Morgunblaðið - 11.09.1964, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
i
Fostudagur 11. sept. 1964
&
Sambandsráðsfundur
Ungmennafélags Islands
Hörð barátta um
Evrópubikara
Tveir af beztu sundmönnum
heims, Þjóöverjamir Hans
Joachim Klein (tii hægri) og
Gerhard Hetz. Klein setti
heimsmet í mai sl. í 200 m
skriðsundi 1.58,2 og hætti
heimsmet Bandaríkjamanns-
ins Don Soilander um 2/10 úr
sek. Hetz sem er einn frægasti
skriðsunds- og fjórsundsmað
ur heims fagnar afreki Klein.
Þessir tveir munu án efa
koma mikið við sögu í sund
keppninni í Tokíó. Verði þeir
ekki í verðlaunasætum má
mikið ganga á ef þeir verða
I ekki meðal fyrstu sex.
Fram og Þróttnr
ó laugardag
- og oðr/r nœstu
leikir
NÆSTI leikur í I. deildarkeppn-
inni er á iaugardaginn kl. 4 á
Laugardalsvelli. Þá leika Fram
og Þróttur. Þessi leikur er bar-
átta um fallsætið í I. deild.
Fram nægir jafntefli til þess að
tryggja sér setu í I. deildinni pg
þá fellur Þróttur. Vinni Þróttur
hafa Fram og Þróttur jafnmörg
stig og fram verður að fara auka
leikur um fallið.
Á sunnudaginn verður svo síð-
asti leikur í 3. umferð Bikar-
keppninnar. Keppa þá á Akur-
eyri lið Akureyringa og Fram
B-lið. Það lið er siigrar tekur
þátt í 8 liða úrslitum Bikarkeppn
innar ásamt 1. deildarliðunum
sex og B-iiði KR sem hefur
áunnið sér rétt til 8 liða úrslita
keppni.
Tveim leikjum í
1. deild Irestað
VBGNA þátttöku KR I Evrópu-
keppni meistaraliða hefur tveim
ur leikjum í L deild verið
frestað.
Mótanefndin hefur nú ákveð-
ið, að leikir þessir fari fram sem
hér segir:
Sunnudaginn 20. september
n.k. fer fram á 'Njarðvíkurvelli
leikur milli Í.B.K, og KR og
■unnudaginn 27. sept leikur
milli KR og Í_A. og fer hann
ítíuxi í Reykjavik.
14. sambandsráðsfundur Ung-
mennafélags íslands var haldinn
í Haukadal dagana 5. Og 6. sept.
Fundurinn samþykkti meðal ann
ars að fela sambandsstjórn:
Að athuga möguleika á utan-
för íþróttamanna að loknu lands-
mótinu 1965.
Að vinna að aukinni samvinnu
ungmennafélaga á Norðurlönd-
um.
Að beita sér fyrir leshringum
og spurningakeppni úr þjóðleg-
um fræðum miili héraðssamband
anna.
Að ljúka sem fyrst við fram-
kvæmdir, sem unnið er að í
Þrastaskógi, leikvallargerð og
byggingu veitingaskála.
Fundurinn hvatti héraðssam-
böndin til þess að koma á æfinga-
stöðvum og leiðbeinendanám-
skeiðum í samvinnu við íþrótta-
kennaraskóla íslands, UMFÍ og
í. S. í.
Ennfremur voru samþykktar
eftirfarandi tillögur: Sambands-
ráðsfundur beinir því til sam-
bandsfélaga um land allt að und-
irbúa sem bezt þátttöku sína í
12. landsmóti UMFÍ, sem haldið
verður að Laugarvatni dagana
3. 0^4. júlí 1965.
Jafnframt leggur fundurinn
ríka áherzlu á það, að mótsgestir
allir taki sem virkastan þátt í
mótinu með prúðmannlegri fram-
komu og reglusemi og sameinist
um það, að gera þessa íþróttahá-
tíð sem glæsilegasta, svo hún
verði æskunni til uppörvunar og
samtökunum og þjóðinni allri til
heilla og farsældar.
Sambandsráðsfundurinn vænt-
ir mikils af störfum þeirrar
nefndar, sem nú vinnur að samn-
ingu frumvarps til laga um æsku-
lýðsmál og telur mikilvægt, að
hún hraði störfum sínum.
