Morgunblaðið - 28.08.1964, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.08.1964, Blaðsíða 23
FSstudagur 28. ágúst 1964 M O RC UN B LAÐIÐ 23 Thomas Dodd dómsmálaráðherra ef Kennedy hættir Washington, 27. ágúst (AP-NTB). TILKYNNT var í Washington í dag að Lyndon B. Johnson, for- seti, hefði skipað Thomas Dodd, öldunadeildarþingmann frá Cownecticut, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna þegar Rob- ert Kennedy lætur af störfum til að hefja kosningabaráttu sína i New York, þar sem hann verð- ur í framboði við kosningamar í haust til Öldungadeildar Banda ríkjaþings. Kennedy hefur áður tilkynnt eð ef flokksþing demókrata í New York, sejn hefst nk. þriðju- dag, samþykkir framboð hans, muni hann segja af sér ráðherra- embætti. Framboð Kennedys er talið ör- Uggt, þótt óánægjuraddir hafi heyrzt meðal flokksmaxma í New — Demokratar Frahald af bls. 1 ar greiddu atkvæði með handa- uppréttingu, en fulltrúar frá Florida lögðu til að framboðið yrði samþykkt með lófataki, og varð það úr. Komst Johnson þannig hjá því að heyra óánægju raddir frá fulltrúum Suðurríkj- anna, sem eru sumir andvígir mannréttindalögunum nýju. Eft- ir miklar umræður og deilur hafði sendinefndum Alabama og Missisippi tekizt að fá sæti á þinginu, þrátt fyrir andstöðu við Johnson, en með tillögu fulltrúa Florida var atkvæði þeirra að engu gert við tilnefninguna. John McCormac, sem er fund- arstjóri á flokksþinginu, lýsti því yfir að Johnson væri kjörinn frambjóðandi flokksins með til- skyldum meirihluta atkvæða, en til þarf tvo þriðjuhluta atkvæða. Sendinefnd Alabama reyndi að koma í veg fyrir að Humphrey yrði kjörinn varaforsetaefni með því að stinga upp á Carl Sand- ers, ríkisstjóra í Georgia, en þegar Sanders baðst undan kjori var Humphrey kjörinn einróma með lófataki. Almenht er litið svo á i Atlantic City að val Johnsons á varaforsetaefni hafi vérið vitur- legt. Humphrey hefur mikla reynslu í utanríkismálum, þar sem hann hefur átt sæti í utan- ríkismálanefnd öldungadeildar innar um árabil, og hann er mjög frjálslyndur í skoðunum. Er talið að þetta frjálslyndi hans komi flokknum að miklum not- um í Norðurríkjunum. En í Suð- urríkjunum mun tilnefning Humphreys ekki vekja sérstak- an fögnuð þar sem vitað er að hann barðlst fyrir því að fá mannréttindalögin samþykkt á eíðasta þingi. Barry Goldwater, frambjóð- endi repúblikana, sagði í dag að með tilnefningu Humphreys hefði Johnson afsannað þann orðróm að hann mundi taka upp íhaldssamari stefnu að kosning- um loknum, ef hann yrði kjör- inn forseti. Sagði Goldwater að Humphrey kæmi til með að berj est fyrir si-auknum afskiptum ríkisvaldsins af öllum fram- Jcvaemdum ef hann fengi tæki- færi til að gegna embætti vara- ^orseta. Fru J acqueline Kennedy, ekkja Kennedys forseta, kom í dag flugleiðis til Atlantic City, bg höfðu þingfulltrúar móttöku- veizlu fyrir frúna í dag. Vegna fjölda veizlugesla, sem voru 6-600, varð að skipta þeim niður í þrjá hópa. Hófst móttakan klukkan 12,30 eftir staðartíma, iog lauk ekki fyrr en klukkan 17,30. I kvöld átti svo. að sýna íkvikmynd um Kennedy á flokks þinginu, en frú Jacqueline var ekki viðstödd. 1 York. Aðallega hefur verið fund- ið að því að Kennedy er ekki bú- settux í New York. Fyrir nokkru til kynnti Samuel Stratton, Full- trúadeildarþingmaður frá New York, að hann mundi keppa við Kennedy um framboðið. í dag kvaðst Stratton helzt vera að hugsa um að hætta við þetta á- form sitt, en hinsvegar ekki hætta við gagnrýni á framboð Kennedys. Næst síðasta helg- in í Arbæ ÁRBÆJARSAFNI verður lokað sunnudaginn 6. september og er það hálfum mánuði fyrr en venjulega. Hefur safnið verið opið í 12 vikur Og hafa 9000 gest- ir heimsótt það, en til samanburð ar má geta þess, að um 12000 manns skoðuðu það í