Morgunblaðið - 30.09.1964, Síða 17

Morgunblaðið - 30.09.1964, Síða 17
MORGUN BLAÐIÐ 17 Miðvilcuéfagur 30. sept. 1964 Þessi mynd er tekin í herberginu á 6. hæð skóla bókageymslunnar í Dallas. Þama mundar lög- reglumaðurinn kíkirsriffil Oswalds, þann sem bar númerið C. 2766, með áfastri kvikmyndavél vegna sviðsetningar morðsins á Kennedy forseta. — Warren-skýrslan | Framh. af bls. 15 að varða við lög sambandsríkis- ins að myrða forseta eða vara forseta Bandaríkj anna. „Það eetti að vera gjlæpur gegn Bandaríkjunum að myrða sérhvern háttsettan opinberan starfsmann", sagði Lee Metcalf, öldungadeildarþingmaður demó krata fyrir Montana-ríki, „bæði meðlimi ríkisstjórnarinnar, öld- ungadeildarþingmenn og þing- menn fulltrúadeildarinnar, en einkum þó æðstu embættismenn landsins, forsetann og varafor- setann“. Johnson skipar nefnd JOHNSON forseti hefur skipað fjögurra manna nefnd, sem á að vera honum til aðstoðar varð- andi framkvæmd ráðstafana þeirra sem Warren-nefndin mæl ir með í skýrslu sinni. Nefndin lagði m.a. til, að aukn ar yrðu öryggisráðstafanir til verndar forseta Bandaríkjanna og ennfremur að um morð á for- seta eða varaforseta yrði fjall- að af yfirvöldum sambandsrík- isins. | í nefndinni eiga sæti eftirfar- andi menn: Douglas Dillon, fjár málaráðherra, Nicholas Katzen- bach, settur dómsmálaráðherra, J. Maccone, forstöðumaður leyniþjónustunnar (CIA) og MacGeorge Bundy, sérlegur að- stoðarmaður Johnsons forseta í j málum er varða öryggi ríkisins. Gert er ráð fyrir því, að Dillon ] verði formaður nefndar þessar- ! ar, sem m.a. mun eiga að vinna að auknum öryggisráðstöfunum til verndar forseta landsins. j Ekki var talið ósennilegt, að nefndin fjallaði einnig þá höf- : txðspurningu, hvort fela ætti einhverri annarri stjórnardeild en leyniþjónustunni öryggisráð stafanir Bandaríkjaforseta til verndar. Ég er sannfærður I Robert Kennedy, sem nú er í framboði til öldunigardeildar I Bandaríkjaþings fyrir demó- I krataflokkinn í New York ríki, I lét eftirfarandi yfirlýsingu frá • sér fara um kosningaskrifstofu sína: í „Eins o.g ég siagðf í Póllandi ' í fyrra, þá er ég sannfærður uim ! að Oswald hafi einn borið i. alla ábyrgð á því sem gerðist I og að hann hafi ekki notið ! hjálpar eða aðstoðar annarra. | Hann var maður óánægður með lífið og tilveruna sem ekki hefi getað vegnað vel, hvorki Ihér né í Sovétríkjunum. j Ég hef ekki lesið skýrslu nefndarinnar og ætla mér held- ur ekki að gera það. En mér hef- ur verið kunngert efni hennar og ég er sannfærður um að nefndin rannsakaði alla möigu- ' leika sem til greina komu og athugaði sérhvert sönnunar- gagn. Rannsókn nefndarinnar ! var ítarleg og samvizkusam- leg“. í Kennedy var í Washington - þegar þessi ummæli hans voru birt. „Ég á heimtingu á að fá að vita hið sanna“ j Frú Marguerite Oswald, móð- ir Lee Harvey's býr enn í lít- illi íbúð sinni og vinnur ekki fulla vinnu en segist eyða til ; þess öllum tíma sínum, sem hún eigi aflögu og allri orku, að „komast að hinu sanna um imorðið“. Hún gagnrýnir Warren-nefndina harðlega fyT- ir ófullkomna skýrslu um morðið á Oswald og segir að skýrsluna í heild hefði ekki átt að birta fyrr en allar staðreynd ; ir um það lægju ljósar fyrir. „Sonur minn var myrtur og ég | á heimtingu á að fá að vita hið sanna í málinu" sagði