Ennfremur minnir sambands-
ráðsfundur UMFÍ á hina miklu
og vaxandi þörf á auknu heil-
Á SUNDMÓTI í Osló á mið-
vikudag voru sett tvö norsk
met Ulf Gustavsen setti nýtt
met í 1500 m. skriðsundi,
synti á 18.03.0 sem er mjög
gott afrek. Gamla metið átti
Jon Vengel 18.12.4 — Fer
Arne Pedersen setti og norskt
met í 100 m. flugsundi synti
á 103.8 og bætti það eldra
um 7/10 úr sek.
brigðu og skipulögðu æskulýðs-
starfi í landinu. Fundurinn vekur
athygli á mikilli starfsemi ung-
mennafélaganna á þessu sviði,
sem æskilegt væri að ykist enn
að miklum mun.
Raunhæft spor i þá átt væri að
auka fjárhagsaðstoð til UMFÍ svo
hægt væri að ráða erindreka, sem
skipulegði aukið æskulýðsstarf
samtakanna og ferðaðist milli
héraðssambandanna og ung-
mennafélaga um land allt.
Fundinum lauk um hádegi á
sunnudag. Þá flutti Sigurður
Greipsson, skólastj. snjalla hvatn
ingaræðu. Eftir hádegi skoðuðu
fundarmenn skógræktina í Hauka
dal. Síðan var farið að Laugar-
vatni. Þar skoðuðu fundarmenn
hinn glæsilega íþróttavöll og aðr-
ar aðstæður í sambandi við lands
mótið undir leiðsögn skólastjóra
íþróttaskólans, Árna Guðmunds-
sonar. Þá var farið í Þrastaskóg
og skoðaðar framkvæmdir þar, —
skógrækt, leikvangur og veit-
ingaskáli. Um kvöldið sátu full-
trúar hóf í félagslundi í Gaul-
verjabæ. Þar var nýlokið keppni
í frjálsum íþróttum milli Hér-
aðssambands Snæfells og Hnappa
dalssýslu og Héraðssambandsins
Skarphéðins.
(Frá Ungmennafélagi íslands).
í FYRRINÓTT fóru fram ýmsir
leikir í Evrópukeppnunum þrem
ur í knattspyrnu, keppni meist-
araliða — sú hin sama og KR
tekur þátt í, keppni Iiða er unnu
bikarkeppni viðkomandi landa
og keppni á milli borga.
í keppni um Evrópubikar
meistaraliða urðu úrslit þessi:
í Tirana skildu jöfn Partisan
Tirana og Köln V-Þýzkal. 0^0.
í St. Etienne skildu jöfn St.
Etienne og Chauz de Fond
(Sviss) 2—2.
í Krusel vann Anderlencht
(Holland) Bolgna (Ítalíu) 1—0.
í keppninni um Evrópubikar
b'ikarsigurvegara urðu þessi úr-
slit:
Vasas Györ Ungverjalandi
vann Cherie Leipzig 4—2 og fer
í aðra umferð með samanlagða
markatölu 6—2.
Rauða Stjarna f Belgrad og
Glasgow Rangers léku í Belgrad
og vann Rauða Stjarnan með
4—2. Aukaleik þar um úrslitin
þar sem Glasigow’ Rangers unnu
heimaleik sinn með 3—1. Staðan
er því 5—5.
Þá léku í bikarkeppni „bikar-
si*gurvegara“ danska liðið Es-
berg og Cardiff. Jafntefli varð
0—0. í Magdeburg varð einnig
jafntefli milli Magdeburg og
Galastasaray (Istanbul) 1—1.
í Finnlandi fór fram kappleik-
ur milli Lýn (Osló) g Reipas
Independente
vann Inter-
nazionale 1-0
FYRRI leikur liðanna Internaz-
inale (Milan) og Independente
í Buenos Aires um heimstitil í
knattspyrnu, fór fram í Buenos
Aires á miðvikudag. Independ-
ente sigraði 1—0. Var markið
skorað á 12 mín. síðari hálfleiks.
Síðari leikur liðanna í Milano
verður síðar í þessum mánuði.
