkjarsystkina sinna og skólafélaga. Þeir mannkostir hafa snemma komið í ljós, sem mikilla vinsælda hafa aflað henni. Hún giftist ung Pétri Lárus- syni, fulltrúa í skrifstofu Alþingis og tónlistarunnanda og tónlistar- iðkanda miklum, eins og hann átti kyn til. Það bjarmar enn af svip hennar og róðurinn verður bjartari, hlýrri, þegar hún minn- ist Péturs. Hún varð honum mikil kona og góð og börnum sínum á sama hátt mikil móðir og góð. Frú Ólafía hefur starfað mikið utan heimilis. Með vinkonu sinni og bekkjarsystur í Menntaskól- anum, Ástu, fyrrum sendiherra- frú í Ósló, rak hún um alllangt skeið verzlunina „Blóm og ávexti1*, og bæði þá og síðar átti hún mikið samstarf við gróður- húsa- og garðyrkjumenn. Hjartalag og trúarviðhorf frú Ólafíu hafa gert hana að sálufé- laga og sálgæzluvini margra, sem f raunir höfðu ratað. Þeir fundu hve hjarta hennar sló. Við þá gat hún þrásinnis sagt hið rétta orð á réttri stundu og liðsinnt á þann hátt, sem reyndist beztur. Og trúarviðhorfin leiddu hana til starfs fyrir Dómkirkjusöfnuð- inn. í kvennanefnd hans hefur hún starfað áratugi, í sóknar- nefndinni hefur hún verið sl. 8 ár, og formennska safnaðarina var henni falin fyrir 5 árum. Trausti hefur hún ekki brugðizt. Starfshugurinn hefur verið ein- lægur, fórnarlundin mikil og starfshæfni á marga lund. En síð- astliðið ár hefur heilsubilun verið henni mikill fjötur og bannað henni að lyfta átökum, sem hún ætlaði, einkum að breytingum á gamla kirkjuhúsinu til bóta og nýrra möguleika fyrir safnaðar- starfið. Ég vejt, að nú saknar frú Ólafía þess, að hafa verið hindruð frá að leysa viðfangsefni, sem hún hafði einsett sér að ljúka á þessu ári. Hún hefur á margan hátt fag- urlega sýnt kærleika sinn til gömlu Dómkirkjunnár. Hún er trúkona og ann jafn- framt víðsýni og frjálslyndi í trú- málum, fastheldin á gamlan, dýr- mætan trúararf, en gætir þess þó um leið, að gömul arfleifð verði ekki steinn í götu sannleikans. Yfir 70 ára dag með skuggum og skini horfir hún heiðri, glaðri sjón, og heiðri sjón horfir hún fram á veginn, sátt við Guð og menn, sátt við lífið og sátt við dauðann, engillinn sem leiðir inn í ljós annars dags. Við öll, sem að safnaðarmálum Dómkirkjunnar vinnum, erura þér þakklát, elskulega frú Ólafía, fyrir störfin og biðjum þér bless- unar. í sjúkrastofunni þinni I Landakoti verður hlýtt og bjart af bænum og óskum til þín í dag. Jón Auðuns. fer fram frá Lándakirkju laugardaginn 29. ágúst kl. 2 eftír h- Börnin. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför JÚNÍUSAR KR. JÓNSSONAR frá Rútsstöðum. Börn, tengdabörn og barnaböm. Þökkum af alhug þeim er auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengda- föður og afa HELGA PÁLSSONAR forstjóra, Spítalaveg 8, Akureyri. Sérstaklega þökkum við Bæjarstjórn Akureyrar þá miklu vinsemd og virðingu er hún auðsýndi hinum látna. — Guð blessi ykkur öll. Kristín Pétursdóttir, börn, tengdaböra og barnaböra. ÞVÍ er almennt ómótmælt að 'harið sé konunnar mesta prýði, en að það hafi einnig mikla þýð- ingu fyrir karlmennina hefur framtakssemi forstjóra eins trygg ingafélagsins í Chicago sýnt. Forstjóranum datt í hug að hárprúðir karlmenn ættu auð- veldara með að selja tryggingar en þeir sköllóttu. Og eins og hjá sönnum amerískum verzlunar- manni var ekki langt á milli hu^- aettu og framkvæmda. Hann kallaði til sín alla þunn- hærðu Oig sköllótta sölumenn fyr- irtækisins g tilkynnti þeim ein- faldlega að þeir værú reknir frá starfi, nema því aðeins að þeir útveguðu sér hárkollur. Félagið greiddi þær og auk þess 50 doll- ara bónus ef fólk sæi að þeir gengju með hárkollu. Sölumennirnir streymdu til 'hárkollumeistaranna. Og forstjór inn hafði á réttu að standa. Sölu mennirnir tvöfölduðu afköst sín cg allir urðu ánægðir með betri afkomu. Tími skallans hjá hin- um amerísku fyrirtækjum er lið- inn, og hárkollumeistararnir núa bendur sínar í ákafa yfir gróða- voninni, enda virðist biðlistinn efckert minnka. Ég sé það í blaðinu nú, að sænsku greiðurnar eru fram- leiddar hérna rétt hjá eða í litla bænum Femása hér í austur Götalandi. Verksmiðjan segir, að Svíarnir slíti hárið atf séx með þrem milljónum greiða á ári eða tveim per kjaft, þ.e.a.s. ef ég lea greinina bókstaflega. Engin verk smiðjuforstjóri getur sagt slíkt um framleiðslu sína. Hér hlýtur a2 vera tun prentvillu að ræða enda eru Svíar nú því sem næst 7 milljónir að töiú. Og þar að auki er þetta ekki rétt sagt heldur. Mín greiða hef- ur enzt mér örugglega í 10 ár, en máski er ég undantekningin sera staðfestir regluna. — • — Annars er manneskjan vana* dýr. Einu sinni átti ég hánbursta, svínahárs hárbursta, hin ágæt- asta af mjög einkennilegri gerð. Framhald á blá. 1>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.