hún. „Það er mógun við Oswald- í fjölskylduna oig greind banda- rísku þjóðarinnar að gefa þessa bók (Warren-skýrsluna) út, án þess að segja skilmerkilega frá J>ví er Jack Ruby myrti son minn“ , Frúin sagði ennfremur, að rannsóknir, sem farið hefðu fram á hennar vegum um 10 mánaða skeið og kostáð hefðu meira en 1.000 dali, hefðu leitt í ljós fjölda atriða sem brytu algerlega í bága við niðurstöð- ur nefndarinnar. „Ég ætla mér ekki að halda því fram að ég hafi á réttu að standa og þeir á röngu“, sagði Marguerite Os- wald‘ „en ég læt mig ekki fyrr en allt er á hreinu í málinu“. Þá ber frú Oswald mjög ein- dregið á móti því, að Lee Har- vey hafi verið, eins og nefndin hefði gefið í skyn, „fyrirfram dæmdur“ vegna slæmra upp- eldisáhrifa og umhverfis í æsku, til þess að verða morð- ingi. „Þetta er móðgun" sagði hún, „það bendir ekkert til þess í söigu sonar míns, að það hafi átt fyrir honum að liggja að verða morðingi — hann var ekki þjófgefinn, drakk ekki, var ekki á sífelldum flækingi — þetta er fáránleg ásökun“. Marguerite Oswald gagn- rýndi einnig tengdadóttur sína, Marinu, fyrir að taka gilda hina opinberu kenningu um morðið og sakaði hana um að hafa sagt rangt til um dagbók Oswalds. Ekkja Lee Harvey Oswalds, Marina, virtist týnd og tröllum gefin, er fréttamenn leituðu hennar á sunnudaginn til þess að spyrja hana um Warren- skýrsluna, oig m.a. þá niður- stöðu nefndarinnar að það hafi verið eiginmaður hennar, sem skotið hafi Kennedy forseta til bana. Jack Leggett, fulltrúi bóka- útgefandanna Harper & Row, í New York, sagði að Marina Oswald dveldist nú fjarri mannabyggðum ásamt kvenrit- höfundi nokkrum, sem væri að hjálpa henni við að skrifa bók. Kvaðst Leggett hafa verið send- ur til Dallas til að svara fyrir- spurnum um dvalarstað Marinu. Hann sagði að allt það sem hún myndi vilja láta hafa ef£ir sér um Warren-skýrsluna myndi koma fram í bókinni. Robert Oswald, hinn þrítugi bróðir Lee Harvey’s, sagði á blaðamannafundi í dag, að hann væri sammála skýrslu Warrem nefndarinnar, sem „vinur“ hans hefði látið hann fá, en hann gæti ekki varizt þeirri tilhugs- un, að einni spurningu væri enn ósvarað. „Ég get ekki að því gert, en mér finnst endi- lega að einhver hafi einhvern vegin komið þessari hugmynd í heila bróður míns, beint eða óbeint“, sagði hann. Robert Oswald hefur lítið gefið sig að fréttamönnum og sagði að sér hefði fundizt það vera í þágu rannsóknanna, sem hann teldi að hefðu verið mjög ítarlegar og vel unnar í alla staðL Dallas: Ekki hatur eða andúð um að saka Borgarstjórinn í Dallas, Erik Jonsson, sagði á mánudag, að hann vonaði að skýrsla Warr- en-nefndarinnar kveddi niður fyrir fullt og allt þá sögusögn, að almenn andúð manna í Dall- as hefði ýtt undir morðið á Kennedy forseta. Hann benti á, að Warren- nefndin hefði ekki fundið neitt því til sönnunar, að öfgamenn til hægri eða eitthvert sérstakt hatur Dallasbúa á forsetanum hefði getað átt nokkurn þátt í atferli Lee Harvey Oswalds. John Stemmons, sem er for- maður hins volduga borgarráðs í Dallas, sagði. að skýrsla nefnd- arinnar væri fullnægjandi svar við illkvittnum ásökunum um að í Dallas væri allt fullt af hatursmönnum Kennedys. Henry Wade, saksóknari, er sammála Warren-nefndinni um að margar þær sögur sem spunnust um morð