Morgunblaðið - 30.09.1964, Síða 12

Morgunblaðið - 30.09.1964, Síða 12
MORGUNBLAÐID Miðvikudagur 30. sept. 1964 Dr. Guðmundur Sigvaldason jarðefnafræðingur við nýja röntgen spektrograf tækið, sem er gjöf frá Atlantshafsbanda laginu. Það er notað til rannsókna á jarðefnafræði jarðhita- svæðanna. nýtt, svo þá fæst algerlega ný vinnuaðstaða. Aðaluppstreymi heita vatnsins ákvarðað — Aðaláherzlan er lögð á jarðfutarannsóknirnar sem fyrr segir, segir Guðmundur sem svar við spurningu um verkefnin. Rannsóknirnar skiptast aðallega í þrennt. í fyrsta lagi rannsóknir á efna- samsetningu heita vatnsins og myndbreytingum sem verða í berggrunni jarðhitasvæðanna Út frá þessum athugunum vonumst við til að geta sagt til um uppruna vatnsins og hreyfingar þess í jarðlögun- um. T.d. er möguleiki á að staðsetja aðaluppstreymi vatns á hverasvæði með því að styðjast við efnagreining- ar á þeim verum, sem koma fram á svæðinu, og athuga hvaða efnáskipti hafa átt sér stað milli bergsins og vatns- ins Við erum þannig að reyna að finna einhverja hag nýta leið til að staðsetja aðal uppstreymi vatnsins. — Á þannig að vera hægt að segja til um hvar á svæð- inu skuli bora til að hitta á aðaluppstreymi heita vatns- ins á svæðinu? — Við vonum að ásamt öðru verði hægt að styðjast við það við staðsetningu á borunum. Þetta er það sem sit ur fyrir hjá okkur og við verj um mestum tíma í. í öðru lagi erum Við að safna upplýsingum um efna- samsetningu heits vatns og lofttegunda á jarðhitasvæð- um á öllu landinu, en hún er mjög mismunandi. T.d. er hægt að skipta jarðhitasvæð- um í fjóra flokka á grundvelli etfnagreininga á gasirnu, þ.e. 1) köfnunarefnissvæðin, 2) koldioxið-svæðin, 3) vetnis- svæðin, 4) brennisteinssvæðin. Þessi skipting er að vissu leyti alveg sérstæð fyrir ís- land. Þess má geta að ég veit ekki til að neins staðar í heim inum hafi fundizt jafn mikið af vetni á hverasvæðum og í Námaskarði og í Kverkfjöll- um. Nú um daginn gerðum við út leiðangur í KverkfjöU- in og komumst m.a. að þessu. Ætlun okkar er að safna sýnishornunum og reyna að byggja smám saman upp upp- lýsingasafn og gera það þann- ig úr garði að það sé öllum að gengilegt Ná gufum úr Surti í þriðja lagi þurfum við að rannsaka tilfallandi eldgos, því jarðhitarannsóknir eru nátengdar þeim, einkum með tilliti til gastegunda sem koma upp í gosum. í Öskjugosinu fengum við t.d. einstakt tæki- færi til að rannsaka hvera- svæði, sem myndast á und- an eldgosi Við höfum þvi reynt að safna eftir föngum sýnishornum af gufu og vatni í gosunum. T.d. fórum við til gassöfnunar í Surtsey og náð- um þar gastegundum úr 900 stiiga heitri sprungu En þar sem sýnishornasöfnun í eld- gosum er hættuleg og erfið, vill árangurinn verða rýr. í þessu tilfelli höfðum við t.d. ekkert annað upp úr krafs- inu en andrúmsloft og sjávar gufun. En við vonum að þeg ar linnir og skán kemur á sjálfan gíginn, þá getum við farið þangað með bor og náð gufu þannig. Mjög sjaldan hefur tekizt að ná gosgufu frá gjósandi eldfjalli. Beztu sýnis hornin hafa fengizt á Hawaii með borun í storknandi gos- tjörn. — Svo ert þú líka að at- huga efnabreytingar fyrir gos eins og Kötlugos? — Já við gerum greiningu á vatninu í ánum, sem renna þaðan, með það fyrir aug- um að sjá breytingar á því, hvort sem það ber nú árang- ur til að segja fyrir um gos eða ekki. Við héldum að við værum fyrstir til að reyna þessa aðferð, en svo kemur á daginn að fleiri eru einnig að gera tilraun með hana. Japani einn, sem hér kom, hefur ein- mitt gert efnagreiningu á hverasvæði í Japan. Hans greining náði yfir árin 1949- 54. í desember 1951 varð smá- gos, og það reyndizt svo að fyrir gosið hækkaði t.d. klór- innihald vatnsins um 100%. Þetta er mjög uppörvandi fyrir okkur. Einnig hefi ég heyrt að Nýsjálendingar séu Framh. á bls. 13 Deild til jariefnafræði- rannsökna komið upp r * Agætlegu búin tækjum og Rcétt við dr. Guðmund Sigvaldason f FRÉTTUM er frá því skýrt að NATO hafi gefið til ís- lands mikið og dýrt efnagrein ingartæki svokallað „Rönt- gen fliJorezence spektrograf“ og er það nú uppsett í At- vinnudeildarhúsinu, tilbúið til notkunar. í iðnaðardeild- inni þar er nú unnið að því að byggja upp jarðefnafræði- legar rannsóknir á jarðhita- svæðunum. Slíkar rannsókn- ir eru alveg nýtilkomnar hér á íslandi. Forustuna hefur dr. Guðmundur Sigvaldason, jarð efnafræðingur, sem kom heim til starfa rétt I þann mund sem Askja byrjaði að gjósa og tók til óspilltra mál anna. Hefur hans öðru hverju verið getið síðan í fregnum af Öskjurannsóknum, Surts- eyjargosi, athugunum á ánum 1 sem koma undan Mýrdals- ) jökli o.fl., nú síðast í sam- bandi við það að Bandarikja- maðurinn Poul Bauer veitti I i fé til rannsókna á lofttegund | um á hitasvæðunum og þá einkum lofttegundum í sam- 'bandi við Surtseyjargosið. 