Morgunblaðið - 30.09.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.09.1964, Blaðsíða 1
61 ár^angur 28 siður Mikið liefur verið ritað um áhuga Rússa á flotaæfingum Atlan tshafsbandalagsins að undanförnu. Hér sést ein af rússnesku flugvélunum, sprengjuflugvél af gerðinni Bison M4, í fylgd með tveimur orustuþotum frá handaríska flugvé'an-.óðurskipinu Independence. Efri orustuþotan er af gerðinni F4B Phantom, en þær eru meðal hraðfleygustu flugvéla heims. Hin orustu þotan er af gerðinni F8U Crusad er. Handritamálið rætt í dan- ska þinginu i næstu viku Stjórn Arnasafns telur afhendinguna brot á stjórnarskránni Kaupmannahöfn, 29. sept. — (NTB) — EITT af fyrstu málunum, sem hið nýkjörna þing Danmerk- ur tekur til afgreiðslu verð- ur afhending handritanna ís- lenzku úr Arnasafni til Há- Erlendar fréttir VIEE SELJA FUOTANN London, 29. sept. — (NTB) ORÐRÓMUR er á kreiki um að gríski skipakóngurinn Stavros Niarchos hafi í hyggju að selja bandarísku útgerðar- félagi flota sinn, en í honum eru um 70 skip samtals um 2.6 millj. tonn. Ekki hefur fregn þessi fengizt staðfest hjá eigandanum. MYRTI FJÖLSKYLDU SÍNA Troy, Michigan, 29. sept. (AP) WILLIAM GRAVLIN, fyrrum slökkviliðsmaður í Troy, út- hverfi Detroitborgar í Banda- rikjunum, hefur verið hand- tekinn, grunaður um að hafa höggvið konu sína og sex börn til bana með exi og sleggju. Fundust líkin á heimili Grav- lins og samkvæmt ábending- um hans. Á hverju líki var bréfmiði með áletruninni: „Ég elska þig. Mér þykir þetta leitt, en hjá því varð ekki komizt." Gravlin var áður handtekinn fyrir tveimur ár- um og ákærður fyrir að hafa stungið mágkonu sína með hnif. Ekkert varð úr mála- ferium, en Gravlin var sendur tml geðveikralæknis. skóla íslands. Má búast við að mál þetta veki miklar deilur meðal danskra stjórn- mála- og vísindamanna. K. B. Andersen, sem tók við embætti fræðslumálaráð- herra sl. föstudag, hefur skýrt frá því að hann telji unnt að leggja fram frumvarp til laga K. B. Andersen, fræðslumála- ráðherra Dana. um afhendingu handritanna hinn 7. október, og að því frumvarpi verði ekki breytt. Hefur það mikið að segja að ekki verði gerðar breytingar á frumvarpinu, því þá gætu atkvæði þriðjungs þingmanna ráðið því að afgreiðslu máls- ins verið enn frestað þar til eftir næstu þingkosningar. Bent er á að danska stjórn- in þurfi að hraða afgreiðslu málsins, því næsti fundur Norðurlandaraðs verði hald- inn í Reykjavík í febrúar. Þar hefur þegar verið byggt yfir safnið (segir norska frétta- stofan), og prófessor Einar Ólafur Sveinsson ráðinn for- stöðumaður þess. í rauninni var afhending handritanna samþykkt á síð- asta þingi með 110 atkvæð- um gegn 39. En gildistöku laganna um afhendinguna var frestað þar til þau hefðu einnig hlotið samþykki næsta þings. En jafnvel þótt þingið sam- þykki nú að afhenda íslend- ingum handritin, og allt bend- ir til að svo verði, er málið ekki þar með úr sögunni því búast má við málaferlum. Hafa stjórnendur Árnasafns, sem eru andvígir afhendingu, lýst því yfir að þeir væru reiðubúnir að verja miklu fé til að hindra afhendingu hand ritanna. Halda þeir því fram að lögin um afhendinguna séu brot á dönsku stjórnar- skránni og eignarréttur Árna- safns óvefengjanlegur. Á heimsmarkaðinum mætti nú selja handritin fyrir