Morgunblaðið - 30.09.1964, Blaðsíða 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
!
Miðvikudagur 30. sept. 1964
Caledonian
keppir ekki við
Loftleiðir
EINS og MorgrunblaSið hefur
skýrt frá, sótti skozka flugfélag-
i9 Caledonian Airways um leyfi
til brezka flugrráðsins, til þess
að fá að hefja fast áætlunarflug
ineð lágrum fargjöldum á leið-
inni Condon — Prestwick —
New York. Sögrðust forráðamenn
félagrsins mundu veita Loftleið-
um harða samkeppni á flugrleið
inni yfir Atlantshaf, yrði Ieyfið
veitt.
Nii hefur verið frá þvi skýrt,
Gotfred Bernhöft.
Gotíred Bernhöft
lótinn
að leyfið verði ekki veitt. Flug-
félögin British Eagle Internat-
ional og B.O.A.C. höfðu lagzt
gega leyfisveitingunni. Sögrðu
fulltrúar hins síðarnefnda, að
hugrsanlegrt tap félagrsins, ef
leyfið yrði veitt, gæti numið 360
þús. sterlingspundum á ári, eða
3.600 farþegum á þessari flug-
leið árlega.
Virðist því samkeppni félags-
ins við Loftleiðir vera úr sog-
unni að sinni a.m.k.
Caledonian Airways fékk hins
vegar leyfí til þess að skipu-
leggjá fimmtáh dagá hópferðir
til Baridáríkjanna frá Bretlandi
og til Bretlands frá Bandaríkjun-
um. Verða ferðirnar farnar á veg
úm flugfélagsins og þátttöku-
gjaldi mjög í hóf stillt. í apríl-
mánuði n.k. hefjast ferðir þess-
ar, og eiga Bretar þess kost
fyrir rúm 149 sterlingspund að
fara í 15 daga ferðalag til New
York og þaðan til Boston, Nia-
gara-fossa eða Washington, og er
þá allur kostnaður innifalinn.
Bandaríkjamenn, sem nota sér
ferðir þessar til Bretlands, dvelj-
ast sjö daga í Skotlandi og sjö
daga í Englandi. Til samanburð-
ar má geta þess, að sparnaðar-
fargjöld ("economy fares“)
fram og til baka mil.li Bretlands
og Bandaríkjanna eru rúm 142
sterlingspund, — Félagið notar
fiugvélar af gerðinni Douglas
DC 7C á leiðinni.
Floigið verður föstudaga, laugar
daga og sunnudaga.
Mýrarhyrna i Grundarfirði, þar sem 9 kindur eru nú í sjálfheldu á syllum. Ljósm. Sv. Þorm.
Kindur í sjálfheldu í
Crundarfjarðarfjöllum
Sigið 40 m. eftir tveimur í vikuvmi
MIÐVIKUDAGINN 23. sept.
fóru 4 menn frá Grundarfirði,
þeir Sigurður Helgason,
bóndi í Lárkoti, Hallgrímur
Pétursson, Grafarnesi, Þor-
varður Lárusson og Sigurvin
Bergsson í Stöðina, sem er
næsta fjall fyrir utan Kirkju-
fell. Þar var kind með lamb
sitt í sjálfheldu á syllu. Eig-
andi kindarinnar er Sigurvin
Bergsson, og fékk hann hina
með sér til aðstoðar, þegar
hann seig niður á sylluna.
Ekki var um annað að ræða
en síga 40 m. niður á syll-
una, þar sem bjargið slútti
dálitið fram. En aðstaða var
heldur erfið, af því að bergið
er laust í sér þarna. Þótti
þeim óskiljanlegt hvernig
kindin hefði komizt á syll-
una.
Seig Sigurvin niður á syll-
una, en hinir héldu í reipið
og drógu hann síðan upp með
kindina og var það mjög
erfitt verk. Síðan fór Sigur-
vin niður eftir lambinu.
Bæði lambið og kindin
voru mjög aðþrengd og lamb-
ið búið að naga mikið af ull-
inni af kindinni. En talið er
að kindurnar hafi verið
þarna í 10 daga. Fóru menn-
irnir með kindurnar nifður
fjallið að sunnanverðu, sem
er allt greiðfært, og komu
þeim á góðan blett, þar sem
þær ná sér vonandi.