fyrrasum- ar. Útlendingar og aðrir ferða- menn hafa einkum komið þar í heimsókn, en minna hefur borið á ferðum bæjarbúa þangað í sumar. Strætisvagnar ganga að safninu á sunnudögum kl. 2, 3, 4 og 5. Veitingar verða fram bom ar í Diilonshúsi. - /Jb róffir Framhald á bls. 23. Þá kennslu annast Einar Ólafs- son iþróttakennari og James Gödger körfuknattleiksþjálfari frá Vestur Caroline, sem hér dvelur á vegum Upplýsingamála þjónustu Bandaríkjanna og ann- ast kennslu hjá Körfuknattleiks- sambandi Islands. Frá kl. 17.00 til 18.30 verður leiðbeint um dómarastörf í körfuknattleik. Á kvöldin kl. 20.00 til kl. 22.00 fer fram kennsla og þjálfun í körfuknattleik fyrir iðkendur körfuknáttleiks á vegum Körfu- knattleikssambands íslands. Öllum íþróttakennurum, kon- um sem körlum, er heimil þátt- taka. Þátttaka tilkynnist fræðslu- málaskrifstofunni, Borgartúni 7, Reykjavík (sími 18340). (Frétt frá f ræðslumálaskrif stof unni). — Ævintýrið Framhald af bls. 22. ars vorum við allir skjálfandi á beinunum og riðuðum. Þegar við komum heim, vorum við allir dúðaðir í sængur og ull- arteppi og færðir í ullarnær- föt. í>á fór okkur að líða betur. — Eruð þið búnir að sækja bátinn? — Já, við sóttum hann í dag, segir Finnur. Það er bara verst, að mótorinn er allur í lamasessi. Sjórinn fór inn um púströrið á stimplana — kert- in blotnuðu og allt rafmagns- kerfið, svo að þetta er allt í . pati, maður. — Að lokum, strákar mínir, um hvað hugsuðuð þið, þegar þið voruð einir og yfirgefnir í hrakingum úti á sjó og engin hjálp sjáanleg? — Ja, ég minntist kínverska olíuskipsins, sem strandaði við Reykjanes fyrir nokki:um ár- um, segir Finnur. Þar greip , skelfingin um sig og meiri : hluti skipshafnarinnar henti ,.sér í sjóinn, — en þeir, sem hlýddu skipstjóranum björguð ust. Síðan rak skipið ,hægt og rólega að kletti, þar sem skip- . brotsmennirnir gátu rólegir gengið þurrum fótum á land! aind. Hófaspörk á nýsánum grasfleti á Klambratúni. Gálausir knapar valda skemmdum á nýræktarspildum Heiisu Segnis hrakar Róm, 27. ágúst (APý. HEILSU Antonio Segni, for- seta Ítalíu, hrakaði mjög í dag, en forsetinn fékk slag 6. ágúst s.l. og hefur verið rúmfastur síðan. Segni er 73 ára. UM alllangt skeið hafa verið talsverð brögð að því, að ríð- andi menn hafi gert spjöll í nýræktarspildum borgarinnar. Eru verkstjórar í skrúðgörð- unum mjög óhressir yfir því athæfi hestamanna að láta klárana brokka um nýsáin graslendi. Er full ástæða til að vekja athygli á slíku gáleysi, því að þegar hefur af hlotizt mikið tjón. Theódór Halldórsson, verk- stjóri í skrúðgörðunum, sagði okkur, að í vor hefði skrúð- garðadeildin verið í hreinustu vandræðum með hinar við- kvæmu grasflatir meðfram Suðurlandsbrautinni. — Þar hefðu hestamenn rótað upp grasinu og valdið á því mikl- um skemmdum. Þó eru þarna brautir, sem sérstaklega eru ætlaðar fyrir hesta. Enn nefndi Theodór sem dæmi, að eyjarnar á Miklu- brautinni hefðu verið vinsæll skeiðvöllur, þegar nýbúið var að sá í þær grasfræi. íbúum í nærliggjandi húsum gramd- ist að vonum slíkt athæfi og oft kom það fyrir, að þeir hlupu úr húsum sínum til þess að beina knöpunum á aðrar brautir og sýna þeim fram á, að eyjamar væru ekki ákjós- anlegar hlaupabrautir fyrir klárana. Mest hefur verkstjórum skrúðgarðanna þó gramizt, að sáðfletir á Klambratúni hafa ekki fengið að vera í friði. Þar hefur í sumar verið unnið að því að raka og slétta mold- ina, síðan hefur grasfræi verið sáð. — Hvað eftir annað hefur það komið fyrir, sagði Theó- dór, — að fletirnir hafa verið útsparkaðir og skemmdir eftir hestaspark, Það hefur kostað okkur mikla vinnu að iagfæra þetta, og við höfum ekki kvartað hingað til. En nú get- um við ekki orða bundizt. Þetta framferði hestamanna er blátt áfram óþolandi, og hér verða þeir að