Það er orðin hefð að það lið
er sigrar í bikarkeppni Evrópu
keppi við sigurvagara í bikar-
keppni S-Ameríku um „heims-
titil“. Þetta var fyrri leikur
þeirrar keppni í ár.
(Lahti í Finnlandi) en þau dróg-
ust saman í bikarkeppni Evrópu
meistaraliða. Finnar unnu 2—1,
en Norðmenn léku 10 mestan
hluta tímans. Þetta var fyrri
leikur landanna 1 umferðinnL
r
Otal sandmenn
útílokaðir fró
Olympíu-
leikunum
ALÞJÓÐA sundsambandið ákvað
í gær að útiloka alla sundmenn
Indónesíu frá þátttöku í Olym-
píuleikunum í Tokíó ásamt 4S
sundmönnum annara landa.
Ástæðan er deila er upp reis í
fyrra vegna þess að Indónesía
lokaðir og 45 sundmenn annarra
sundsambandsins um opna þátt-
töku .í móti er var haldið þar 1
landi. Tilkynnti alþjóðasund-
sambandið þá öllum sundmönn-
um er þátt tækju í mótinu, að
með þátttöku eyðilegðu þeir rétt
sinn til þátttöku í Tokíóleikun-
um.
Indónesia sagði sig þá úr
alþjóða sundsambandinu og
sundmennirnir 45 hundsuðu að-
varanir alþjóðasambandsins Nú
í gær voru greidd atkvæði um
málið á ný hjá alþjóðasamband-
inu og úrslitin urðu að allir
sundmenn Indónesíu eru úti-
lokaðir og 45 sundmenn annrra
landa þ.e. 1 frá Búlgaríu, 7 frá
Cambodíu, 1 frá Dominica, 4
Hollendingar, 12 Japanir, 1 Sýr
lendingur og 9 Egyptar.
Svíar til Tokio
leikanna
SVÍAR eru nú að velja sitt
Olympíulið endanlega. Bað
sænska OL-nefndin um tillögur
sérsambandanna og rann frestur
til að skila þeim tilkynningum,
út í gær (fimmtudag). Sérsam-
böndin stungu alls upp á 105
íþróttamönnum. Skiptast þeir
þannig milli greina, glíma 9,
hjólreiðar 5, frjálsíþróttir 12,
fimleikar 9, kappganga 5, nútíma
fimmtarþraut 3, reiðfimi 3,
siglingar 14, sund 18, skotfimi
6 og lyftingar 3.
Ekki er talið víst að sænska
OL-nefndin taki að sér að senda
allt þetta fólk, en sérsamböndin
hafa það síðan í hendi sér hve
marga þau vilja kosta að auki,
Síðustu greinar
Meistaramótsins
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
fimmtarþraut Meistaramóts ís-
lands og 3000 m. hindrunarhlaup
fari fram á Melavellinum 15,
sept. kl. 5 síðdegis. 19. og 20.
sept kL 5 siðdegis fara svo fram
ú Melavellinum tugþraut, 4x800
m hlaup og 10 km hlaup í sama
mótL
Þátttöku ber að tilkynna til
Sameinaða í síðasta lagi 13. sept.
nk. Það er KR sem sér um mótið.
Ingo á að greiða 42
millj. kr. í skatta í DSA
INGIMAR Johansson fyrrum
heimsmeistari í hnefaleikum
hefur tapað máli er hann
höfðaði gegn skattyfirvöldum
í Bandaríkjunum fyrir of
mikla skattinnheimtu. Réttur-
inn í New Orleans hefur
dæmt hann til að greiða sem
svarar 42 millj. ísL kr. í
skatta.
Ingo hefur farið fram á að
þurfa ekki að greiða tekju-
skatt . í Bandarikjunum á
grundvelli þess að hann er nú
búsettur í Sviss og rekur allan
sinn atvinnurekstur þar.
Þetta er þó talið aðeins
bragð til að komast hjá skatt-
greiðslum í sambandi við gíf-
urlegar tekjur er hann hafði
í sambandi við þrjá kappleiki
við Flloyd Patterson um heims
meistaratitilinn.
Dómarinn í réttinum sagði
er hann kvað upp dóminn. Öll
starfsemi Ingimars í Sviss er
sett upp aðeins til þess að
losna við skatt a1 gífurlegum
tekjum í Bandarikjunum.