Miklir erfiðleikar eru oft
á að ná fé úr sjálfheldu á
þessum slóðum. I fyrra var
nokkrum kindum bjargað
með mikilli fyrirhöfn og erf-
iðismunum í Mýrarhyrnu,
sem er sunnan við fjallið
Stöð. Var ein kindin skotin,
þar eð ekki var hægt að
bjarga henni. Og nú eru þar
9 kindur á syllum. Sagði Sig-
urður Helgason í Lárkoti
fréttamanni blaðsins að reynt
yrði að ná kindunum nú í vik
unni, og vonandi verður hægt
að bjárga sem flestum. Kind-
urnar sjást vel á syllunum í
fjallinu neðan frá láglend-
inu.
Aðfaranótt þriðjudags varð
Gott'red Bernhöft, stórkaupmað-
ur, bráðkvaddur á heimili sínu
hér í borg.
Gobfred Bermhöft var fæddur
hér í Reykjavík 12. janúar ár-
ið 1905, og befði hann því orðið
sextugur á næsta ári. Foreldrar
hans voru hjónin Wilhelm Bern-
höft, tannlæknir, o0 Kristín
Bernhöft (Þorláksdóttir Ó.
Johnson). Gotfred heition hóf
ungur verzlunarstörf, fyrst hjá
fyrirtækinu H. Benediktsson hf,
an siðar sjálfstætt. Rak hann
fyrirtækið Gotfred Bermhöft &
Co hf um þrjátáu ára skeið.
Kvæntur var hann Kristrúnu
Kristinsdóttur, vagnasmiðs Jóns-
sonar, og eignuðust þau þrjú
börn, Áslaugu, Láru og Birgi.
Gobfred Bernhöft var þekkt-
ur og vinsæll borgari í Reykja-
vik. Hann tók virkan þátt í
margvíslegu félagslífi og stóð
t.d. mjög fraimarlaga í Reykvík
ingafélaginu.
Brezka flugráðið segir í þessu
sambandi, að skapi ákvörðun
þess um að veita leyfi til þessara
hópferða fordæmi, þá sé það
trú ráðsmanna, að „ákvörðunin
sé spor í framfaraátt án þess að
vera óhyggfleg eða gerð í fyrir-
hyggjuleysi. Skoðun okkar er sú
að tími sé kominn til þess að
gera hógværar tilraunir á þess-
ari flugleið með ódýrar hópferðir,
þar sem allt sé innifalið, til að
mæta raunverulegri þörf.“ John
de la Haye, stjórnarformaður
flugfélagsins, sagði um þá ákvörð
un ráðsins að veita leyfi til hóp
ferðanna, að hún væri „söguleg.1*
Flugfélaginu hefði tekizt „að
brjótast í gegn.“ — Hins vegar
er Mbl.. ekki kunnugt um um-
mæli hans vegna synjunarinnar
á fyrri umsókninni.
Fé með betra móti í
V-H úna vatnssýslu
HVAMMSTANGA, 29. sept.
Sumarið var kalt og tafsamt til
heyskapar, en þrátt fyrir það er
heyfengur manna yfirleitt góð-
ur. Spretta garðávaxta mun hafa
verið í meðallagi; kartöflugras
féll snemma í þessum mánuði,
enda voru mikil næturfrost rétt
eftir mánaðamótin.
Göngum er nú lokið hér í
sýslunni, og virðist mönnum, að
lömb séu með betra móti. Fjár-
kaupamenn úr Dalasýslu eru
hérna í dag að kaupa líflömb
í svonefndu Miðfjarðarhólfi á
svæði það, sem skorið var niður
Sex manns í höfninni
MIKIÐ var um að vera við
Reykjavíkurhöfn í fyrrinótt
og fóru þá alls sex manns í
sjóinn, drukkinn skipverji
sem stökk útbyrðis, kunningi
hans á eftir til að bjarga
honum, tveir lögreglumenn
til að bjarga þeim báðum, og
þá datt stúlka út af hafnar-
bakkanum og kunningi henn-
ar stökk á eftir til björgunar.
Við lá að illa færi í annað
skiptið.