1 Ýmislegt fleira hefur Guð í mundur og félagar hans í ( jarðefnafræðideild iðnaðar- deildarinnar á prjónunum, og ] ' því leggjum við leið okkar í I , Atvinnudeildarhúsið á Há- j skólalóðinni, til að hnýsast í j störf þeirra og spyrja Guð- I mund hvað þeir hafist að. | j ' — Já, það er rétt, við erum að byggja hér upp aðstöðu til jarðefnafræðilegra rann- sókna, segir Guðmundur. Verkefnin eru mest í sam- bandi við jarðhita og al- j1 menna eldfjallafræði og aðal j áherzlan lögð á jarðhita- rannsóknir. Við vinnum þrír að þessu. Auk mín eru Gunn- ! laugur Elísson, efnafræðingur , og Sigurður Steinþórsson, ji jarðfræðingur, sem er ný- 1 kominn heim frá námi. Það ! hefur verið gert mjög vel við j okkur hvað þessa uppbygg- ingu snertir. Sú aðstaða sem ' við höfum fengið hér á At- i vinnudeildinni er góð og við I höfum getað keypt þó nokk- uð af dýrum tækjum, bæði með innlendu og erlendu fjár magnL Nýja tækið frá NATO, sem kostaði 10.643 dollara eða um hálfa milljón, breytir ' alvég vinnubrögðunum. Það getur efnaigreint næstum hvað sem er og tekur sýnishornin lítið undirbúin. T.d. getur efna- greining á bergtegund með því' tekið 5-6 klst., en tók vikur áður. Það er þriðja og mikilvægasta tækið okkar til efnaigreiningar. Áður erum við búnir að kaupa tæki sem eru 5000 dala virði. Við vorum nýbúnir að fá og setja upp tvö mikilvæg tæki. Annað er keypt hingað frá Ameríku og efnagreinir lofttegundir og sér Gunnlaug- ur Elísson um það. Að því er igeysilegur vinnusparnaður og í því getum við mælt minna magn og fleiri efnasambönd en við höfðum tök á áður. Og til skýringar sýnir Guð- mundur blaðamanninum hvernig hægt er að láta við- komandi sýnishorn í tækið í einu lagi, efnin í því tefjast mismikið á leiðinni gegnum starfskröftum það, en útkomuna má lesa á sjálfritandi mæli. Þannig sett fram virðist þetta afar einfalt. t Hitt tækið var keypt -frá Rússlandi og er notað til að mæla í jarðvegi, vatni og fleiru snefilefni, sem eru þau efni er koma fyrir í mjög litlu magni, svo sem einn á móti milljón. Tækið getur því greint 1 gramm af ein- hverju efn-i í tonni. Við þetta var svo smíðað viðbótartæki hjá Raftækni, sem gefur orku til að brenna sýnishornið við um 3000 stiiga hita, og kostaði það tæki heimasmíðað þriðj- ung af því sem það hefði kostað erlendis. Þriðja tækið, nýja tækið frá NATO, getur einnig tekið snefilefni, en það greinir líka efni sem hitt tek- ur ekki, einkum þau sem liggja fyrir í meira magnL NATO veitti okkur semsagt styrk til að fá þetta mikilvæg- asta tæki til viðbótar við hin. Þagar talað er um tækja- kostinn, mætti líka nefna röntgentæ-kið, sem Atvinnu- deildin fékk í fyrra og kostaði 430 þús. kr., og sem þá var sagt frá. Mun standa til að viðbót komi við það líka. — Ég er sem sagt mjög ánægður með hvernig geng- ið hefur að fá tæki, segir Guð mundjar. Við erum að verða eins vel útbúnir af tækjum og ýmsar erlendar rannsókn- arstofnanir í jarðfræði. Það er sem sagt kominn ágætur kjarni hvað tæki snertir. Einnig er ég mjög ánægður með hvernig gengið hefur að fá nýja starfskrafta. Annað er verra og það er að verk- efnin eru svo mörg og að- kallandi að maður er í vand- ræðum með hvar eiigi að byrja. Þetta er allt svolítið í óreiðu hjá okkur núna hér í vinnustofunum. Verið er að rífa innan úr efnagreiningar- salnum hér í Iðnaðardeild- inni og skipulegigja allt upp á Gunnlaugur Elíasson, efnafræðingur, við tæki_ sem efna- greinir lofttegundir, bæði í litlu magni og margar. J ) Sigurður Steinþórsson, jarðfræðingur, við tæki, sem notað er til greiningar á snefilefnum í jarðvegi, vatni o.fL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.