um 100 milljónir danskra króna (620 Framhald á bls. 27 Rússar missa áhugann Togari og kaf< bátur fylgjast með MATO- flotanum London, 29. sept. (AP-NTB) R Ú S S A R virðast vera að missa áliugann á að fylgjast með síðasta lið flotaæfinga Atlantshafsbandalagsins, sem hófust í síðustu viku, að því er einn af bandarísku Ifota- foringjunum segir í dag. NATO-flotinn er nú á leið til Biskayaflóa þar sem æfing- unum lýkur, og var í dag út af vesturströnd írlands. Á fundi með fréttamönnum í varnar- málaráðuneytinu í London skýrði Frederick Tui'ner, capt., frá því að eftir því, sem bezt væri vitað, fylgdist að- eins einn rússneskur togari og einn kafbátur með flotanum. „Við vitum um annan togara og annan kafbát á Ermar- sundi, en -Rússar virðast vera að missa áhugann," sagði capt. Turner. Á fundinum mætti einnig Robert L. Townsend, aðmíráll, yfirmaður „Strike Force“ eða árásardeildarinnar. Kvaðst hann álíta að NATO hefði bor- ið meiri upplýsingar úr být- um vegna rússneskra skipa og flugvéla, sem fylgdust með æfingunum, heldur en Rúss- ar. Aftók hann að Rússar hafi komizt að einhverjum leynd- ardómum í sambándi við æf- ingarnar. Framhald á h'ls. 27 Verkamannaflokkurinn tapar fylgi í Noregi IVIiðflokkarnír vinna á Osló, 29. sept. — (NTB) — TALNINGU atkvæða er að mestu lokið eftir sveitar- stjórnarkosningarnar í Noregi í gær. Kosið var í 39 kjör- dæmum, og hefur verka- mannaflokkurinn og óháðir listar tapað miklu fylgi, en aðrir flokkar bætt fylgi sitt að sama skapi, aðallega mið- flokkarnir. AIls hafa verið kjörnir 1301 sveitarstjórnarmaður, en greidd atkvæði voru rúmlega 148 þús- und. Hlaut verkamaixnaflokkur- inn 366 menn kjörna með 31.65% atkv. (höfðu 35,33%), en næstur kemur miðflokkurinn með 215 menn og 11,59% (áður 7.62%). Athyglisvert er að vinstri fiokk- urinn hlaut nú 17,29% atkvæða (hafði 15,14%), en hlaut aðeins 188 menn kjörna. Óháðir listar og staðbundnir hlutu nú 197 menn kjörna og 8,32% atkvæða (höfðu 12,68%), Kristilegi flokkurinn 11,21% og 147 menn (áður 9,18%) og hægri flokkurinn 144 menn og 15,95% (áður 15,39%). Þessi kosningaósigur vei'ka- mannaflokks Einars Gerhardsens, forsætisráðherra, hefur vakið mikla athygli í Noregi, en þing- kosningar eiga að fara fram þar í landi á næsta ári. Sjálfur segir forsætisráðherrann um úrslitin: „Verkamannaflokkurinn reikn- aði með nokkru fylgistapi í kosn- ingunum, en ég bjóst ekki við að það yrði svona mikið.“ Benti forsætisráðherrann á að kjörsókn hafi verið dræm, en því íylgi jafnan tap fyrir f jölmennasta flokkinn. Segir Gerhardsen að stöðugar árásir stjórnarandstöð- unnar á ríkisstjórnina og verka- mannaflokkinn hafi haft sín á- hrif á kosningarnar. Talsmaður vinstri flokksins, Bent Röiseland, sagði: „Ég er mjög ánægður með úrslit kosn-' inganna, og sérstaklega með fylgisaukningu vinstri flokksins Svo virðist sem verkamannaflokk urinn hafi misst tök á kjósend- um. Þær verða spennandi þing- kosningarnar næsta ár.“ Dagblöðin eru öll á einu máli um að kosningarnar hafi verið mikill ósigur fyrir verkamanna- flokkinn, og það jafnt flokks- blöðin sem hin óháðu. Telja sum blöðin að úx-slitin marki tímamót í norskri stjórnmálasögu og að frekari „veðurbreytinga" megi eiga von í næstu þingkosning- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.