forsetans hafi mátt rekja til þess að fréttamenn fengu rangar upp- lýsingar. Lögreglan í Dallas, sem sætti gagnrýni Warren-nefndarinnar, fyrir vanrækslu í starfi hefur ekkert viljað um skýrslu nefndarinnar segja. Edwin Walker, hershöfðingi, sem er mjög langt til hægri, hefur gagnrýnt skýrsluna og segir að tilgangurinn með henni sé að leyna einhverju samsæri. Erfitt að láta Oswald njóta sannmælis fyrir réttinum Henry Wade saksóknari og Tonahill, lögfræðingur, lýstu því yfir á sunnudag, að þeir væru sammála Warren-nefnd- inni í því að erfitt myndi hafa reynzt að láta Lee Harvey Os- waLd njóta sannmælis fyrir réttinum. í skýrslu nefndar- innar segir m.a. um þetta: „Hin- ar mörgu yfirlýsingar, sem oft voru á röngum rökum reistar, er fréttamönnum voru gefnar á lögreglustöðinni í Dallas þennan tíma, sem svo mikil ó- reiða og ruglingur ríkti í hví- vetna (aðfaranótt 23. nóvember og allan þann dag) hefðu verið alvarlegur Þrándur í Götu þess að Oswald gæti notið sannmælis fyrir rétti.“ Komst nefndin að þeirri nið- urstöðu, að það hefði verið Lee Harvey Oswald, 24 ára gamall yfirlýstur marxisti, sem skaut John F. Kennedy forseta til bana. Hann var tekinn höndum einum og hálfum klukkutíma eftir morðið og var sjálfur skot- inn til bana að morgni hins 24. nóvember. Jack Ruby, nætur- klúbbseigandi í Dallas, var dæmdur til dauða í marz fyrir morðið á Oswald. Wade var sak sóknari í málinu, Tonahill, á- samt fleirum, verjandi. „Lögregluyfirvöldin í Dallas lýstu því yfir í sjónvarpi og básúnuðu út um allan heim, að þau hefðu með höndum næg sönnunargögn til þess að senda Oswald í rafmagnsstól- inn“, sagði Tonahill. „Ég skil ekki, að hann hefði getað sætt sanngjarnri meðferð fyrir rétti eftir slíkar yfirlýsingar.“ Wade sagði, að betra hefði verið, að enginn hefði neitt lát- ið uppi varðandi sönnunargögn gegn Oswald. „Sannanirnar hefðu allar átt að koma úr vitna stúkunni," sagði saksóknarinn. „Þannig hefði átt að vinna þetta. En það skapast ýmis ó- fyrirséð vandamál þegar for- setinn hefur verið myrtur. Fréttamenn æptu og slógust um upplýsingar um hinn seka og það var talað um að lög- reglan væri að berja þetta út úr honum (Oswald)“. 23. nóvember sagði Wade við fréttamenn, að hann væri þess fullviss að Oswald yrði dæmd- ur til dauða og sama dag sagði Will Fritz lögregluforingi, við fréttamenn: „Þessi maður (Os- wald) drap forsetann". Tona- hill sagði á sunnudag að um- mæli sem þessi hefðu átt sinn þátt í því að Jack Ruby drap Oswald. „Jack (Ruby) sagði að yfirvöldin hefðu þegar dæmt hann (Oswald) til dauða og það ýtti undir sjúklega áráttu hans“, sagði Tonahill. Annars kvaðst Tonahill mjög ánægður með skýrslu nefndar- innar, nema hvað honum fannst hún hefði átt að leggja á það áherzlu, að morðið „ætti að töluverðu leyti rætur sínar að rekja til kommúnisma". „Mér finnst það gefa auga leið“, sagði Tonahill, „að morð- ið hafi sprottið af hatri Os- walds, sem honum kom í Sovét- ríkjunum, á öllu hinu góða, sem Bandaríkin hafa upp á að bjóða“, og bætti við, að ef verj- endur Ruby’s hefðu fengið að leggja meiri áherzlu á komm- únistann Oswald, hefði það orð- ið til þess að milda dóminn yfir Ruby. Tonahill sagði, að hann og Melvin Belli, sá sem var fyrir verjendum Ruby’s, hefðu gert til þess ítrekaðar tilraunir að tala um