Nánari atvik voru þau að
laust eftir kl. 3 kom vaktmað
urinn á Brúarfossi til lögregl-
unnar og tilkynnti að tveir
menn hefðu farið í sjóinn.
Var hér um að ræða tvo skip-
verja á mótorbát, sem lá i
höfninni, og höfðu þeir verið
í heimsókn hjá skipverja á
Brúarfossi. Voru þeir báðir
undir áhrifum áfengis, og
annar þeirra stokkið í ölæði
út af þeirri hlið Brúarfoss,
sem vissi út að höfninni.
Félagi hans stökk á eftir hon
um til að reyna að bjarga
honum, og jafnframt kom
skipverjinn af Brúarfossi,
sem þeir höfðu heimsótt með
kaðalstiga og renndi niður til
mannanna í sjónum. Kaðli
renndi hann einnig niður, og
gat sá, sem á eftir stökk, kom
ið houm á félaga sinn, sem
streittist á móti, svo sem
hann vildi ekki að sér yrði
bjargað. Þannig stóð skákin
er lögreglumenn komu á vett
vang.
Tveir lögreglumenn fóru
niður kaðalstigann og á kaf
í sjóinn og tókst að halda
mönnunum tveimur uppúr
þar til lóðsbáturinn kom og
hægt var að draga þá upp.
Mennirnir voru fluttir í slysa
varðstofuna og hafður vörður
hjá þeim þar um nóttina, en
þeim virtist ekki hafa orðið
meint af.
Skömmu síðar, eða um
fjögurleytið, var tilkynnt að
stúlka hefði fallið fram af
hafnargarðinum, en hun
hafði verið um borð í togara,
sem þar lá. Félagi hennar
stökk á eftir henni, og tókst
lögreglunni að draga þau
upp. Stúlkan var einnig flutt
í slysavarðstofuna.
á, sl. haust í Dalasýslu. Átti það
að vera fjárlaust í eitt ár. Ráð-
gert er að kaupa 8 — 9 þús.
lömb.
Sauðfjárslátrun hjá Kaupfé-
lagi Vestur-Húnvetninga hófst
15. þ.m., en hjá Verzlun Sig-
urðar Pálmasonar 24. Áætlað er,
að slátrað verði um 28 — 29
þús. fjár. Meðalvigt virðist vera
nokkuð betri en sl. haust.
— S. T.
Háskólafyrir-
lestur um skóla-
mál
í DAG kl. 17,30 heldur dr. Tor-
sten Husén, prófessor í uppeidii
fræðum við Kennaraháskólann 1
Stokkhólmi, sem staddur er hé«
á landi í boði Háskóla íslands,
fyrirlestur í I. kennslustofu há-
skólans. Fyrirlesturinn nefnist:
„Straumur í þróun ervópskra
skólamála í menntaskólastiginu“,
— Öllum er heimill aðgangur.
I NA !S hnútor S V S0 hnúior X Sn/óéomo » Ú*i 7 Skýrir E Þrumur W/.:ú KnUmM ^ HihtM H HmM 1 i Lsfi J
UM miðjan dag í gær var
hægviðri og bjart um mestan
hluta landsins, en svo fór að
þykkna upp síðdegis á Vest-
urlandi. Olli því lægðin fyrir
suðvestan, sem var á hreyf-
ingu NA. Á miðunum fyrir
austan land var NV-gola eða
kaldi og skýjað, en batnandi
veður.
Veðurspáin kl. 22 i gærkv.,
fyrir næstS sólarhring: SV-
land til Vestfjarða og miðin:
Gengur í allhvassa SV-átt
með skúraveðri. — Norður-
land og miðin: Vaxandi S-átt
Og rigning vestan til, stinnings
kaldi með morgninum. Geng-
ur í allhvassa SV-átt með
skúrum vestan til. — NA-land
og miðin og Austfirðir: S-
kaldi og síðar SV-stinnings-
kaidi. Víða léttskýjað. —Aust
fjarðamið, SA-land og miðin
og Austurdjúp: Þykknar upp
með vaxandi S-átt. Stinnings
kaldi og rigning, þegar líður
á nóttina.
Horfur á fimmtudag: Sunn-
an og suðvestanátt. Rigning
sunnanlands og vestan.