láta staðar num- ið. Þegar sést til margra hesta- manna á kappreiðum eftir ný- sánum grasflötunum, hlýtur skörin að vera farin að færast upp á bekkinn! Lóðoð d mibla síldurtorfa vestra BOLUNGARVÍK, 27. ágúst. — í gærkvöldi lóðaði Hafrún frá Bol ungarvík á mikla og þykka síld- artorfu 26 mílur NNA af Horni. Lá Hafrún lengi yfir torfunni, en ekki veiddist nein síld. Stóð hún djúpt. í dag leitaði Hafrún síldar á Jökulfjörðum, en þar hafði bátur frá ísafirði feng- ið síld í þorskanet. Þrjú önnur skip, Einar Hálfdáns, Heiðrún og Sólrún leituðu nokkru vestar, en án árangurs. Var bræla komin á miðunum í kvöld og héldu því skipin til hafnar, en með morgn- inum halda þau sennilega út aftur. Síldarleitarskipið Fanney leit- aði í Djúpinu í dag, en fór inn á ísafjörð síðdegis með bilað asdictæki. — FréttaritarL — Prestastefnan Framhald af bls. 24. argreina. 2) Prestastefnan telur nauðsyn- legt að fermingarundirbún- ingnum sé hagað þannig að persónuleg áhrif prests á börn in og tengsl hans við þau verði sem traustusL 3) Þá leggur prestastefnan á- herzlu á., að unnið verði að samræmingu fermingarathafn arinhar. Prestastefnan ályktar að fela biskupi að skipa nefnd til að gera ítarlegar tillögur um fermingarundirbúniniginn og önnur atriði er ferminguna varða, svo sem samstarf skóla og kirkju um þetta efni. Nefnd in leggi tiHögurnar fyrir næstu prestastefnu. Prestastefnan telur nauðsyn- legt, að gefnar verði út leið- beiningar um trúarlegt upp- eldi barna á heimilunum, sem afhentar verði við skírn hvers barns. Fulltrúar á prestastefnunni sóttu biskup og konu hans heim í gærkvöldi. — S-Vietnam Framhald af bls. L setri herforingjaráðsins í höfuð- borginni. Hermenn, sem voru þar á verði, hófu skothríð á mannfjöldann, og féllu þá þrír menn, en a.m.k. 12 særðust. Eft- ir þetta breiddust óeirðirnar út og voru átökin mest í nánd við útvarpsstöðina. Þar reyndu Búddatrúarmenn að ná stöðinni á sitt vald, en einnig kaþólikkar sem krefjast þess að fráfarandi stjóm Khanhs fari áfram með völd. Þar við bættust svo stú- dentar, sem háværastir hafa ver ið í því að krefjast breytinga á stjórnarfyrirkomulagi lands- ins. Strax Og þriggja manna her- foringjaráðið hafði verið skipað var birt yfirlýsing þess, þar sem skorað er á íbúa landsins að sýna stillingu og forðast frekari árekstra . Tilkynnti herfor- ingjaráðið að hershöfðingjarnir, sem farið hafa með vold í land- inu að undanförnu, hætti nú a€- skiptum af stjórnxnálum og sneru sér að nýju að störfum sínxxm innan hersins. Segir her- foringjaráðið að það muxii berj- ast gegn kommúnisma, nýlendu- stefnu og einræði. — Jarðhitarann* sóknir Framhald af bls. 13 þess verður stöðugt almennari. Þær kröfur eru studdar áliti lækna ög ýmissa félagssamtaka. Má því vænta aukins markað- ar fyrir slíkar afurðir, sem kem- ur garðyrkjubændum til góða. Með auknum jarðhita gætu þeir framleitt meira magn á fleiri stöðum en áður. Ljóst er, sagði Ásgeir að lokum, að bætt efna- leg afkoma okkar og framleiðslu aukning verður að byggjast á aukinni þekkingu og tækni. Við þurfum að öðlast fyllri þekkingu á andlagi tækninnar, í þessu falli landinu sjálfu, eðli þess og eiginleikum. Þá hafði tíðindamaðurinn tal af óskari Eggertssyni fram- kvæmdastjóra Andakílsárvirkj- unarinnar og spurði hann hvar jarðfræðingarnir væru einkum að störfxxm. Sagði Óskar að þeir hefðu að undanfömu verið í Andakílshreppi og Reykholtsdal, en myndu verða í Hálsasveit á næstunni. Óskar kvað jarðfræð- ingana ánægða með þetta frum- kvæði Borgfirðinga að hefja vis- indalega rannsókn á jarðhita i héraði sínu, og hyggðu gott til starfsins. Slik almenn rannsófcn er nýjung og hefur ekki farið hér fram, utan Hengilssvæðisins og nágrennis Reykjavíkur. - - Vig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.