Oswald sem kommún- ista, en fulltrúar saksóknara hefðu mótmælt hverju sinni og dómarinn Joe B. Brown jafnaa tekið mótmælin til greina. Óréttlát meðferð á Ruby Melvin Belli, lögfræðingur- inn, sem fenginn var til þesa að verja morðingja Lee Harvey Oswalds, sagði að Warren- skýrslan staðfesti þá skoðun sína, að Ruby hefði ekki hlotið réttláta meðferð fyrir dómL Sagðist Belli hafa lesið útdrátt úr skýrslunni og hefði það eink um vakið athygli sina, að i henni segði að ummæli lögregl- unnar í Dallas og saksóknarans þar hefðu komið í veg fyrir slíkt. „Þetta staðfestir þá full- yrðingu mína, að Ruby hefði ekki getað fengið réttláta dóms meðferð og staðfestir einnig þau ummæli mín, að hann hafi verið beittur hörku og að dóm- stóllinn hafi verið fyrir neðan allar hellur, hvað sem Samband bandarískra lögfræðinga segir.“ Sambandið vítti Belli, er hann gagnrýndi bæði saksóknar- aðila, dómara og dómstólinn, sem dæmdi Ruby sekan um morðið á Oswald. „Ég held að skýrslan ætti að kveða niður í eitt skipti fyrir öll kenninguna um, að sam- særi hefði legið að baki morð- inu“, sagði Belli, „og eitthvað bæta um fyrir okkur á erlend- um vettvangi. Nú á nefndin bara eitt eftir — að rannsaka það sem skiptir meira máli en dauði forsetans, og það eru hin lifandi lög, það er að segja réttlætið í Dallas.“ Jafnað til Dreyfus-málsins New York-lögfræðingurinn Mark Lane, sem haldið hefur því fram mánuðum saman í opinberum fyrirlestrum, að hann trúi því ekki að Lee Har- vey Oswald hafi myrt Kenne- dy forseta, hefur sagt að skýrsla Warren-nefndarinnar auki enn á efasemdir hans. „Skýrslan vekur manni fjölda spurninga umfram þær sem hún svarar“ sagði Lane á fundi með fréttamönnum. Mark Lane var til þess feng- inn, kauplaust, í janúar sl. af móður Oswalds, að verja hann fyrir Warren-nefndinni. Samn- ingi þeirra lauk í apríl sl. Lögfræðingurinn hefur síðan haldið fyrirlestra í Bandaríkj- unum og Evrópu um mál þetta og lét svo ummælt í London í júní, að Warren- nefndin myndi aldrei komast að hinu sanna í málinu. I Búdaprest sagði Lane, að morð- ingjar Kennedy's forseta léku enn lausum hala og lagði til að skipuð yrðí alþjóðleg nefnd til þess að rannsaka málið. Mark Lane kom fyrir Warr- en-nefndina í júlí og neitaði þá öðru sinni að leggja fram segulbandsupptöku, sem hann kvaðst eiga í fórum sínum af viðtali við konu eina, sem orðið hefði vitni að morðinu á lögreglumanninum í Dallas, J. D. Tippitt, sem myrtur var skömmu eftir morð forsetans. . Kona þessi sagði nefndinni, að hún hefði aldrei við Mark Lane talað. Earl Warren, forseti Hæsta- réttar og formaður rannsóknar- nefndarinnar, sagði .við Lane, að hann teldi sig hafa gildar ástæður til þess að efast um sannleiksgildi margs af því sem Lane hefði lagt til mál- anna ef ekki fengist á því frek- ari staðfesting. Lane lét svo ummælt við fréttamenn, að skýrsla Warren- nefndarinnar svaraði ekki ýmsum þeim spurningum, sem hann hefði vakið máls á og sagði, að henni væri ætlað það hlutverk eitt að róa taugar manna í Bandaríkjunum. Lane sagði að birtingar Warren- skýrslunnar yrði minnzt - 1 mannkynssögunni, sem atburð- ar, er jafnaðist á við það er Dreyfus var sekur fundinn um landráð oig réttarhöldin yfir Trotskyistunum í RússlandL / Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.